Alþýðublaðið - 25.10.1969, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 25.10.1969, Blaðsíða 13
Ritsfjóri: Örn Eiðsson Arið 1970 verður ár íþróitanna á íslandi KOMNAR TILLÖGUR VETRARHÁTÍÐ Læknaritari Ung stúlka óskast til ritarastarfa á skurð- læknmgadeild Borgarspítalans. Stúdents, verzlunarskóla, eða hliðstæð menntun áskil- in. Umsóknir, er greini aldur, nám og fyrri störf, sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur, Borgarspítalanum, fyrir næstkomandi mið- vikudagskvöld. Reykjavík, 24. 10. 1969, Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur. Félag járniðnaðarmanna: Félags- fundur verður haldinn þriðjudaginn 28. okt. 1969 kl. 8.30 e.h. í Góðtemplarahúsinu, Suðurgötu 7, Hjafnarfirði. Dagskrá: 1. Féla'gsmál. 2. Um starfsmat, Gunnar Goittormsson. 3. Önnur mál. * , Mætið vel og stundvíslega. Stjórn Félags járniðnaðarmanna. Tiihoð óskast í nokkrar fólksbifreiðar og sendiferðabifreið er verð'a sýndar að Grensásvegi 9, miðviku- daginn 29. októ'ber kl. 12—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5. Sölunefnd varnarliðseigna. □ Mörgum finnst orðið nóg um íþróttamót hérlendis, en þó eru það smámunir einir miðað við fjölda iþróttamóta og leikja er- lendis. Á næsta ári má þó búast við, að fjöldi íþróttamóta slái öll fyrri met en hæst mun bera íþróttahátfð ÍSÍ sem haldin verður í tilefni 50. í- þróttaþings ÍSÍ. íþróttasambandið mun efna til mestu íþrtóttahátíðar, sem fram hefur farið hér á landi. í fyrsta lagi verður haldin Vetrar- íþróttahátíð á Akureyri 28. febrúar til 8. marz, en Sumaríþróttahátíð- in fer fram í Reykjavík 5. til 12. júlí. Aðalhlutí hátíðarinnar 1 fer fram í Laugardal, en keppt verður víðar í borginni. íþróttasambandið hefur skipað tvær nefndir til að sjá um þessi stórmót, en reiknað er með, að þátttakendur skipti þúsundum, þannig, að hér verður um mót að ræða á alþjóðlega vísu, hvað þátttöku snertir. Þess skal getið, að hluti þess- arar miklu hátíðar verður alþjóð- legur, boðið verður íþróttafólki af hinum Norðurlöndunum til keppni hingað. Það er mikilvægt fyrir íþrótta hreyfinguna, að þessi hátíð fari vel fram og verði íþróttunum til sóma og er raunar ekki að efa, að svo muni verða. Gerður hefur verið rammi um Vetrarhátíðina og við munum birta þær tillögur hér á eftir: Laugardagur 28. febrúar: Setning hátíðar á sundlaugar- svæði. Sunnudagur 1. marz: Vígsla stökkbrautar í Hlíðar- fjalli. Skrautsýning í Hlíðar- fjalli. Vígsla skautasvæðis. Mánudagur 2. marz: Stórsvig, unglingar. Ganga urrglingar. Hraðhlaup á skaut- um (500 m og 3000 m.) Þriðjudagur 3. marz: Svig unglingar. Hraðhlaup á skautum (1500 og 5000 nr). íshokkeykeppni, listhlaup- sýning. Miðvikudagur 4. marz: „í faðmi blárra fjalla." Skíða- ferðir og kynnisferðir í Hlíðar- fjalli. Keppni gesta og ferða- fólks í ýmsum atriðum. Fimmtudagur 5. marz: Stökkkeppni, karlar og ungl. 17—19 ára. Föstudagur 6. marz: Stórsvig karla og kvenrra. íshokkeykeppni „Curling." Laugardagur 7. marz: Svig karla og kvenna. '\ Sunnudagur 8. marz: Ganga karla. Lokaathöfn. Allan tímann: Leiksýningar — Kabarett — Dansleikir — Sýningar, fræðslu myndir og fyrirlestrar — Ung- lingadansleikir — Keppnir í skák og bridge. Skipulag Sumaríþróttþhátíðarinn ar er ekki eins komið. Um þann þátt segir svo í fréttum frá ÍSÍ: Keppa skal í sem flestum þeim íþróttagreinum, sem iðkaðar eru innan íþróttasambandsins, það er að segja: Glíma, badminton, Blak, Borð- tennis, Frjálsar íþróttir, Golf, Hand knattleikur, Judo, Krrattspyrna,, , Körfuknattleikur, Kástíþróttir, Leik fimi, fimleikar, Lyftingar, Róður, Skautíþróttir, Skíðaíþróttir, Skot- fimi, Sund, Skylmingar, Tennis. Athuga skal, hvort hægt sé að keppa í: Siglingum og Sjóskíðum. Ef þessi hátíðahöld takast vel, sem allir vona, er að íþróttamál- um vinna, getur það orðið til þess að margir forystumenn þjóðarinrr- ar skilji enn betur en áður, að nauðsyn er, að hlúa betur að þess ari starfsemi en gert hefur verið til þessa.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.