Alþýðublaðið - 17.10.1970, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 17.10.1970, Blaðsíða 6
6 Laugai’dagur 17. október 1970 [~j Fyrir þremur árum fékk danski listamaðurinn Kurt Kar- ottki það nýsiárlega verkefni að gera tilraun með vangefið fólk —Lhvort unnt væri að vekja sálarlíf þess á einhvern hátt með því að dáta það tjá sig í iitum og formum. 'Karottki hefur langa revnslu í féiagslegri aðsloð af ýmsu íag'i. Hann ihefur unnið við stai'fs- Þetta er málverk eftir einn af vangefnu nemendunum sem eru á góffrí leiff aff verffa heimsfrægir tistamenn. fræðslu árum saman og leiðbeint ungu fólki við að velja sér at- vinnu við sitt hæfi, og hann hefur stundað kennslu m. a. í fangel.sum og stofnunum fyrir vanfreila. Að þessu sinni var ákveðið að gera ti'lraun með vangefið fólk á aldrinum 20—28 ára. Fimm Jóíar urðu f.yrir valinu, eigin- lega af handahófi, því að þeir bjuggu náiægt heimili Karott- kis í Lemvrig og var boðið að íaka þátt í tilrauninni. Fyrir þremur árum voru þess ir vangefnu listnemar sljóir og dauflyndir, erfiðir í umgengni og lítið hægt fyrir þá að gera. Nú eru þeir gerbfeyttir. Þeir eru glaðir og hamingjusamir, fjarskalega hlýir og þægiiegir í viðmóti. Og málverk þeirra hafa va.kið athygli ekki aðeins í heimalandi þieirra, heldur eru þeir á góðri leið að verða heims frægir listamenn. Kurt Karottki mátti ekkert vera að því að sinna sínum eig- in listaverkum í tvö ár, svo nið ursokkinn var hann í kennsluna. Hann hjálpaði nemendum sín- um að handleika pensil og blanda liti, og hann furðaði sig i á ríku hugmyndaflUginu sem í i ljós kom hjá iþeim öllum þegar þe:r fóru að ná vaidi á tækninni. | „Ég er e.kki einn um að dást að fegurð, frumleika og listagildi i verka þeirra“, segir frann. „List gagnrýnendur víða um lönd eru mér iþar fyllilega sammála. Það er eins og vangefnir einstakl- ingar séu opnari fyrir listrænni tjáningu en flestir aðrir. Marg- ir lærðir listmálarar eru fullir af sálrænum hömlum sem rýra sköpunarmátt þeirra. En van- gefnir Jistiðkendur leru opnir og næmir e.ins og börn og lausir við kæfandi hömlur. Þeir varð//.ita hlýju barnsins og furðu yfir líf inu, og þeir eiga eitthvað mann- legt sem !því miður fer for- görðum hjá flestum okkar þeg- ar við vöxum upp og verðum að ábyrgum þegnum þjóðfélags- ins eins og það er í dag“. Nemendur Karottkis búa hjá honum, og milli þess sem þeir iðka -list sína eru þeir í leikjum og skemmta sér við alls konar ærsl. Karottki segist sjálfur aldrei vera eins ánægður og þegar hann sé innan um vangef ið fólk. „Ekki af því að ég finni til yfirburða minna, freldur vegna þess að vangefnir einstakl ingar virðast vera nær náttúr- unni og eðlilegu lífi en fólk flest. Skólagangan og samfélagið eyði leggja marga dýrmæta eigin- leika sem börnin eiga til og þeir vangefnu varðveita“. Hann telur tilraunina hafa sannað, að listtjáning geti gert Framh. á bls. 11 „Krakkarnir kaupa aðeins jboð sem þau vilja sjálf" „Fólk virðist alltaf vera a8 leita að einhverju í lífinu og' þá helzjt tilbreytui frá þvi hversdagslega, til dæmis ef þú kaupir þér jakka, þú átt hann i nokkra mánuði, þá fer þig að langa í nýjan, en þú kaup- ir þér ekki annan alveg eins, heldur einhvern sem er öðru vísi en sá gamli, þannig að segja má að orðið tízka tákni nokkurs konar breytingu eða jafnvel þróun.“ Á þennan hátt skilgreindi Jónas Jónsson, fyrr- verandi POPstjama og núver- andi verzlunarstjóri í verzlun- inni ADAM, orðið tízku. Nán- ari tildrög að þessu samtaii sem hér fer á eftir eru þau, að mig langaði til þess að fræða ykkur og sjálfan mig nm tízkufatnað, tízkuverzlan- ir og ýmislegt sem það varð- ar. — Hvers vegna em táninga föt svona dýr, miðað við venjuleg herraföt? — Firma sem framleiðir venjuleg herraföt, getur not- azt við sömu línuna í allt að tvö til þrjú ár, án þess að svo ýkjia miklar breytingar Og ckki hafa stúlkurnar síður dálæti á leðrinu, en ungu menn irnir. verði. Þar af leiðir að þeir þurfa ekki að verja stórum íjár upphæðum í það að leita a# nýjum sniðum og ,efnum. Eln firma sem framleiðir táninga- fatnað verður kannski að skipta um snið, efni og úrval allt að fjórum sinnum á ári tii þess að geta fylgt þeim öru breytingum sem verða allt af á tízkunni. — Hvað kosta stakar buxur í dag? — Ég myndi segja að með- alverð á atökum buxum væri nálaegt 1500 kr. það er samt hægt að fá bæði dýrari og ó- dýrari buxur, allt eftir þvi hvað kaupandinn er vandlát- ur. — Ég læt alltaf sauma á mig buxur eftir máli, efnið kostar mig 500 kr. og saumaskap- urinn 550 kr. — Hvað vilt þú um þetta segja? — Þetta er ofur eðlilegt. Sá sem saumar svona eftir máli getur selt þetta ódýrara held- ur en til dæmis fatave'rzlun, því hann gerir allt saman sjálfur og sleppur við heild- söluálagningu og þá áiagn- ingu, sem við til dæmis erum með. Þegar þetta er allt tekið með í reikninginn þá er verð' ið komið upp í þetta sem það er hjá okkur. — Er það þá ekki eins og margir vilja halda fram, gróða fyriitæki að verzla með tán- Lngaföt? 1

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.