Helgarpósturinn - 08.06.1995, Síða 13
FlmMTaDAGtlR STÍIclNI” 995
IILMAR SlGURÐSSON, grafísk-
ur hönnuður og formaður
félags íslenskra teiknara,
er nú á leið til Ítalíu þar sem
hann ætlar að „meika það“. Ferð-
inni er heitið til Mílanó sem á
þessu sviði er
höfuðborg,
ásamt New York
og London.
Hilmar hefur átt
fimmtungshlut í
auglýsinga- og
hönnunarstof-
unni Grafít,
ásamt Finni Malmquist, Önnu
Sigríði Guðmundsdóttur, Önnu
Svövu SVERRISDÓTTUR Og HÖLLU
HelgadÓTTUR en ætlar nú að selja
þann hlut. Hilmar er í viðræðum
við þau fjögur um kaup á sínum
hlut en samkvæmt heimildum
blaðsins ber enn talsvert í milli
hvað verð varðar. Ferðin kom
upphaflega tii af því að hans
heittelskaða, Hrafnhildur Stef-
ÁNSDÓTTIR, er að fara í fjögurra
ára nám í sviðsmyndahönnun í
Mílanó. Hilmar fór út og hefur
þegar verið boðin vinna hjá
nokkrum af stóru nöfnunum...
Odrengileg framkoma KR-
inga í leiknum við Fram á
mánudag virðist ætla að
draga nokkurn dilk á eftir sér.
Málavextir voru þeir að Framarar
höfðu spyrnt boltanum af leik-
velli svo hægt
væri að huga að
meiðslum KR-
ingsins Heimis
Porcha, sem lá á
vellinum. Á
meðan læknir
KR-liðsins
stumraði yfir
Heimi tóku félagar hans, þeir
Þormóður Egilsson og Mihajlo
Bibercic, sér stöðu við hliðarlín-
una og ræddu saman. Þegar
dómarinn flautaði til leiks á ný
bjuggust Framarar við því að
Þormóður myndi kasta boitanum
til þeirra eins og hefur hingað til
verið óskrifuð heiðursmanna-
regla. En hann kastaði á Bibercic
sem var fljótur að koma boltan-
um fyrir markið þar sem KR-ing-
ur kom aðvífandi og skoraði.
Samkvæmt heimildum PÓSTSINS
hafa forráðamenn fyrstudeildar-
liða rætt hvernig bregðast eigi
við. Niðurstaðan varð sú að spila
bara áfram þótt einhver KR-ingur
liggi meiddur...
X
r
J
GEVALIA
tAFFI 500,0
KÓLÓMBÍUKAFFI
Afburða Ijúffengt hreint Kólonibíukaffi með kröftugu og frískandi bragði.
Kaffið er meðalbrennt sem laðar fram hin fínu blæbrigði í bragði þess.
Kólombíukaffi var áður í hvítum umbúðum.
ml:ðalbrennt
Einstök blanda sex ólíkra kaffitegunda. Milt Santos kaffi frá Brasilíu
er megin uppistaðan. Kólombíukaffi gefur ilminn og frísklegt, kröftugt bragð.
Blandan er loks fullkomnuð með kostakaffi frá Mið-Ameríku
og kjarnmiklu Kenýakaffi.
'II lUl.llltK^NT
gevalia
lx A i’ r I 5 0 o G
ÉÉlilílL ■ ■ ■
E-BRYGG sérblanda
Kaffi sem lagað er í sjálfvirkum kaffikönnum þarl’ að búa yfir sérstökum
eiginleikum til að útkoman verði eins og best verður á kosið.
Gevalia E-brygg er blandað með sjálfvirkar kaffikönnur í liuga.
Aðeins grófara, bragðnúkið og ilmandi.
MAXWELL HOUSE
Fádæma gott kaffi frá eyjunni Java í Indónesíu. Bragðið er mjúkt,
hefur mikla fyllingu og sérstaklega góðan eftirkeim
sem einkennir Old Java. Kaffi sem ber af.
HOÍB
GEVALIA
-Það er kaffið!
oidjava
Mc/íartronot Kaffe
•« B*tta Kvalitet
1/2 kilo
'
ÓDÝRASTI HAPPDRÆTTISMIÐINN Á LANDINU
13
EI heppnin er með þér vinnur þú flug til Parísar fyrir tvo með Heimsferðum í sumar
Spurningin í dag er:
í hvaða hverfi Parísar er Sorbonne-háskóli?
r
11 Nafnið þitt: _
ÍBHeimilisfang:
ISPóstnúmer: _
|m[ðann.ut gg sendið Ojíkur_____________________^
Símanúmer:
| Setjið í umslag og skrifið utan á: Feröahappdrætti
I Helgarpósturinn
Rétt svar:
Vesturgötu 2-101 Reykjavík
téttur leikor
I júnímánuði birtast spurning-
ar um París í IViánudags- og
Helgarpóstinum. Með því að
svara einni spurningu fer nafn-
ið þitt í pott sem dregið verður
úr í byrjun júlí. Með því að
svara öllum níu spurningunum
átt þú nífaldan möguleika á að
fijúgatil Parísar í sumar.
HEIMSFERÐIR
S
ölmiðlar
ALÞINGI
POPPAÐ UPP
Þær eru hálf tilbreytinga-
lausar útsendingarnar frá
Alþingi í Ríkissjónvarpinu.
Ekki mikið í þær lagt. Vél-
in er frosin á ræðumanni
sem horfir niður yfir sal-
inn en aldrei upp í vélina.
Að horfa á þetta er svip-
að og að vera á gægjum.
Maður er ekkert sérlega
velkominn.
En þetta er alls ekki svo
galið sjónvarpsefni samt.
Og með því að flíkka að-
eins upp á þessar útsend-
ingar mætti jafnvel hafa
þær þannig úr garði gerð-
ar að þær myndu létta
veiku fólki og lasburða
stundirnar á meðan það
er að ná heilsu á ný.
Það mætti til dæmis nota
tölvurnar sem íþrótta-
deildin hafði þegar hún
sýndi frá heimsmeistara-
keppninni í handbolta.
Með þeim gæti útsend-
ingarstjórinn sýnt manni
hversu lengi hver ræðu-
maðurværi búinn að
tala, hvað hann hefði set-
ið lengi á þingi, hvað
hann væri hárog þungur,
hve mörg atkvæði væru á
bak við hann, hversu oft
hann hefði tekið til máls
é yfirstandandi þingi og
svo framvegis. Einnig
mætti með skýringa-
myndum sýna hvernig rík-
isstjornin kemur sínum
málum í gegnum þingið,
hvernig hún fær einn til
að skipta um skoðun með
loforði um bitiing eða
stuðning í einhverju kjör-
dæmamálinu og hótar
öðrum.
En það sem helst myndi
gera þessar útsendingar
skemmtilegar og gagn-
legar væri ef neðst í horn-
inu vinstra megin væri
rammi sem sýndi hvað
það sem ræðumaður
leggur til myndi kosta
skattborgara ef það
kæmist til framkvæmda.
Þe.ssi gluggi gæti verið
svipaður og sá sem sýnir
hversu hár gulipotturinn í
Gullnámu happdrættis
Háskólans er hverju sinni.
Og það er ekki svo galið
að halda einhverjum
myndrænum skyldleika
þarna á milli. Þingfundir
eru nefnilega eins og
óhappdrætti skattborgar-
anna. Stundum sleppa
þeir með skrekkinn ef
þau mál sem þingmenn
mæla fyrir ná ekki fram
að ganga. En stundum
sitja þeir í súpunni og þá
ervanalega ekki um
neina smá óvinninga að
ræða.
GUNNAR SMÁRI EGILSSON