Helgarpósturinn - 31.07.1995, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1995
Leiftrandi stuð í Ingólfsstrætinu
Shnm
íMHoffl
Gollakaffi bauð upp á skvísur, skvísur og aftur skvísur
sem endranær um helgina og létu þær sig ekki vanta í
linsu Ijósmyndarans...
1. Þessi vann sér það eitt sinn til frægðar að bera mall-
ann sinn netta og prúða. 2. Öllu prúðari en stöllur þeirra
á skemmtistöðunum; Ásdís og Jóhanna. 3. Öðrum
leiddist stuðið og slógu því á þráðinn annaö. Kristbjörg
teymdi vinkvinnu sína, Siggu, að símaklefanum og
reyndi að draga eitthvað upp úr handraðanum þeim til
dundurs.
eða Vatnaveröld og óumdeilan-
lega ein dýrasta kvikmynd, sem
hleypt hefur verið af stokkunum í
sögu Hollywood, var frumsýnd
vestra síðastliðinn föstudag við
misjafnar undirtektir gagnrýnenda
um gjörvöll Bandaríkin og hafa
fjölmiðlar keppst við að gefa
myndinni einkunn allar götur frá
frumsýningu hennar. Aætlaður
kostnaður við gerð myndarinnar
fór gróflega fram úr allri áætlun og
kostaði framleiðendur þegar upp
var staðið einar 200 milljónir
Bandaríkjadala og er einsdæmi í
kvikmyndasögunni til þessar. Er
því mikið í húfi að aðsókn kvik-
myndahúsagesta gangi eftir sem
vonir standa til eigi vísindaskáld-
sagan að standa undir sér, en líkt
og almennt er með kvikmyndir í
stórt hlutverk í stykkinu. Hefur
kvikmyndin þegar dregið að sér
ótrúlega athygli vegna kostnaðar
við gerð hennar og meintra sam-
skipta Kevin Reynolds, sem leikstýr-
ir myndinni, og aðalleikara hennar
bak við tjöldin.
Með aðalhlutverk myndarinnar
fer bandaríski leikarinn Kevin
Kostner, en sagan fjallar um áhrif á
líf jarðarbúa þegar heimskautaís-
hetturnar hafa bráðnað með þeirri
afleiðingu að gervöll jarðkúlan er
komin á kaf og allt á floti alls stað-
ar. Gengur myndin í raun út á bar-
áttu Kostners við að finna þurrt
land ásamt kvendi nokkru og
stjúpdóttur hennar, en saman
berjcist þau við glæpagengi á snjó-
skíðum og eineygðan djöful, leik-
inn af Dennis Hopper, sem vflar ekk-
A æðisgengnum flotta undan trylltum vatnalýð með hrollvekjandi fyrirætlanir
ert fyrir sér og er ekki alls kostar
sáttur við þau skötuhjú.
Gagnrýnendur eru sem fyrr
sagði ekki á einu máli um ágæti
myndarinnar og telja margir að of-
beldi sé um of í fyrirrúmi. Dagblað-
ið New York Times gaf myndinni
sæmilegustu einkunn og sagði
hana sleppa fyrir horn meðan Wall
Street Joumal gaf sterklega í skyn
að Waterworld væri samansafn
mistaka og slælegs söguþráðar. Þá
vildi kvikmyndagagnrýnandi M-
ami Herald ekki taka undir með
kollegum sínum heldur nefndi
stykkið stórkostlegt og vel þess
virði að líta á. Tóku fleiri blöð í
sama streng, en þrátt fyrir að nei-
kvæð umfjöllun hafi náð yfirhönd-
inni í umræðunni nýtur kvikmynd-
in Waterworld óskiptrar athygli al-
mennings hið vestra og eru nokkr-
ar líkur á að hún verði aðsóknar-
mesta mynd sumarsins. ■
nda þeim se: