Helgarpósturinn - 08.06.1995, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 08.06.1995, Blaðsíða 8
Jl11 Ai Iþýðublaðið birti á forsíðu inni í gær opið bréf Kolbrúnar Bergþórsdóttur bók- menntafræðings til Mssmunwi á miHi rekstrarfonna vio sköttun lífeynss|óos€|jalda „Það er náttúrlega rakið órétt- læti að gera upp á milli rekstrar- forma með þessum hætti,“ segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstöðu- maður lífeyrissjóðsins Einingar, en hann telur að samkvæmt nú- gildandi skattalögum séu sjálf- stæðir verktakar eða einyrkjar beittir misrétti varðandi skatta- lega afgreiðslu lífeyrissjóðs- gjalda. Einyrkjum er ekki heimilt færa þau lífeyrissjóðsgjöld er þeir greiða sem kosnaðarlið á rekstr- arreikningi eins og öðrum launa- greiðendum og greiða því skatta af þeim eins og að um hefðbundn- ar launatekjur væri að ræða. Venjulegir launþegar greiða nú 4 prósenta launa sinna í iífeyris- sjóði og ber einyrkjum að gera hið sama en að auki greiða þeir lífeyrisgjöld launagreiðanda eða af heildarlaunum sínum og eru þær tekjur skattlagðar að fullu þvert ofan í það sem tíðkast með- al almennra launþega. „Þetta hefur þau áhrif að lífeyr- issparnaður einyrkja hefur dreg- ist saman og ef fer sem horfir gæti þetta orðið að stóru vandamáli innan þessarar stéttar í framtíð- inni,“ segir Hreiðar. „Einyrkjar sjá ekkert hagræði með að greiða í líf- eyrissjóði á meðan lögin eru með þessum hætti því þeir lenda tvisvar sinnum í 40 prósenta skattlagningu. Þess vegna greiða margir einyrkjar ekki í lífeyris- sjóði og kjósa að spara fé sitt með öðrum hætti eins og með fjárfest- ingum í fasteignum en slíkar fjár- festingar geta verið fallvaltar eins og dæmin sanna.“ Hreiðar er þeirrar skoðunar að skattheimta af lífeyrisgjöldum einyrkja geti reynst samfélaginu dýrkeypt þegar fram í sækir. „Maður sér það fyrir sér að þetta fólk fái engar lífeyrisgreiðslur þegar það kemur á efri ár og verði því á framfæri Tryggingarstofnun- ar ríkisins þegar það fer á eftir- launaaldur." Árið 1982 úrskurðaði Ríkis- skattanefnd í kærumáli einstak- lings vegna ákvörðunar skatt- stjóra að fella niður gjaldfærðar iðgjaldagreiðslur á rekstrarreikn- ingi hans. Kærandi rak sjálfstæða atvinnustarfsemi og krafðist hann heimildar til að færa 60 prósenta iðgjalda sinna sem rekstrarkostn- að enda væru þau hluti af rekstri hans. Ríkisskattanefnd klofnaði í niðurstöðu sinni en meirihluti hennar staðfesti ákvörðun skatt- stjóra. í áliti minnihlutans sagði hins vegar meðal annars: „í fram- kvæmd hefur aldrei verið dregið í efa að frá atvinnurekstrartekjum lögaðila beri að draga hlut þeirra í lífeyrisgjöldum starfsmanna hvort sem viðkomandi starfs- menn eru eigendur eða ekki. Höfnun frádráttar á reiknuðum hluta atvinnurekstrar í lífeyris- gjöldum einstaklinga, sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, skapar misrétti á milli rekstrarforma að þessu leyti." Á þessum forsendum taldi minni- hluti Ríkisskattanefndar að taka bæri kæruna til greina. Ekki náð- ist í Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra vegna þessa máls. -lae Jóns Baldvins Hannibalssonar, for- manns Alþýðuflokks- ins, og Hrafns Jök- ULSSONAR, ritstjóra Alþýðublaðsins. Hún segist lengi hafa reynt að ganga í flokkinn og allt bendi til að það takist ekki fyrr en Birta Össur- ARDÓTTIR fái kosn- ingarétt. Þá verði væntanlega búið að skipta um formann og áhugi Kolbrúnar því minni. Hún segist hafa taumlausa að- dáun á þeim Jóni Baldvini og Hrafni sem Hrafn hafi vissu- lega metið en mælst til að hún kynnti sér stefnumál flokksins. Það segist hún nú vera að gera í von um að það flýti flokksaðild og „komi þannig í veg fyrir pólitískt umkomu- leysi“ sitt... Vk ^Veitingastaður- ■V inn Subway V sem opnaði í Austurstræti á dög- unum var lokaður mitt í hádegistraffík- inni í gær. Staðurinn hefur fengið frábær- ar móttökur í þann stutta tíma sem hann hefur verið starf- ræktur og því kom það óneitanlega spánskt fyrir sjónir að hann var lokaður í gær. Fjöldi fólks þurfti frá að hverfa af þessum sökum en starfsmaður Subway sagði að aftur yrði opið í dag það hefði bara „gleymst að fá leyfi“ til veitinga- rekstursins... Gerist áskrrfendur að Mánudagspóstinum og Helgarpóstinum og takið þátt í áskrifendahappdrætti. í ágúst verður þessi glæsilegi hálfsjálfskipti Renautt Twingo að verðmæti 968.000 krónur dreginn út. Allir áskrifendur - gamlir og nýir - eiga jafna möguleika á að eignast þennan bíl fyrir áskriftarverðið - 999 krónur á mánuði. 568 1200 & 581 4060 Pðsturínn Fjölbreytt fréttum, ú greinum, skemmtiefni. Ungt blað og Margret Guðmundsdótt- IR, sem undanfarin ár hefur gegnt starfi fram- kvæmdastjóra hjá olíufélaginu Q8 í Danmörku, hefur verið ráð- in til starfa hjá Skeljungi hf. í Reykjavík frá og með september næstkomandi. Margrét hefur verið einn af leiðandi forystu- mönnum Q8 í Danmörku og tek- ið þátt í mikilvægum ákvörðun- um innan fyrirtækisins sem meðal annars hafa leitt til þess hve traust það er á danska markaðnum. í fréttatilkynningu sem Q8 sendi frá sér vegna brottfarar Margrétar, kemur greinilega fram að þeim þykir miður að hún sé að hætta hjá fyrirtækinu, en jafnframt er sýndur skilningur á ákvörðun hennar, þar sem hún og fjöl- skylda hennar vilji flytjast aftur heim til íslands... Starfsmenn ÁTVR hafa að undanförnu orðið varir við óeðlilega litla sölu á vodka á sumum hótelum og vín- veitingahúsum. HöSKULDUR JÓNSSON, forstjóri ÁTVR, hefur látið að því liggja að þetta sé ekki vegna breytinga á vín- smekk mörland- ans heldur sé skýringarinnar að leita í ólög- mætum við- skiptaháttum umræddra veit- ingahúsa. Höskuldur segir að ástæðurnar fyrir dræmri vodka- sölu til veitingahúsa sem kaupa fullt af gini, viskí og bjór geti verið þrjár, að því er hann held- ur. í fyrsta lagi að umrædd veit- ingahús selji landa í stað vodka, þau selji smyglað áfengi eða að veitingamennirnir versli í sölu- búðum ÁTVR til að losna við innskattinn. Höskuldur hefur gefið skýrslu um málið til þar til bærra yfirvalda en hann vill ekki segja opinberlega um hvaða veitingahús er að ræða. Á með- an ekkert er gert í málinu liggja því öll veitingahús landsins und- ir grun um landasölu og vod- kaunnendur vita ekki hvað þeir eru að drekka...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.