Helgarpósturinn - 13.03.1995, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 13.03.1995, Blaðsíða 13
_ 1'9'9'5; 13. MARS MANUDAGUR Svala Björgvinsdóttir á milli þeirra Davíðs Magnússonar gítarleikara Bubbleflies og Páls Banine, söngvarans sem var sparkað. Bubbleflies Ráku Pál og réöu Svölu Þau merku tíðindi áttu sér stað í hljómsveitaheiminum fyrir fáeinum dögum að Svala Björg- vinsdóttir, fyrrum meðlimur hljómsveitarinnar Scope, gekk til liðs við Bubbleflies. Mun þessi atburður hafa átt sér stað eftir að aðalsöngvari hljómsveitar- innar til þessa, Páll Banine, var látinn fjúka, enda félagar hans orðnir langþreyttir á príma- donnuhlutverki kappans, sem var — auk þess að vera söngvari hljómsveitarinnar — andlit og kyntákn hennar út á við. Hermt er að hann hafi frá upphafi ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans, en þar sem stúlkurnar sáu ekki sólina fyrir Palla voru miklar vonir bundnar við að úr honum myndi rætast. Það gerðist ekki og því var tekið á það ráð að leita á náð- ir Svölu. Eins og flestum er kunn- ugt er Svala Björgvins dóttir Bo Haildórs stórsöngvara með meiru. ■ „Það var kominn tími til að hleypa suður-amerískri matarmenningu inn í landið,“ segir Mario og legg- ur bananalauf að vitum sér. Mario á Candilejas Gefur öllum ábót „Ég býð öllum upp á ábót sem vilja. Ef fólk er feimið við að þiggja ábót færi ég gestum mín- um gjarnan glas af víni eða köku- sneið í eftirrétt þeim að kostnað- arlausu," segir Mario sem nýver- ið opnaði Candilejas, nýjan veit- ingastað á gömlum merg í kjall- ara á Laugavegi 73, eða sama stað og Eldvagninn, sællar minn- ingar, var eitt sinn til húsa. Mario segir nafn staðarins vísa til matargerðarlistar frá Suður- Ameríku. Aðspurður um hvort hann leggi áherslu á eitt land fremur en annað segir hann að sama blóðið renni í öllum þeim sem þar búa. En af hverju svona rausnarleg- ur? „Ég vil bara láta fólki líða eins og heima hjá sér. Hér á að vera happy-hour öllum stundum.“ ■ ■ Skammt er stórra högga á milli í lífi Lindu Pétursdóttur. Allar götur síöan hún breyttist úr saklausri sveitastúlku frá Vopnafirði yfir í veraldarvana alheimsfegurðardrottningu hefur hún verið í kastljósi fjölmiðla. Nú síðast vegna viðskipta sinna við lögregluna eins og frægt er orðið. Öllum að óvörum birtist hún svo á dögun- um sem umsjónarmaður íslands ídag um helgar á Stöð 2. í kjölfar þess að vera boðin staða gestafréttamanns á Stöð 2 eina kvöldstund þar sem fyrrum alheimsfegurðardrottningin þótti sýna afbragsgóða, að minnsta kosti loðnu-fréttatakta, var Linda Pétursdóttir, öllum að óvörum, komin með fasta vinnu á Stöð 2 sem umsjónarmaður íslands í dag um helgar. „Það er rétt mér var boðin vinna eftir að hafa verið gesta- fréttamaður á Stöð 2. Ég sagði strax já, enda alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt,“ segir Linda aðspurð um nýja starfið. Því hefur verið haldið fram að það standi jafnvel til að Linda ger- ist meira en þulur á Stöðinni, jafn- vel fréttamaður þegar fram í sæk- ir. Hún segir hins vegar ekkert á prjónunum í augnablikinu, annað en vinnuna um helgar enda sé hún öllum öðrum stundum í Bað- húsinu sem hún rekur sjálf. Er eftil vill draumurinn að verða sjónvarpsstjama? „Ég myndi ekki segja að það að verða sjónvarpsstjarna sé draum- urinn heldur bara að það að hafa gaman af því að vinna. Svo skemmir ekki að ég er ég passlega vön að koma fram.“ Ertu búin að ná þér eftir allt sem á undan ergengið? „Já, svona eins og hægt er að ná sér. Mér líður mjög vel og er orðin fær í flestan sjó,“ segir fréttamað- urinn Linda. ■ WBHmm , Llnda Pétursdóttir segir sjónvarps- starfið viðbót við mikla vinnu sem hún vinnur nú þegar. r KÓLÓMBÍUKAFFI Afburða ljúffengt hreint Kólombíukaffi ineð kröftugu og frískandi bragði. Kaffið er méðalbrennt sem Jaðar fram hin fínu blæbrigði í bragði þess. Kólonihi'ukaffi var óður í hvítuin mnbúðum. MEÐALBKKNNT Einstök blanda sex ölíkra kafíltegunda. Milt Santos kaffi frá Brasilíu ér megin uppistaðan. Kólombíukaffi gefur ilminn og frísklegt, kröftugt bragð. Blandan er loks fnllkoinnuð með kostakaffi frá Mið-Ameríku og kjarnmiklu Kenýakaffi. gevalia E-BRli G(i séri>lamla Kaffi sem lagað er í sjálfvirkuin kaffikönnum þarf að búa yfir sérstökum eiginleikum til að útkoman verði eins og best verður á kosið. Gevalia E-brygg er blandað með sjálfvirkar kaffikönnur í liuga. Aðeins grófara, bragðmikið og ilmandi. MWW KI.I. HOTSE Fádæma gott kaffi frá eyjunni Java í Indónesíu. Bragðið er mjúkt, liefur mikla fyllmgu og sérstalvlega góðan eftirkeim sem einkennir Old Java. Kaffi sem ber af. -Það er kaffið! Fyrirsœtur á öllum aldri voru fengnar til þess að sýna hvað hausttískan hefur upp á að bjóða á sýningum sem nú standa yfír í háborgum tískunnar. Það eru einkum þeir ítölsku sem vöktu okkar athygli. Rautt silki frá ítalska hönnuðinum Mila Schon’s fer velsaman við blóðheitar ítalskar konur. Eitt frœgasta unglinga- módel heims klœðist hér fatnaði frá Giorgio Armani. Fyrirsœtunni sem er 13 ára brasilíu- búi, Gianne Albertoni að nafni. Kvöldklœðnaður frá Gi- anfranco Ferre sem myndi fara ágœtlega í forsetaveislunum á ís- landi. Red or Dead fyrirtœkið í London hljómar nœst- um eins og „betra vœri að vera dauður en rauður“ sem hœgri menn notuðu óspart gegn R-listanum í borg- arstjórnarkosningunum vor. ■

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.