Helgarpósturinn - 13.03.1995, Blaðsíða 17
wragigBpijgfgfHB
IÞROTTIR
•4
Gunnar H. Gunnarsson. Ákveðin
uppgjöf að stofna öldungadeild.
Elsti leikmaður
íslandsmótsins
Stofnar
deild með
jafnöldrum
sínum
Gunnar H. Gunnarsson knatt-
spyrnumaður, sem elstur allra
hefur spilað á íslandsmótinu í
knattspyrnu, hefur loksins stofn-
að öldungadeild. Það er hjá fé-
laginu Létti sem hann átti þátt í
að stofna fyrir rúmum 18 árum.
Hann er núverandi formaður fé-
lagsins.
„Jú, ég lét loksins verða af
þessu en það má auðvitað segja
að þetta sé ákveðin uppgjöf,"
sagði Gunnar. Hann spilaði einn
leik í 4. deildinni í fyrra gegn
Njarðvík og þótti harður, enda
leikmaður fyrr á öldinni með
stórliðum KR og Fram. Hann
sagðist hafa orðið fyrir „nýmóð-
ins bellibrögðum" í leiknum og
uppgötvað kvöldið eftir leikinn
að tvö rif í honum sprungu. ■
Enn verða
KR-ingar fyrir áfalli
Brynjar
úr leik
KR-ingar urðu fyrir miklu áfalli
í leiknum við Njarðvík þegar
Brynjar Harðarson þurfti að fara
meiddur af velli í síðari hálfleik
eftir að hafa fengið fingur í annað
augað. Það var Njarðvíkingurinn
Kristinn Einarsson sem var svo
óheppinn að vera valdur að
þessu þegar hann sótti að Brynj-
ari undir körfu KR, eftir að Brynj-
ar hafði tekið varnarfrákast.
Brynjar er annar leikmaðurinn
sem KR missir á skömmum tíma
en Falur Harðarson, stigahæsti
leikmaður liðsins í vetur er úr
leik.
Fyrst eftir að Brynjar meiddist
voru menn mjög áhyggjufullir
því augað leit ekki vel út og hann
sá ekkert með því. Læknisskoð-
un leiddi þó í ljós að Brynjar var
ekki eins illa slasaður og var álit-
ið í fyrstu og mun hann ná sér að
fullu. Hann er hins vegar úr leik
næstu daga og getur því ekki
leikið með KR í kvöld gegn Njarð-
' vík í hinum mikilvæga oddaleik
liðanna í kvöld. ■
T+
Loksins hafa Norðmenn eignast frjálsíþróttastjörnu
Bjartasta von hvíta
mannsins í spreilaupum
Norðmenn eru í skýjunum yfir
árangri spretthlauparans Geirs
Moens sem sigraði í 200 metra
hlaupi á Heimsmeistaramótinu
innanhús sem haldið var í Barce-
lóna um helgina. Norska þjóðin
ræður sér ekki yfir gleði en ár-
angur Moens er tekið sem enn
eitt dæmið um árangur af
íþróttastarfi í Noregi. Moen, sem
státar sig af Evrópumeistaratitli,
sigraði Englendinginn John Reg-
is sem var í öðru sæti. Það
skyggði á keppnina að aðeins 4
gátu keppt í úrslitahlaupinu og
auk þess var Linford Christie
ekki með í keppninni. Norðmenn
hugsa ekki um það þar sem Mo-
en er fyrsti Norðmaðurinn til að
vinna verðlaun á heimsmeistara-
móti síðan 1989.
Moen er af mörgum talinn vera
líklegur til að vera fyrsti
hvíti maðurinn sem
kemst undir 10 sekúndur í
100 metra hlaupi. Hann
býr ennþá í Noregi, nánar-
tiltekið Osló en er á góðri
leið með að verða tekju-
hæsti norski íþróttamað-
urinn.
Geir Moen er nú þjóðar-
dýrlingur í Noregi.
'T’*3"
Pétur Guðmundsson
Pétur hættur
Pétur Guðmundsson kúlu-
varpari varð að hœtta
keppni á heimsmeistara-
mótinu innanhúss um
helgina eftir að hann
hafði tognað á fingri.
Jón Arnar Magnússon
komst ekki í úrslit en
hann gerði ógilt í sínum
bestu stökkum. ■
Fernandez kætir áhorfendur
Tenniskonur
SEM KYNTÁKN
Þœr eru ekki margar
tenniskonurnar sem ein-
beita sér að tvíliða-
keppni en það má segja
um hana Gigi Fernandez
sem ásamt félaga sínum
Natöshu Zvereva hafa
vakið mikla athygli ekki -»
síst fyrir glœsilegt útlit.
Þœr þykja sériega fjör-
ugar á velli og eftirsótt-
ar á mót fyrir vikið. ■
Yolanda Chen fagnar sigri
Heimsmet hjá
Yolöndu Chen
Framfarirnar í þrístökki
kvenna eru gífurlegar en
Yolanda Chen frá Rúss-
landi varð fyrst kvenna
að komastyfir 15 metr-
ana þegar hún setti nýtt
heimsmet, 15.03 metra.
Chen er á 32. aldursári
og hefur hingað til aðal-
lega lagt stund á lang-
stökk. ■