Helgarpósturinn - 20.10.1994, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 20.10.1994, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 9 Svar við alnæmisumfjöllun í Dagsljósi 4. október 1994 Fréttamaður í búningi öfgamanns Björgvin Gíslason, formaður Alnæmissamtakanna á íslandi skrifar Tilefrii þessa skrifa minna er inns- lag um alnæmi í dægurmálaþættin- um Dagsljósi í RÚV þann 04.10. síð- astliðinn, unnið af Fjalari Sigurðar- syni, fréttamanni á Dagsljósi. Lagt er upp með spuminguna: „Eru gagnkynhneigðir karlar orðnir sami áhættuhópur og homm- ar og fikniefnaneytendur?“ Fullyrt er að 94000 karlmenn hafi smitast af HlV-veimnni í Evrópu síðastliðin tvö ár, og að milljónum sé varið til að berjast gegn alnæmi á ári hverju. Fréttamaðurinn Fjalar Sigurðar- son bregður sér fimlega í búning öfgamanns, sáir ffæjum mannfyrir- litningar og reynir vísvitandi að skapa andúð almennings gagnvart samkynhneigðum karlmönnum í þætti sínum 04. 10. síðastliðinn. Gervið var gott og hreyfði við mér þar sem ég sat og horfði á sjónvarp. Hér á eftir fara viðbrögð mín við þessum hugmyndum og spurning- um sem lagðar voru ffam í fréttinni. Fréttin og könnunin eru eingöngu til að þyrla ryki í augu fólks og gefa tilefni til falskrar öryggiskenndar hjá því fólki sem kann að taka hana bók- staflega og draga rangar ályktanir af henni. Ekki bara rangar, heldur beinlínis hættulegar þeim sjálfúm. Fréttin og könnunin ýja að því og styðja þær fáránlegu hugmyndir að alnæmi sé einkavandamál samkyn- hneigðra karla og að þessi hræðilegi sjúkdómur sem herjar á alla heims- byggðina sé til kominn vegna kynlífs þeirra. Fordómar í garð samkyn- hneigðra eru ærnir í okkar litla sam- félagi og fullyrðingar sem koma fram í áðurnefndum sjónvarpsþætti og þeirri imbakönnun sem þar var gerð meðal „sæmilega upplýsts fólks“ lýsa engu nema mannfyrirlitningu og ill- kvittni gagnvart samkynhneigðum körlum, og það sem kallað er „öfga- kenndar raddir“, á ef til vill meiri hljómgrunn í þjóðarsálinni en við ís- lendingar viljum kannast við. Umrædd könnun er algjörlega úr samhengi við raunveruleikann. Því raunveruleikinn er sá að bæði kynin smitast af alnæmi, ekki vegna þess að viðkomandi sé samkynhneigður, gagnkynhneigður, karl eða kona. Heldur einungis vegna þess að al- næmi er veirusjúkdómur sem smit- ast eftir ákveðnum leiðum, sumum auðveldar en öðrum. Ég minni á að mjög erfitt er að henda reiður á tölu- legar upplýsingar sem þessar og mjög hæpið að ganga út ffá þeim sem staðreyndum. Enda liti þetta allt öðruvísi út ef teknar yrðu til skoðun- ar sambærilegar tölur frá USA, hvað þá Afríku, þar sem alnæmi hefúr aldrei verið talinn hommasjúkdóm- ur, heldur lagst af sama þunga á alla þjóðfélagshópa ffá upphafi. Myndin liti einnig allt öðruvísi út ef smitun- artíðni meðal kvenna væri skoðuð, hvort sem er í Evrópu einni eða ann- ars staðar. I umræddri ffétt er minst á enda- þarmsmök ásamt notkun á óhrein- um nálum sem áhættumestu smit- leiðina. Ég vil minna íslendinga á að endaþarmsmök karla og kvenna eru ekki eingöngu stunduð af samkyn- hneigðum körlum en sá misskiln- ingur virðist mér nokkuð útbreiddur misskilningur meðal fólks. Gagn- kynhneigðir karlar og konur stunda endaþarmsmök og ég minni einnig á að endaþarmsmök gagnkynhneigðra karla og kvenna hefur verið og er langmest notaða getnaðarvörn í kyn- lífi um víða veröld ffá örófi alda til þessa dags. Fréttamaðurinn (í gervi öfga- mannsins) segir í upphafi á dramat- ískan hátt frá því að milljónum sé varið til baráttunnar gegn alnæmi. Er hann með könnun sinni að leitast við að sýna fram á að þessum millj- ónum sé illa varið vegna þess að fórnarlömbin séu jú að mestu leyti aðeins hommar og dópistar en ekki gagnkynhneigðir góðborgarar? Er kynlífslandslagið eitthvað breytt? spyr hann. Þvílíkur og annar eins heimóttarskapur. Kynlífslands- lagið hefur aldrei verið á einn ákveð- inn hátt, það er fegurra og fjölbreytt- ara en okkar fagra og fjölbreytta, ís- lenska landslag og nær væri að tala um kynlífsalheim, þar rúmast allt og tilbrigðamöguleikar eru óendanleg- ir. Samkynhneigðir karlar gera það með samkynhneigðum körlum, gagnkynhneigðir karlar gera það líka með gagnkynhneigðum körlum og meira að segja samkynhneigðar og gagnkynhneigðar konur gera það með körlum og konum, bæði sam- kynhneigðum og gagnkynhneigð- Er besta leiðin ti! að smitast ekki af alnæmi að vera ekki hommi og ekki eiturlyfjaneytandi? spyr fféttamað- urinn. Það skiptir bara engu máli! Al- næmi er veirusjúkdómur sem herjar á ónæmiskerfi líkamans og orsakast af veiru, sem kallast Human Im- munodefencency Virus, stytt HIV, og sú veira hefur ekki sjálfstæða hugsun og vilja, ffekar en aðrar veir- ur, og fer ekki í manngreinarálit og ákveður ekki hverja hún ræðst á með tilliti til kynhneigðar, lyfjanotkunar eða þjóðfélagsstöðu annarrar. Hefur púðrinu, auglýsingum og áróðri verið beint að röngum hóp- um hingað til? spyr fféttamaðurinn enn. Nei, vegna þess að í upphafi, þeg- ar sjúkdómurinn kom fyrst ffam, var áróðrinum eingöngu beint að sam- kynhneigðum körlum og reyndar gegn þeim líka, en auðvitað kom það í ljós, eins og ég benti á fýrr í grein- inni, að veiran fer ekki í manngrein- arálit. Því eru það forréttindi gagn- kynhneigðra karla og kvenna að njóta þess að púðrinu sé eytt í þau í dag á meðan útbreiðslan hjá þeim er þó ekki meiri en raun ber vitni. Fyrir utan þetta tel ég ekki um spurningu að ræða í þessu tilfelli, púðrinu í aug- lýsingum á að beina að fólki al- mennt, burtséð ffá kynhneigð. Ég fúllyrði að útbreiðsla smits meðal samkynhneigðra karla, í Vestur-Evr- ópu og USA að minnsta kosti, hefur stórminnkað undanfarin ár. Ekki síst fyrir áróðurinn sem hið gagnkyn- hneigða samfélag hefur ausið yfir samkynhneigða ffá því að alnæmi kom upp á yfirborðið. Samkyn- hneigðir eru þeir sem bentu fyrst á þessa vá og bentu heilbrigðisyfir- völdum á nauðsyn umræðu og að- gerða. Á þau viðvörunarorð var ekki hlustað sem skyldi og óskaplega langan tíma tók að koma þeim skila- boðum að, bæði til lærðra og leik- inna, að hér var ekki um reiði guðs gagnvart hommum að ræða, heldur ósköp venjulega en skæða veirusýk- ingu. Samkynhneigðir um víða ver- öld hafa fórnað sér fyrir baráttuna gegn alnæmi og unnið samfélaginu til góða. Sá árangur sem náðst hefúr, hvað varðar opnun umræðu og minnkun fordóma gagnvart þeim sem smitast, má alfarið þakka þessu starfi samkynhneigðra, bæði sam- taka og einstaklinga. Vissulega er það rétt að fyrstu al- næmistilfellin komu fram meðal samkynhneigðra karla í hinum vest- ræna heimi. Og er það eflaust vegna þess að mest áhætta á smiti í kynlífi er við endaþarmsmök fyrir passiva (þiggjendur). Næst mesta útbreiðsla smits er meðal kvenna vegna þess að konan er oftast passiv í kynlífi, hvort sem um er að ræða leggangasamræði eða endaþarmsmök, af augljósum ástæðum. Minnst smithætta er fýrir karl sem stundar leggangasamræði. Karlmaður sem stundar endaþarms- mök og er aktivur (gerandi) er í svip- aðri áhættu og karl sem stundar leg- gangasamræði. Sama áhætta er fýrir karl og konu við endaþarmsmök, séu þau passiv. En auðvitað er hægt að koma í veg fýrir smit eftir þessum leiðum með notkun smokka, eins og fólki á að vera kunnugt um eftir alla þá umræðu sem farið hefur ffam í þjóðfélaginu á undanförnum árum. Það er óheppilegt og rangt af fréttamanninum (í gervi öfga- mannsins) að ýja að því „að heppi- legra kunni að vera fýrir málstaðinn að draga úr fjölda þeirra homma sem smitast hafa.“ Það hefúr enginn gert, og fýrir hvaða málstað? Allar þessar tölulegu upplýsingar um fjölda smitaðra liggja frammi og hafa alltaf gert, hér á íslandi hjá Landlæknisembættinu og hver sem vill getur nálgast þær. Aðdróttanir sem þessar eru móðgun við þá sem smitast hafa af HIV- veirunni og til þess eins fallnar að auka enn á fordóma gagnvart smituðum og samkynhneigðum. Hvers vegna ætti svo sem að vera heppilegra að draga úr fjölda smit- aðra homma á opinberum vett- vangi? Eru samkynhneigðir eitthvað öðruvísi og réttminni í þessu samfé- lagi en aðrir? Mig grunar að sú skoð- un sé einmitt grundvöllurinn fýrir þessum vangaveltum, því miður. Ég vil minna fólk á að samkynhneigð er ekki ólögleg á íslándi í dag, jafnvel þótt mannréttindi séu enn stórlega brotin á þessum samfélagshópi. Eg nefni í því sambandi lög og reglur um sambúð fólks, erfðarétt sambúð- araðila, barnauppeldi, réttindi sem gagnkynhneigðir telja til sjálfsagðra mannréttinda, af lagalegum og sið- ferðilegum ástæðum, en samkyn- hneigðir eru sviptir og hafa aldrei haft þessi sjálfsögðu mannréttindi og viðurkenningu á þessum sambönd- um, lögum skráðum og óskráðum samkvæmt. Það er kannski þess vegna sem ástæða þykir að draga úr fjölda smitaðra homma, það er, til að komast hjá að vera ausinn enn meiri óhróðri og skít af hinu gagnkyn- hneigða samfélagi. Væri það ekki skiljanlegt, ég bara spyr, miðað við fordómana sem vaða uppi alls staðar og réttindaleysi samkynhneigðra? Lái mér hver sem vill. En staðreynd- in er önnur, allar upplýsingar liggja á borðinu. Samkynhneigðir hafa breið bök, hér sem annars staðar, og hafa hingað til mátt þola árásir og lifa við algjört réttindaleysi í sínum sam- böndum gagnvart hinu opinbera. Samkynhneigðir Islendingar munu ná ffam réttindum sínum og krefjast viðurkenningar á sínum lífsmáta, eins og aðrir. Kæri öfgamaður, ég les það út úr þeim tölum sem þú kemur með í lok fféttarinnar að það skipti engu máli hver kynhneigð manna er, þegar al- næmi er annars vegar. Þetta er fólk sem hefur smitast af ákveðnum veirusjúkdómi, burtséð frá kyn- hneigð, þó það kunni að hafa eitt- hvað með kynhegðun að gera en það er allt annað mál. Auk þess ftnnst mér út í hött að skoða eingöngu töl- ur um karlmenn í þessu sambandi, því áhrif fféttar þinnar væru allt önnur á fólk ef þú tækir alla hlutað- eigandi með inn í myndina. Þá tæk- ist þér ekki að þyrla upp því moldar- ryki sem ég óttast að þessi ffétt þín geti gert. Að lokum vil ég þó þakka umsjón- armanni og fréttamanni á Dagsljósi fýrir að vekja upp spurningar og með þeim reyta mig til svars. Öll umræða um málefni samkyn- hneigðra er af hinu góða og flýtir fýr- ir breytingum á högum samkyn- hneigðra og því að við öðlumst þau réttindi í samfélaginu sem okkur ber. Líka réttinum til að veikjast, eins og aðrir þjóðfélagsþegnar, og njóta að- hlynningar og stuðnings heilbrigðis- kerfisins eins og aðrir. Virðingarfyllst, Björgvin Gíslason formaður Alnæmissamtakanna á Islandi p.s. Ég vil nota tœkifærið og aug- lýsa eftir geðslegri orðum yfir hug- tökin „endaþarmsmök“ og „leg- gangasamrceði". VELJUM MANN MEÐ ÞEKKINGU OG REYNSEU ÚR MENNINGAR- OG atvinnulífi BURT MEÐ BOÐ OG BÖNN Eflum frelsi einstaklingsins til framfara. Sköpum heilbrigt rekstrarumhverfi fýrir atvinnulífið, hvort sem er í þjónustu- eða framleiðslugreinum. EFEUM REYKJAVÍK Þingmenn Reykvíkinga þurfa betur að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna. Landsbyggðin nýtur óeðlilega mikils þingstyrks og þingmenn hennar ganga eins langt í kjördæmapoti og þeir geta, sem einatt bitnar á Reykvíkingum. Við þurfum að koma í veg fýrir slíkt. STRAUMLÍNULÖGUM RÍKIÐ Ríkið á ekki að vasast í alls kyns atvinnurekstri í samkepnni við borgarana. Einkavæðingin er komin vel á veg, en betur má ef duga skal og við þurfum að Ijúka ætlunarverki ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar. AUKUM FORVARNIR Eflum forvarnastarf gegn fíkniefnabölinu, sem er að leggja fjölda heimila í rúst. Hér þurfa sveitarfélög og ríki að taka höndum saman. OPNUM STJÓRNKERFIÐ Almenningur þarf að hafa greiðari aðgang að stjórnmálamönnum og hinu opinbera. Opnari stjórnarhættir tryggja betur aðhald þegnanna og efla siðferði kjörinna umboðsmanna þeirra. UNGAN MANN I ÖRUGGT SÆ' ARA GÍ5I.A í 7.-8. SÆTI 5TUÐNINGSMENN um. „Samkynhneigðir hafa breið bök, hér sem annars staðar, og hafa hing- að til mátt þola árásir og lifa við algjört réttindaleysi í sínum sambönd- um gagnvart hinu opinbera," segir Björgvin Gíslason t grein sinni.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.