Helgarpósturinn - 08.06.1995, Side 4

Helgarpósturinn - 08.06.1995, Side 4
Hhl'.t-IB AMAL RÚN QASE Þegar kemur að ástinni eru íslending- ar öðruvísi en aðrar þjóðir sem ég hef kynnst. íslenskum karlmönnum finnst oft erfitt að tjá tilfinn- ingar sínar nema undir áhrifum áfeng- is. Hvort þetta hefur að gera með uppeldi, feimni eða hræðslu við höfnun er ekki gott að segja. Mér virðist eins og þeim finnist það niðurlægj- andi að konur hafni þeim. íslenskar kon- ur kvarta óspart und- an því hvað íslenskir karlmenn eru óróm- antískir, tilfinninga- lausir og jafnvei ruddalegir. En gleyma um leið að það eru þær sem ala þessa menn upp. Vilji konur hafa karl- menn opnari tilfinn- ingalega ættu þær að ala þá þannig upp að það sé ekki til minnk- unar að láta í ljós til- finningar sínar og að það beri ekki vott um Íitla karlmennsku. dálkurinn er skrifað- UR AF FÓLKI SEM A RÆTUR SlNAR AÐ REKJA ERLENDIS EN ER BÚSETT A ÍSLANDI. IS aö Póstinum og ferð til Parísar Strætisvagnabílstjóri hjá SVR sagt upp eftir 25 ára óaðfinnanlegan starfsferil Þann 30. maí síðastliðinn kall- aði Lilja Ólafsdóttir, forstjóri Strætisvagna Reykjavíkur, Sig- urð Árnason vagnstjóra á sinn fund og sagði honum upp störf- um. Sigurður á að baki 25 ára óaðfinnanlegan starfsferil hjá SVR en ástæðu uppsagnarinnar sagði Lilja vera þá að Sigurður hefur samhliða starfi sínu hjá SVR verið í annarri vinnu. Lilja tók það fram við Sigurð að vel væri af honum látið og hann væri talinn mjög góður starfs- kraftur. Eins og gefur að skilja finnst Sigurði þetta kaldar kveðjur frá SVR eftir langt starf hjá fyrirtæk- inu. „Þann 9. júlí næstkomandi verða 25 ár liðin frá því ég hóf störf hjá SVR. Á þeim tíma var erfitt að fá menn til þess að keyra strætó því flestir meira- prófsbílstjórar voru að vinna við virkjanir eða aðrar stórfram- kvæmdir á landinu, sem miklu meira var að hafa upp úr. Þannig að manni finnst þetta frekar skrítið." Heimildamaður PÓSTSINS úr röðum vagnstjóra SVR sagði í samtali við blaðið að starfs- menn fyrirtækisins væru orð- lausir af undrun yfir þessari framkomu í garð Sigurðar, sem er einn af elstu starfsmönnum fyrirtækisins. „Ég veit að þegar Sigurður var boðaður á fund forstjórans héidu menn að það ætti að fara að heiðra hann fyrir vel unnin störf, með gullúri eða einhverju í þá veru, en það bjóst enginn við því að hann fengi uppsagnar- bréf,“ segir þessi vagnstjóri sem vill ekki láta nafns síns getið. Aðspurður segir Sigurður það vissulega rétt að hann hafi ekki búist við uppsagnarbréfinu. „Maður hefði nú verið sáttari ef það hefði verið gullúr.“ Sú stefna SVR að starfsmenn fyrirtækisins megi ekki gegna öðrum störfum virðist vera ný af nálinni því Sigurður hefur sam- hliða starfi sínu þar starfað hjá Skólaskrifstofu Reykjavíkur í rúmlega 20 ár athugasemda- laust þar til nú. Þess má geta að Lilja Ólafsdóttir er þriðji for- stjórinn sem stýrir SVR í tíð Sig- urðar hjá fyrirtækinu. Sigurður segist ekki vera bú- inn að ákveða hvernig hann bregst við uppsögninni þar sem hún sé svo nýtilkomin, en hann segir að starfsmissirinn muni hafa mikil áhrif á afkomu sína. „Manni þótti orðið mjög vænt um þetta starf. Ég hafði byggt mitt lífsmunstur upp á þennan veg svo það mun hafa mikil áhrif á líf mitt þegar ég hætti þarna.“» „Það var hringt í mig og mér var boðin ókeypis áskrift í mánuð,“ segir Eiríkur Nielsen, bakari og nýbakaður vinn- ingshafi maímánaðar í áskrift- argetraun PÓSTSINS. Allir áskrifendur blaðsins eru með í potti sem dregið er úr mán- aðarlega en í pottinum eru svör við laufléttri spurningu sem er að finna á blaðsíðu 12 í blaðinu. Áskrifendur eiga einnig kost á að vinna stór- glæsilegan bíl sem dreginn verður út í júlí. Eiríkur vann sér inn ferð fyrir tvo til Parísar með Heimsferðum og hyggst dvelja þar í sumarfríinu sínu. Hann er danskur að uppruna en hefur búið á íslandi í 35 ár. „Áður en ég fékk áskriftar- tilboðið keypti ég PÓSTINN í lausasölu en nú er ég ákveð- inn í að halda áskriftinni áfram. Ég hef aldrei farið til Parísar áður en alltaf langað til að koma þangað.“ Þetta er í fyrsta skipti sem Eiríkur vinnur í happdrætti en áður hefur hann fengið smávinninga í getraunum og lottóinu. Andri Ingólfsson, forstjóri Heimsferða, sem afhenti Ei- ríki farseðlana, segir Parísar- ferðir fyrirtækisins njóta æ meiri vinsælda enda komist fáar borgir í hálfkvisti við hana varðandi menningu og mannlíf. ■ Heppinn áskrifandi Póstsins, Eiríkur Nielsen, tekur við farseðlum fyrir tvo til Parísar úr hendi Andra Ingólfsson- ar, forstjóra Heimsferða. Neyðarþjónustan 112 í gagnið um áramótin Vari i eitft „Já það er alveg rétt. Við höf- um setið á tíðum fundum til þess að undirbúa þetta hlutafélag. Það er alveg ljóst að við munum verða í umtalsverðu samstarfi út af þessari stjórnstöð sem mun svara í neyðarsíma," segir Viðar Ágústsson, framkvæmdastjóri og eigandi öryggisþjónustunnar Vara. Viðar staðfesti að Vari og Secu- ritas hefðu verið á stífum fundar- höldum upp á síðkastið og verið væri að vinna að samtengingu á þeirra kerfum og þjálfun starfs- manna til að taka við sameigin- legum verkefnum. Hann neitaði þó alfarið að Securitas væri að kaupa vaktþjónustu Vara og sagði að engar slíkar viðræður hefðu farið fram. Viðar keypti reyndar nýverið Vara af bróður sínum, Baldri Ágústssyni. Ástæðan fyrir samvinnu þess- ara tveggja fornu fjenda á mark- aðinum eru lög sem samþykkt voru í vor um samræmda neyð- arsímsvörun. Lögin gera ráð fyrir að komið verði upp samræmdri neyðarsímsvörun fyrir allt landið til að sinna viðtöku allra neyðar- tilkynninga í einu símanúmeri, 112, sem gildir fyrir allt landið. Lengi hafi staðið til að koma á slíku neyðarsímanúmeri, og með EES- saningunum skuldbatt ís- lenka ríkið sig til að taka upp sameiginlegt evrópskt neyðar- númer fyrir árslok 1995. Kostn- aður verður greiddur að hálfu af ríkissjóði og að hálfu af sveitafé- lögum. í fylgiskjali með lagafrum- varpinu er gert ráð fyrir að stofn- kostnaður verði 50 milljónir og árlegur rekstrarkostnaður verði 50 milljónir. „Félögin sem standa að þessari samvinnu eru Vari, Securitas, Slökkviliðið í Reykjavík og Slysa- varnafélag íslands. Við sendum sameiginlegt tilboð í útboði í vet- ur til þess að taka að okkur þetta verkefni og nú eru samningar í burðarliðnum við dómsmála- ráðuneytið,“ segir Viðar. Hann segir að reiknað sé með að þessi fjögur stofnfélög komi með sína starfsemi inn í þessa sameigin- legu stjórnstöð og samnýti þann- ig neyðarsímsvörun. -pj Jóhann Óli Guðmundsson. Securitas, Vari, Slökkvistöð- in og Slysavarnafélagið sjá um neyðarsímsvörun í síma 112 sem tekur gildi um ára- mótin í kjölfar EES.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.