Helgarpósturinn - 13.03.1995, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 13.03.1995, Blaðsíða 7
'MMRSWAW l!J ÐW6UJ R1 FRETTIR Pétur Pétursson: Aöeins tímaspursmál hvernær þetta veröur vandamál á íslandi. ið vandamál um árabil og talið er að um 6 prósent drengja á aldr- inum 14-17 ára og um 2 prósent stúlkna hafi neytt stera. Pétur Pétursson, læknir á Akureyri, segir það aðeins tímaspursmál hvernær þetta verður vandamál á íslandi. Á Norðurlöndunum hafa rannsóknir sýnt að tengsl ofbeldisverka og misnotkunar anabólískra stera eru mikil. Ný- leg bandarísk rannsókn bendir til þess að misnotkun anaból- ískra stera sé hættulegri en mis- notkun kókaíns og heróíns því að misnotendur stera séu meiri ógn við umhverfi sitt og fjöl- skyldu. Landlæknir segir að hér- lendis sé vitað til þess að mjög alvarleg ofbeldisverk hafi verið framin af þeim sem misnota stera. ■ 9 kílómetrar af strimlum fvrir aluqaa utanríkisráðunevtisins Blöskrar upphæðin segir Þórður H. Hilmarsson, forstjóri Globus. Dýr myndi Hafliði allur,“ sagði Þórður H. Hilmarsson, forstjóri Globus, þegar blaðamaður greindi honum frá kostnaðinum við að tjalda fyrir glugga utanrík- isráðuneytisins. Aðspurður um hvernig honum litist á að nánast allir þeir skattar, sem hann greiddi í fyrra, hafi farið í gardínu- kaup í einu ráðuneyti, sagði Þórð- ur það vera augljóst hvað sér hlyti að finnast um það. „Mér líst bara ekkert á það,“ sagði Þórður, „og þú mátt hafa það eftir mér í nánast einni línu að mér blöskri upphæðin. Það eru til alveg helvíti góðar plastrimla- gardínur, sem duga nú ágætlega á flestum heimilum og ég er meðal annars með hangandi uppi hjá mér.“ Alls þurfti 9 kílómetra af striml- um fyrir glugga ráðuneytisins og fimmþúsund lóð til að halda þeim niðri. Herlegheitin kostuðu tæpar tvær og hálfa milljón, eða 42.500 krónur á hvern starfsmann ráðu- neytisins. Jóhann Guðmundsson í landbún- aðarráðuneytinu, sem var með skrifstofu á Rauðarárstígnum, sagði gardínunum hafa verið fremur illa við haldið. „Það var alltaf öðru hvoru verið að gera eitthvað við þær,“ sagði Jóhann, „og það var orðið eitt- hvað vesen á þeim. En þær dugðu svosem alveg.“ Þórður, sem borgaði rétt rúm- lega gardínuverðið í skatta á síð- asta ári sagði strimlagluggatjöld, svipuð þeim sem endurnýjuð voru í ráðuneytinu, hafa hangið uppi í Globus í 10 eða 15 ár. „En er ekki utanríkisráðuneytið bara á einhverju öðru „level" en önnur ráðuneyti?" spurði Þórður H. Hilmarsson. ■ „Dýr myndi Hafliði all- ur“ sagði Þórður H. Hilmarsson, forstjóri Globus, þegarhann frétti að skattarnir hans fóru að mestu í að borga gardínur í utanríkisráðu- neytið. €Ltaf náð að snúa þá niður Júlíus Þorbergsson, eigandi sölu- turnins Draums við Rauðarárstíg: „Maður er þrælvopnaður hérna bak við borðið og vei þeim sem ætlar sér að djöflast hingað inn í ránshugleiðingum. Ég bið þessa vitleysinga að voga sér ekki hing- að inn því ég er harður í horn að taka. Ég hef lent í þeim nokkrum gegnum tíðina en alltaf náð að snúa þá niður með mínum fanta- brögðum, maður einfaldlega bít- ur og gerir allar kúnstir til að hrista þessa djöfla af sér. Hér er skothelt gler í gluggum og hurð- um, rimlar fyrir öllu gleri og sér- stakar þjófalæsingar sem verja verslunina að nóttu til. Meira dettur mér ekki til hugar að láta uppi um varnarkerfið að svo stöddu. Þjófarnir geta fundið það út sjálfir ef þeir þora í mig.“ f JFÉMM AFBROT A ÞREMUR VIKUM María Guðnadóttir, eig- andi Kokksins með kabyss- una, Smiðjuvegi 6: „Hér voru framin 5 innbrot á þremur vikum í febrúar á síðasta ári og í framhaldi af því fengum við okkur geysilega öfl- ugt þjófarvarnarkerfi með flóð- lýsingu og tengdu aðvörunar- kerfi. Ef einhverjum dytti í hug að fara hér inn að næturlagi færi allt af stað og þetta er eiginlega spurning um sekúndur. Lögregl- an er á sífelldu vappi hér í hverf- inu og það eru ekki margar und- ankomuleiðir færar fyrir þá inn- brotsþjófa sem voga sér inn til okkar. Við höfum hins vegar ekki lent í neinum árásum ennþá, en erum vel vopnum búin ef til þess kemur.“ •eð eiturlyfja- GRENIVIÐ HLIÐINA Hrafn Pálsson, eigandi sölu- ! Maria Guðnadottir: Logreglan er a si- felldu vappi hér í hverfinu og þaö eru ekki margar undankomuleiðir færar fyrir þá innbrotsþjófa sem voga sér inn til okkar. I Hrafn Pálsson: Við búum yfir öflugu þjófarvarnarkerfi sem er tengt við stjórnstöð og mér finnst það hreinlega nóg. turnsins Engihjalla 8, Kópavogi: „Hér hafa ekki verið framin nein rán og ég vil meina að það sé vegna staðsetningar okkar hér, því við erum í fremur opnu hverfi og alltaf fólk á sífelldu vappi kringum okkur. Auðvitað hefur maður hugsað um öll þau rán sem hafa verið framin að undanförnu en ekki svo að mað- ur leggi virkilega höfuðið í bleyti og fari að geyma reykbombur undir borðinu. Við búum yfir öfl- ugu þjófarvarnarkerfi sem er tengt við stjórnstöð og mér finnst það hreinlega nóg. Ég tel þetta vera spurningu um að fara rétt að þeim krökkum sem hing- að koma, þannig tel ég vera hægt að halda uppi stjórn á ástand- inu.“ ■ I Júlíus Þorbergs- son: Maður ein- faldlega bítur og gerir allar kúnstir til að hrista þessa djöfla af sér. “I Erla Sigurðar- dóttir: Við erum öllu vön núorðið og það er fátt sem kemur manni á óvart lengur. Davíð Oddsson og Ossur Skarphéðinsson ættu nú að vera þjóðfélagslega hagkvæmari en áður eftir að sá fyrrnefndi losnaði við rúm tíu kíló en sá síðarnefndi átta. Össur var reyndar fyrir Norðurlandaráðsþingið búinn að losna við ein ellefu kíló. nm/íð nq físsiir í mpgrnn Megrun stelnir stjórninni í Itæl „Ég tel að búið sé að úti- loka frekara samstarf Al- þýðuflokks og Sjálfstæðis- flokksins," sagði Össur Skarphéðinsson þegar hann var inntur eftir því hvernig gengi að halda í við forsæt- isráðherrann í megrunar- kúrnum. „Ósvífni Davíðs í þessum kappleik er gríðar- leg, reyndar svo mjög að þegar ég var staddur úti í Vestmannaeyjum um dag- inn ásamt Tim Wirth, að- stoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, og var sest- ur til borðs með honum, Gauja bæjó (bæjarstjóra), sem er formaður Hrekkja- lómafélagsins, og fleirum var borinn fram gríðarlega fínn reyktur lundi. Þegar komið var að mér stökk skyndilega fram kona með þrjár skreyttar gulrætur og setti fyrir framan mig með kveðju frá Davíð Oddssyni. Það tók mig hálfan daginn að útskýra fyrir aðstoðar- utantríkisráðherranum að Davíð sæi ofsjónum yfir því hversu miklu betur mér hefði gengið í megrunar- kúrnurn." Þegar best lét var Össur búinn að ná af sér ellefu kílóum frá því í haust og þegar síðast fréttist var Davíð kominn í tíu kíló. Össur viðurkennir hins vegar að hann hafi látið undan freistingum á nýaf- stöðnu Norðurlandaráðs- þingi og þyngst aftur um þrjú kíló. „Hitt er annað að þessi megrunarkeppni okk- ar Davíðs stefnir orðið rík- isstjórnarsamstarfinu í hættu, eins og það var gott á milli okkar Davíðs. Hann er stöðugt þessa dagana að monta sig á ríkisstjórnar- fundum og stoppar gjarnan við stólinn minn á leið inn á fund og spyr mig hvað ég hafi borðað í nótt. En þess má geta að Davíð gat ekk- ert borðað í tvær vikur vegna þess að hann fékk tannrótarbólgu. Þá gekk eðlilega vel hjá honum. Nú er hins vegar búið að kom- ast fyrir þessa meinsemd hjá honum og ég hef haft spurnir af því að á nýaf- staðinni ráðstefnu í Kaup- mannahöfn hafi hann hang- ið öllum stundum á ísbör- unum á Strikinu.“ Af keppni Össurar og Davíðs slepptri var aðal- meinsemd Össurar áður en hann réðst til atlögu gegn aukakílóunum ísskápurinn heima hjá honum eftir mið- nætti. „Svefnvenjur mínar eru þannig að ég fer aldrei að sofa fyrr en klukkan tvö á nóttunni. Það sem var hættulegast eftir miðnætti, þegar konan mín var farin að sofa, var ómótstæðilegt segulmagn ísskápsins sem ég lenti oft í á þessum tíma án þess að hafa ætlað mér það.“ Heldur þú með öðrum orðum uppi hefðbundnum matarvenj- um, nema hvað þú sleppir mið- nœtursnarlinu? „Já, svona nokkurn veg- inn. Ég borðaði reyndar allt að þrjár máltíðir á dag, en nú er ég farinn að skera út hádegið og borða þess í stað ávexti. Á meðan það tekst ganga hlutirnir vel,“ segir Össur sem er hvergi nærri hættur í megrun þótt hann gruni Davíð um að vera sprunginn á limm- inu. ■

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.