Helgarpósturinn - 28.09.1995, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER1995
5
Arnar Gunnlaugs-
son fótboltakappi
hefur að sjálfsögðu
verið umtalaður að und-
anförnu, enda vann hann
það einstæða afrek að
skora fimmtán mörk í að-
eins sjö leikjum á ís-
landsmótinu í fótbolta.
Hafa vísir menn reiknað
út að hefði Arnar leikið
alla átján
leiki móts-
ins með
svipuðum
glæsibrag
hefði hann
skorað
þrjátíu og
átta mörk (eða nákvæm-
lega 38,5 mörk) og tvö-
faldað markamet Péturs
Péturssonar og Guð-
mundar Torfasonar.
Ekki mun sviðsljósið
beinast frá Arnari í bráð,
því hann er á nýjustu
forsíðu Mannlífs, ekki
einsamall þó, heldur
með kærustunni sinni,
Hrafnhildi Hafsteins-
dóttur, sem er handhafi
titilsins Ungfrú ísland...
dag, fimmtudag,
standa laganemar
fyrir fundi um stefnu
íslendinga í flótta-
mannamálum, sem gæti
orðið einkar fjörugur.
Þar mætast sem frum-
mælendur Einar S.
Jónsson, formaður fé-
lagsskaparins Norrænt
mannkyn, og Hrafn
Jökulsson, ritstjóri Al-
þýðublaðsins, sem látið
hefur málefni flótta-
manna til sín taka. Ólík-
ari skoðanir um málið
er vart að finna en hjá
þessum tveimur, en
fundurinn hefst á há-
degi í stofu 101 í Lög-
bergi...
--- 1. hæð----
Fimmtudags-, föstudags
og laugardagskvöld
Egill Ólafsson
ásamt Jónási Þór
-— 2. hæð----
Föstudags- og
laugardagskvöld
saLSA
--- 3. hæð---
Dúndrandi diskó
Frítt inn fimmtudags-
og sunnudagskvöld.
Aðgangseyrir 500 kr.
eftir kl. 23:00
föstudags- og
laugardagskvöld.
***1t''
Listaklúbbur Leikhús-
kjallarans, sem setti
töluverðan svip á lista-
lífið í borginni síðastliðinn
vetur, tekur aftur til starfa
á mánudagskvöld eftir
sumarfrí. Það er sem fyrr
Sigríður Margrét Guð-
mundsdóttir sem hefur
umsjón með listalífinu þar
á bæ. Fljótt á litið má segja
að dagskrá klúbbsins fram
að áramótum verði að
mestu með svipuðu sniði
og síðasta vetur. Eitt nýtt
er þar þó að finna; nú ætlar
klúbburinn að tileinka sér
„uppistand“, sem sló í gegn
með Hallgrimi Helgasyni í
Hlaðvarpanum í sumar.
Fyrstur til að stíga á stokk
á mánudagskvöld er Stuð-
maðurinn Valgeir Guðjóns-
son, sem lítt hefur kveðið
að undanfarin ár, nema
hvað hann gaf út skáldsögu
fyrir þremur árum. Á uppi-
standinu á mánudagskvöld
ætlar Valgeir að fara með
gamanmál og spjalla við
gesti, auk þess sem hann
mun syngja og leika nokkur
Uppi varð fótur og fit á
Ríkisútvarpinu á
föstudag þegar hald-
inn var fundur með Heimi
Steinssyni útvarpsstjóra
þar sem ætlunin var að
ganga endanlega frá dag-
skrá vetrarins í útvarpinu.
Þegar á hólminn kom
reyndist Heimir hafa allt
aðrar hugmyndir en dag-
skrárgerðarfólk, tilkynnti
að skera þyfti niður um
þrettán milljónir hjá rás 2
og fréttastofunni og sendi
þannig dagskrána í raun út
í ystu myrkur. Þetta fól
meðal annars í sér að lík-
lega yrði hætt við fyrirætl-
anir um að fréttastofa tæki
þátt í sameiginlegri morgu-
nútsendingu rásar 1 og rás-
ar 2, en að auki leit út fyrir
að flestöllum lausráðnum
dágskrárgerðarmönnum á
rás 2 yrði sagt upp og dag-
skránni að mestu leyti hald-
ið uppi af fastráðnum
starfsmönnum. Einn af
þeim sem líklega hefðu
þurft að hverfa á braut er
útvarpsmaðurinn góðkunni
Svavar Gests, en þættir
hans á sunnudagsmorgnum
njóta mikilla vinsælda. Mik-
ilí úlfaþytur varð vegna
f
lög. Valgeir mun þegar hafa
reynt fyrir sér sem „ein-
grínungur“ í hópi útlend-
inga, að sögn með ágætum
árangri. En þeir eru fleiri
en Valgeir sem bíða eftir að
fá að vera með uppistand í
Leikhúskjallaranum, því í
októberlok hyggst Karl Ág-
úst Úlfsson reyna fyrir sér
með sama hætti. Auk uppi-
standsins ætlar Karl svo að
flytja okkur nýtt frumsamið
örleikrit; í hvítu myrkri,
sem frumsýnt verður á litla
sviði Þjóðleikhússins eftir
áramót...
þessa á útvarpinu og ekki
síður sökum þess að enginn
taldi sig hafa haft pata af
þessum fyrirætlunum út-
varpsstjóra. Eftir mikil
fundahöld mun Heimir hafa
dregið eitthvað í land og
mun nú beðið með endan-
legar ákvarðanir eftir því að
Markús Örn Antonsson,
framkvæmdastjóri útvarps-
ins, komi frá útlöndum.
Ljóst þykir þó að frétta-
magasíninu sameiginlega
hefur verið bjargað.
NÁTTÚRUAFURÐ
I FYRIRRÚMI
radiomidun
Grandagaröi 9 • 101 Reykjavík
Sími 511 1010
Svo virðist sem
töluvert fleiri
klæðskiptingar
séu á íslandi en fólk
grunar. í kjölfar einka-
málaauglýsingar í DV
síðastliðinn föstudag,
þess efnis hvort klæð-
skiptingar hefðu
áhuga á sérstökum
skráningarflokki á
símatorgi Rauða torgs-
ins, hefur verið stofn-
aður skráningarflokk-
ur fyrir klæðskiptinga.
Viðbrögðin við auglýs-
ingunni voru slík að
strax var ákveðið að
stofna þennan flokk.
Eftir því sem næst
verður komist hafa
klæðskiptingar aldrei
átt formlegan mótstað
á íslandi. En nú er
semsé svo komið að
vilji klæðskiptingar
ráða ráðum sínum,
kynnast frekar og svo
framvegis er ekkert
lengur því til fyrir-
stöðu, því símakerfi
Rauða torgsins er
þannig uppbyggt að
viðmælendur vita
hvorki nafn né síma-
númer hvor annars,
en geta spjallað sam-
an og kannað grund-
völl frekari viðræðna
utan torgsins...