Helgarpósturinn - 16.03.1995, Blaðsíða 32
s££&!
Hlustum
ALLAN SÓLARHRINGINN
552-1900
,55
ICELAND
l 9 9 5
OPINBER STYRKTARAÐILI HM 1995
Björgvin
Halldórsson fær
stuðning úr
óvæntri átt í
deilunum um
Júróvisjón-lagið
hyggst flytjast til Bretlands en Linda verður eftir á íslandi.
Linda Pé á lausu
Leslie Robertson, kærasti
Lindu Pétursdóttur alheimsfeg-
urðardrottningar til fjögurra ára, er
samkvæmt heimildum PÓSTSINS,
um þessar mundir að leita sér að
vinnu í sínu heimalandi af fullum
krafti. Ástæðan fyrir því mun ekki
vera sú að þau Linda og Les séu að
flytja búferlum til Bretlands, heldur
mun Les hafa í hyggju að snúa heim
einn síns liðs. Samband Lindu og
Les, eins mest áberandi pars ís-
lands, að minnsta kosti síðastliðinn
vetur, er með öðrum orðum að lið-
ast í sundur. Eftir því sem næst
verður komist ríkir þó góð vinátta á
milli þeirra, nema hvað, þau eru
bara á leið hvort í sína áttina...
Jökull hannar
Party Zone
Langvinsælasta
platan á markaðn-
um um þessar
mundir er
Party Zone
heitir eftir
nefndum
um
fyrir unga
X-inu. Auk þess
hafa selst vonum
framar hefur hönnun
umslagsins vakið töluverða at-
hygli, en heiðurinn af því á hönn-
uðurinn Jökull Tómasson í sam-
vinnu við ljósmyndarann Svenna.
Þeir þurftu að kosta heilmiklu til úr
eigin vasa svo að hugmynd þeirra
yrði að veruleika. Upphaflega leit-
uðu þeir fjárhagslegrar aðstoðar til
Skífu-manna, sem gefur diskinn,
sem neituðu alfarið að taka þátt í
hönnunarkostnaðinum á þeim for-
sendum að þeir legðu aldrei neitt
upp úr útliti á umslögum, auk þess
sem þeir höfðu ekki trú á því að
platan myndi seljast í yfir 200 ein-
tökum. Engu að síður ákvað hönn-
uðurinn að láta til skarar skríða og
sér ekki effir því nú, því platan hef-
ur selst í yfir eitt þúsund eintökum.
Þeir sem fá ágóðann af þeirri sölu
er að sjálfsögðu Skífari. Á hinn bóg-
inn hafa þeir Jökull og Svenni feng-
ið nokkur verkefni út á umslagið
sem Skífan hafði ekki trú á. Plötu-
snúðarnir sem settu saman efnið
fyrir stjórnendur Party Zone-þátt-
arins eru þeir Margeir og Grétar.
Fatasaumur og
gamlar konur i
Heimsmynd
Ekki er nóg með að tímaritið
Heimsmynd geri út á eldri konur,
yngri menn og mat að hætti Sig-
urðar Hall, heldur er ritið að fara
að taka að sér fatasaumkeppni í
samvinnu við hið heimsþekkta
sníðablað Burda. Allt áhugafólk,
sem saumar heima, getur tekið þátt
í undankeppninni sem haldin verð-
ur í Reykjavík í júní. Þegar dæmt
verður er tekið tillit til tísku, heild-
arsvips og vandaðs frágangs. Til
mikils er að vinna því verðlaun-
in eru meðal annars för í loka-
keppnina sem haldin verður á
ftalíu í haust...
Sölvi Helgason
175 ára
Sérviska eigenda Sólon Is-
landus fær útrás í lok helgar-
innar þegar Kristinn H. Árna-
son mætir í búningi sólóistans í
tilefni 175 ára afmælis sólóistans
Sölva Helgasonar. Kristinn H.
Árnason er einn af okkar fremstu
klassísku gítarleikurum, forfra-
maður meðal Spánverja, í vöggu
gítarlistarinnar. Auk þess að hafa
haldið einleikstónleika víða hefur
hann tekið sóló með ýmsum
kammerhópum og leiðbeint á
master-klasses, sem gárungarnir
vilja kalla meistarakfessum, norðan
jafnt sem sunnan heiða. En það
verða fleiri en hann sem heiðra Söl-
va, því eftir að Kristinn hefur lokið
sér af á sunnudags- og mánudags-
kvöld flytur Jazztríó Ólafs Stephen-
sen afmælisdikta á þriðjudags-
kvöldið. Síðustu forvöð er að berja
þetta New York-ættaða sveiflutríó
eyrum þvi, eins og sjálfur Sólon Is-
landus, ætla þeir að leggja land
undir fót...
spyr Bubbi Morthens
Bjorgvin Halldorsson var
harðlega gagnrýndur af
Bubba á sínum tíma en
nú hefur Bubbi tekið upp
hanskann fyrir hann.
„Mér blöskra þau ummæli
Magnúsar Kjartanssonar í PÓST-
INUM síðastliðinn mánudag að það
sé „svartur dagur í íslenskri tónlist-
arsögu" að Björgvin Halldórsson
skuli ætla að syngja lag í Júróvisjón
unnið í samvinnu við erlenda að-
ila,“ sagði Bubbi Morthens í sam-
tali við blaðið. Bubba var mikið
niðri fyrir eftir að hann las forsíðu-
fréttina á mánudaginn þar sem
Magnús og fleiri íslenskir tónlistar-
menn gagnrýndu Björgvin harðlega
fyrir að velja lag eftir Englending-
inn Ed Wells og sjálfan sig til að
flytja í Júróvisjón-keppninni fýrir
íslands hönd. Óánægjan beinist
jafnframt að því að Irinn Frank
McManara mun útsetja lagið. Með
þessum vinnubrögðum sé Björgvin
að gefa íslenskum starfsbræðrum
sínum langt nef.
„Málið er það að Björgvin var
valinn til að syngja í Júróvisjón og
það var einhugur um það,“ segir
Bubbi. „Honum er frjálst að gera
það sem hann vill og að hann velji
þetta lag frekar en annað hlýtur að
vera smekksatriði. Það væri nær að
tala um svartan dag í íslenskri tón-
listarsögu þegar meirihlutinn af
unga liðinu er farinn að syngja á
ensku. Þannig að ég er á því að
Magnús Kjartansson og hans koll-
egar ættu frekar að styðja við bakið
á Björgvini og bakka hann upp í
þessu í stað þess að vera að rægja
hann eins og Magnús gerir í blað-
inu. Hann segist hafa sagt við
nokkra kollega sína fyrir mörgum
mánuðum að Björgvin myndi taka
lag sem gæfi honum höfundarétt.
Þetta er alþelckt úti um allan heim.
Meira að segja erlendir pródúserar,
sem eru að pródúsera plötur, þeir
fá sumir hverjir prósentur, sem
höfundar, af allri plötunni. Þetta
þýðir eldti að Björgvin sé að stela
lögum eins og gefíð er í skyn í þess-
ari grein. Menn geta svo deilt um
Björgvin og sagt hvað sem er um
hann.“
Þegar Bubbi kom fram á sjónar-
sviðið sparaði hann ekki stóru orð-
in þegar Björgvin átti í hlut og taldi
lítið til hans koma sem tónlistar-
manns. Og fram að þessu hefur
nafn hans aldrei tengst Júróvisjón-
keppninni.
„Nei, ég hef aldrei verið efstur á
lista sem aðdáandi Björg-
vins,“ segir Bubbi, „öðru-
vísi en þannig að ég veit
að hann syngur betur en
andskotinn. En mér þykja
þessi ummæli einum of af Magnúsi
Kjartanssyni og liggja við að þau
komi úr hörðustu átt. Er hann ekki
bara spældur? Menn verða að þola
höfnun. Hvað ætla þessir menn að
gera þegar þeir fá ekki lögin sín
spiluð í útvarpinu? Þetta er bara
smekksatriði. Við óskum bara
Björgvini góðrar ferðar, ekkert
öðruvísi.“ -LAE
Frétt póstsins
hefur valdið miklu
fjaðrafoki í tónlistar-
heiminum íslenska.
Veðrið um helqina
Bjart Hálfskýjað
Skýjað
fil
Rigning Snjór Kul Kaldl Stormur Hiti Frost
Veðrið í dag:
NA-hvassviðri eða stormur um
nær allt land og sums staðar rok
eða ofsaveður norðanlands og
vestan. Snjókoma um allt norðan
og vestanvert landið og skaf-
renningar um nær allt land. Hiti á
bilinu 2 til -7 stig, kaldast NV-
lands.
Veðurhorfur næstu daga:
Víða mjög hvöss norðlæg átt,
einkum á föstudag. Snjókoma
eða éljagangur umlandið norð-
anvert en skýiað með köflum og
þurrt syöra. A sunnudag verður
N og NV stinningskaldi um land-
ið austanvert en hæg norðlæg
og síðar breytileg átt um landið
vestanvert. El NA-lands en víða
léttskýjað annars staðar. Frost 0
til 10 stig.
Á að leyfa vaxtar-
rœktarmönnum
að nota stera?
(Áiviudu. i-lLvtvði!
99 15 15
39,90 krónur mínútan
U4
Síðast var spurt:
Er Jóhönnu Sigurðardóttur Já
treystandi sem forsœtisráðherra?
\í
I hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeir geta kosið um í síma 99 15 16.