Helgarpósturinn - 20.10.1994, Síða 8

Helgarpósturinn - 20.10.1994, Síða 8
8 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994 Siðastliðinn fimmtudag stóð til að taka fyrir hjá byggingarnefnd Reykjavíkur ósk Páls Ásgeirs Tryggvasonar fyrir hönd stjórnar húsfélags Efstaleitis 10-14 um leyfi til breytinga á sameign sem þegar hafa verið gerðar. Húsið er betur þekkt undir nafninu Breiðablik en þar búa efnaðir eldri borgarar. Allt logar í deilum vegna breytinganna sem gerðar hafa verið á setustofu hússins og Bent Scheving Thor- STEINSSON hefur barist hatrammlega fyrir því að sameignin verði færð í upprunalegt horf. Hann varð fyrri til og sendi kvörtunarbréf til bygg- ingarnefndarinnar og var ósk stjórnar húsfélagsins viðbrögð við því. Málið var hins vegar tekið af dagskrá að ósk Páls Ásgeirs.Ástæð- an mun vera sú að ÁgCst Jónsson, skrifstofustjóri borgarverkfræð- ings, komst að þeirri niðurstöðu að samþykktir húsfélagsins eru ekki nægilega skýrar og framkvæmdirn- ar því ólöglegar. Boðað hefur verið til húsfundar 28. október þar sem stjórnin ætlar að reyna að fá „rétt- ar“ samþykktir til að bjarga sér fyrir horn. Það hlakkar víst í Bent um þessar mundir en hann er þó ekki búinn að vinna stríðið þótt hann hafi haft betur í þessari orrustu... jrVlþýðublaðið hefur tekið nokkr- um stakkaskiptum eftir að Hrafn Jökulsson settist þar í ritstjórastól- inn við hlið Sigurðar Tómasar Biörgvinssonar. Nýtt útlit og hressilegri efnistök gætu jafnvel orðið til þess að áskrifendur færu að sakna blaðsins ef dreifingin klikk- aði. Það sem hefur þó vakið einna mesta athygli við handbragð Hrafns er að mál bróður hans Illuga, var slegið upp á forsíðu bæði þriðjudag og miðvikudag. Hann hefur því greinilega tekið upp þamTsið sem kratarnir liggja undir ámæli fyrir — að gera allt sem í hans valdi stendur þegar hans nánustu eiga í hlut... Mikm uggur er meðal starfs- manna Háskólabókasafns og Lands- bókasafns en stofnanirnar verða báðar lagðar niður 1. desember næstkomandi og sameinaðar undir hatti Þjóðarbókhlöðu. öllu starfs- fólki bókasafnanna hefúr verið sagt upp störfúm en margt þeirra hefur helgað söfnunum stóran hluta starfsævi sinnar. Það er ljóst að ekki er hægt að reka bókhlöðuna með minni mannafla en þeim sem vinn- ur innan gömlu safnanna, en sú upphæð scm reikn- að er með á fjár- lögum til launa- greiðslna dugar ein- ungis fyrir launakostn- aði um það bil helmings- ins af starfsfólk- inu. Þá þykir það furðulegt af Ólafi G. Einarssyni menntamálaráðherra að bíða ekki til 1. janúar eftir nýju fjárhagsári því það er opinbert leyndarmál að ein- ungis hluti Þjóðarbókhlöðunnar verður tilbúinn 1. desember... Stjórnendur Gunnarstinds hf. á Stöðvarfirði hafa sagt upp þremur pólitískum andstæðingum sínum. Þeir gætu neyðst til að flytja á brott því enga aðra vinnu er að fá. f þeim hópi er oddviti hreppsins Ráku pólrtíska rttEFAX 97-5894? Stoðvarfjfirri, lur 30. 09. ,J4 St VPPSAGnARBRéf 2»?**"* “að scm ■» ctaö t**6 md^a starf ** að a68erðwn ^ er ^ ásfæða til að ,fr t 3 Cru s,oðsförf cr ner um 1 ÁM “v "Pp Mvfint hia 1 'Uwd Qg 1 fctmtíðarsldpa, s^na r«turþúme á ‘yrinxtim, w 3">Mtiðir0gmun Oddvita Stöðvarhrepps, Björg- vin Vai Guðmundssyni, var sagt upp störfum hjá Gunnarstindi hf. með bréfi 30. september síðastlið- inn. Hann starfar þar sem verk- stjóri vélaverkstæðis en uppsögnin tekur gildi um áramót. Að minnsta kosti átta mönnum var sagt upp hjá fyrirtækinu en svo vill til að þrír þeirra eru pólitískir andstæðingar stjórnenda fyrirtækisins. Við síðustu sveitarstjórnarkosn- ingar voru teknar upp listakosning- ar í hreppnum, en fram að því höfðu þær verið óhlutbundnar þannig að kjósendur völdu á milli einstakra frambjóðenda. Sama fólk hafði að verulegu leyti setið í hreppsnefnd árum saman en S-list- inn, sem borinn var fram í vor und- ir forystu Björgvins Vals, ætlaði sér að breyta því. Þegar talið var upp úr kjörkössunum kom í ljós að listinn hafði tryggt sér þrjá fulltrúa af fimm í hreppsnefndinni og þar með meirihlutann. Stjórnarformaður Gunnarstinds, Ævar Ármannsson, leiddi hins vegar H-listann sem varð undir í kosningunum. Og 4. maður á þeim lista, Björn Hafþór Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjör- dæmi, er fulltrúi hreppsins í stjórn Gunnarstinds. Þannig að tveir af pólitískum andstæðingum Björg- vins Vals í kosningunum standa að uppsögn hans og tveggja annarra aðstandenda S-listans. Áuk Björg- vins fengu uppsagnarbréf Garðar Harðarson, lærlingur á vélaverk- stæðinu sem sat í 5. sæti listans og er varamaður í hreppsnefnd, og Margeir Margeirsson, Baader- maður í frystihúsinu og formaður húsnæðisnefndar hreppsins. Gætu þurft að flytja af staðnum Lífsafkoma fólks á Stöðvarfirði stendur og fellur með Gunnarstindi > h Ounn. JL larstods hf. 0 tíermanii Óski því vart er annan at- vinnurekstur þar að finna, nema litla harðfiskvinnslu, trilluútgerð og svo nokkur útibú opinberra stofnana og fyrirtækja. Þannig að lítil von er um vinnu fýrir þá sem sagt hefur verið upp störfum, að mati Björgvins Vals. Hann er ekki í nokkrum vafa um að uppsagnirnar megi rekja til úrslita sveitastjórnar- kosninganna og fullyrðir að um pólitískar hreinsanir sé að ræða. Björn Hafþór hafnar því með öllu. „Ég fúllyrði að ég hef ekki sett neitt samasemmerki á milli kosn- ingaúrslitanna og þessara upp- sagna. Ég vonast líka til að þær séu ekki endanlegar.“ Hann segir að rekja megi ástæður uppsagnanna til sameiningar frystihúsanna á Stöðv- arfirði og Breiðdalsvík fyrir fjórum árum undir nafni Gunnarstinds. f ljós hafi komið að verulegur munur væri á launagreiðslum sem þyrfti að samræma, auk þess sem verið væri að kanna möguleikann á því að bjóða út rekstur vélaverkstæðis- ins. Starfsmenn þess fengju þá væntanlega tækifæri til að taka að sér reksturinn gegn sanngjarnri leigu. „Ég vil taka það fram að ég er mjög sáttur við úrslit kosninganna í vor og fannst rétt og eðlilegt að ný- ir menn spreyttu sig. Ef kosning- arnar hefðu verið óhlutbundnar hefði ég kosið Björgvin Val og ég veit að það sama gildir um Ævar.“ Oddviti Breiðdals- hrepps einnig rekinn Annar oddviti er í hópi þeirra sem verða látnir taka pokann sinn, Rikharður Jónasson á Breiðdals- MORGUNPÓSTURINN hefur eitt uppsagnarbréfanna undir hönd- um. í því segir orðrétt: „Það er rík ástæða til að ítreka þann skilning stjórnar að aðgerðum þessum er ekki beint gegn neinum ákveðn- um starfsmanni fyrirtækisins heldur er hér um að ræða upp- stokkun á skipulagi." Ekki eru all- ir á sama máli og segja að stjórn- endur Gunnarstinds séu að koma höggi á pólitíska andstæðinga sína með uppsögnunum. vík, en hann er vélstjóri í frystihúsi Gunnarstinds á staðnum. Hann leiddi lista, sem borinn var fram á svipuðum forsendum og S-listinn á Stöðvarfirði, og hafði sá listi betur í kosningunum. Þá var ábyrgðar- manni þess framboðs, Sigurði El- íssyni vörubílsstjóra, einnig sagt upp störfúm. Þannig að tveir af þremur Breiðdælingum sem sagt var upp tengjast pólitíkinni á staðnum. „Það er tvennt sem kemur til greina núna,“ segir Ríkharður. „Að flytja burt og hætta sem oddviti eða þá að rísa upp á afturfæturna og reyna að fá aðra vinnu og búa sér til lifibrauð ef ekki vill betur.“ Hann segir að hann vilji ekki gera því skóna að um pólitískar hreinsanir sé að ræða. „Ekki á þessu stigi, það fer eftir því hvernig málin fara. Ég vil fá að sjá þessar skipulagsbreyt- ingar í verki áður en ég set spurn- ingarmerki við þessar aðgerðir.“ -SG Pólittskar hreinsanir segir oddviti Stöðvarhnepps sem er einn þeirra sem fékk uppsagnarbréf. „Ég get ekki sagt annað en að um pólitískar hreinsanir sé að ræða. Ég kemst ekki hjá því að líta svo á,“ segir Björgvin Valur Guðmunds- son, oddviti Stöðvarhrepps, um uppsögn hans og tveggja annarra aðstandenda S-listans hjá Gunn- arstindi hf. „Það er ljóst að ef ég fæ ekki aðra vinnu þá verð ég að flytja frá staðn- um og fara þangað sem ég fæ vinnu.“ Þú yrðirþá vcentanlega að segja af þér sem oddviti? „Það hlýtur að gerast sjálfkrafa þegar ég er ekki lengur með skráð lögheimili á staðnum, þá get ég ekki setið í hreppsnefndinni. Þá er líka tilganginum náð hjá þessum mönnum en það er spurning hvað maður getur harist á móti.“ Hvað getið þið gert í stöðunni? „Stöðvarhreppur á 16 prósent at- kvæða í Gunnarstindi en það þarf að hafa 10 prósent á bak við sig til að geta krafist aukaaðalfundar sem við munum væntanlega gera. Við yrðum þá að hafa samráð við Byggðastofnun og Útvegsfélag samvinnumanna, sem eiga meiri- hluta í fyrirtækinu, um að skipta um stjórnarmenn. Björn Hafþór Guðmundsson af H-listanum hefur verið fulltrúi hreppsins í stjórn Gunnarstinds og við ætluð- um að bíða með að skipta honum út þar til á aðalfundi.“ Þannig að þú telur möguleika á að þú og aðrir sem sagt var upp haldið störfum ykkar? „Ég er ekki að hugsa um hvort ég fái starfið aftur með þessu, enda er ég orðinn þannig innstilltur að ég kæri mig varla um að vinna meira fyrir þetta fyrirtæki. Framkvæmda- stjórinn hefur að vísu ýjað að því að bjóða eigi út rekstur vélaverk- stæðisins og starfsmenn þess væru inni í þeirri mynd. En á sama tíma er haldið úti tveimur netaverkstæðum á sitt hvorum staðnum sem okkur starfsmönnunum þykir óeðlilegt. Þegar verið er að segja upp fólki vegna pólitískra skoðana er það svo rotið að það verður að gera eitthvað í því.“ -SG Yfirgjaldkeri Fálkans staðinn að stórfelldum fjárdrætti. Vikið úr starfi en málið ekki kært til rannsóknarlögreglunnar HáHsjötug kona dró milUónir króna Yfirgjaldkera Fálkans við Suður- landsbraut var vísað úr starfi fýrir skömmu vegna stórfellds fjárdrátt- ar. Páll Bragason, forstjóri, stað- festi þetta í samtali við MORG- UNPÓSTINN í gær. Gjaldkerinn er hálfsjötug kona og samkvæmt heimildum blaðsins hefur hún dregið sér fé frá fyrirtækinu árum saman og nemur fjárdrátturinn milljónum króna. Stjórnendur fýr- irtækisins viku henni úr starfi en að samkomulagi varð að þeir kærðu hana ekki til Rannsóknarlögreglu ríkisins gegn því að hún endur- greiddi það sem hún tók óffjálsri hendi. Á veðbókarvottorði sést að Fálk- inn á veð í húseign konunnar frá 3. október síðastliðnum sem nemur tveimur milljónum króna. Páll vildi hvorki játa né neita hvort þar væri um eftirstöðvar að ræða eða alla upphæðina. Nokkuð langt er síðan grunur vaknaði um að einhver starfs- mannanna drægi sér fé en langan tíma tók að upplýsa málið. Sam- kvæmt upplýsingum frá einum starfsmannanna lágu þeir nánast allir undir grun og voru margir þeirra kallaðir á teppið hjá stjórn- endum fyrirtækisins í nokkurs konar yfirheyrslu. Það var ekki svo fýrr en einn starfsmannanna tók sig til og faldi myndbandstökuvél inni hjá gjaldkeranum, þar sem sást til hennar setja seðlabúnt í veskið sitt, að málið upplýstist. Þá mun hafa komið í ljós við frekari skoðun á bókhaldi að hún lét fyrirtækið greiða fýrir eigin heimilisinnkaup. Mikill kurr er meðal starfsmanna Fálkans vegna málalokanna, sam- kvæmt sömu heimild. Flestum þykir rétt að konan verði kærð, annars verði aðrir ekki fúllkomlega hreinsaðir af grun. -SG

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.