Helgarpósturinn - 16.03.1995, Qupperneq 6
6
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 16. MARS 1995
Talsverðar deilur risu innan Þjóðvaka eftir að Ágúst Einarsson tók afskipti Ólafs Ragnars Grímssonar
af skattamálum bókaútgáfunnar Svarts á hvítu á sínum tíma sem dæmi um pólitíska spiilingu
Mörður styður
OlafRagnar
Arás Agústs Einarssonar, sem
situr í fyrsta sæti á framboðslista
Þjóðvaka á Reykjanesi, á Ólaf Ragn-
ar Grimsson í kjallaragrein í DV á
mánudaginn hefur valdið nokkrum
deilum innan Þjóðvaka að því er
heimildamenn blaðsins herma. I
kjallaragreininni beindi Ágúst gagn-
rýni sinni aðallega að embættisfærsl-
um Guðmundar Árna Stefáns-
sonar fyrrum heilbrigðisráðherra,
en vék jaíhframt að afskiptum Ólafs
Ragnars af bókaútgáfunni Svart á
hvítu, og taldi Ólaf hafa farið „veru-
lega yfir strikið" þegar hann tók stórt
veð í gagnagrunni útgáfufyrirtækis-
ins sem síðan reyndist því sem næst
verðlaus. Bæði Mörður Árnason,
sem vermir þriðja sæti framboðslist-
ans í Reykjavík, og Svanfríður Jón-
asdóttir, sem leiðir lista Þjóðvaka á
Norðurlandi eystra, voru beint eða
óbeint tengd þessu máli á sínum
tíma, en Svanffíður var þá aðstoðar-
maður Ólafs í fjármálaráðuneytinu
og Mörður var ritstjóri Þjóðviljans
auk þess sem hann átti hlut í Svart á
hvítu. Hann tók síðan við stöðu
Svanffíðar stuttu síðar. Samkvæmt
heimildum PÓSTSINS eru þau því
bæði fremur óhress með þessi um-
mæli Ágústs og sama gildir um fleiri
Þjóðvakamenn. Mun Ágústi hafa
verið gefið skýrt til kynna að hann
eigi að láta þetta tiltekna dæmi um
spillingu innan gömlu flokkanna
kyrrt liggja í framtíðinni og einbeita
sér að einhverju öðru.
„Ég er sammála Ólafi Ragnari um
að fjármálaráðuneytið eigi ekki að
gera sjálfstæða samninga um skatta-
mál einstakra fyrirtækja," sagði
Mörður, þegar blaðamaður bar um-
mæli Ágústs undir hann. „Það hafði
lengi verið siður í fjármálaráðuneyt-
inu, þegar Ólafur tók við því, að gera
sérsamninga við fyrirtæki, þar sem
fjármálaráðuneytið skipti sér beint af
skattamálum þeirra. Það tíðkaðist
hjá Jóni Baldvini og hjá Þorsteini
Pálssyni og Albert Guðmundssyni
og langt aftur í tímann."
Eðlilegir samningar
Ólafur Ragnar gerði í það minnsta
tvo slíka samninga á fyrsta ári sínu
sem fjármálaráðherra, við Svart á
hvítu annars vegar, og hins vegar við
Framsóknarflokkinn vegna útgáfú-
fýrirtækis NT. Mörður telur að eðli-
lega hafi verið staðið að báðum þess-
um samningum miðað við þau
vinnubrögð sem tíðkuðust þegar
þeir voru gerðir. „Eftir þetta tók ðl-
afur hins vegar fyrir afgreiðslu af
þessum toga, þar sem hann var
ósáttur við þessi vinnubrögð. Þess
vegna segi ég að ég sé sammála Ólafi
Ragnari,“ sagði Mörður. Hann þver-
tók hins vegar fyrir að grein Ágústs
hafi valdið nokkrum titringi innan
Þjóðvaka, og hvað hann sjálfan varð-
Miklar hræringar eru í
skemmtanalífi borgarinnar, þar
sem ekki koma fyrir minni nöfn
en Helgi Björns, Hallur
Helgason, Baltasar Kormákur
og Ingvar Þórðarson og
veitingastaðirnir Ingólfscafé,
Berlín og Kaffi Reykjavík
Skemmtana-
bransinn
undirlaaður
af Staldrinu
Helgi Björns og Hallur Helga
munu sjá um rekstur Berlínar
og Pisa í nýjum búningi.
Samkvæmt öruggum heimildum
PÓSTSINS bendir flest til þess að
Þórarinn Ragnarsson eigandi
Staldursins og Gunnar Hjaltalín
séu að verða einir umsvifamestu
skemmtistaðaeigendur landsins.
Auk þess að eiga Ingólfscafé, tóku
þeir nýverið yfir rekstur skemmti-
staðarins Berlín ásamt samliggjandi
veitingastað, Pisa, sem þeir eiga
reyndar fyrir. Að auki er þrálátur
orðrómur á kreiki þess efnis að
Þórarinn hafi nú síðustu daga einn
síns liðs eignast Kaffi Reykjavík og
boðið í hann 140 milljónir, en sá
staður mun hafa verið keyptur á 70
milljónir króna á sínum tima. Að
sögn Vals Magnússonar, sem hef-
ur haft umsjón með rekstri Kaffi
Reykjavík og er skráður í stjórn
rekstarfélagsins Penson hf. ásamt
syni sínum Magnúsi Frey Vals-
syni, en það félag gefur út reikn-
inga fyrir Kaffi Reykjavík, hefur
veitingastaðurinn ekki verið seldur.
Hann tók þó ekki fýrir að Þórarinn
hefði boðið í staðinn og jafnframt
það að Kaffi Reykjavík væri falt fýr-
ir réttu upphæðina.
Hins vegar er heimildirnar fyrir
því öruggar að Þórarinn og Gunn-
ar, sem einnig eiga hina umdeildu
Kringlu í Hafnarfirði, hafi nýverið
tekið yfir rekstur Berlínar og Pisa
úr höndum Helga Gunnlaugs-
sonar sem kenndur hefur verið við
Sól og sælu. En í hans höndum
mun staðurinn hafa verið rckinn
með bullandi taprekstri. Með sér í
reksturinn hafa þeir fengið til liðs
við sig þá Hall Helgason hjá Flug-
félaginu Lofti og rokksöngvarann
Helga Bjömsson. Koma þeir til
með að sjá um rekstur staðarins
sem ætlunín er að muni verða að
fýrirmynd veitingastaðarins Tri-
becca Grill í New York, en stórleik-
arinn Robert De Niro á hlut í hon-
Margt bendir til að Baltasar
Kormákur og Ingvar Þórðar
taki að sér rekstur Ingólfscafé.
um. Sá staður er f senn veitinga- og
skemmtistaður.
Þótt ekki hafi það fengist staðfest
bendir svo flest til þess að hinn
helmingurinn af Flugfélaginu Lofti
muni einnig starfa fyrir þá Þórarin
og Gunnar á næstunni, eða að til
standi að Baltasar Kormákur og
Ingvar Þórðarson muni reka
skemmtistaðinn Ingólfscafé í sum-
ar. -GK
Svanfríður Jónasdóttir segist
ekki geta staðið í því að eltast við
hvern þann sem segir ógætilegt
orð í kosningabaráttunni, en neit-
ar að grein Ágústs hafi valdið
deilum innan Þjóðvaka.
aði þá hefði hann ekki komið nálægt
þessu máli á sínum tíma og aldrei
rætt það við Ólaf.
Svanfríður Jónasdóttir kannast
heldur ekki við að grein Ágústs hafi
valdið deilum innan Þjóðvaka. „1
Mörður Arnason, þriðji maður á lista Þjóðvaka í Reykjavík, segist
sammála þeirri stefnu Ólafs Ragnars að gera ekki sjálfstæða samn-
inga við einstök fyrirtæki um skattamál þeirra.
þetta kemur ekkert illa við mig og ég
hef í sjálfú sér ekkert um það að
segja. Og vil ekkert um það segja.“
Ekki tókst að ná sambandi við Ág-
úst Einarsson, en hann var á ferða-
lagi um Suðurnes í gær. ■
þessari kosningabaráttu, rétt eins og
í öllum þeim fyrri, þá munu auðvit-
að einhverjir einhvern tímann segja
ógætileg orð. En ef ég ætlaði að elta
allt slíkt uppi, hver sem í hlut á, þá
væri ég í fúllri vinnu við það. En
Þótt Sveinbjörn Dagfinnsson hafi látið af störfum
sem ráðuneytisstjóri þá hefur hann síður en svo
sagt skilið við landbúnaðarráðuneytið
Fimm og hálf milljón
fyrir sérverkef ni
ert er ráð fyrir fimm og hálfrar
milljóna króna launagreiðslum úr
Jarðasjóði landbúnaðarráðuneytis-
ins á þessu ári, og munu þær ætlað-
ar til að borga Sveinbirni Dag-
finnssyni laun fyrir sérverkefni
sem hann vinnur fyrir ráðuneytið á
árinu. Sveinbjörn lét endanlega af
störfum sem ráðuneytisstjóri 1.
febrúar síðastliðinn, en var ráðinn
til áframhaldandi starfa innan ráðu-
neytisins á sömu kjörum og hann
hafði sem ráðuneytisstjóri.
„Fyrir því eru ótal fordæmi, þegar
menn eru að semja við gamla emb-
ættismenn um að þeir snúi sér að
öðrum störfum, að þeir haldi sínum
launakjörum," sagði Halldór Blön-
dal landbúnaðarráðherra í samtali
við blaðið í gær.
Hingað til hefur hins vegar aldrei
verið gert ráð fýrir að greidd væru
laun úr Jarðasjóði, en hlutverk hans
er aðallega að kaupa óbyggilegar
jarðir og jarðir bænda, sem ekki
geta staðið undir skuldum sínum. í
fjárlögunum fýrir þetta ár er hins
vegar í fyrsta sinn gert ráð fyrir 5,5
milljóna króna framlagi til sjóðsins
til að standa undir launagreiðslum.
Þykir starfsmönnum ráðuneytisins
þetta nokkur tíðindi, enda hafa allar
launagreiðslur ráðuneytisins hingað
til farið í gegnum aðalskrifstofúna.
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra sagði einfalda skýringu vera á
þessu. „Málið er það, að það fylgja
því töluverð lögffæðileg umsvif að
vinna upp hala á málefnum Jarða-
sjóðs og koma á ákveðnum breyt-
ingum. Störf fyrir Jarðasjóðinn hafa
tekið mjög mikinn tíma frá aðallög-
Sveinbjörn Dagfinnsson þiggur
ráðuneytisstjóralaun áfram fyrir
að sinna málefnum Jarðasjóðs.
Hann er hins vegar enn ekki byrj-
aður að vinna að málefnum
sjóðsins, einum og hálfum mán-
uði eftir að hann var ráðinn til
þess.
fræðingi ráðuneytisins, Jóni Hösk-
uldssyni, svo ég samdi um það við
Sveinbjörn, þegar hann hætti sem
ráðuneytisstjóri, að hann kæmi að
þessari vinnu. Mér finnst einfald-
lega eðlilegt að Jarðasjóður greiði
þann kostnað sem er í kringum
hann, og þess vegna var þessi háttur
hafður á.“
Þrátt fyrir að Sveinbjörn hafi ver-
ið ráðinn til að sinna málefnum
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra segir það venjuna þegar
samið er við gamla embættis-
menn um að þeir breyti um starfs-
svið að þeir haldi óbreyttum laun-
Jarðasjóðs sérstaklega, mun hann
þó ekki hafa byrjað að sinna þeim
ennþá, einum og hálfum mánuði
eftir að hann lét af störfúm sem
ráðuneytisstjóri. Háttsettur emb-
ættismaður ráðuneytisins staðfesti
þetta í samtali við blaðið í gær, og
mun það vera ráðuneytisstarfs-
mönnum nokkuð á huldu, við hvað
Sveinbjörn er nákvæmlega að fást
þessa dagana. ■