Helgarpósturinn - 20.10.1994, Síða 28

Helgarpósturinn - 20.10.1994, Síða 28
28 MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994 P 1 jt is'váiy Jr rh PlJf IPM m m ' II 3 kitfi I w * IJÍ l/i'l iÆ mM mI I M í 1* ''WgiF $i[ 15 wM jm | # / ® Jjf/ Æ í W jS’ ii rr P k ... or valinn vikule uSten Auglýsing be Ríkisútvarpið hefur verið með auglýsingaherferð í gangi um nokkra hríð til að vekja athygli á vetrardagskrá sinni. I Mogganum í gær má sjá hana þessa og óhætt að segja að Rás 2 sé hnitmiðað dæmi þegar komið er að auglýsingagerð. Ein- kunnarorðin eru: „Rás 2 býður upp á birtu og yl, kulda og myrkur, allt á einni rás.“ Látum vera með birtuna og ylinn i n t í m a r k en hitt hittir beint í kviku þjóðmálaumræðunnar. Og punkt- urinn yfir i-ið er að efst í auglýsingunni er mynd af skæl- brosandi ungabarni — væntanlega einn af nýjum pistlahöf- undum — eða er hægt að lesa önnur skilaboð úr þessari mynd? Gaukur og Sölvi úr 2001. Á milli þeirra stendur Úlfur úr hljómsveitinni Dróm, en sú hljómsveit ætlar einnig að leika í Undirheimum FB. „Þetta er ekki þungarokk heldur þungt rokk,“ segja þeir fyrrnefndu um eigin sköpunarverk. Sækósadista- fjör í UncOr- heimum 2001 er nefni á hljómsveit nokk- urri sem kom fram í fyrsta sinn í janúar og kemur fram í síðasta sinn í þeirri mynd sem hún er í kvöld í undirheimum FB, það er; í Fjöl- braut í Breiðholti á vegum Unglist- ar. Hljómsveitina skipa þríeykið Sölvi, Óli og Gaukur sem verða þó enn sem fyrr kjarni sveitarinnar. Nýverið sendi hljómsveitin frá sér fjögurra laga skífuna Frygð sem fæst í öllum betri hljómplötuversl- unum á höfuðborgarsvæðinu. Þið segið í síðasta sinn í þessari mynd, hvernig er framtíðarmyndin? „Fólk má koma og fara í sveitina eins og því þóknast. Allt útlit er fyrir það að nú sé að fjölga í hljómsveitinni, að það bætist við sessíon-maður sem framkvæmir allt sem við förum fram á; verður eins konar skúringa- kona í hópnum,“ segir Gaukur og bætir við. „Við höldum þó bein- ustu leið áfram, ekki aftur á bak.“ Svona til að kynnast ykkur betur, hvað eruð þið að fást við í tónlist- inni? „Þetta er ofsalega þung og óað- laðandi tónlist í marga staði, eins lítið popp og mögulegt er. Tónlist okkar er ábyggilega með því þyngra sem gerist á markaðnum í dag, þó er þetta ekki þungarokk heldur væri nær að skilgreina hana sem þungt rokk, svona þunglyndislegt rokk sem byggir mikið á bassa og trommum.“ Eruð þið svona þunglyndir? „Nei, en við vorum það. Við komust upp úr þunglyndinu í vor en erum á leið niður aítur. Það gengur á ýmsu í lífi manns.“ Erþetta ekki bara unglingavanda- mál? „Nei, nei alls ekki,“ segir Gaukur hneykslaður. „Þetta er bara atmós- fer-tónlist. Við erum allir á sama hraða og línu í lífinu. Að okkar mati er diskurinn mjög góður! En ég held að fáir grípi hann án þess að hlusta vel: Við erum í raun tón- leikaband sem reynum að rífa upp sækósadistafjör á tónleikum." ■ Ástin — tónar hjartans Maður verður að finna ástina . ígegnum sjalran sig „Ástin — tónar hjartans" er yfir- skrift fyrirlesturs Ingu Stefáns- dóttur sálfræðings sem hún flytur í Norræna húsinu á laugardaginn á vegum Sólstöðuhópsins. Inga hyggst ekki tala um kynlíf í fýrir- lestri sínum, en kemur það ástinni ekkert við að hennar mati? „Jú, það mundi ég segja eða hvað heldur þú?“ spyr hún á móti eftir að við höfum komið okkur fyrir í stofunni hjá henni í rómantískustu verslunarmiðstöð landsins, Kjör- garði. „Það eru mjög margir þættir, sem tengjast ástinni og eru mikil- vægur hluti af henni, sem ég kem ekki inn á í þessum fyrirlestri. Kyn- líf er náttúrlega einn af þeim þátt- um sem hægt væri að halda heilan fyrirlestur um og það er ekkert ólíklegt að við tökum það þannig fyrir síðar. Við ákváðum að byrja þessa röð meira með þessum mýkri tónum hjartans, þar sem meiri áhersla væri lögð á tilfmningar og þá þætti ástarinnar. Kynlífið bíður bara betri tíma.“ Hvort telur þú að gott kynlíf sé undirstaða heitrar ástar eða heit ást sé undirstaða góðs kynlífs? „Ég held að heit ást sé undirstaða góðs kynlífs. Það er hægt að fá ágætis kynlífsreynslu án þess að þar búi mikið af tilfmningum að baki. Þá er bara um líkamlega nautn að ræða en þessi andlega nautn sem getur fylgt kynlífi er út úr mynd- inni. Ég mundi segja að ef kynlífið á að vera gott þá þurfi að vera meira inni í myndinni en athöfnin sjálf.“ En er þá til innileg og heit ást ef kynlífið er ekki gott? „Það er alveg sama spurning og hægt er að spyrja um hvað sem er. Ef fólk rífst á það þá ekki ást? Ef því gengur ekki vel á öllum sviðum, er ástin þá ekki til staðar? Mér finnst of mikil alhæfmg að setja samasem merki þarna á milli. Ég held að fólk geti átt við vandamál að stríða í öll- um þáttum lífsins og það þarf þá bara að taka á þeim. Ég er ekki þeirrar skoðunar að ef eitthvað sé að í kynlífinu eigi fólk bara að sætta sig við það sem óumflýjanlega stað- reynd þótt allt annað sé í góðu lagi. Lausnin er ekki fólgin í að leita á önnur mið, því ef þér gengur ekki vel í kynlífi með einni manneskju þá er næstum því víst að það verður eins í næsta sambandi. Þannig að maður verður að takast á við sjálfan sig fyrst og síðast ef maður er í vandræðum." íslendingar segja ekki „ég elska þig“ Er það ekki til að œra óstöðugan og ganga endanlega frá ástinni dauðri að vera að tala of mikið um hana? Er ekki bara betra að elska? „Ef maður ætlaði bara að tala um ástina þá væri eins gott að sleppa því. Ég tel að góð blanda þess að tala og tjá ástina og þess að þegja og njóta hennar sé besta leiðin. Fólk sem getur ekkert talað saman verð- ur frekar snautt. Maður þarf að geta sett orð á þessar tOfinningar sem eru inni í manni til að líða vel. Það eru margir sem eiga mjög erfitt með að tengjast innri tilfinningum sínum og koma þeim frá sér og ég held að það skipti miklu máli að reyna það að minnsta kosti. Á mörgum íslenskum heimilum er algengt að enginn segi nokkurn tímann: „ég elska þig,“ nema við börnin á meðan þau eru lítil. Svo hættir fólk þessu og ég held að það sé nokkur fátækt. Eg er ekki að tala um að fólk eigi að haga sér eins og Ameríkanar og segja „I love you“ í tíma og ótíma, heldur að maður geti tekið utan um og sagt af inni- leika við einhverja persónu, „mér þykir vænt um þig“. Það gefur manni svo mikið að fá að heyra að maður sé einhvers virði fýrir aðra manneskju. Og ef maður játar ást sína þá kemur ástin upp innra með manni — maður finnur ástina.“ Hvernig getur þá fjölskylda eða Geggjuð rokkstemmning Rósenberg ★★★★ Viðast hvar i hinum siðmenntaða heimi hefur það gerst af sjálfu sér að barir sérhæfa sig. Skammt frá Fleet Street í Lundúnum má finna pöbbinn Prent- villupúkann, sem er einkum sóttur af blaðamönnum og prenturum, á Mont- martre í París eru listamannabarir og á Manhattan má finna alls kyns bari, sem gera sérstaklega út á hina og þessa önghópa svo sem leikara, lögg- ur, djassóféti og þaðan af sérkennilegri hópa. Þessi sérhæfing hefur aldrei náð af neinu viti hingað á skerið. Island átti ekki nógu marga kúreka fyrir Borgar- virkið og Sportklúbburinn fann aldrei nógu mörg drykkfelld íþróttafrík. Auð- vitað má skipta börum höfuðborgar- svæðisins upp eftir kúnnahópum, en þá ræðir fremur um almenna aldurs- skiptingu en sérstaka þjóðfélagshópa. Þess vegna fannst drykkjumanni MORGUNPÓSTSINS það einstaklega ánægjulegt að heimsækja Rósenberg- kjallarann um liðna helgi, því sá staður gerir sérstaklega út á rokkara. Um leið og maður nálgaðist útidyrnar streymdi á móti manni þungarokk á 400 km hraða og leðurlykt fyllti öll vit. Þegar niður var komið magnaðist stemmn- ingin enn, því þar varð ekki þverfótað fyrir húðflúruðu leðurfólki af öllum stærðum og gerðum, sem hristi makk- ann í takt við níðþunga tónlistina. Hugsanlega var ég sérstaklega hepp- inn með kvöld, því að á sviði stóðu Jet Black Joe og léku listir sínar. Sándið hefði alveg mátt vera betra, en maður gerir kannski ekki miklar kröfur þarna í kjallaranum meðan desíbelakvótinn er fylltur. Og það gerður þeir félagar svo sannarlega og grúvið vantaði ekki. í pásum tók svo Richie Scobie við og spilaði rokk af þyngri gerðinni af plöt- um. Það segir sig sjálft að á svona stað eru engir áhugamenn um áfengisneyslu og úrvalið á barnum endurspeglaði það ágætlega. Viskí er þarna í töluverðu úr- vali ásamt sterkum drykkjum öðrum. Hins vegar þýðir lítið að biðja um ein- hverja kerlingadrykki, menn koma á Rósenberg til þess að drekka fullorð- insáfengi. Hins vegar fannst mér verð- lagningin ekki alveg í lagi — ekki á sjálfu áfenginu, heldur fremur á gosinu. Ef pantaður er tvöfaldur af einhverju í gosi er maður nefnilega látinn gjalda gosið fullu verði þó svo að það sé ekki nema nokkrar fingurbjargir eftir að sá tvöfaldi og klakarnir eru komnir í glas- ið. Þetta tíðkast reyndar víðar, en er allt að því dónaskapur við kúnnann. Á betri stöðum tíðkast það að menn fái afslátt á gosinu í tvöfaldan eða jafnvel frítt. Sá siður ætti að gilda alls staðar. Hvað sem því líður verður ekki annað sagt en að stemmningin hafi verið eins og best verður á kosið. Það er óhætt að mæla með Rósenberg við alla sanna rokkunnendur, sem vilja njóta uppáhaldstónlistarinnar um leið og þeir skemmta sér. Þess vegna var ekki síður skemmtilegt að fylgjast með jakkafataklæddum herramönnum, sem höfðu gert sér ferð á staðinn til þess að koma út úr rokkskápnum eina helgi, þar sem þeir trylltust á gólfinu um leið og þeir góluðu Born to be Wild við undirleik Steppenwolf. Þess vegna fær staðurinn fjórar stjörnur af fimm mögu- legum, ekki vegna þess að hann sé við allra hæfi, heldur vegna þess að hann gerir vel við sitt fólk.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.