Helgarpósturinn - 03.04.1995, Síða 11

Helgarpósturinn - 03.04.1995, Síða 11
ijvÍMKl UJ ÐWG'IU R1 FRETTIR Drottinn hvergi nærri? Mikla athygli vakti þegar færi- band í sorpeyðingarstöðinni í Vestmannaeyjum snarstöðvaðist skömmu áður en Kristsmynd, sem var á bandinu, fór í snigilinn sem tætir sorpið sundur. Af frétt- um fjölmiðla af þessum atburði mátti helst skilja sem svo að um kraftaverk væri að ræða. Það eru margir í Vestmannaeyj- um sem efast um að þarna hafi kraftaverk verið á ferð. Margir eru þeirrar skoðunar að um grikk hafi verið að ræða. PÓSTURINN bar þetta undir þá sem taldir eru koma við sögu. Gunnar Sigurðsson, for- stöðumaður Sorpbrennslunnar, segist hvergi hafa komið nærri þar sem hann var ekki á vakt. Guðmundur Richardsson, sem var á vakt þegar þetta gerðist, segist ekkert vita hvers vegna bandið stoppaði. Hann, eins og Gunnar, kannast við að sögur gangi um að um gabb hafi verið að ræða. Þeir segja báðir það ólíklegt en útiloka ekki og segjast hvorugur trúa á að æðri máttarvöld hafi gripið inn í. Gunnar Sigurðsson, yfirmaður Sorpbrennslunnar, segist hvergi hafa komið nærri enda hafi hann ekki verið á vakt. Þegar Gunnar var spurður hvort hann kannist ekki við þá skýringu sem getið var um hér að ofan, sagði hann; „maður heyrir svo margt.“ En trúir Gunnar kannski að um kraftaverk hafi ver- ið að ræða?: „Ég vil ekkert um það segja,“ sagði hann. ■ „Mun starfa áfra hjá Olís í sumar" • „Eg tók ekki ákvörðun um að kæra og þetta mál er mér því óviðkomandi,“ sagði Níels Carl Carlsson sem lenti í því sumarið 1993, er hann var að störfum fyrir Olís, að vera sendurtil hreinsunarstarfa ofan í 10 þúsund lítra tank undan flugvélabensíni án þess að viðeigandi öryggisráðstafanir væru gerðar. Níels Carl rankaði við sér hálfum sólarhring seinna á Borgarspítalanum en hann missti meðvitund eftir að ofan í tankinn var komið og brennd- ist og átti við langvarandi veik- indi að stríða eftir siysið. „Það var komið á fundi milli olíufélaganna eftir slysið og gerðar samræmdar og harðari öryggisráðstafanir," sagði els. „Ég vil helst ekki ræða þetta mál. Þetta var slys sem hefði aldrei átt sér stað ef ég hefði ekki þurft að yfirgefa svæðið. Ég er búinn að gera þetta sjálf- Níels Carl rankaði við sér hálf- um sólarhring seinna á Borgar- spítalanum en hann brenndist og átti við langvarandi veikindi að stríða eftir slysið. ur í um tuttugu ár,“ sagði verk- stjórinn hjá Olís, sem málið varðar, en hann hefur nú verið ákærður af embætti ríkissak- sóknara fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi en brotið varðar við 219. grein hegningarlaga þar sem viðlagðar eru sektir eða varðhald til allt að fjögurra ára. „Þetta slys hefði ekki átt sér stað ef það hefði verið viðeig- andi öryggisbúnaður til staðar og verkstjórinn var auðvitað ábyrgur. Ég tók þó ekki ákvörð- un um að stefna honum, það var Vinnueftirlitið, mér fannst það óþarfi,“ sagði Níels Carl sem mun starfa áfram fyrir Olís nú í sumar. ■ Þær Hlín Eyglóardóttir og Selma Harðardóttir voru vaktar upp við eldsvoða aðfaranótt laugardags. • „Viö vöknuðum við barsmíðar á útihurðina um fjögurleytið um nóttina. Þegar við fórum til dyra stóðu tveir strákar fyrir ut- an, sem höfðu átt leið hjá húsinu og urðu varir eldsins. Við heyrðum fljótlega mikla skruðninga neðan frá og það var engu líkara en að veggirnir væru að hrynja niður, þetta var hreint út sagt hrikalegt." Þetta sögðu þær Hlín Eyglóar- dóttir og Selma Harðardóttir, íbú- ar á fyrstu hæð Þórsgötu 15 í við- tali við PÓSTINN, en það var um fjögurleytið aðfaranótt laugar- dags að upp kom eldur í kjallara Ihússins. „Eldtungurnar stóðu út um sprungna kjallaragluggana og síeiktu húsveggina, þetta var ekki falleg sjón að sjá. Skömmu seinna vorum við leiddar út af slökkviliðinu sem kom fljótlega á staðinn og þeir voru snöggir að ráða niðurlögum eldsins. Við fengum ekki einu sinni tækifæri til að taka með okkur persónu- lega muni ef illa skyldi fara. En það er aldrei að vita hvernig far- ið hefði, ef strákarnir hefðu ekki gengið fram hjá húsinu og gert okkur viðvart." Kjallarabúðin var mannlaus þegar eldurinn braust út en eins og fyrr kom fram var fólk sofandi á öðrum hæðum hússins og grunaði rannsóknarlögregluna strax að um íkveikju af manna- völdum hafi verið að ræða. Var kona á fertugsaldri tekin til yfir- heyrslu á laugardag vegna máls- ins en hún hafði skorið sig við að brjóta glugga þar. Játaði konan íkveikjuna en hún á við geðræn vandamál að stríða. Fyrrverandi eiginmaður konunnar bjó kjallaraíbúðinni og var hann handtekinn um nóttina og haldið í yfirheyrslu í sex klukkutíma. Par hafði verið búsett í íbúð- inni um nokkurra vikna skeið en látið lítið fyrir sér fara og umrætt kvöld urðu aðrir íbúar hússins* engra annarlegra ferða varir. Gleymdust í saltinu? Þeim mun hafa brugðið í brún sem lentu í fangageymslu lögregl- unnar aðfaranótt laugardagsins. Þar er klefi sem kallaður er „salt- ið“ á Hverfisgötunni og er vana- lega hreinsað út strax að morgni. Fyrir einhver mistök dróst það á langinn og máttu margir dúsa lengi inni í saltinu. Þar á meðal maður sem hafði skorið sig á höfði og var allur blóðugur. lögreglunnar Varð vírus að bráð Innan lögreglunnar eru í gangi hjálpar- og lánasjóðir sem kennd- ir eru við hverja vakt fyrir sig. Þessir sjóðir urðu margir fyrir þungu áfalli vegna Hvammsvíkur- málsins. Nú hefur það gerst að engar upplýsingar fást um sjóð- inn hjá D-vakt lögreglunnar og munu þau svör vera gefin að tölvuvírus hafi gengið þar að tölv- unm. I Ecstasy-æði Eftirspurn eftir fíkniefninu ecst- acy, sem kallað hefur verið alsæla á íslensku, fer stöðugt vaxandi í Reykjavík en neytendur efnisins eru einkum á aldrinum 17 ára til 23 ára. í seinustu viku komst fíkni- efnalögreglan á snoðir um sam- kvæmi á Kaplaskjólsvegi þar sem unglingar niður í 15 ára gamlir höfðu haldið til í kennaraverkfall- inu við neyslu fíkniefna. Um 15 krakkar voru gómaðir af lögregl- unni og viðurkenndu flest þeirra að hafa neytt ecstasy sem er í pilluformi. Skammturinn kostar um 4000 krónur. Lögreglunni hefur reynst erfitt að hafa hendur í hári neytenda og sölumanna efnisins hérlendis en neysla þess er mjög almenn á stöðum sem spila hip-hop og rappmúsik. Á Bretlandseyjum hafa um 30 ungmenni þegar látist vegna ecstacy-neyslu en neytand- inn dansar sig hreinlega til dauða vegna ofhitunar. PÓSTURINN hafði spurnir af að ecstasy-salar í Reykjavík hafi ver- ið þurrausir snemma á föstudags- kvöldið og þrátt fyrir mikla eftir- spurn hafi ekki verið nokkur leið að nálgast efnið þegar líða fór á kvöldið. Á laugardagskvöldið var framboðið hins vegar orðið „eðli- legt“ aftur og því líklegt að ein- hver hafi sloppið í gegnum tollinn með nýja sendingu. ■ Mggginn setur VlLHJÁLIVl í STRAFF Vilhjálmur Ingi Árnason, neytendafrömuður á Ah- ureyri og annar maður á lista Þjóðvaka í Norður- iandskjördœmi eystra, hefur um skeið átt í miklu stríði við íslands- banka. Er það vegna tveggja mála; annars vegar vegna tveggja ung- menna sem áttu í fast- eignaviðskiptum og hins vegar vegna gjaldþrots A. Finnsonar hf. á Akur- eyri. Hefur hann um nokkurra vikna skeið reynt að fá að birta greinar um málin í Morgunblaðinu en blað- ið hefur ekki viljað birta þœr. ■ Jónas Hvannberg segir Hótel Sögu of dvra. Hótelin of dýr Leikurinn œsist í undir- báningi fyrir heims- meistarakeppnina í handbolta sem hefst eft- ir rúman mánuð. Búið er að bóka nokkuð mik- ið af gistingum á hótel- um og er mat Magnúsar Oddssonar ferðamála- stjóra að nú sé búið að bóka álíka mikið í maí og gistinœtur í maí í fyrra urðu margar. Jónas Hvannberg, hótel- stjóri á Hótel Sögu, seg- ist ekki eiga von á að hýsa marga erlenda áhorfendur, tilþesssé Hótel Saga einfaldlega of dýr. Sama erað segja um mörg önnur hótel- anna. Búist er við að mikið verði að gera á hinum ýmsu gistihúsum þar sem gisting er á viðráð- anlegra verði, alla vega fyrir venjulegt fólk. Þeir sem rœtt var við tóku fram að þeir erlendu gestir sem koma til þess að fylgjast með mótinu komi til með að vera hér í eiria viku eða lengur og því leiti þeir að ódýrri gistingu. ■

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.