Helgarpósturinn - 31.07.1995, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 31.07.1995, Blaðsíða 12
MEIRA MÁNUÐAGUR 31. JÚLÍ 1995 HRUTURINN Róleg vika er framundan hjá flestum hrútum. Þörfin fyrir réttlæti verður sterk og gæti komið til togstreitu hjá nokkr- um ykkar á milli vinnu og einkalífs. Um helgina getur þér orðið hætt við að verða stórhuga og byggja loftkastala. NAUTID Varaðu þig á að sýna óþolin- , mæði þótt hlutirnir gangi ekki aö öllu leyti eftir þinni forskrift. Árangur af mikilli vinnu verður í sjónmáli. Helgin verður ánægjuleg hjá þeim sem eru í föstu sam- bandi en ef þú ert á lausu máttu búast við því að verða óvenjulega tilfinninganæm(ur). TVlBURINN Varastu að láta sögusagnir koma þér í vont skaþ. Taktu ekki mark á þeim. Pér er ráö- lagt að taka þér tak í sambandi viö peningamálin. Ef þú hefur ekki ákveðið hvað þú ætlar að taka þér fyrir hendur á næsta vetri máttu búast við að frétta um eitthvað skemmtilegt sem þú get- ur lært eða unnið við. Helgin verður skemmtileg en varastu óþarfa fjárútlát. KRABBINN í þessari viku mega flestir í þessu merki eiga von á upp- 1 sveiflu í fjármálum. Varastu eyðslusemi og safnaðu til mögru áranna. Ef þú ert ekki í föstu sambandi getur sameiginlegt áhuga- mál leitt til meiri og nánari kunningsskapar en verið hefur. Helgin verður friðsæl hjá þeim sem eru í föstu sambandi. LJÓNIÐ Valdamikil persóna á eftir að gera þér greiða. Um miðja vik- una skaltu hafa augun opin fyrir tækifæri sem færir þér tekjur. Um helgina hefur sólin sterk áhrif á merkiö þitt, sem leiðir til þess að þú átt gott með að kynnast fólki. Ef þú hefur verið í flækju með ástamálin hefurðu tök á aö koma þeim í lag um helgina. MEYJAN Sterkir straumar frá Venus gera það að verkum að þú hefur góð áhrif á fólk. Jákvæð- ar fréttir sem tengjast persónu sem þú hefur áhuga á berast til þín um miðja vikuna. Ný þróun á vinnu- stað hefur jákvæð áhrif á þig. Helgin verður vænleg til að treysta vináttubönd. VOGIN Góður tími er framundan hjá + _ þeim vogum sem þurfa að jrl í jafna ágreining við nákomna ^ persónu. í þessari viku verður þér mest ágengt með því að fylgja straumnum og láta aðra um forust- una. Pér getur orðið hætt við að ofbjóða þér með vinnu og þér gengur ekki vel að láta aðra axla sína ábyrgð. SPORÐDREKINN Þú verður með hugann við fjármálin og átt eftir að finna leið til að auka tekjurnar. Hjá t sporðdrekum í sambúð verður heimilið með forgang og þú forðast að eyða í óþarfa. Þessa viku hvílir dulúð yfir flestum í þessu merki, sem gerir þá heillandi. BOGMAÐURINN Það dregur úr áhrifum frá Sat- úrnusi eftir því sem líður á vik- una. Þú færð endurgoldið að hafa sýnt öðrum skilning og greiðvikni. Þér gengur flest vel sem þú tekur þér fyrir hendur og það eru góðir straumar í kringum þig. STEINGEITIN Sjálfstraust þitt fer vaxandi og þú ert vel undir það búin(n) að þurfa að taka talsvert á. Þú sérð fyrir endann á erfiðleikum f máli sem líefur angrað þig um tíma. Um helgina eiga tilfinningar þínar eftir að þróast á annan hátt en þú bjóst við. VATNSBERINN Þú mátt eiga von á að annað fólk geri miklar og óréttmætar kröfur til þín en hæfileikar þin- irtil samninga munu hjálpa þér. Stjörnurnar eru þér mjög jákvæðar en hætt er við að um helgina ei- girðu eftir að þjást af fullkomnunarþörf og ekkert verði nógu gott fyrir þig. FISKURINN Sveiflukennt tímabil er senn á enda og við tekur meiri stöð- ugleiki. Þú hefur sennilega eytt um efni fram og þarft núna að taka á honum stóra þínum til þess að koma fjármálunum í lag. Ef þú ert ekki í föstu sambandi verðurðu móttækileg(ur) fyrir persónu af gagnstæðu kyni sem sýnir þér áhuga. [Ævintýrabragur á Tunglinu Svo sem sæmir á föstudegi streymdi mannfjöldi aö miðbæjarmörkunum um helgina og troðfyllti Tunglið. Það var mikið líf í tuskunum og nokkrar flíkurnarfengu aðfjúka... 1. Tunglið, tunglið taktu mig: Nafnlaus þokkadís tilbiður mekka næturltfsins við dansgólfið. 2. Sunna heitir hún þessi, með niðurgirtan streng um mitti og latex- límd læri. 3. Bleikir tónar líföldunnar léku um baksvip þeirra Önnu og Ragnars í Tunglinu og léttu þeim lund. 4. Þær bera þjóðleg nöfn þessar; Magga og Þórunn litu mannþvöguna andartak augum en létu sem ekkert væri. 5. Áslaug Hansen, þokkadís og þægilegasta kona, skrapp inn og lamdi með lurkum frá sér karlpen- inginn, en stúlkan er á lausu og þarf því slæg að vera. 6. Lokkaflóð þessa mislita tríós lagði land undir fót, þau Hrafnhild- ur, Þóra og Gummi. Taktu þátt í léttum leik! Ef heppnin er með þér vinnur þú Lundúna- ferð fyrir tvo með Emerald Air í sumar. Það eina sem þú þarft að gera er að svara laufléttri spurningu og senda svarið til Mánudagspóstsins, Vesturgötu 2. Rétt svör fara í pott sem dregið verður úr þann 7. ágúst næstkomandi. Nafn vinningshafans verð- ur birt í Mánudagspóstinum 8. ágúst. Spurningin í dag er: Af hverjum er styttan á Trafalgar-torgi? É wmSssgr - ■ ■ ■ piippið mitaují jig Dkkur_ [ Nafnið þitt: _ l Heimilisfang: j Póstnúmer:_ I Setjið í umslag og skrifið utan á: .Símanúmer:________ Ferðahappdrætti Mánudagspósturinn Vesturgötu 2 101 Reykjavík Rett svar: +

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.