Helgarpósturinn - 08.06.1995, Side 25

Helgarpósturinn - 08.06.1995, Side 25
geraa Gisu Rúriar Jónsson, hrútur. „Það sem ég óttast mest í lífi og starfi, þó aðallega starfi, er endurtekning. Hverslags endurtekning er eitur í mínum beinum og ég er svo hræddur við hana að það jaðrar við fælni. Þannig að það má eiginlega segja að ég vilji ekki gera neitt aftur sem ég hef gert áður.“ Kjartan Gudjónsson, naut. „Ég fer aldrei í tjaldferðalag til Parísar. Ég og félagar mínir gerðum það fyrir stuttu og það var nóg. Við skruppum niður í bæ eftir að hafa tjaldað og komið okkur fyrir. Þegar við snerum aftur fundum við ekki tjaldstæðið, við leituðum og leituð- um, spurðum fólk en sáum aldrei tjaldstæðið, tjaldið eða eigur okkar aftur. HELGI PÉTURSSON, TVÍBURl. „Taka þátt í svoköiluðum prófkjörum innan fulltrúaráðs Framsóknarflokksins í Reykjavík. Ég hef tekið þátt í einu slíku og orðið vitni að öðru og líkaði ekki það sem ég sá.“ Helgi Björnsson, krabbi. „Að vera nakinn á Snæfellsnesi í marsmánuði og reyna að húkka mér far í bæinn. Það hef ég reynt einu sinni og finnst það ýfrið nóg.“ Rósa Ingólfsdóttir, ljón. „Ég mun aldrei aftur nota rauða gíróseðla; rauður kostar 50 krónur en grænn ekki neitt, samt gera báðir sama gagn.“ Magnús Jónsson, meyja. „Ég fæ mér aldrei aftur húðflúr." Kolhnna Baldvhusoóttir, vog. „Ég ætla aldrei aftur að raka af mér hárið. Maður er berskjaldaður svona hárlaus; mér finnst þægilegra að geta falið ákveðin svipbrigði með dökkum tælandi lokkum.“ JÓN L. Árnason, sporddreki. Mér varð það á einu sinni, á Reykjavíkurskákmótinu á hlaupársdag 1980, að hlaupa illilega á mig og gefast upp í jafntefl- isstöðu á móti Robert nokkrum Byrne. Síðan hef ég alltaf hugsað mig tvisvar um þegar mér finnst fokið í flest skjól.“ ÁGÚSTA JOHNSON, BOGMAÐUR. „Ég ætla aldrei aftur að leggja af stað austur á land um miðja nótt án þess að athuga bensínmælinn. Ég gerði það einu sinni og það endaði með því að ég var strandaglópur í niðamyrkri og grenjandi rigningu víðs fjarri öllum manna- byggðum. Sem betur fer kom bíll eftir hálftíma og bjargaði okkur úr þessum hremmingum, en þetta var lengsti og svartasti hálftími sem ég hef upplifað og ég vil ekki endurtaka hann. HENNÝ HBtMANNSDÓTTIR, „Ég hef búið í pappakössum í fimm ár og var að flytja í síðasta sinn. Ég ætla aldrei að flytja aftur. Ég er alsæl.“ Frdrk Ólafsson, vatiusberj. Að falla í sömu gildruna tvisvar í skákinni. Ég ætla aldrei að gera það, en það tekst bara ekki alltaf. Þau eru býsna mörg skiptin, svo dæmi sé tekið, sem ég hef heitið sjálfum mér því að passa upp á klukkuna og lenda ekki í tímahraki. En þegar út í leikinn er komið gleymir maður þessum fyrirheitum og áður en maður veit af er maður við það að falla á tíma.“ Hannes Hólmstbnn Gissurarson, fiskur. „Menn eiga víst aldrei að segja aldrei, svo að ég ætti ekki að svara þessari spurningu. En ég held að ég eigi ekki eftir að kaupa mér bíi aftur. Þetta er ekki mælt af neinni andúð á bílum, því að ég er hlynntur þeim sem slíkum. En ég bý nánast við hliðina á vinnustað mínum, Háskólanum, og hef gott af því að ganga í vinnuna. Auk þess ienti ég í því leiða óhappi með mína bíla, að einhverjir sjálfboðaliðar rispuðu þá og dælduðu hvað eftir annað. Ég átti tvo bíla, sem ég var mjög ánægður með, en þeir hlutu báðir þessi örlög. Ég kalla útgjöldin, sem bíleigendur verða fyrir af þessu, öfundarskattinn." ■ Skandinavía vekur áhuga Breta eftir 30 ára hlé a skandinavíski eina merkileqa Flestir breskir lesendur kunna ekki skil á því hvað er danskt, norskt, sænskt, finnskt og hvað þá íslenskt. Á þessu kann þó að verða breyting áður en langt um líður því samkvæmt tískusér- fræðingum bresku útgáfunnar af tímaritinu Vouge er allt það sem flokkast undir að vera skandin- avískt á leið inn úr kuldanum — eftir 30 ára hlé. Það er einkum og sér í lagi góð sala á bókunum Veröld Soffíu og Lesið í snjóinn í Bretlandi sem þykja til marks um það að Bretar séu aftur farnir að horfa norður á bóginn. Á fjórða áratugnum litu Bretar til Skandinavíu sem mekka vetr- aríþróttanna, eða tímum Sonju Henie og Gretu Garbo, 30 árum síðar urðu Danir til þess að vekja athygli Breta á Norðurlöndunum með ódýrri húsgagnafram- leiðslu. Og það sem vakti ekki minni athygli voru skandinavísk- ar au-pair stúlkur sem þá fóru í stríðum straumum til Bretlands. Þær þóttu „sérlega haftalausar á kynlífssviðinu." Nú, þrjátíu árum síðar, er það ekki frjálslyndið sem heillar Breta heldur heim- speki norrænna rithöfunda. Þar fyrir utan fer afar gott orð af skand- inavískum fyrir- sætum sem þykja dáfallegar, há- fættar með mjall- hvítar tennur og ekki síst dugnað- arforkar. Jafn- framt sem þykir þeim til hróss að þær víla ekki fyr- ir sér að fara í lýtaaðgerðir ef þess með þarf. Skandivískir tískuhönnuðir eru einnig sagðir afar frumlegir. Norrænn húmor þykir hins vegar ekki upp á marga fiska. Einnig er haft á orði í greininni að Hin hálfsænska Uma Turman og tenniskappinn Stef- an Edberg þykja, auk bókarinnar, Veröld Soffíu, eftir norska rithöfundinn Jostein Gaarder, merki um það að Skandinavía er aft- ur að komast á kortið. Björk tjáir sig í breska Vouge þar sem hún segir íslendinga ekki eiga neina list; hvorki málara né dans- ara. vilji fólk alls ekki komast I gott skap ætti það að bregða sér á finnska kvik- myndahátíð. Allmargar nor- rænar núlifandi hetjur eru taldar upp í þessu sam- hengi, þar á meðal tennisleik- arinn Stefan Ed- berg, Uma Turman sem er dóttir sænskrar fyrrum toppfyrirsætu, Helena Christan- sen danskt súp- ermódel, Vendela sem einnig er sænsk. Ekki þykja Skandina- var beisnir á popptónlistar- sviðinu ef frá er tali sænska sveit- in Abba. Sænska sveitin Roxette sem nýlega terroriseraði kínversk stjórn- völd þykir að mati Vouge hvorki fugl né fiskur. Eina sem talið er til fyrirmynd- ar á tónlistarsviðinu í Skandinav- íu er Björk Guðmundsdóttir (en þess má geta að löngum hefur verið gengið fram hjá íslending- um í umfjöllunum sem þessari). Fyrir utan það að vera heims- fræg segja þeir Björk þjóðhetju á íslandi, og það verði allir íslend- ingar^em ná að skapa sér eitt- hvert nafn í útlöndum. í lok greinarinnar er þetta haft eftir Björk: „Á íslandi eigum við enga iist; hvorki málara né dans- ara,“ segir hún, hvorki meira né minna og bætir við; „Ef íslenskir unglingar reiðast stofna þeir ekki pönk-bönd heldur beita þeir fyrir sig pennanum og skrifa skáldskap. Og þegar þeir verða drukknir öskra þeir hverjir á aðra.“ Að þessu leyti eru íslendingar ólíkir öðrum Skandinövum, bætir greinarhöfundur við, en að öðru leyti eru þeir hefðbundir Skand- inavar.B ■ lU J 'J Hafrót ruggar duggunni Kaffi Reykjavík í kvöld svo tekur undir í Vesturbæn- um. In Bloom, Tin, Bar- acuda, Lipstick Lovers, Dead sea apple og fleiri hljómsveitir verða með risa-risa-risa rokktónleika í tilefni af stofnun Rokk- klúbbs (slands á Tveimur vinum í kvöld. sunnudagur Guðni Franzson klarin- ettuleikari er einn hinna fjölmörgu sólóista á Sólon Islandus. SVEITABÖLL Réttin, Úthlíð fyrsta sveitaball sumarsins með hljómsveitinni Hafrúnu. Frá og með þessum laugardegi getur sumarleyfisfólk í Út- hlið skellt sér á eldfjörug sveitaböll í Réttinni. Sindrabær, Höfn Hornafirði GCD leikur á glimrandi sveitaballi. Bæjarbarinn, Ólafsvik GCD með sitt annað sveitaball þessa helgina. Hótel Lækur, Siglufirði sjómannadagssveitaball með GCD. Ýdalir, Aðaldal fyrsti sól- bruni SSSólar í sumar á sveitaballamarkaðnum, eða hinn árlegi júnídans- leikur. Davíð Magnússon Bubblefluga er sérstakur gestagítarleikari með hljómsveitinni í sumar. Sjallinn, Isafirði Snigla- bandið ætlar að hía á (s- firðinga með nýjustu afurð sinni, Gull á móti sól, föstudags- og laugardags- kvöld. Félagsheimilið Bolung- arvík Sniglabandið í góðu skapi á sjómannadag. Miðgarður, Varmahlíð Sálin hans Jóns míns held- ur áfram að grafa sína eig- in gröf í vegavinnu sumars- ins. Stefán Hilmars og kompaní þar á föstudags- kvöld að viðstöddum hópi vísindafólks sem ætlar að efna til efnafræðitilraunar í leikhléi. Festi, Grindavík Sálin hans Jóns míns verður komin aðeins nær mölinni á laugardagskvöld. Þá er bara að skella sér í Kefla- víkurrútuna og bregða sér á sveitaball. Félagsheimilið, Nes- kaupstað hljómsveitin Stjórnin tekur völdin á sjó- mannadaginn. Inghóll, Selfossi hljóm- sveitin Tweety á sérstöku Bónusballi. Miðaverð 799.- fyrir miðnætti en hækkar svo í 1200. Frábær sveit á frábæru verði.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.