Helgarpósturinn - 03.04.1995, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 03.04.1995, Blaðsíða 10
UTLOND MWNUDWGTUR^S Samantha pvkir hafa stór BRJÓST EN LITLA RÖDD. Saiviantha Fox í Eurovision Samantha Fox heitir ensk stúlka sem er þekktust fyrir að fœkka foturn enda er hún með afbrigðum barmstór. Samantha hefur einnig reynt fyrir sér í sönglist- inni en með fremur drcemum úrangri. Nú kann að rœtast úrþví allt bendir til þess að Samantha verði valin til að taka þátt í Evrópu- söngvakeppninni fyrir hönd Englendinga. Svo er spurningin hvort vek- ur meiri athygli, brjóstin á henni eða söngrödd- inM Gitte væntir fjórða BARNS SÍNS. Helena Christiansen Nlu MÁNAÐA-OG AÐEINS ELDRI. Ehris á lafínu •Jukka Ammondt, fimmtugur bókmenntakennari í bænum Jy- vaskyla, stutt norðan við Helsinki, hefur hljóðritað lög eftir rokkkónginn Elvis Presley á latínu. Ammondt segir frá því að sig „Nunc hid aut nunquam („It’s Gitte er ólétt Birgitte Nilsen, danska þokkagyðjan sem eitt sinn var kvœnt Sylvester Stallone, er stór og mikil kona. Nú hefur hún stœkkað enn því hún á von á sínu fjórða barni. Faðirinn er fimmti eigin- maður hennar, sviss- neski kappakstursbíl- stjórinn Raoul Ortolani- Meyer. Barnið er vœnt- anlegt í heiminn í maíM Fegurð frá FÆÐINGU Danska fyrirsœtan He- lena Christiansen þykir einhver fegursta kona í heimi. Menn voru ekki lengi að uppgötva þetta þvíþegar hún var aðeins níu mánaða sat hún fyr- ir í fyrsta sinn. Helena, sem er dóttir dansks manns og konu frá Perú, fœddist 1968 og var kjörin ungfrú Danmörk 1986. Hún hefur verið á forsíðum blaða en er heitbundin náunga sem heitir Michael Hutchense sem er söngvari ástr- ölsku hljómsveitarinnar INXS. Hafa þau verið saman í tjögur ár.M hafi dreymt að hann væri að syngja „Non adamare non pos- sum“ með Elvis. Á frummálinu heitir það lag „Can’t Help Fall- ing in Love“. Þegar hann vakn- aði hafði hann öðlast þá full- vissu að hann yrði að gera heila plötu með lögum Elvis á latínu. Ammondt segir að á eftir rómverska höfundinum Cicero sé Elvis eftirlæti sitt í lífinu. Hann telur að lög á borð við Sárþjáður bandarískur stríðsfangi, nýfrelsaður úr klóm Japana. Now or Never“) og „Tenere me ama“ („Love me tender") muni færa fólki heim sanninn um hversu merkilegur listamaður Elvis var. í sumar mun Amm- ondt halda námskeið um hvern- ig skuli flytja rokklög á latínu en nú glímir hann helst við að ná hinum frægu mjaðmahreyfing- um Elvis. Plata Ammondt hefur enska titilinn „The Legend Lives Forever — in Latin.“ ■ Hillary hir Hillary Wé 1 Hiiiary ciinton, forsetafrú Bandaríkjanna, er nú í ferðalagi um Asíu og í gær var hún í Nepal. Þar hitti hún fjallgöngumanninn fræga, Sir Edmund Hiiiary sem fyrstur kleif Everesttind. Það vill svo tii að Hill- ary Clinton er nefnd í höfuðið á fjallgöngumanninum en móðir henn- ar mun hafa lesið blaðagrein um hann meðan hún var barnshafandi og hreifst af honum. Stríðsglæpjj Japanskur Mengele •Japanir gerðu hryllilegar tilraunir á föngum í síðari heimsstyrj- öldinni. Þetta hefur legið í þagnargildi en nú eru komin fram skjöl sem lýsa óhæfuverkunum. Glæpamönnunum varaldrei refsað. Þann I. apríl voru liðin 50 ár frá því bandarískt herlið gerði innrás í Okinawa. Þessa minnast menn með blendnum tilfinning- um því komið hefur í ljós að Bandaríkjamenn leyfðu verstu stríðsglæpamönnum Japana að sleppa með skrekkinn. Ekki að- eins það, heldur yfirtók banda- ríska varnarmálaráðuneytið skýrslur þar sem greint var frá „vísindatilraunum” Japana. Til- raunadýrin voru fangar þeirra. Þessu hélt varnarmálaráðu- neytið leyndu og því gleymdust þessi óhæfuverk. Japanir not- uðu stríðsfanga, meðal annars Bandaríkjamenn, til að gera til- raunir með efna- og sýklavopn. í staðinn fyrir að vera dæmdir og settir í tugthús fengu sumir jap- önsku læknanna styrki til að fara til framhaldsnáms í Banda- ríkjunum. : GLÆPAMÖNNUNUM VEGNAÐIVEL Tilraunadýrin voru sundur- limuð meðan þau voru enn á lífi, þau voru skotin, brennd, fengu raflost, þau voru fryst, soðin og sett í sérstaka þrýstiklefa þar sem þau hreinlega sprungu. Læknarnir fylgdust með af ná- kvæmni. Enginn sem fór inn í pyntingaklefa Shiro Ishii, hins japanska Mengele, komst lífs þaðan. Ishi var aldrei Ieiddur fyrir dómstól. Hann dó úr krabba- meini 1959. Flestir samstarfs- menn hans áttu síðar ágætan frama í Japan. Einn varð mála- flutningsmaður, annar varð for- maður japönsku Ólympíunefnd- arinnar, sá þriðji var um árabil formaður japönsku læknasam- takanna. ENGIN MERKIIÐRUNAR Dagblaðið The New York Tim- es hefur komist í leyniskjöl sem fjalla um hina svokölluðu Sér- sveit 731. Það hefur einnig tekið viðtöl við ýmsa meðlimi hennar. 72 ára maður segir frá því ur sjaldnast mátt sjá eftirsjá hjá japönsku þjóðinni vegna fram- ferðisins í stríðinu. Enginn sem lenti í tilraunastofum Ishiis hershöfðingja komst lifandi þaðan. hvernig hann risti sundur fanga, án deyfingar. Maðurinn hafi ver- ið bundinn niður og öskrað óskaplega þegar byrjað var að skera hann. Börn voru einnig notuð í þess- um „tilraunum". Til dæmis voru þau fryst og síðan „rannsökuð”. Maðurinn sýndi engin merki iðr- unar í viðtalinu og reyndar hef- i A KALIFORNIU Hlutverk Ishiis læknis og hers- höfðingja var að þróa sýklavopn sem notuð yrðu til að dreifa meinsemdum á borð við kóleru, bólusótt, taugaveiki og tíu öðr- um banvænum sjúkdómum. Sér til hjálpar fékk hann jafnmarga aðstoðarmenn og honum hent- aði. í tilraununum með þessi vopn vörpuðu Japanir sýkla- sprengjum yfir þúsundir fanga og athuguðu síðan áhrifin. Þau þóttu lofa góðu. Flest þessi til- raunadýr voru Kínverjar, en líka bandarískir, franskir, ástralskir, breskir og rússneskir stríðs- fangar. í lok stríðsins voru Japanir orðnir svo aðþrengdir að þeir hugðust nota þessi sýklavopn. Metnaðarfyllsta áætlunin fékk heitið „Kirsuberjablómi um nótt“. Samkvæmt henni átti að nota sjálfsmorðsflugmenn til að breiða út pestir í Kaliforníu. Árásin var fyrirhuguð 22. sept- ember 1945, en stríðslok bundu endi á þau áform.B Andstæðingar Kohl hafa fallið eins og haustlauf. Kohl sextíu og fimm ára Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, heldur upp á 65 ára af- mæli sitt í dag. Hann hefur nú verið kanslari í hátt á annan ára- tug og má að sögn þakka það hversu þrjóskur hann er og seig- ur. Fátt bendir til þess að hann ætli að setjast í helgan stein en hann er nú einn eftir af leiðtog- unum sem stjórnuðu heiminum á síðasta áratug. Fleiri hafa týnt tölunni og sagði dagblaðið Ber- liner Morgenpost að andstæðingar hans hefðu fallið hver af öðrum, rétt eins og haustlauf.H Nilfisk hefur hreinna útblástursloft en nokkur önnur heimilisryksuga. Nýja HEPA-sían heldur eftir 99,95% rykagna - jafnvel þótt þær séu smærri ein 1/10.000 úr millim. VELDU UM 3 NILFISK GERÐIR NÚ Á HAGSTÆÐU TILB0ÐSVERÐI GM-200E grá á 18.990 stgr. GM-200 blá á 23.640 stgr. GM-210 svört á 28.390 stgr. Sameiginlegt er 1 200W mótor, inndregin snúra, innbyggð sog- stykkjageymsla og afiaukandi kónísk slanga. GM-200 og GM-210 hafa rykmæli og stillanlega rörlengd. GM-210 að auki 2ja hraða mótor, HEPA-síu og TURBO-teppasogsstýkki með snúningsbursta. NILFISK ÓMENGUÐ GÆÐI iFQnix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.