Helgarpósturinn - 08.06.1995, Page 11

Helgarpósturinn - 08.06.1995, Page 11
FIMMTuDAGuR ■LT.í 1 Jósteinn Krist- jánsson. „Hauga helvítis blaður," segir hann um fullyrðingar kokkanna tveggja um ástandið á hót- elinu og aðra atburði því tengdu. „Hótelið var vaktað undir lokin, bæði af eigendunum og fulltrúum fyrir- tækjanna sem seldu þeim græjurnar. Þegar búið varað veð- setja fyrstu tvær loftkælingarnar komu menn frá söluaðilunum og fjarlægðu það sem eftir var. Gestirnir sátu eftirsjón- varpslausir í svitakófi." Annar Islendingur, sem var þarna í íhlaupavinnu og átti að fá 5000 BHT (um það bil 12.500 krónur) á mánuði fékk heldur ekkert greitt." Jósteinn vísar þessum ásökun- um einnig eindregið á bug. „Þetta er svo mikið bull að ég á ekki orð til yfir það. Það var allt gert upp, hver einasta króna.“ Að sögn kokkanna var fjár- hagsstaða hóteisins mjög slæm þann tíma sem þó tókst að halda því opnu. „Það kom ósjaldan fyr- ir að það var ekki einu sinni kló- settpappír á herbergjunum. Við vorum að fara út í búð einu sinni, tvisvar á dag að kaupa þetta eitt epli, hálfa gúrku, þrjá tómata, hundrað grömm af kjöti og svo framvegis. Svona var þetta rekið. Það kom fyrir að þeir fengu lánaða peninga frá gestunum til að halda þessu gangandi. Þetta voru yfirleitt fastagestir frá L.A. Café heima. Það var enginn peningur til að gera neitt og stundum var varla til morgunmatur handa gestun- um.“ „Það var eflaust hægt að setja út á eitthvað, en það var haldið þannig á spöðunum að það þurfti enginn að vera óhress,“ segir Jósteinn. „Það er alveg rétt að fjárhagurinn var ekki alltaf sem bestur, en það fengu allir mjög vandaðan og góðan morg- unmat sem þarna voru. Það kom upp óánægja með hótelið, það er ekkert launungarmál, en sú óánægja stafaði fyrst og fremst af því að þar var stolið peningum frá fólki.“ PENINGASKÁPUR RÆIVIDUR „Það var allt saman borgað af okkur á staðnum," segir Jósteinn um hina stolnu fjármuni gest- anna. „þetta var nokkuð sem við réðum ekki við og það kom í ljós að það voru tælenskir starfs- menn sem gerðu þetta. En þetta er þekkt vandamál úti um allan heim og ekkert bundið við þetta hótel umfram önnur." Það kom hins vegar einnig fyr- ir oftar en einu sinni að pening- um væri stolið, þrátt fyrir að þeir væru geymdir í öryggisskáp hót- elsins, sem aðeins tveir menn áttu að hafa aðgang að, þeir Kristján og Ingvi Már Guömunds- son, sem gegndi starfi veitinga- stjóra. „Eftir að Ingvi fór hafði konan hans, sem varð eftir í Tæ- landi þegar hann neyddist til að yfirgefa landið, líka lykil að skápnum," segir annar kokk- anna. „Ég ætla ekkert að fullyrða að þau hafi stolið þessu, en þetta voru einu lyklarnir sem voru í gangi." „Jú, jú, þau voru þau einu sem höfðu lykil, það er alveg rétt,“ staðfesti Jósteinn. „En þetta var víst ekki merkilegri skápur en svo að það gat greinilega hver sem er opnað hann. En þetta var allt saman borgað og þetta voru ekki háar upphæðir.“ KRISTJÁIU í FAIUGELSI Einu sinni var þó stolið 1000 dollurum frá tælenskri konu sem dvaldi á hótelinu ásamt íslensk- um eiginmanni sínum. „Það voru auðvitað ekki til neinir peningar til að endurgreiða henni þetta," segir kokkurinn, sem reyndar heldur því fram að aðrir þeir sem stolið var frá hafi ekki feng- ið endurgreitt á staðnum og stundinni, eins og Jósteinn held- ur fram, heldur seint og um síðir og jafnvel ekki fyrr en heim var komið. „Hún þekkir hins vegar að sjálfsögðu vel til í Tælandi og veit hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Hún kallaði á lögguna og Kristjáni var stungið inn í tvo tíma, þangað til hann gaf leyfi til að veðsetja tvær loftkælingar til að geta borgað henni. Það var í framhaldi af því sem restin af loftkælingunum var fjarlægð og sjónvörpin líka.“ „Þetta eru fréttir fyrir mig og sjálfsagt Kristján líka. Það er rétt að það hurfu 1000 dollarar úr skápnum á óskiljanlegan hátt, en konan fékk þá til baka án vand- ræða. Og ég endurtek bara það sem ég sagði áðan, við létum ekki veðsetja nokkurn skapaðan hlut. Við keyptum þessi tæki, borguðum þau og seldum svo aftur það sem við gátum þegar ég hætti rekstrinum og það er ekkert óeðlilegt við það.“ VEfTIIUGASTJÓRAJVUM BJARGAÐ UR LAIMDI Að sögn kokkanna var Ingva Má bjargað snarlega úr landi nokkrum vikum áður en hótel- Vilhjálmur Ástráðsson. Fór til að reyna að bjarga því sem bjargað varð, en var lokaður úti passaíaus og allslaus ásamt þremur öðr- um þegar hótelinu var lok- að að sögn kokkanna tveggja, sem yfirgáfu svæð- ið kvöldið áður. inu var lokað, þar sem hann átti fangelsisvist yfir höfði sér að öðrum kosti. „I Tælandi er hægt að stinga mönnum inn ef þeir gefa út inni- stæðulausar ávísanir upp á meira en 50.000 BHT [125.000 krónurj. Og þeir verða að dúsa inni þangað til gert hefur verið upp. Ingvi var búinn að gefa út gúmmítékka á vegum fyrirtækis- ins uppá 75.000 BHT og það var vitað að honum yrði stungið inn daginn eftir þannig að honum var komið úr landi hið snar- asta.“ Jósteinn segir þessar fullyrð- ingar kokkanna helbera lygi og þvætting. „Þetta er eins og hvert annað bull. Ingvi var ekki að flýja eitt eða neitt, hann var ein- faldlega að koma heim af því við vorum hættir. Sonur minn varð eftir til að ganga frá okkar mál- um þarna úti og hann gerði það með stakri prýði. Og ég vissi ekki um nein leiðindi í kringum þennan rekstur fyrr en núna.“ Eftir stendur þó að Ingvi hvarf aftur til íslands nokkru áður en hótelinu var endanlega lokað. FERÐABÆR FAERDI FERÐAMEIUIU Jósteinn leitaði samstarfs við ferðaskrifstofuna Ferðabæ hér á segja kokkarnir tveir sem unnu fyrir Jóstein í Tæ- landi. „Hauga hel- vítis blaöur," segir Jósteinn og er stoltur af tilraun sinni til að reka hótel fyrir íslend- inga í Asíu. landi, og fyrsti hópurinn sem keypti gistingu á L.A Café í gegn- um Ferðabæ fór til Tælands um jóiin. Það slitnaði þó fljótlega upp úr samstarfinu því kvörtun- um rigndi yfir ferðaskrifstofuna. Þá var gripið til þess ráðs að flytja þá sem það vildu yfir á annað hótel, og rúmlega helm- ingur hópsins nýtti sér þann möguleika. Jósteinn mun hafa lofað end- urbótum á aðstöðunni og því var haldið áfram að bóka þá ís- lendinga inn á hótelið sem slíkt vildu út janúar. Endurbæturnar létu hins vegar á sér standa og kvartanirnar héldu áfram að berast. í byrjun febrúar var þol- inmæði Ferðabæjarmanna á þrotum og þeir hættu alfarið að selja gistingu á L.A. Café. Eitt af því sem fór fyrir brjóst- ið á ferðalöngunum var síma- leysið í herbergjunum, auk þess sem áður er upp talið. „Eins og ég sagði, þá kom upp óánægja með hótelið, ég dreg enga dul á það,“ segir Jósteinn um þetta. „Hins vegar skiptust menn alveg í tvo hópa, menn voru ýmist bara nokkuð ánægð- ir eða óánægðir. Það er bara eins og gengur og gerist með ís- lendinga, sérstaklega erlendis, það er mjög erfitt að þjóna þeim. Við vorum aldrei með neitt lúxushótel og gáfum það aldrei í skyn. Auðvitað voru eng- ir símar á herbergjunum, ég veit ekki hvað fólk hefur haldið að það væri að kaupa. Veistu hvað gistingin kostaði hjá okkur?“ Samkvæmt heimildum blaðs- ins kostaði gisting á fullu verði 650 BHT (um það bil 1.600 krón- ur), en fyrir það verð má fá gist- ingu á ágætis hóteli á Tælandi sem býður upp á töluvert meiri þjónustu og þægindi en L.A. Ca- fé gerði, jafnvel þegar rekstur- inn gekk hvað skást. JÓSTEIIUIU STOLTUR „Þetta var fyrst og fremst leik- araskapur þegar ég ákvað að fara út í þetta," segir Jósteinn um ástæðuna fyrir því að hann hóf hótelreksturinn á Tælandi. „Ég tók enga fjárhagslega áhættu, enda leigði ég húsnæð- ið. Síðan kom einfaldlega í ljós að það er afskaplega erfitt að fjarstýra þessu héðan frá ís- landi. Við kláruðum önnina eins og við ætluðum en framlengdum síðan ekki samninginn. Það er allt og sumt. Það var enginn óheiðarleiki í gangi í sambandi við þennan rekstur og ég tel mig ekki þurfa að skammast mín fyr- ir neitt." Hótelinu var hins vegar lokað í febrúar, hvort sem það var að frumkvæði Jósteins eða leigu- sala hans, en þá er aðal ferða- mannatíminn í Tælandi langt í frá liðinn. Allt það sem kokkarnir tveir og aðrir heimildarmenn PÓSTS- INS hafa haldið fram hér að ofan, segir Jósteinn vera lýsandi dæmi um lífseiglu og áhrifa Gróu á Leiti. „Ég held að það sé hvergi í heiminum meiri söguburður í gangi en hér á íslandi. Það sem við gerðum var einfaldlega að opna L.A. Café úti í Tælandi af því okkur langaði til að prófa það og við sjáum ekki eftir neinu. Eg tapaði akkúrat engu á þessu og aðrir ekki heldur, hvað sem hver segir. Þetta var að mörgu leyti skemmtilegt tímabil en því miður treysti ég mér ekki til að halda þessu áfram, fjar- lægðarinnar vegna. En ég reyndi þetta og er bara nokkuð stoltur af þeirri tilraun.B „Það erbara eins og gengur og gerist með íslendinga, sér- staklega erlend- is, það er mjög erfitt að þjóna þeim. Við vorum aldrei með neitt lúxushótel og gáfum það aldr- ei í skyn. Auðvit- að voru engir símará her- bergjunum, ég veit ekki hvað fólk hefur haldið að það væri að kaupa. Veistu hvað gistingin kostaði hjá okk- ur?"

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.