Helgarpósturinn - 28.09.1995, Blaðsíða 2
2
St.
FIMIVTTUDAGUR 28. SEPTEMBER1995
HP spyr
Hvað ætlarðu
að gera við
fimmkallinn?
Guðný Guðbjömsdóttir:
„Ég mundi leggja hann í
púkk hjá verkalýðsforingj-
unura sjálfum, gá hvort
þeir þurfi ekki pínulítið
meira sjálfir svo þeir geti
staðið sig betur í barátt-
unni fyrir hönd verkalýðs-
ins í landinu.“
Ágúst Einarsson:
„Gagnrýni mín á tillögur
forsætisnefndar þingsins
vegna launamála þing-
manna hefur komið fram
opinberlega. Ég get vel skil-
ið reiði fólks, en þessi að-
ferð Austfirðingsins þykir
mér hvorki skemmtileg né
innlegg í umræðuna."
Hjálmar Jónsson:
„Tvær krónur ganga
náttúrulega til ríkisins í
skatta. Hinum þremur
mundi ég skipta jafnt milli
þessara manna: Benedikts
Davíðssonar, Þórarins V.
Þórarinssonar og Magnús-
ar L. Sveinssonar.“
Guðjón Guðmundsson:
„Ætli ég mundi ekki
senda manninum hann aft-
ur og biðja hann að ráð-
stafa þessu til einhvers
sem þyrfti meira á honum
að halda en ég.“
Magnús Stefánsson:
„Ég er að hugsa um að
láta hann liggja áfram í
hjálparsjóði Rauða kross-
ins ef hann kæmi einhverj-
um þingmanni, sem þarfn-
ast hans meira en ég, til
góða.“
Karl Hjelm í Neskaupstad
safnaði 323 kránum til þurf-
andi þingmanna. Hver þing-
maður fœr fímm krónur i sinn
Margrét sigrar
Steingrím 1
Gallup-könnun
Ólíklegasta
tilviljun nkunnar
Hinn 28. september árið 1855 lést Rósa Guðmundsdóttir
sextug að aldri. Hún var þekkt fyrir stökur sínar og gjarnan
nefnd Skáld-Rósa eða Vatnsenda-Rósa.
Hinn 28. september árið 1988 var minnisvarði um Ragnar
H. Ragnar, tónlistarskólastjóra og söngstjóra, afhjúpaður á
ísafirði. Þennan dag hefði hann orðið níræður.
Á morgun verða væntanlega
birtar niðurstöður úr skoðana-
könnun sem Gallup gerði og
tengist formannskjörinu í Al-
þýðubandalaginu. Samkvæmt
heimildum Helgarpóstsins eru
helstu niðurstöður þær, að
Margrét Frímannsdóttir nýtur
umtalsvert meiri stuðnings
meðal almennings en Steingrím-
ur J. Sigfússon. Það sama gildir
um flokksbundið Alþýðubanda-
lagsfólk, en í úrtakinu er hlutfall
þess alltof lágt til að vera mark-
tækt. Nánari greining leiðir í ljós
að Margrét nýtur mests stuðn-
ings láglaunafólks og kvenna,
ekki síst kjósenda Kvennalist-
ans, en mörgum flokksmönnum
þykir sem tengslin við þá kjós-
endahópa hafi heldur rofnað á
síðustu árum. HP fregnar að
meðal stuðningsmanna
Samkvæmt skoðanakönnun Gall-
up er Margrét Frímannsdóttir lík-
legrí en Steingrímur J. Sigfússon
til að afla Alþýðubandalaginu
aukins fylgis.
Margrétar sé litið svo á að nið-
urstöðurnar styrki stöðu henn-
ar í slagnum um formannsemb-
ættið, enda sýni þær að hún sé
líklegri en Steingrímur til að
færa flokknum aukið fylgi og þá
meðal þeirra sem Alþýðubanda-
lagið þurfi helst að ná til.
Fjórar Ijóðabækur væntanlegar frá Einari Má Guðmundssyni, þar af:
Tvœr goðsagna-
kenndar og ein ný
Ólafur Ragnar Grínisson
...fyrir að hafa haft svona
hægt um sig. Nú á Ólafur varla
nema mánuð eftir sem formaður
og það er engu líkara en hann
beri þá umhyggju fyrir þjóðinni
að hann er byrjaður að venja
hana af sér, svona til að um-
skiptin verði ekki of snögg. Ólaf-
ur hefur verið lítt sýnilegur síð-
ustu mánuðina, sem þýðir að
við erum vel búin undir að hann
verði ósýnilegur...
Alþingismönnum þjóðarinnar áskotnuðust
rúmlega þrjú hundruð krónur eftir neyðarsöfnun
þeim til handa á Norðfirði. Það er fimmkall á kjaft
— skattfrjálst.
Bjöm Grétar Sveinsson er heppnasti maður
vikunnar. Hann er allt í einu orðinn þjóðhetja og
allt er það kjaradómi að þakka.
„Það er undarlegt uppátœki
hjá ungu skáldi sem er að gefa
út í fyrsta sinn að senda frá sér
tvær bœkur í einu.“ Þetta eru
orð bókmenntarýnis Helgar-
póstsins, Gunnlaugs Ástgeirs-
sonar, sem fyrir 15 árum skrif-
aði ritdóm um tvær nýútkomn-
ar ljóðabækur núverandi
handhafa bókmenntaverð-
launa Norðuriandaráðs, Einar
Más Guðmundssonar. Bækur
þessar bera titilinn Sendi-
sveinninn er einmana og Er
nokkur í kórónafötum hér inni?
og hafa allar götur síðan haft á
sér goðsagnakenndan blæ.
Auk þess sem bækurnar þóttu
fylla upp í ljóðrænt tómarúm í
byrjun pönktímabilsins fer enn
þann dag í dag sögum af óbil-
andi sölumannshæfileikum
Einars sem stóð í Austurstræt-
inu og víðar — hvernig sem
viðraði — og seldi grimmt.
Sagt er að sumir eigi að
minnsta kosti tvö eintök af
hvorri bók í fórum sínum. „Ég
mundi alveg svipta hulunni af
goðsögunni ef ég segði hvert
upplagið var. Menn eru að taia
um þúsundir bóka,“ sagði Ein-
ar Már þegar Helgarpósturinn
— 15 árum síðar — knýr hann
um svör. „Þeim hjá prentsmiðj-
unni Odda fannst ég hálfbrjál-
aður að ætla að gefa út tvær
ljóðabækur í einu, en höfðu
samt samúð með mér og vildu
ólmir lána mér fyrir prentun-
inni. Ég borgaði þeim hins veg-
ar á borðið. Þetta var enda á
tímum gömlu myntarinnar og
því gátu upphæðirnar orðið
svolítið háar. Það segir
kannski líka sitt um sölu bók-
anna að þegar þær komu út
hafði ég sagt lausu starfi mínu
sem hreingerningamaður hjá
danska sjóhernum, sem ég
þurfti ekki að snúa mér að aft-
ur.“ Þess má geta að upp úr
þessu fór Einar Már að finna
fyrir fjárhagslegu frelsi og
skrifaði Riddara hringstigans.
Báðar ljóðabækurnar þóttu
ná tungutaki tímans, auk þess
sem Einar segist sjálfur hafa
skynjað hið ljóðræna tómarúm
sem þá ríkti. En rýnum aftur í
ritdóm Gunnlaugs, í niðurlagi
hans segir: Þessar bœkur eru
allrar athygli verðar og lofa
góðu um þennan höfund, þó að
þœr séu alls ekki tímamóta-
markandi í bókmenntasögunni.
Ástæðan fyrir endurútgáfu
bókanna er, þrátt fyrir goð-
sagnakennda sölu á sínum
tíma, eftirspurn, enda hafa
sjálfsagt margir flutt búferlum
eða lánað kunningjunum bóka-
kostinn og ekki fengið til baka
á þessum fimmtán árum.
Fyrsta bókin, Sendisveinn-
inn er einmana, kemur út fyrir
jól, en auk hennar og Er nokk-
ur í kórónafötum hér inni? er
ljóðabók hans Róbinson Krásó
snýr aftur einnig væntanleg.
Fáir vita að glæný ljóðabók
er sömuleiðis væntanleg frá
Einari fyrir jól. Ber sú titilinn /
auga óreiðunnar og undirtitill-
inn er: ljóð eða eitthvað í þá
áttina. „Þetta eru svona at-
hugasemdir í ljóðaformi," upp-
lýsir Einar, en í bók þessari fer
hann vítt og breitt um vígvöll
þjóðfélagsins. gk
Ljóð úr nýrri Ijóðabók
Einars Más
Síðasta tilboð íslendinga
Því miður, herra framkvæmdastjóri,
ég hef ekkert að bjóða
íþessum samningaviðrœðum
nema þrjú tonn af kokteilsósu,
örfá eintök afdýrafrœði Jðnasar frá Hriflu
og allar hljómplötur Áma Johnsens.
Hrósið fœr
Umrœðuefni vikunnar
Rúmlega fjórðungur þjóðarinnar vili annan
forseta í stað Vigdísar Finnbogadóttur. Það voru
góðu fréttirnar. Vondu fréttirnar eru að flestir
vildu Davíð Oddsson eða Steingrím Hermanns-
son í staðinn.
Einhver ótrúlega frumlegur hugsuður fékk
hundrað þúsund króna verðlaun fyrir nafn á
nýju sjónvarpsstöðina. Já, einmitt: Stöð 3.