Helgarpósturinn - 31.07.1995, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 31.07.1995, Blaðsíða 14
IÞROTTIR Tryggvi Guðmundsson Fimm mörk gegn Val Tryggvi Guðmundsson skoraði fjögur mörk í fyrstu umferðinni gegn Val, hann skoraði svo eitt mark gegn Val á fimmtudag í 3-1- sigri á ÍBV. Það er merkilegt að þessi mikli markahrókur hefur skorað fimm af sex mörkum sín- um gegn Val. Það verður þó að at- huga að Tryggvi hefur spilað á vinstri vængnum síðastliðna sex leiki. Þótt Tryggvi hafi ekki skorað mikið að undanförnu hefur hann spilað geysivel fyrir liðið. Vegna stöðu sinnar í liðinu hefur Tryggvi ekki fengið mörg færi og því ekki hægt að saka hann um að hafa klúðrað færum. ■ Pétur Guðmundsson Skiptir um kaststíl Pétur Guðmundssson kúluvarpari er nú búinn að breyta yfir í svo- kallaðan bakstíl að nýju, en hann hefur notað snúningsstíl undan- farið eitt og hálft ár. „Ég var búinn að nota bakstílinn í eitt og hálft ár og fannst það ekki ganga nógu vel, þrátt fyrir bronsið á EM í París í fyrra. Þegar ég meiddist á heimsmeistaramótinu innanhúss í mars ákvað ég að nota tækifærið og skipta aftur yfir í bakstílinn. Bakstíllinn gefur meiri möguleika á risaköstum," segir Pétur. Pétur er að fara ásamt öðr- um íslenskum frjálsíþróttamönn- um á heimsmeistaramótið í Gautaborg. „Ég hef lítið keppt að undan- förnu og býst nú ekki við miklu á HM. Ég ætla að reyna að komast í úrslit en á ekki von á að ná verð- launasæti. Meiðslin sem hafa hrjáð mig eru ekki algjörlega gróin en ég mun enga áhættu taka og ætla að hætta við keppni ef mér líst þannig á,“ segir Pétur. „Annars hefur mér gengið mjög vel og er í góðu formi. Eg hef orðið tölu- verða reynslu í svona stórmótum og býst við að hún eigi eftir að nýt- ast mér vel.“ ■ Patrice Loko sér fram á allt aö tveggja ára fangelsi UMFB 3 - Akranes 23 „Það má segja að þetta hafi ver- ið óþarfa gestrisni hjá okkur, en þeir eru ansi góðir," segir Sigurður Gunnarsson, leikmaður með knatt- spyrnuliði Ungmennafélags Bol- ungarvíkur, sem tapaði 23-3 fyrir íslandsmeisturum ÍA á laugardag í vígsluleik nýs grasvallar í Bolung- arvík. Staðan í léikhléi var 11-1, en heimamenn skoruðu fyrsta mark leiksins. Víkarar bættu síðan við tveimur mörkum eftir hlé og mis- notuðu að auki vítaspyrnu og nokkur ágætis færi. Markahæsti maður leiksins var sementskögg- ullinn Ólafur Þórðarson, sem skor- aði fimm mörk. Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir léku sinn fyrsta leik með Skagaliðinu í tæp þrjú ár og gerðu mikinn usla í vörn heimamanna, en Arnar setti þrjú mörk og Bjarki tvö. Sigurður Gunnarsson leikur stöðu „svípers" í liði Víkara og héinn segir að nóg hafi verið að gera hjá sér í leiknum. „Þetta var mjög erfitt, það var aldrei friður,“ segir Sigurður og neitar því alfarið að hafa borið of mikla virðingu fyrir leikmönnum Akraness. Að sögn Sigurðar hefur Ung- mennafélag Bolungarvíkur ekki tekið þátt í deildarkeppninni í knattspyrnu frá því 1992.1 ár hefur liðið hins vegar leikið í Vestfjarða- keppninni ásamt sjö öðrum íiðum og á góða von um sigur í sínum riðli. Sigurður segir að hinn nýi gras- völlur sé gjörbylting fyrir knatt- spyrnumenn í Bolungarvík, sem ætla að mæta ótrauðir til leiks í fjórðu deildinni á næsta ári. ■ Ingi Björn og Bjarni Jóhanns velja sín landslið Vígsluleikur Ungmennafélags Bolungarvíkur og íslandsmeistaranna vegi aö skoða val á landsliðinu og rýna í liðið. Eftir ágæt úrslit í tveimur síðustu leikjum hlýtur krafa um sigur að vera réttmæt. í gegnum tíðina hefur mörgum orðið hált á því að gagnrýna lands- liðið, þeir hinir sömu hafa oftar en ekki verið sakaðir um niðurrifs- starfsemi. En eins og þjálfari fyrstudeildarliðs sagði þá getur það ekki gert illt að gagnrýna landsliðið, þetta er jú lið allra lands- manna og það er engum greiði gerður með því að fjalla ekki um það. Það ber þó að hafa í huga að að endingu velur einn maður lið- ið, en til að velta upp öðrum möguleikum fékk Pósturinn tvo landskunna þjálfara, þá Bjarna Jóhannsson og Inga Björn Alberts- son, til að vejja sín landslið og spá í spilin. í ljós kom að þeir voru sammála um að velja ekki þá Þorvald Örlygsson, Friðrik Frið- riksson og Kristján Jónsson. Þá vekur athygli að Hlynur Stefáns- son hlýtur ekki náð fyrir augum þeirra. ÁSGEIR GAGNRÝNIVERÐUR Þótt Ásgeir Elíasson sé um margt hæfur þjálfari hafa ekki allar gjörðir hans fallið í góðan jarðveg. Hann hefur prufað ýmis- legt, m.a. að spila með fjóra í vörn, þriggja miðvarða kerfi o.fl. Það er mál margra að Ásgeir hefði átt að setja Óla Adolfs um ári fyrr í liðið en hann gerði, þar á meðai er Bjarni Jóhannsson. „Tilkoma Óla gefur nýja vídd í föstum leikatriðum eins og horn- um og aukaspyrnum. Með sterka menn eins og Óla, Sigga, Eyjólf og Guðna mættum við leggja meira upp úr því að hirða seinni boltann frá þeim. Það vantar að við vinnum betur úr seinni bolt- anum.“ Væntanlega háir það Ás- geiri að hann sér ekki nægilega mikið til þeirra leikmanna sem spila erlendis, hann hefur þó verið duglegur að heimsækja flesta landsliðsmennina. Annað atriði sem vert er athygli er að íslenska landsliðið ferðaðist um hálfan hnöttinn til að spila við Chile. Sá leikur var síðasti æf- ingaleikurinn fyrir Svíaleikinn. Ólafur Adólfsson var ekki einu sinni valinn í hópinn en byrjar svo inn á gegn Svíum. Þetta þættu einhvers staðar léleg vís- indi. AUÐVELDARAí AÐ KOMAST EN UR? Andstætt reynslu Óla hefur verið sagt um landsliðið að það sé auðveldara í að komast en úr. Fyrir mörgum er þetta eina ástæðan fyrir veru Kristjáns Jóns- sonar í landsliðinu. Leikmaður fyrstudeildarliðs segir það í máta undarlegt ef mið sé tekið af þeim leikjum sem hann hefur spilað undanfarið ár. Það sé dularfullt að maður sem ekki kemst i lið hjá Bodo/Glimt skuli komast í landsliðið. Það er rétt að Ásgeir þekkir vel til Kristjáns og Kristján hefur þjónað vel, hans tími er einfaldlega liðinn. STEFNULEYSI HJÁ KSÍ? Það skýtur skökku við að Gunnar Oddsson, fyrirliði Leifturs, sem reyndar stendur alltaf fyrir sínu, skuli hafa verið annar af ný- liðunum í landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Færeyingum. Gunn- ar er vissulega feikigóður leik- maður, en við eigum einfaldlega betri menn í hans stöðu. Atla Eö- valdssyni var skipt út úr Iandslið- inu á sínum tíma því menn töldu þörf á nyju blóði, aukinheldur sem það var sagt að halfsentar eins og Atli væru tímaskekkja. Óli Adólfs er ekki ósvipuð týpa og Atli og fáránlegt að hann skuli ekki hafa fengið sénsinn fyrr. Hann hefur sýnt að hann er fyili- lega traustsins verður. Annað sem vert er að skoða er að Friðrik Friðriksson, sem gerði sig sekan um algjör byrjandamistök gegn ÍA á dögunum, er varamarkvörð- ur íslenska landsliðsins. Væri ekki nær að gefa yngri mönnum tækifæri, eins og t.a.m. Þórði Þórðarsyni, Ólafi Gottskálkssyni og/eða Kristjáni Finnbogasyni? Þótt súpermann sjálfur, Birkir Kristinsson, verji markið, þá er næsta víst að hann verður varla í boltanum til eilífðarnóns. ■ brotnar 0 Patrice Loko, einn dýrasti og efnilegasti leikmaður Frakka, sér nú fram á að þurfa hugsanlega að sitja af sér tveggja ára fang- elsisdóm aðeins örfáum vikum eftir að hann skrifaði undir samning við Paris Saint Germain. í ofanálag fékk Loko taugaáfall, svo það lítur ekki beint út fyrir að hann muni gera miklar rósir í fótboltanum næsta vetur. Þessi 440 mílljóna króna leikmaður er ekki á æfing- um eins og félagar hans, heldur er hann í sálfræði- legri endurhæfingu eftir taugaáfall sem fékk í kjölfar þess að vera ákærður fyrir Ííkamsárás, skemmdarverk og ósiðlega framkomu. Skilj- anlega hafa menn ekki sömu trú á piltinum eftir þetta og fyrir aðeins fáein- um vikum. í MEÐFERÐ HJÁ SÁL- FRÆÐINGIFELAGSINS Eftir handtökuna var Loko vistaður á geðsjúkra- álmu lögreglustöðvar í París áður en hann var látinn laus gegn tryggingu og í umsjá framkvæmdastjóra Saint Germain, Jean-Francois Dom- erque. Hinn 25 ára Loko, sem átti stóran þátt í að gera Nantes að meisturum á síðasta tímabili og varð markahæst- ur í frönsku deildinni með 22 mörk, reynir nú að taka sig saman í andlitinu til að geta farið með hinum nýju félögum sínum að sækja fyrrverandi félaga sína í Nantes heim á föstudaginn kemur. Domerque fram- kvæmdastjóri og sálfræð- ingur félagsins, sem tóku ábyrgð á piltinum, segjast ekkert geta sagt til um hvort hann verður orðinn keppn- isfær. Meðferðin sem hann er í byggist á því að gera Loko færan um að standa undir þeirri frægð og vel- gengni sem hann hefur mátt baða sig í á undanförnum árum, en sem virðist hafa gersamlega kippt fótunum undan honum á sama tíma. w Loko klessu- keyrði bílinn sinn og eyði- lagði í leiðinni nýjan BMW. Síð- an réðst hann á þrjá lögreglu- þjóna og girti loks niður um sig fyrir framan kvenlöggu sem ætlaði að taka af honum skýrslu. KEYRÐIA, LAMDILOGGU OGGIRTINIÐURUMSIG Loko var bjartasta von Frakka allt þar til klukkan þrjú aðfaranótt 20. júní síð- astliðins þegar hann, eftir rifrildi við bílastæðaþjón fyrir utan vinsælan nætur- klúbb í París, gereyðilagði bílinn sinn og annan BMW til viðbótar, réðst á þrjá lög- regluþjóna og girti síðan niður um sig fyrir framan kvenlöggu sem ætlaði að taka af honum skýrslu. Loko sat í steininum næsta dag, en þá héldu félagar hans til Noregs að leika vináttuleik, sem hann missti að sjálf- sögðu af. Formaður Saint Germain, Michel Denisot, hefur sagt að félagið muni standa með Loko, en hann fær um 1,3 milljónir í laun hjá félaginu fyrir hverja vinnuviku. Den- isot segir að Loko þurfi frek- ar á leiðsögn að halda en refsingu. EBFIÐIR SAMNINGAR LOGÐUST A HANN Þeir sem þekkja Loko segja að sjá hefði mátt fyrir að hann spryngi einn dag- inn. Samningar Nantes og Saint Germain gengu ein- staklega erfiðlega fyrir sig og Saint Germain hætti þrá- faidlega , við á síðustu stundu. Á þessum tíma fór Loko til dæmis til heima- bæjar síns, Sully sur-Loire, að veita ungum drengjum verðlaun fyrir frammistöðu í knattspyrnuskóla. „Hann virtist allur eins og dreginn upp á þráð,“ segir Marcel Leveillée, fyrsti þjálf- ari Loko hjá bæjarliðinu. „Hann var heltekinn af því hversu illa samningar fé- laga gengu og algjörlega friðlaus." Þegar samningamir voru loks í höfn og hann spilaði fyrsta leikinn með sínu nýja félagi var honum skipt út af þegar átta mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Hann var ekki í neinum takti við leikinn. ÆTLAOIAÐ REKA LOGGUNA Þegar hann kom til París- ar var honum fenginn Frontera-jeppi með drifi á öllum hjólum. Hann fúlsaði hins vegar við honum og sagðist vilja fá sjálfskiptan bíl. Sami hroki gaus upp í honum á lögreglustöðinni þegar hann var handtekinn í júní. Þar þrumaði hann yf- ir lögreglumönnum að hann skyldi sjá til þess að þeir misstu vinnuna. Hann þekkti ýmsa menn á réttum stöðum til að fá því fram- gengt. Þetta hefði hann ekki átt að segja, því hugsanlegt er að ákæruatriði um að hafa hótað að bola lögregluþjón- um úr starfi verði bætt við syndalista Loko. Þá gæti hann þurft að sitja inni jafn- vel lengur en tvö ár. ■

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.