Alþýðublaðið - 29.07.1970, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 29.07.1970, Blaðsíða 14
14 Miðvikudágur 29. júlí 1970 MOA MARTINSSON , -Ji ■ ••V 3V,. , 10. neitt fyrir mig eins merki- legt og þetta með tuttugu og fimm eyringinn undir brúnni. Meira að segja eftir að ég varð fullorðin, hef ég oft brotið heilann um, hvernig á því gat staðið, að ég fann hann. Það var langt síðan að það hafði verið sýning í sirkusnum, og fleiri hundruð börn höfðu sjálfsagt rótað til undir brúnni á undan mér. Kannske hafði það ekki verið ríkur maður, sem tap- aði 25 aurum, heidur lítið barn, fáitækt barn, sem hefði verið sent eftir einhverju - niður í bæ og ekki þorað að Skríða innundir brúna til þess að sækja hann af því að þar var svo dimmt og þar gátu verið ormar ög froskar — og kannske eitthvað enn Ijótara og verra. Ég hafði mikið hug myndaflug og nú fékk það byr undir vængina, og ég varð þess að minnsta kosti vísari, að veröldin bauð upp á þýðingarmeiri viðburði og merkilegra rannsóknarefni heldur en hvort heyrnarlaus maður væri með göt í eyrun- um eða ekki. Kannske hafði túttugu og fknmeyringurinn verið látinn þarna af góðum anda, sem vildi hjálpa mér, eða kannske var tröll undir brúnni, sem vildj fá mig þang- að aftur og taka mig. Ég end- urtók aldrei þessa ti'lraun til þess að afla mér fjár. Ég var þvert á móti logandi brædd við brúna þann tima, sem við áttum eftir að eiga heima á þessum bæ. Þetta hafði ekki verið góður da'g- ur, þegar allt kom til alls. Skrýtið, að hann skyldi kenni til í huganum, þegar maður hafði gert eitthvað ljótt. Ein- asti punkturinn var tuttugu og fimm eyringurinn og boll- urnar. En þetta með pening- inn var heldur ékki hægt að útskýra með nokkurri skyn- semi. Eftir að við höfðum búið rúmlega hálft ár við gamla Eyjarveginn, þá byrjuðu flutn ; ingarnir og um sama leyti . _________________________________ fór ég að ganga í skóla, Fyrstu kennslukonuna mína hataði ég frá því fyrsta að ég sá hana. Og ég hafði ekki séð hana fyrr um daginn, þegar ég fór með mömmu minni til þess að láta skrifa miig í skólann. Ég kunni dáiítið að lesa og var farin að draga til stafs, áður en ég byrjaði í skólanum, og það var nokk- ur, sem bæði ég og mamma min töldum okkar hafa á- StæðU til þess að vera afar- hreyknar af. En kennslu'konian bara lagði þá spurningu fyrir mömmu talsvert snúðugt, hvaða erindi ég yfirleitt ætti í skóla, fyrst ég væri þetta gáfnaijós. Það er allt ekki gott, að börnin læri að lesa og skrifa heima hjá mér, og ég skal segja maddömunni, að mér er bara alls ekkert um það gefið, sagðj hún og var hin reiðilegasta. Maddömunni. Aldrei hafði noklcur einasti maður kallað hana mömmu mína maddömu alla hennar ævi. Titillinn sá var yfir höfuð genginn úr tízku. Það voru bai'a mjög gamlar og hrukkóttar mat- sölukonur, sem urðu að láta sér lynda að vera kallaðar maddömur og þó ekki nema í hálfgerðu háði. Mamma mín, sem ekkj var ennþá nema tuttugu og sjö ára, og hún sem hélt sér líka svo vel, þrátt fyrir slitið hjá bændunum og þrældóminn í verksmiðjunni. Kennslukon- unni fórst líka, sem var að minnsta kosti fimmtán árum eldri en mamma. Mamma skammaðist yfir kennslukonunni alla leiðina til pappírsverksmiðjunnar, þar sem hann pabbi minn vann um þessar mundir. Ég hjálpaði henni eftir beztu gatu við að baktala kerling- una. Mér fannst hún svo ó- ’! svífin. Helzt vildi ég ekkert láta þig fara til hennar, sagði mamma. Já, því ekki það? sagði ég fegins hugar. Nú er hann líka byrjaður að drekka, sagði mamma. Við kembum víst ekki hærumar hérna. Þú getur aiveg eins byrjað í skólanum þar sem við verðum næst. Já, svoleiðis skulum við bara hafa það, sagði ég. Nei, það verður víst ékki hægt, sagði mamma og var nú horfin frá öllu aftur. ;— Pabbi þinn samþykkir það al- drei, fyrst búið er að borga kennslukonunni svona mikið fyrir fram. En þú verður að hegða þér eins vel og þú get- ur, því nú er henni senni- lega orðið í nöp við þig, af því að okkur varð sundur- orða. Þú verður að gæta þín að svara henni alltaf kurt- eislega. Gerðu allt, sem hún segir og lærðu lexíumar þín- ar a'lltaf vel. Fyrir alla muni mundu mig um að svara henni .alltaf kurteislega á hverju sem gengur. Ih, nei, ég skal reyna, sagði ég. Og svo héldum við á- fram að úthúða kerlingunni eftir beztu getu. Við vorum sneyptar og lúpulegar. Von- glaðar höfðum við lagt upp í þessa ferð og vænzt þess, að fá hrós fyrir kunnáttu mina og svo var okkur í þess stað svo gott sem gefið utan undir og það var ekiki auðvelt að ná sér eftir slík vonbrigði. Ég var orðin furðahlega dugleg að prjóna og hekla eftir aldri. Mamma var svo mikið útp að vinna og mér leiddist og hatfði oft engan til þess að leika mér við. Þess vegna vandizt ég snemma á það að hatfa prjóna mér til dægrastyttingar; og mamma hafði svo sem ekki kennt mér allt, sem ég kunni. Hún var oftast svo þreytt á kvöldin, að hiin sinnti mér ekki. Þess vegna var það, að nágrann- arnir urðu kennarar mínir, bæði í að prjóna og hekla, lesa og skrifa, og þá fannst mér tíminn ekki eins lengi að líða, þegar mamma var úti að vinna. Forkastanlegt er flest á storð En eldri gerð húsgagna og húsmuna eru gulli betri. Úrvalið er hjá okikur. Það erum við, sem staðgreiðum munina. Svo megum við ekki gleyma að við getum skaffað beztu fáanlegu gardínuuppsetningar sem til eru á markaðinum í dag. Við kaupum og seljum allskonar eldri gerð- ir húsgagna og húsmuna, þó þau þarfnist viðgerðar við. Aðeins hringja, þá komum við strax —pen- ingarnir á borðið. FORNVERZLUN og GARDÍNUBRAUTIR Laugavegi 133 — Sími 20745. Vörumóttaka bakdyrameginn. Volkswageneigendur Höfum fyrMiggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlök —Geyníslull'ök á Vo]íksw>agen í all- flestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bílasprautun Garðars Sigmtmdssonar Skipholti 25, Símar 19099 og 20988. • ® I HVAÐ ER RUST-BAN? • • • ^ Rust-Ban er ryðvarnarefni fyrir bíla, sem @ 0 reynzt hefur mjög vel við ólíkustu aðstæður. 0 ^ Efni þetta hefur geysilega viðloðunarihæfni 0 0 er mjög höggþolið og mótstaða þess gegn 0 0 vatni og salti er frábær. @ 0 RYÐVARNARSTÖÐIN HF. 0 Ármúla 20 — Sími 81630. 0 BÍLASKGÐUN & STILLING Skúlagötu 32. MOTORSTILLINGAR HJÖLASTILLINGAF LJÖSASTILLIÍM3AR . Simi LátiS stilla í tíma. . ^ ^ i tn i n Fljót og örugg þjónusía. I «. rl U U

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.