Helgarpósturinn - 08.06.1995, Side 15
FIMMTUD’A'GCJ RW8T3 UN nr9'9’5
f 5
þótt þetta sé manns eigið barn
upplifir maður það sem einhverja
qkunnuga manneskju.
ÁSLAUG: Og svo eignast konur oft
börn án þess að láta karlmennina
vita.
Helga: Mér finnst fáránlegt að
konur láti ekki karlmenn vita af
þessu fyrr en kannski sex mánuð-
um seinna. Ég er ekki að mæla
með fóstureyðingum eða ein-
hverju slíku, bara ábyrgari hegð-
un. í dag höfum við tök á því að
hegða okkur skynsamlega, báðir
aðilar hafa tök á því að verja sig.
Reyndar veltur þetta meira á kon-
unni því hún situr uppi með
ábyrgðina.
ÁSLAUG: Mér finnst að konur eigi
allavega að láta karlmennina vita
strax, ef mögulegt er. Mér finnst
að það eigi helst að gera einhvers
konar samkomulag um leið og
konan verður ófrísk. Það er að
mínu mati mjög eigingjarnt af kon-
um að eignast barn einar og segja
svo kannski við feðurna nokkrum
árum síðar: Viltu gjöra svo vel að
taka þátt!
Helga: Þetta er eins og einhver
banki upp á hjá manni og segist
vera búinn að ráða mann í vinnu
og skipi manni að mæta á morg-
un.
ASLAUG: Ég er orðin leið á þessu
barnatali, eigum við ekki að reyna
að slútta því? (Það var samþykkt
samhijóða).
KARLMEMM
OC TILFflWmGAR
RUTC Finnst ykkur ekki að karl-
menn eigi erfitt með að tjá sig til-
finningalega? Ég er reyndar í sam-
búð með einni þessara þöglu týpa
sem ég er alltaf að reyna að túlka.
En það gengur svosem alveg upp
því við höfum bæði húmor fyrir
bví.
HELGA: Karlmenn tjá sig bara á
stjóri! Hún er kona á besta aldri
svo það hlýtur að vera mjög eðli-
legt að hún verði ólétt. Þetta er
komið til af því að kona á að
verða eins og karlmaður þegar
þún er komin í svona starf.
ÁSLAUG: Þetta er svolítið góður
punktur; óléttur borgarstjóri. Nú,
þá hefði bara einhver átt að koma
og leysa hana af í nokkra mánuði.
Það væri bara til fyrirmyndar ef
borgarstjóri ætti von á barni. Ef
öllum hefði þótt þetta ömurlegt,
hvað með borgarstjóra sem væri
með veikt hjarta og þyrfti þess
vegna að vera frá í sex mánuði?
Væri það ekki bara; aumingja
hann?
Helga: Annað snýst um veikindi,
þitt um val.
ÁSLAUG: Ekki ef borgarstjórinn
með veika hjartað hefði valið að
éta súpukjöt og saltkjöt allt sitt líf.
HELGA: Mér finnst þetta ekki sam-
bærilegt.
annan hátt en við. Ég héf aldrei
skilið karlmenn og ég held að þeir
skilji okkur heldur ekki.
NANNA: Svona eru þeir bara. Ann-
ars höldum við að þeir tali ekki
um tilfinningar sín á milli. Þeir
segja okkur heldur ekkert um
það.
Rut: Ég hef nú komist að því að
þeir tala heilmikið um kvenfólk,
það er eitt og annað sem þeim
liggur á hjarta.
Helga: En það er fáránlegt að
halda því fram að karlmenn geti
ekki tengst tilfinningalega.
KONAÍ
KARLMLUTVBHa
Rut: Munið þið eftir kjaftasögunni
sem gekk um Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur rétt eftir að hún varð
borgarstjóri? Hún var sú að borg-
arstjórinn ætti von á barni og allir
voru ferlega hneykslaðir að hún
skyldi voga sér, nýorðin borgar-
*
Rut: Það er allt til í þessu; lykkjur
sem klikka og smokkar sem
springa.
HelGA: Þetta eru ekki baraj
dómar. Við erumjitórrfTsvona
rimm.
Jg: Jú, mér finnst mann-
skepnan grimm. Ef Ingibjörg Sól-
rún hefði gubbað pillunni og orð-
ið óvart ólétt. Það er það sama.
Það vorkenna allir karlmönnum
sem eru frá.
HelGA: Það má ekki gleyma því
að við mótumst öll af þessu sam-
félagi, ekki bara þeir.
Rut: Það eru bara svo margar
konur sem verða að lúffa út af
barneignum.
HELGA: Hvað viljum við verða; of-
salega harðar karríerkonur eða
hvoru tveggja, karríerkonur og
húsmæður?
Rut: Við verðum að velja.
HELGA: Það er af því að samfélag-
ið er ekki sniðið að okkur.
Rut: Ekki þurfa karlmenn að velja!
HELGA: Til þess að breytingar eigi
sér stað verður að vera endurnýj-
un. Það liggur á okkar herðum að
breyta þeim sem við erum að ala
ipp í að hugsa öðruvísi.
\sLAUG: Nú erum við ekki mjög
iiþpþyggilegar. Þetta er komið út í
konuíöíL Það er mjög trist ef það
kemur ekksH annað fram en
bleyjuþvotturHiessu viðtali...
(í þessum töluðu orðum var
ákveðið að snúa sér að einhverju
skemmtilegu, þar á meðal kynæs-
andi karlmönnum)
Áslaug (varpar enn sprengjum):
Ég er kynlaus.
Helga (talar til hinna): Hún vill að
allir séu eins og Andy Warhol.
Nanna: Ef þú sérð einhvern karl-
mann sem er algjör rindill, á ég að
trúa því að þér finnist hann
spennandi?
Ar.í h\\á\
I Ég er bara
að renna út í eitthvað
kynlaust. Ég er alveg
hættað taka eftirþví
hvort karlmenn eru
flottireða ekki. Ég hef
bara ekki skoðanir á
því.
ÁSLAUG: Ég er bara að renna út í
eitthvað kynlaust. Ég er alveg
hætt að taka eftir því hvort karl-
menn eru flottir eða ekki. Ég hef
bara ekki skoðanir á því. Það sem
ræður úrslitum er hvaða vit er í
þessum kolli. Það hefur hvorki
með kyenleika né karlmennsku að
gera. Ég veiti því þó athygli þegar
karlmaður opnar hurð fyrir mér,
einfaldlega af því það gerist svo
sjaldan. Það er sorglegt.
HeLGA: Er það ekki alveg jafn
sorglegt og maðurinn með
þurðarrúmið í líkamsræktinni?
ÁSLAUG: Jú, alveg jafn sorglegt.
Rut: Mér finnst karlmannlegt og
finn fyrir spennutilfinningu þegar
maðurinn minn sýnir einhverja
verndartilburði, sérstaklega þegar
einhver annar karlmaður er að
abbast upp á mig og minn ýtir
honum í burtu. Eg er einhvern
veginn svona manneskja sem hef-
ur aldrei þurft að vernda, ég hef
bara vaðið áfram í lífinu, en ég
finn fyrir kvenlegri tilfinningu þeg-
ar ég upplifi þetta.
NaNNA: Áslaug, þú segist kynlaus
en fellur fyrir því þegar einhver
Qpnar hurð.
ÁSLAUG: Nú tala ég í kross, ég veit
það.
Nanna: Sérðu ekki einu sinni
mun á rosalega kvenlegri konu
með fallegar hreyfingar og rudda-
Ipgri konu sem er eins og karl?
ÁSLAUG: Mér finnst óheflaðar
konur flottar.
NANNA: Það sem ég á við, sérðu
ekki mun á kvenlegu og karlmann-
Ipgu?
ASLAUG: Auðvitað sé ég hvort
sumir karlmenn eru flottir og
sumar konur flottar en svo getur
| (fær-
ist öll í auk-
ana) Ekki vildi
ég eyða lífinu
ein! Og ekki
heldur ein-
göngu í fé-
lagsskap
kvenna. Karl-
menn eru
yndislegir og
hafa oft
reynst mér
betri vinir en
kvenfólk. Mér
finnst betra
að leita til
karlmanna
þegar mér líð-
ur illa.
Þegar
maður var
laus og liðug-
ur varð maður
bara stundum
að sofa hjá og
fór útí þeim
tilgangi að ná
sér í mann.