Helgarpósturinn - 16.03.1995, Blaðsíða 4
4
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 16. MARS 1995
vikunnar
Eiríkur
EmÆm) í
kennara-
1 eðli sínu er kennaraverkfallið
einkar ógeðfellt og er þar af mörgu
að taka. Ógeðfelldasta frétt vik-
unnar er hins vegar að finna á for-
síðu Tímans á þriðjudaginn. Þar
gerist Eiríkur Jónsson, formaður
Kí, sjálfskipaður fulltrúi kvenna og
heldur því fram að viðsemjendur
leyfi sér meira gagnvart kvenna-
stéttum en karlastéttum. Verkfallið
hjá honum (henni?) og kollegum
sé aðeins enn einn anginn af stétta-
baráttu og launamun kynjanna. Ei-
ríkur persónugerir þannig ríkið
sem karlkyns og fjandsamlegt en
sjálfan sig og aðra kennara sem
konur sem ekki njóti sannmælis í
stéttarbaráttu sinni. Það verður að
teljast ógeðfellt að heimta meira en
aðrir af því að maður sé kona — og
heita Eiríkur.
Eiríkur segir ástæðu þess að
samninganefnd ríkisins vilji ekki
gangast við öllum kröfúm þeirra sé
af því að um konur og kvennastétt
er að ræða. Einnig bendir hann á
að kvennastéttir meinatækna og
sjúkraliða hafi einnig þurft að fara í
verkfall til að ná sínu fram, af því
að þar voru konur sem ekki náðu
eyrum hins karlkynjaða ríkisvalds.
Það er einmitt athyglisvert því
þetta eru þær stéttir sem heimtuðu
meira en aðrir fengu í þessum
kjarasamningum, og fengu meira
en aðrir. Konur fengu meira en
karlar. Og kennarar sem einnig eru
konur, samkvæmt Eiríki, heimta
einnig meira en aðrir.
Hið vonda karlkyns ríkisvald
hefur hins vegar aðeins boðið kerl-
ingunum í kennarastétt 730 millj-
ónum króna meira en aðrir fengu í
nýgerðum kjarasamningum. Það
sem Eiríki finnst verst er að kerl-
ingarnar eiga að vinna örlítið
meira en þær hafa gert fram að
þessu. Kennarar eru jú vanir því að
vera í fríi hálft árið. Gagntilboð
kennara á að ganga út á að fá pen-
ingana án þess að bæta við
kennsluskyldu. Nýjasta nýtt hjá
kennurum er að leggja gagntilboð-
ið ekki fram þar sem þær telja sig
„sjá teikn á lofti“ um að Jón Bald-
vin Hannibalsson og Davíð
Oddsson séu að fara að leysa verk-
fallið á eigin spýtur í einhvers kon-
ar uppboðsleik um kröfur kvenn-
anna í kennarastétt.B
hún þurft að henda karlmanni frá
sér, en að öðru leyti gengi þetta vel.
„En þetta er ekki draumastarfið
og maður fær heldur ekki góðan
pening fyrir að vinna þama. Það er
bara rétt svo að maður geti lifað af
þessu. Það sem bætir þetta þó upp er
að stundum fáum við tips sem karl-
arnir stinga í nærbuxurnar okkar.“
Aðspurð sagði hún íslensku stúlk-
unar ekki fara úr öllu, bara þá
dönsku sem fýrir mánuði bættist í
hópinn. Sú væri öllu reyndari en
þær og hafi því kennt þeim talsvert.
„Við íslensku stelpurnar viljum
ekki fá slæmt orð á okkur, því reyn-
um við að sleppa því að fara úr
öllu.“
Hún staðfesti það sem fram kom í
blaðinu á mánudag að sýningar
væm stanslausar allt kvöldið með
um það bil korters millibili og að að-
eins ein stúlka sýndi í einu.
Úr því þú segir að þetta sé ekki
draumastarfið, hvað kom til að þú
fórst að starfa sem nektardansmœr á
Café Bóhem?
„Mér datt þetta bara í hug þegar
ég sá þetta auglýst enda hafði ég
enga aðra vinnu. Ég tek það fram að
ég hef aldrei unnið við svona áður.
Ástæðan fýrir því að ég missti vinn-
una mína sem ég var áður í var sú að
ég datt og brotnaði og þurfti því að
vera lengi í gifsi og var þá tilkynnt að
ég gæti ekki haldið vinnunni. En um
leið og ég fæ aðra vinnu hætti ég
hér.“
Nú er sagt að Pan-hópurinn hafi
bara verið saklaus miðað við þetta?
„Ég get ekki dæmt um það, en jú,
ég hef heyrt það.“
Hverjir sœkja þennan stað?
„Það em aðallega, að ég tel, ein-
hleypir karlar. En þama líta þó við
slatti af konum. Annar er ofsalega
misjafnt hversu margir em að horfa
hverju sinni. Oftast er samt fúllt.“
GK
Islensku stúlkurnar neituðu að láta mynda sig. Hér sést hins vegar sú danska sem hefur verið að kenna þeim ís-
lensku klækina. Myndin var tekin á Café Bóhem. Á þeim sést glögglega að gestirnir fá að koma við þær.
Atján ára stúlka, sem undanfarna
tvo mánuði hefur dansað
nektardans á Café Bóhem, segir
það ekki rétt að karlmennirnir
fái að káfa á þeim að vild:
„Þeir fá
aðeins að
komavið
brióstin á
okkur“
„Mamma mín og pabbi em brjál-
uð út í mig eftir fréttina sem birtist í
PÓSTINUM. Þau vissu að ég væri að
vinna þarna en ekki hvað ég væri að
gera,“ segir ein fjögurra fatafella sem
undanfarna tvo mánuði hafa verið
að sýna nektardans á Café Bóhem.
Þar af eru þrjár íslenskar á aldrinum
16 til 18 ára og ein dönsk. Samkvæmt
lýsingu heimildarmanns PÓSTSINS
sem sótti eina sýninguna virtist
þarna fremur um að ræða þjónustu
á borð við þá sem veitt er í vændis-
húsum en hefðbundna nektarsýn-
ingu, því stúlkurnar virtust ekki hafa
stjórn á neinu.
„Þær gengu bara þægar á milli
manna þegar þær voru orðnar nakt-
ar og leyfðu þeim að þukla sig að
vild, bæði um brjóstin og á milli fót-
anna,“ sagði heimildarmaðurinn.
Stúlkan sem er 18 ára og vill ekki láta
nafhs síns getið af tilliti við foreldra
sína, segir hins vegar lýsinguna ekki
alveg rétta.
„Það er ekki rétt að við leyfum
þeim að þukla okkur að vild. Við
látum þá ekkert káfa á okkur. Þeir fá
aðeins að koma við brjóstin á okkur,
en það telst varla káf. Ef þeir gerast
of ágengir er okkur ráðlagt að slá á
hendurnar á þeim. Auk þess að sýna
eigum við í mesta lagi að setjast til
borðs með þeim og athuga hvort
þeir bjóði okkur í glas og svoleiðis."
Stúlkan segir hins vegar ekki
nema fáeina karlmenn drukkna og
ágenga, og aðeins einu sinni hefði
Rannsóknarlögreglan hafði nýlega uppi á þýfi úr innbroti í Reykjavík,
sem notað hafði verið til að fjármagna fíkniefnakaup í Hollandi
Stolið í Síðjimúla—
fannst 1 Amsterdam
Þýfi, sem stolið var úr ljósmynda-
stofu í Reykjavík til að fjármagna
fíkniefnakaup, fannst nýlega hjá
veðmangara í Amsterdam. Fyrir
nokkru var handtekinn maður á
Leifsstöð með 320 grömm af amfet-
amíni í fórum sínum, en hann var
að koma frá Amsterdam. Við áfram-
haldandi rannsókn málsins tókst að
rekja slóð hans til veðmangara
nokkurs í Amsterdam. Hjá veð-
mangaranum fannst Hasselblad-
myndavél Brynjólfs Jónssonar,
sem stolið hafði verið þegar brotist
var inn í ljósmyndastofu hans og fé-
laga hans, Lárusar Karls Ingason-
ar, við Síðúmúla nokkru fyrr.
Alls var stohð frá þeim myndavél-
um og öðrum búnaði að verðmæti
einnar og hálfrar milljónar króna og
fundust myndavélar Lárusar við
húsleit í Reykjavík skömmu eftir að
maðurinn var handtekinn í Leifs-
stöð. f yfirheyrslum yfir hinum
handtekna og tveimur mönnum
öðrum, sem dvöldust í húsinu þar
sem myndavélarnar fúndust, kom
síðan ffarn hvar myndavél Brynjólfs
væri að finna. Brynjólfúr hafði hins
vegar þegar fengið myndavél sína
bætta frá tryggingarfélagi sínu þegar
þetta gerðist og er sú, sem endur-
heimt var í Amsterdam væntanlega í
vörslu þess nú.
Að sögn Harðar Jóhannesson-
ar, yfirlögregluþjóns hjá Rannsókn-
arlögreglunni, er þetta ekki eina
þekkta dæmið um að þýfi úr inn-
brotum hérlendis hafi verið flutt út
fyrir landsteinana í því skyni að
koma því í verð. „Við höfúm eitt eða
tvö dæmi önnur um slíkt, og var í
báðum tilfellum um útflutning á
þýfi til Danmerkur að ræða, og tókst
að ná þýfinu til baka í bæði skiptin.“
Hörður taldi þetta ekki ýkja algengt
enn sem komið væri og vissi ekki
um fleiri dæmi en þessi þrjú. ■