Alþýðublaðið - 12.12.1969, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 12.12.1969, Blaðsíða 3
AUþýðuMaðið 12. desem'ber ,1969 3 Alþýðuflokksmenn á Akureyri: RÁÐGJAFANEFND UM BÆJARMÁLEFNI □ Aðalíundur Alþýðuflokks- félagsins á Akureyri var hald- inn hinn 23. nóvember s.l. Kol- beinn Helgason fráfarandi for- maður félagsins baðst eindreg- ið undan endurkjöri, en hann hefur verið formaður félagsins undanfarin þrjú ár. Einnig baðst undan endurkjöri Hall- grímur Vilhjálmsson, sem átt hefur sæti í aðalstjórnum fjölda ára. — Formaður félagsins var .kjörinn Albert Sölvason. Fundurinn var haldinn í hinu nýja félagsheimili við Strand- götu 9. Er hér um vistlegan fundarsal að ræða — og hafði Kolbeinn Helgason forystu um -þessar framkvæmdir, en lag- tækir félagsmenn unnu verkið að mestu í sjálfboðavinnu og færði formaður þeim beztu þakkir fyrir. Með hinum nýja fundarsal bættist mjög aðstaða jafnaðarmanna á Akureyri til aukinnar félagsstarfsemi, en hús Getum sett Framh. af 1. síðu. könnun fyrir íslenzkar niffur- soffnar og' niðurlagffar sjávaraf urffir á áffurgreindu markaðs- svæffi, héldu meff blaffamönn- um í gær. Á blaðamannafundinum í gær sljýrði Pétur Thorsteinsson ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu neytinu frá því, að ríkisstjórn in hefði á s.l. ári snúið sér til Iðnþróunarstofnunar S. Þ. og farið þess á leit, að hún aðstoð aði íslendinga við markaðsrann sóknir fyrir ísl niðursuðuvör ur. Veitti stofnunin fjórar millj ónir króna til þessa verkefnis. Var kanadiska fyrirtækinu Stevenson og Kellogg falið að Iframkvæma rannsóknind. >—• Heildarskýrsla um starf kana- diska fyrirtækisins í þessu efni mun væntanlega liggja fyrir í janúar n.k. Stjórnandi rann- sóknarinar, dr. Deham, skýrði fréttamönnum hins vegar frá helztu niðurstöðum hennar á blaðamannafundinum í gær. Hann sagði meðal annars, að það væri engum efa undirorpið ■ að góður markaður væri fyrir ísl. niðursuðuvörur í Banda- ríkjunum, Kanada, Bretlandi, Vestur-Þýzkalandi og Frakk- landi, en til þessara landa náði markaðsrannsóknin. ís- lenzkar niðursuðuvörur væru fyrsta flokks vara. Það skipti meginmáli, að orðstír ísl. nið ursoðinna og niðurlaðgra sjáv arafurða erlendis væri góður. Neytendur í þessum löndum næði hefur mjög háð starfsemi félagsins til þessa. Aðalstjórn Alþýðuflokksfélags Akureyrar skipa nú: Albert Sölvason, formaður, Þórir Björnsson, varaformaður, Val- garður Haraldsson, ritari, Stef- án Snæbjörnsson, gjaldkeri, og Sigursveinn Jóhannesson með- stjórnandi. Varastjórn skipa: Haukur Har aldsson, Reynir Ragnarsson og Karl Friðriksson. Að loknu stjórnarkjöri urðu fjörugar og almennar umræður um ýmis mál, svo sem um bæj- armál. Kjörin var sérstök nefnd er skal vera ráðgefandi fyrir stjórn Alþýðuflokksfélagsins varðandi máiefni bæjarins. í nefndina voru kjörnir Þorvald- ur Jónsson, Valgarður Haralds- son og Haukur Haraldsson. Mik ill einhugur ríkti á fundinum um vaxandi brautargengi Al- þýðuflokksins á Akureyri. — vissu, að í grennd við ísland væru góð fiskimið og þar væri góðan fisk að fá og ennfremur vildu húsmæður í þessum mark aðslöndum einmitt fá fisk, sem væri veiddur í köldum sjó, en þessi atriði hefði ísland með sér við markaðsöflun. En sérfræðingurinn benti einnig á atriði, sem ekki væru fslendingum í vil í þessum efnum. Sagði hann, að það gerðist þráfaldlega að íslend- ingar svöruðu ekki bréfum, þeg ar áhugamenn erlendis spyrð- ust fyrir um möguleika á við- skiptum við ísl. fyrirtæki; þeir svöi’uðu jafnvel ekki símskeyt- um. Til þess að íslendingar kæm ust inn á erlenda markaði með niðursoðnar og niðurlagðar sjávarafurðir yrðu þeir að haga framleiðslunni eftir því, hvaða og hvers konar vöru kaupend- urnir vildu kaupa, en til þessa hefði það verið einkennandi, að íslendingar hefðu framleitt vörur eftir sínu eigin höfði, án tillits til sölusjónarmiða og sölutækni. Benti dr. Denham á nauðsyn þess, að pakkningar vörunnar og það, sem þær gæfu til kynna um innihaldið vferu sem bezt og vandlegast úr garði gerðar. Hins vegar þyrftu íslendingar engu að kvíða varðandi gæði vömnnar, þau væru eins og bezt væri á kosið. Dr. Denham tók sérstaklega fram, að íslendingar ættu að geta selt eins og fyrr segir nið ursoðnar og niðurlagðar sjáv- arafurðir fyrir um 10 milljón dollara á ári með þeim fram- leiðslutækjum, sem fyrir væru í landinu. Hins vegar bæri brýna nauðsyn til, að framleið endurnir tækju upp nána sam vinnu og framleiddu vörur sín ar undir einu merki og kæmu upp sameiginlegu sölukerfi og opnuðu sameiginlegar söluskrif stofur í markaðslöndunum. Enn fremur þyrftu íslendingar að istanda vel á verðinum í mark- aðskönnun og markaðsleit. Malur eða vopn □ Vegna skrifa um flug í Biafha í dagblöðunum að und- anförnu, vill stjórn Félags ís- lenzkra atvinnuflugmanna taka eftirfarandi fram: Eigi skal dæmt um það hvort endanlega verður Biafrabúum að betra haldi matur eða vopn, en hitt er staðreynd, að hópur íslenzkra flugmanna og flug- vélastjóra stundar nú birgða- flug til Biafra. í sumar sem leið var leitað eftir flugmönn- um til að fljúga með vopn til Biafra. Þá benti stjórn FÍA þeim félagsmönnum sínum, sem komu til greina, á það, að ef til 'slíks kæmi, gæti það aukið á- hættu þeirra, sem stunduðu birgðaflugið. Flug íslendinga fyrir Von Rosen myndi ekki síður geta orsakað aukna áhættu þessara manna. □ Þótt stúlkurnar tvær hér Á þetta vill stjórn FÍA benda á myndinni líti út fyrir að vera flugmönnum. Að öðru leyti heilbrigðustu hnátur, þá er því hefur stjórn félagsins ekki haft miður ekki svo. Þær eru haldn- 'afskipti af þessum málum og ar afar sjaldgæfum hjartasjúk- þeir íslenzku flugmenn, sem dómi, sem enskir læknar hafa stunda birgðaflug í Biafra hafa gefizt upp við að reyna að valizt til þess starfs meðal ann- lækna. ars vegna fyrri reynslu sinnar Foreldrar stúlknanna hafa á þeim flugvélategundum sem nú snúið sér til hins heims- þar er flogið. þekkta suður-afríska hjarta- Stjórn F.Í.A. Árbækur F.í. Ijósprentaðar □ Nýlokið er ljósprentun á tveimur Árbókum Ferðafélags Islands, um landnám Ingólfs Arnarsonar 1936 og Veiðivötn á Landmannaafrétti 1940, enn- fremur eru í prentun þrjár aðr- ar, þ. e. um Austur-Skaftafells- sýslu 1937, Eyjafjarðarsýslu 1938 og Fuglabókin 1939. Aust- ur-Skaftafellssýsla er væntanleg alveg 1á næstunni, en hinar fljót lega eftir áramótin. Verður þá búið að ljóspjienta þrettán fyrstu Árbækurnar eða frá 1928—’40. Ljósprentun Árbókanna hefur verið sérlega vel tekið, til marks um það má geta þesá, að þrjár eru þegar uppseldar og aðrar á förum. Ætlunin er líka að halda áfram að ljósprenta fleiri Ár- landsmót hafa gert. Formaður landsmótsnefndar er Stefán Pedersen Sauðárkróki aðrir' í nefndinni eru Gísll Fel- ixson, Magnús Sigurjónsson, Stefán Guðmundsson, allir frá Sauðárkróki, Sigfús Ólafsson, Hólum í Hjaltadal, Þóroddur Jóhannesson, Akureyri og Sig- urður Guðmundsson skólastjóri Leirárskóla. —■ bækur, sem uppseldar eru og fylla í skörðin eftir því sem á- stæður leyfa. — Framhald bls. 13. samstæða heild og sjálfgert á- horfendasvæði fyrir þúsundir áhorfenda, gefur beztu yfirsýn yfir allt er fram fer. Undirbún- ingur íþróttakeppninnar sjálfr- ar er einnig hafinn en undan- keppni í knattspyrnu hefst strax næsta vor. Mikill hugur er hjá ungmennafélögum í Skagafirði að gera mótið sem glæsilegast og það er von landsmótsnefndar að 14. landsmótið beri starfi ung mennafélaga í landinu jafn glæsilegt vitni og undanfarandi Haraldur Kröyer til Stokkhólms □ Ákveðið hefur verið, að Haraldur Kröyer, sendiráðu- nautur hjá SÞ verði næsti am- bassador fslands í Stokkhólmí. Haraldur Kröyer er 48 ára gamall, fæddur 9. janúar 1921. með BA próf í ensku frá Kali- forníuháskóla og meistaragráðu í stjórnvísindum frá sama skóla. Hann hefur verið starfsmaður utanríkisþjónustunnar síðan 1945. Haraldur Kröyer hefur verið sendiráðunautur við sendi ráð íslands hjá Sameinuðu þjóð unum frá 1. maí 1966 og ræð- ismaður við aðalræðismanns- skrifstofuna í New York frá 26. maí 1966. Haraldur er kvæntur Unni, dóttur B. Börde fyrrverandi sendiherra. skurðlæknis Christians Barn- ards og beðið hann að freista uppskurðar. Barnard hefur tekið bón for- eldranna vel og lofað að reyna. En þó með þeim fyrirvara, að hann vilji fyrst rannsaka þetta tilfelli gaumgæfilega áður en hann endanlega afræður hvort uppskurður kunni að gagna. VERKEFNIFYRIR BARNARD

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.