Helgarpósturinn - 20.10.1994, Side 21

Helgarpósturinn - 20.10.1994, Side 21
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 21 heldur tala við Pál Magnússon en mig. En ég komst ekki undan því að mæta í þriggja mínútna viðtal í Dagsljósi ásamt Páli. Reyndar þurfti ég ekki að mæta, því Dags- ljóss-fólkið kom hingað niður á Vesturgötu strax upp úr hádegi og tók til við undirbúning að mynda- töku úr útgáfuteiti, sem átti að hefj- ast klukkan fimm, í því augnamiði að skjóta inn í samtalið við okkur Pál. Og frá hádegi fram að kvöld- mat var hér her manns að líma upp ljós, taka þau niður og líma á nýjan stað. Og annar her við að mynda og taka upp hljóð. Þegar kom að því að Sigurður Valgeirsson átti að tala við okkur Pál vorum við dregnir út á stétt og horfðum þar framan í myndavélar, Sigurð, sviðsstjóra, myndatöku- mann, skriftu, hljóðmann, aðstoð- ar-eitthvað og aðstoðar-hitt. Ég held það hafi verið einir átta eða níu ríkisstarfsmenn sem ætluðu að taka þátt í þessari þriggja mínútna dagskárgerð. Eg man ekki hvað ég sagði í þess- um viðtalsbút. Sjálfsagt hef ég sloppið ágætlega frá þessu, enda erfitt að gera sig að fífli á þremur mínútum sléttum. En ég man hvað ég hugsaði þar sem ég horfði yfir myndavélina og á alla opinberu starfsmennina. Eg hugsaði: „Þarna fer tekjuskatturinn minn.“ Þegar viðtalið var búið hvíslaði Páll í eyrað á mér á ieiðinni inn: „Það hefði dugað að senda tvo menn frá Stöð 2.“ Ég er viss um að þetta er svona víðar en hjá Ríkissjónvarpinu. Ef það vantar mann til að lyfta ein- hverju, þá gerir það enginn þeirra sem eru þar fyrir heldur er ráðinn sérstakur lyftari. Við breytum ekki real- um þótt fólk þurfi að éta Áður en ég vann á Kleppi og fór Grundvöllur AB-samtakanna (Anonymous Bureaucrats) eru eftirfarandi: REYNSLUSPOR 1. Við viðurkennum vanmátt okkar gagnvart skrifræði og að okkur er orðið um megn að taka sjálfstæðar ákvarðanir í vinnunni. 2. Við fórum að trúa að æðri kraftur, máttugri okkar eigin vilja - sem segir kannski ekki mikið, því það er sáralítill vilji eftir - gæti gert okkur að heilbrigðum starfs- mönnum á ný. 3. Við tókum þá ákvörðun að láta þennan starfsvilja okkar og at- vinnulíf lúta lögmálum hins frjálsa vinnumarkaðar, samkvæmt skilningi okkar á honum - en þó þannig að varnaglar séu slegnir þar sem.þurfa þykir. 4. Við gerðum nokkuð rækilega og tiltölulega óttalaust siðferðis- leg reikningsskil í lífi okkar - og beittum við það reikningsskila- reglum almennra endurskoð- enda en ekki ríkisbókhalds. 5. Við játuðum án undanbragða fyrir Þórarni V., sjálfum okkur, Ögmundi Jónasar og hverjum sem nennti að hlusta að við erum viljalaus verkfæri kjarabaráttu BSRB. 6. Við vorum þess albúin að láta hinn frjálsa vinnumarkað lækna alla áunna galla okkar sem starfsmanna og vorum þess al- búin að mæta á réttum tíma og dvelja jafnvel í vinnunni allt til loka vinnudagsins. 7. Við báðum Ríkisendurskoðun í auðmýkt að losa okkur við freistingu þess að smyrja ofan á yfirvinnuskýrslurnar. 8. Við skráðum flest skilmerki- lega niður náms- og orlofsferðir, dagpeningagreiðslur og óunna yfirvinnutíma og vorum fús til að bæta fyrir þær (án vaxta). 9. Við borguðum fyrir sporslurn- ar milliliðalaust aftur í ríkissjóð, svo framarlega sem það særði engan. 10. Við iðkuðum stöðuga kjara- rannsókn og þegar út af bar við- urkenndum við yfirsjónir okkar undanbragðalaust - eða svo gott sem. 11. Við leituðumst við, með sím- tölum og skilaboðum í gegnum faxtækið, að styrkja samband okkar við hinn almenna vinnu- markað, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum um skilning á því sem okkur var fyrir bestu og tíma til að framkvæma það. 12. Við fundum, að sá árangur, sem náðist með hjálp reynslu- sporanna var góð og þess vegna reyndum við að flytja öðrum möppudýrum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi. Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi. Bati hvers og eins er undir einingu AB-samtakanna kominn. Æð ruleysisbæn bírókratanna Guð gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við að ég get ekki hækkað launin mín án þess að auka við mig vinnu og/eða ábyrgð, mátt til að Ijúka þeim verkefnum sem mér eru falin og vit til þess að greina á milli þess sem ég ætl- ast til af lífinu og því sem ein- hver er tilbúinn að kaupa af mér. Fullyrðing: „Það er minna vinnuuálag hjá hinu opinbera en í einkageiranum.“ Til hægri sést hlutfall þeirra svarenda, sem voru sammála, flokkað eftir þvi hvar menn eða makar þeirra starfa. 100% 90- 80- 70- 60 Einkageiri Opinber Maki Bæði starfsmaður opinber opinberir staitsmaöur starfsmenn Fullyrðing: „Opinberir starfsmenn sæta aldrei ábyrgð í starfi og eru ekki reknir nema þeir séu staðnir að fjárdrætti eða skattsvikum.“ Til hægri sést hlutfall þeirra svarenda, sem voru sammála, flokkað eftir því hvar menn eða makar þeirra starfa. "o 90 Einkageiri Opinber Maki Bæði starfsmaður opinber opinberir starfsmaður starfsmenn Opinberir st^rfsmenn gera ekkert i vinnunni Fullyrt var: Það er minna vinnuálag hjá hinu opinbera en í einkageiran- um. Og 53,1 prósent þeirra sem tóku afstöðu voru sammála. Þegar hópi svarenda er skipt í fernt — venjulegt fólk, opinberir starfs- menn, makar opinberra starfsmanna og opinberir starfsmenn sem eru í sambúð með öðrum opinberum starfsmönnum — kemur í ljós að meiri- hluti tveggja af þessum hópum er ósammála fullyrðingunni. 55,9 prósent opinberra starfsmanna er ósammála því að þeir búi við minna vinnuálag en annað fólk og 56,5 prósent opinberra starfsmanna sem eru í sambúð með öðrum opinberum starfsmanni eru ósammála þessu. Og þykir ef til vill fáum skrýtið. Það væri einkennilegt ef þetta fólk myndi upp til hópa lýsa því yfir að það gerði minna en annað fólk í vinnunni. Það er furðu- legra að 44,1 prósent opinberra starfsmanna og 43,5 prósent þeirra opin- beru starfsmanna sem eiga annan opinberan starfsmann fyrir maka skuli sannfærð um að þeir lifi við léttvægara vinnuálag en fólk í einkageiranum. Fólk sem ekki vinnur hjá hinu opinbera er hins vegar fremur sannfært um að vinnuálagið sé lítið hjá hinu opinbera. Alls 56,1 prósent fólks úr einkageiranum sagði vinnuálagið hjá hinu opinbera minna en gengur og gerist og skipti þá engu hvort makar þess voru opinberir starfsmenn eða ekki. Hlutfallið var það sama. ■ 100%- 90- Fullyrðing: „Þrátt fyrir að launataxtar opinberra starfsmanna séu lágir geta þeir náð háum launum með alls kyns aukasporslum.“ Til hægri sést hlutfall þeirra svarenda, sem voru sammála, flokkað eftir þvi hvar menn eða makar þeirra starfa. Einkageiri starfsmaður opinber opinberir starfsmaður starfsmenn Fullyrt var: Þrátt fyrir að launataxtar opinberra starfsmanna séu lágir geta þeir náð háum launum með alls kyns aukagreiðslum. Og 73,7 pró- sent þeirra sem tóku afstöðu voru sammála. Um þetta eru allir jafn sannfærðir. Meira að segja 61,1 prósent opinberra starfsmanna sem tóku þátt í könnuninni voru sammála fullyrðingunni. Og það virtist sannfæra fólk enn frekar ef það giftist opinberum starfsmanni, því 62,5 prósent þeirra opinberra starfsmanna sem jafnframt voru í sam- búð með öðrum opinberum starfsmanni sögðu það rétt að þeir gætu bætt ofan á laun sín með alls kyns aukagreiðslum. Fólk utan opinbera geirans var síðan enn sannfærðara um þetta. 79,3 prósent þeirra fólks úr einkageiranum sagði opinbera starfsmenn geta bætt kjör sín með alls kyns aukagreiðslum og 68,2 prósent maka opinberra starfsmanna voru sömu skoðunar. Þetta er því mjög almenn skoðun. Og í ljósi svara ffá opinberum starfs- mönnum sjálfum, þá er þetta líkast til rétt. Opinberir starfsmenn geta bætt laun sín með alls kyns aukagreiðslum. ■ Opinberir sjarfsmenn bera enga abyrgð Fullyrt var: Opinberir starfsmenn sæta aldrei ábyrgð í starfi og eru ekki reknir nema þeir séu staðnir að fjárdrætti eða skattsvikum. Og 65,3 pró- sent þeirra sem tóku afstöðu voru sammála. Það sem er hryllilegt við svörin við þessari spurningu er að ótrúlega stór hluti opinberra starfsmanna sjálfra virðist vera á þessari skoðun. 52,2 pró- sent þeirra voru sammála fullyrðingunni. Og það sem er líka óhugnanlegt er að sá hópur sem var harðákveðnastur gagnvart lítilli ábyrgð opinberra starfsmanna voru makar þeirra. 78,6 prósent maka opinberra starfsmanna sögðu þá sæta aldrei nokkurri ábyrgð. Venjulegt fólk var vægara í dómum sínum. 68,3 prósent þess sagðist sammála fullyrðingunni um litla ábyrgð opinberra starfsmanna. Þeir sem voru síst sammála þessu voru opinberir starfsmenn í sambúð með öðrum opinberum starfsmönnum. Alls 47,8 prósent þessa hóps var þó sammála þessu. ■ Fullyrðing: „Opinberir starfsmenn og makar þeirra hafa fleiri kosti á að ferðast á kostnað vinnuveit- anda síns en annað fólk.“ Til hægri sést hlutfall þeirra svarenda, sem voru sammála, flokkað eftir því hvar menn eða makar þeirra starfa. 100%' 90- 80 Einkageiri Opinber Maki Bæði starfsmaður opinber opinberir starfsmaður starfsmenn Opinberir staifsmenn eru ailtaf a ferðalogum Fullyrt var: Opinberir starfsmenn og makar þeirra hafa fleiri kosti á að ferðast á kostnað vinnuveitanda síns en annað fólk. Og 63,1 prósent þeirra sem tóku afstöðu voru sammála. Samkvæmt svörunum við þessari spurningu þá minnka líkurnar á að opinberir starfsmenn fái að ferðast á kostnað vinnuveitanda síns verulega ef þeir asnast til að giftast öðrum opinberum starfsmanni. Réttur helming- ur — 50 prósent — opinberra starfsmanna sem voru ýmist ógiftir eða gift- ir einhverjum sem ekki vann hjá ríki og borg sögðu þessa fullyrðingu rétta. Hins vegar sögðu aðeins 37,5 prósent þeirra opinberu starfsmanna sem áttu opinberan starfsmann fýrir maka þessa fullyrðingu rétta. Þannig að eitthvað er ferðunum misskipt milli þessara hópa. Alls 69,5 prósent þeirra sögðu þá ferðast meira en annað fólk. Og af þeim sem voru giftir opinber- um starfsmönnum án þess að vinna sjálfir hjá hinu opinbera sögðu 61,4 prósent að þeir opinberu ferðuðust meira á kostnað vinnuveitandans. Og líklega er það þetta fólk sem hefur bestu yfirsýnina og minnstu hagsmun- ina. ■ Könnunin var gerð um síðustu helgi. Úrtakið var 600 manns og skiptist það jafnt á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar og jafnt á milli kynjanna. í römmunum hér á síðunni er aðeins greint frá þeim sem tóku afstöðu en þeir sem voru óákveðnir í afstöðu sinni til þessara full- yrðinga voru hverfandi fáir. að gruna að opinberir starfsmenn litu vinnu sína öðrum augum en launþegar á almenna vinnumark- aðinum áttaði ég mig á því að þeir eru ákaflega gjarnir á að hengja sig á fastar reglur — ef til vill vegna þess að þeir átta sig ekki alveg á til- gangi starfsins og hafa því ekkert nema reglurnar til að standa á. Þetta rann upp fyrir mér þegar ég var ellefu ára. Þá var ég pikkaló á Hótel Sögu og eina vikuna um sumarið vildi svo til að mamma og allir eldri bræður mínir voru ýmist úti á landi eða í útlöndum. Ég var einn í Reykjavík. Það var fínt, nema hvað það komu mánaðamót, ég fékk útborgað og þurfti að skipta ávísuninni. Til útskýringar fyrir þá sem eru eitthvað yngri en ég er rétt að geta þess að þetta var fyrir tíma kenni- tölunnar. Á þessum tíma var það nafnnúmerið sem gilti. Og nafhnúmer hafði enginn fýrr en hann fékk nafnskírteini í tólf ára bekk. En ég var semsagt staddur í Landsbankaútibúinu á Lauga- vegi 7 með launaávísun í hendinni en ekkert nafnskír- teini í vasanum. Gjaldkerinn sagði mér að hann hefði ekki heimild til að skipta ávísun- inni nema gegn framvísun persónuskilríkja. Ég sagði sem var að ég ætti engin slík skil- riki, mér hefðu aldrei verið færð slík skilríki og í raun væri ekki gert ráð fýrir að ég þyrfti á slíkum skilríkjum að halda. Gjaldkerinn sagði að því mið- ur hefði hann einfaldlega ekki heimild til að skipta þessari ávísun nema ég gæti sannað hver ég væri. Ég bað um að fá að tala við útibús- Gísli Marteinn Baldursson fyrrverandi sundlaugarvörður „Ég starfaði sem sundlaugarvörður í Laugar- dalnum í 5 sumur en bjargaði engum mannslífum. Maður gat hvílst ansi vel í þessu starfi á köflum og þurfti stundum að vera í sól- baði, jafhvel gegn eigin vilja. Ég held að margt í rekstri sundlaug- anna og þjónustunni gæti verið betra ef einkaaðilar mundu reka þær. Maður færi kannski að hnoða fólk og blása í það við fleiri tækifæri en það er spuming hvort það væri til góðs. Ég hugsa að margir skrifstofumenn í op- inbera geiranum akti eins og sundlaugar- verðir en mismunurinn er bara sá að þeir ættu að vera að gera eitthvað allt annað. stjórann. Eftir smábið kom hann fram fýrir afgreiðsluborðið, horfði niður á mig ellefu ára og hlustaði á raunasögu mína. Hvernig vandi minn væri vaxinn, hvar ættmenn mínir væru niðurkomn- ir, hvernig ég ætlaði að nota kaupið mitt til að kaupa mat sem ætti að duga þar til mamma kæmi í bæinn eftir helgina, hvað ég væri gersamlega skilríkjalaus og að ég mundi svelta ef ég fengi ávísun- inni ekki skipt. Hann hlustaði svip- brigðalaus og sagði jafn svip- brigðalaus þegar ég hafði klárað lesturinn: „Reglur eru reglur og við breytum ekki reglum þótt fólk þurfi að éta.“ Eftir þetta finnst mér ég alltaf vera ellefu ára þegar ég rek mig á óbilgirni ríkiskerfisins. B

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.