Alþýðublaðið - 10.01.1970, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 10.01.1970, Blaðsíða 11
 Laugarda'gur 10. janúar 1970 11 SKAFTI Frrmhald úr opnu. sendar til Japan til að ná í stúlk ur er vildu koma og giftast ung- um j.aponskum mönnum sem þarna bjuggu. Ég held þær hafi komið með þúsund konur. — Var þá ekki stöðug fólks- fjölgun í landinu vegna komu innflytjenda? i — Jú, en fólk flutti líka mik ið innan landsins. Sao Paolo var í mörg ár sú borg í heiminum sem óx hraðast. Hún er nú ein af stærstu borgum heims, en var hreint ekki neitt fyrir tiltölu- lega skömmu. Þar var mikill og vaxandi iðnaður og hann dró óflk að sér hvaðanæva af land- inu. Ég heyrði t. d. að á £jarlæg um stöðum einsog við Amazon. fljótið hefði verið komið svo að flestir karlmenn voru farnir til Sao Paolo í vinnu, því það var miklu betur borgað heldur en vera við eitthvert dund heima hjá sér. Sums staðar voru sjö til átta konur á hvern karl- mann. En þegar karlarnir voru komnir í glaum stórborgarinn- ar svona fjarri þá hætti þeim til að gleyma kerlingunni og krökkunum heima. Af þessum ástæðum var stjórnin að reyna að dreifa iðnaðinum um allt land. Þegar ég var í Recife var verið að koma þar upp bíla- verksmiðjum. Þeir höfðu byrjað á að framleiða Willys jeppa í Sao Paolo og samvinnu við Willys í Bandaríkjunum, en seinna fóru þeir að smíða fólks bíla sem voru alveg brazilískir. Þær verksmiðjur reyndu þeir að hafa líka í Recife til að við- halda jafnvægi í byggðinni. S. H. BY6GÐASAFN Framhald bls. 3. ir í eldtraiustri geymslu í Bókasafnshúsinu í Stykki3- hólmi tiil bráðabirgða. Komið mun hafa til orða að flyíja þá síðar í gaxnalt og merkilegt hús í Hólminum, svokallað Norska hús, sem þjóðminjavörður hef- ur áhuga á að láta varðveita, en eitthvað mun þurfa að lappa upp á það áður en mun- unum yrði komið þar fyrir. ★ Safnað á hverjum bæ. 'Söfnun gamalla muna hefur einnig farið fram í Dalasýslu og annaðist Magnús Gestsson einnig söfnunina þar. Ferðað- ist hann um Dalina sumarið 1968, kom nálega á hvern bæ, og var áráirigur ferðarinnar með ágætum. Munirnir sem söfn- uðust eru geymdir í félags- heimilinu í Búðardal, en ekki hefur verið tekin ákvörðun um húsnæði til frambúðar fyrir safnið. Hins vegar hefur lítið ennþá verið aðhafzt í þessum málum í Barðastrandarsýslu, en vænt- anlega verður þess ekki langt að bíða, að þar verði einnig hatfizt handa. Margt merkilegra og sér- kennilegra muna mun vera að fi'nna í byggðumum við Breiða- f.iörð. Þar voru t. d. len'gi á- gætir báta- og skrpasmiðiir, og eru enn til nokkrir bátar með svokölluðu „breiðfirzku Hagi,“ sem mörgum mun þykja nofck- urs um vert ’ að varðveita og vel mundu sóma sér á þreið- firzku byggðasatfni. 'Ekki hetfur enn verið tekin ákvörðun um, hvort um eitt eða fleiri byggðásöfn yrði að ræða við Breiðaifjörð né held- ur hvaða staðir kæmu helzt til greina, en væntanlega verður um það fjallað, þegar frekari skriður kemst á undirbúning og framkvæmdir. Öryrkl týnir veski □ Fyrr í vikunni varð ör- yr’ki fyrir því óhappi að glata seðlaveski sinu utan við verzl- unina Örnólf á Snorrabraut eða á leiðinni þaðan og niður á Hverfisgötu. í veskinu voru nokkur hundruð krónur í pen- ingum og auk þess nafnskír- teini mannsins og fleiri plögg. Þótt ekki væri um mikið fé að ræða er þama samt um til- finnanlegt tjón að ræða fyrir eigandann, sem er öryrM' eins og fyrr segir og hefur engar fastar atvinmitekjur. Er þess því að vænta að finriandi veskisins komi því á framfæri, annað hvort við eigandann sjálfan, en heimilisfang hans er í veskinu, eða komi því til lögreglunnar. Handritin heim 70% byggingarkostnaðar Árnagarðs, eða 42 milljónir króna, var greiddur með ágóða af Happdrætti Háskóla íslands. Þannig hafa þeir, sem eiga miða í Happdrætti Háskólans stuðlað að var- anlegri geymslu fyrir dýrmætustu eign þjóðarinnar. Kaupið miða í Happdrætti Háskóla íslands og takið þátt í uppbyggingu íslenzkrar menntunar. Vinningar eru hvergi stærri. Þriðjungur þjóðarinnar á nú kost á að hljóta vinning — því er Happ- drætti Háskólans glæsi- legasta happdrætti landsins. Verð miðanna er óbreytt. HAPPDRÆTTl HÁSKÓLA ÍSLANDS NÝJAR GERÐIR AF RUNTAL MIÐSTÖÐVAROFN UM ÁSAMT ELDRI GERÐUM SÝNING í BYGGINGARÞJÓNUSTUNNI, LAU( OPIN í DAG OG Á MORGUN FRÁ KL 13—19. OPIN ALLA VIRKA DAGA KL. 13—22. GJÖRIÐ SyO VEL AÐ LÍTA INN. argus auglýsingastofa

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.