Helgarpósturinn - 31.07.1995, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 31.07.1995, Blaðsíða 2
FRÉTTIR Minnihlutinn á Stöð 2 bíður eftir tékkanum standa i bankanum Nú 27. júlí liðu fyrri tíma- mörkin vegna kauptilboðs í hlutabréf minnihlutans í ís- lenska útvarpsfélaginu. Svo virðist sem eitthvað standi í Chase Manhattan-bankanum að klára málið, en minni- hlutamenn hafa á orði að nú bíði þeir bara eftir tékkan- um. Sem kunnugt er fá þeir um 30 milljónir í sekt ef ekki tekst að ljúka málinu í tíma. Þrátt fyrir að meirihluta- menn hafi látið hafa eftir sér að málið sé í höfn finnst sumum það fullborginmann- legar yfirlýsingar. Bankinn hefur verið að kryfja málið til mergjar og skilyrði hans um tryggingar hafa sett nýja óvissu í málið. ■ Jón Olafsson. renna út. Hallbjörn Hjartarson heldur eigin útihátíð „Auðvitað stígur kántrý- rinn á svið“ Það eru fíu ár síðan Hallbjörn Hjartarson stóð síðast fyrir kántrý- hátíð. Síðan er mikið vatn runnið til sjávar, Hallbjörn hefur spilað og sungið einhver lifandis býsn, stofnað útvarp og gert eiginlega allt sem einn maður getur gert í fámenninu. Hann lætur ekki deig- an síga og mitt í öllu útihátíðafarg- aninu heldur hann kántrýhátíð á Skagaströnd. Hátíðin er ætluð fjöl- skyldufólki. Pósturinn hringdi í hljóðver Hallbjörns og hitti á kappann sjálfan og fékk þær upp- lýsingar að meðal skemmtiatriða yrði hljómsveitin Kúrekarnir og Maggi Kjartans og, eins og Hall- björn orðaði það: „Auðvitað stíg- ur svo Hallbjörn kántrýkóngur á svið, það er engin kántrýhátíð nema frumherjinn í íslensku kántrýi sé með.“ Hvað þarftu marga hátíðargesti til að þetta standi undirsér? „Þetta er spurning sem ég hef aldrei spurt sjálfan mig. Ef ég hefði gert það þá hefði ég aldrei framkvæmt neitt af því sem ég hef gert um ævina. Það er eldmóður- inn við að koma hugsjónum sín- um í gegn sem skiptir máli.“ Er þér þá alveg sama hversu margir koma á svœðið? „Mér er ekki alveg sama, ég vona að sem flestir komi og þetta fari á besta veg. En ég sætti mig við útkomuna, hver sem hún er.“ ■ Þetta var líka í FRÉTTUM Aftur jókst skjálfta- virkni við Hveragerði og er eins og skjálfta- svœðið þokist vestur á bóginn. Búið er að bora eftir heitu vatni í Krísuvík. Tvœr ungar stúlkur slösuðust í bilveltu í Fljótum, þarafönnur alvarlega. Varhún flutt suður í þyrlu. Leiguverð á rœkju- kvóta hefur hœkkað um 700 prósent. Samningagerð vegna Hvalfjarðarganga er að hefjast og er und- irbúningur hafinn í fímm löndum. Yfírvöld í Kópavogi boða aðgerðir til að leita að íbúum. Austur-Skaftfellingar íhuga útfíutning á jökulís. Æfíngum varnarliðs- ins lauk á laugardag- inn, degi fyrr en œtl- að var. Löggan Drepur risarottu Lögreglan var í gærdag kölluð að Hjarðarhaga í Reykjavík, en þar hafði tröllvaxin rotta skotið íbúum skelk í bringu. Lögreglan brá við skjótt og sendi sérstaka sveit manna á staðinn. Fljótlega hafðist upp á hinu óvelkomna nagdýri og styttu laganna verðir því aldur með 22 kalíbera kinda- byssu. Talið er að rottan hafi komið upp um holræsi. ■ Stórslysalaus helgi Gómuðu sofandi þjóf Helgin gekk stórslysalaust fyr- ir sig á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt upplýsingum lögregl- öpnar. Umferð og fóiksfjöldi í miðbænum var innan viðráðan- legra marka og ekki kom til telj- andi uppþota meðal gesta mið- bæjarins. Þá keyrðu lögreglumenn fram á hús í vesturbænum aðfaranótt laugardags og urðu varir við að útihurð féll ekki alveg að stöfum. Eitthvað vakti grunsemdir lag- anna varða og fóru þeir inn í íbúðina. Þar gengu þeir fram á mann sofandi í sófa og var hann umkringdur góssi sem við frek- ari athugun reyndist vera sam- tíningur úr öllum helstu innbrot- um á höfuðborgarsvæðinu und- anfarnar vikur og mánuði. Var maðurinn þegar í stað vakinn og færður í fangageymslur þar sem hann var yfirheyrður og beðinn að gera grein fyrir þýfinu. Mað- urinn hefur nú verið hnepptur í gæsluvarðhald til 17. ágúst næst- komandi, en ekki er enn upplýst hvernig stóð á hinu stórfellda magni þýfis í vistarverum hans. ■ fFyrrverandi brunamálastjóri stórtækur í sérverkefnum fyrir Brunamálastofnun Þórir Hilmarsson. Verkfræðistofa Þór- is hefur fengið um það bil þrjú hundr- uð þúsund krónurá mánuði í greiðslur vegna sérverkefna fyrir Brunamála- stofnun, án útboðs. a ari an uflnðs Verkfræóistofa Þóris Hilmarssonar, fyrrverandi brunamálastjóra, hefur fengið um það bil 3,5 milljónir króna á ári í greiðslu frá Brunamálastofnun fyrir sérverkefni. Verkefnum þessum hefur Þórir fengið úthlutað beint frá flokksbróöur sínum, Bergsteini Gizurarsyni, án útboðs. Árið 1986 lét Þórir af starfi brunamála- stjóra eftir að komst upp að hann hafði notað embættið til að skara eld að eigin köku. Skýrsla Ríkisendurskoðunar tekur yfir þrjú ár, frá 1992- 1994, en á því tímabili hefur Verk- fræðistofa Þóris fengið 10.505.000 krónur í greiðslur fyrir sérverkefni án útboðs. Árið 4992 námu greiðslur tii Þóris 3.534.000 krónum, árið 1993 námu þær 3.579.000 krónum og í fyrra fékk verkfræðistofa hans 13.391.000 krónur. Ekki er Ijóst hvernig greiðsi- Ium til Verkfræðistofu Þóris var háttað fyrir 1992, en samkvæmt |heimildum blaðsins bendir allt |til þess að hann hafi fengið áiíka greiðslur frá því að hann lét af Istörfum brunamálastjóra 1986. ■ Þórir sagði á sínum tíma upp Istörfum á meðan Helgarpástur- inn vann að frétt um misnotkun Ihans á embætti sínu, en blaðið komst meðal annars að því að IÞórir hefði notfært sér utan- landsferðir á vegum embættis- ins til þess að afla fjölskyldufyr- ■ irtæki sínu, Skanis hf., innflutn- ingsumboða á sviði eldvarna. Einnig varð Þórir uppvís að því að stunda kennslu í Tækniskól- anum í vinnutíma sínum sem brunamálastjóri. TENGSL.VIÐ FRAMS0KNARFL0KKINN Brunamálastofnun hefur löng- um verið sérstakt vígi fram- sóknarmanna og var háttalag Þóris í starfi brunamálastjóra mikið vandræðamál fyrir flokks- bróður hans, Alexander Stefáns- son, þáverandi félagsmálaráð- herra. En þegar Þórir sagði upp var það einmitt Alexander sem skip- aði Bergstein eftirmann hans. Það er kaldhæðnisiegt að nú sit- ur Páll Pétursson, annar fram- sóknarmaður, í stóli félagsmála- ráðherra og enn er flokksgæð- ingur til vandræða í Brunamála- stofnun. Páll hefur reynt að gera sem minnst úr þeim ávirðingum sem LANGSTÆRSTI UNDIRVERKTAKINN Það er athyglisvert ai Verkfræðistofa Þóris Hilm arssonar er langstærst undirverktaki Brunamála stofnunar. Verkfræðistofai hefur fengið tvöfalt hærr greiðslur en þeir aðilar sen næstir henni koma, en þei eru Ástvaldur Eiriksson varaslökkviiiðsstjóri . Keflavíkurflugvelli, með 5,1 milljónir króna á skýrslu tímabilinu og prentsmiðjai Skák hf. með ríflega 5 millj ónir króna. í skýrslu Ríkisendurskoð unar er vakin athygli á ac ekki er auglýst eftir tilboð um í þau verkefni sem þess ir aðilar hafa haft me< höndum, heldur hefu brunamálastjóri einfaldleg; -------;——-------------------------7- úthlutað þeim þessun Bergstemn Gizurarson situr sem fastast i verkefnum. í skýrslunn sæti brunamálastjóra þótt ávirðingar kemur fram að brunamála hrannist upp vegna starfa hans. stjóri skýri þetta með þvf a< umræddir aðilar séu alii eru bornar á Bergstein í skýrslu Ríkisendurskoðunar og sagt að þar komi fram „nokkrar ábend- ingar“ um það sem betur mætti fara og að „fundið væri að nokkrum atriðum“. sérhæfðir og |wí ekki mög legt að bjóða verkefnin formlei út. Þess má geta að Verkfræf stofa Þóris er til húsa á Laug vegi 59, — í sama húsi og Brun málastofnun. ■

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.