Helgarpósturinn - 09.11.1995, Síða 15

Helgarpósturinn - 09.11.1995, Síða 15
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER1995 15 Bitarnir eru komnir saman í púsluspilinu Maríu Guðmundsdóttur „Þetta hefur verið heilmikil þerapía“ María Guðmundsdóttir gerði stuttan stanz á íslandi í vikunni í tilefni út- komu endurminninga sinna og átti stutt spjall við Karl Th. Birgisson um sársaukann, tárin — og næstu kafla í ævisögunni. Af hverju ertu að gera þessa bók? „Það er góð spurning — ég sem þoli ekki viðtöl og hef allt- af haldið prívatlífi mínu fyrir mig. Hluti skýringarinnar er að í gegnum tíðina hef ég orðið vör við að fólk gerði sér rang- hugmyndir um mig og störf mín. Flestir þekktu Maríu Guð- mundsdóttur aðeins í fjarlægð, sem fyrirsætuna frægu í út- löndum, og ég vildi gjarna bregða ljósi á þann heim sem ég hef hrærst í. Fyrirsætustarf- ið er meira en sætar stelpur á flakki um heiminn í glaum og gleði. Þetta er mjög harður heimur. Það eru líka ákveðin forrétt- indi að geta sett líf sitt í eina heild með þessum hætti. Það eru ekki allir sem geta farið yfir líf sitt og lagt það fram á bók. Svo er gott að vera búin að þessu ef ég skyidi taka upp á því að hverfa á annað tilveru- stig! Það þekkir engin ein manneskja sögu mína; það veit enginn alla söguna nema ég.“ Þú gerir meira en að fara yfir 'íf þitt. Þegar ég las bókina kom mér á óvart hversu opinská hán er, hversu óhrœdd þú virðist að lýsa viðkvœmum persónulegum málum. Hvemig líður þér þegar það er um garð gengið? Var þetta ekki sárt? „Mér líður mjög vel. Ég er frjálsari. Þetta hefur verið heil- mikil þerapía. Ég gerði mér ekki grein fyrir hvað ég var að fara út í þegar ég féllst á að vinna þessa bók með Ingólfi. Það voru mikil átök. Þetta snerist ekki bara um að rifja hluti upp og fara yfir endur- minningar, heldur varð ég að kafa ofan í hluti og skoða þá í öðru ljósi en ég hef gert áður. Það var allt opnað og skoðað í hvern krók. Það féllu mörg tár. En það var líka mikið hlegið." Ætlaðirðu að gera þetta svona eða varð þetta til í sam- vinnu ykkar Ingólfs? „Þetta er ekki síður bók Ing- ólfs. Það var sárt að fara í gegnum vissa hluti og þurfa að hugsa um þá aftur, en sam- vinnan við Ingólf hefur verið frábær. Hann er ekki bara góð- ur rithöfundur, heldur er hann mikill sálfræðingur líka. Hann er fordómalaus og hefur verið afar tillitssamur gagnvart mér. Ég treysti honum líka fullkom- lega og lét hann hafa öll gögn sem hann gat haft gagn af, mörg þúsund blaðsíður af dag- bókarfærslum og bréf sem lýstu tilfinningum mínum eins og þær voru þá.“ Þú œtlaðir einu sinni að gera öðruvísi bók. „Já, bókin sem við Gullveig Sæmundsdóttir ætluðum að gera átti að vera allt öðruvísi. Hún átti ekki að vera ævisaga í venjulegum skilningi, heldur byggja mun meira á myndum frá ferli mínum. En Ingólfur sagði strax að hann vildi ekki bók um feril fyrirsætu, enga glanspíumynd. Hann vildi per- sónuna Maríu. Ég sá mjög fljótlega að ég varð að vera hreinskilin; ef draga átti upp mynd af mér sem persónu varð ég að opin- bera tilfinningalíf mitt og skilja ekkert útundan. Það sést fljótt þegar sneitt er framhjá erfið- um atriðum. Þetta var erfitt. Ég hef alltaf falið viðkvæma hluti í lífi mínu og rætt þá við fáa.“ Það féllu mörg tár. En það var líka mikið hlegið. Heldurðu að einhver reiðist eða fyrtist við? „Nei, ég á ekki von á því. Ég hegg ekki að neinum í bókinni, enda var það ekki ætlunin. Ég er ekki þannig manneskja. Það má vera að einhverjir líti það, sem sagt er frá, öðrum augum en ég geri, en þeir hafa þá full- an rétt til þess. Við erum öll ólík.“ Ertu sjálf ánœgð með niður- stöðuna? Sérðu eftir einhverju sem stendur í bókinni? „Nei. Ég sé ekki eftir neinu. Ég er mjög sátt við þessa bók og mér þykir vænt um hana. Þetta er mín saga, mitt líf, og ég er ánægð með að mér tókst að vera hreinskilin og heiðar- leg í frásögninni. Ég vék hvergi frá sjálfri mér.“ Eftir lestur bókarinnar fœr les- andinn á tilfinninguna að sög- unni sé lokið, að öllum brotun- um ípúsluspilinu hafi verið rað- að saman. Er það svo? „Púsluspilið er komið sam- an. Sumir kaflarnir voru full- gerðir áður. Önnur brot hafði ég haft í vasanum, ef svo má segja. Enn annað gekk saman á meðan bókin var í vinnslu. Ég átti til dæmis ekki von á að endir bókarinnar yrði eins og hann varð. Það gerðust hlutir varðandi ættleiðingu mína á meðan við vorum að vinna bókina sem breyttu endinum." Hvernig verður nœsti kafli? „Ég er búsett í Bandaríkjun- um og kem til með að starfa þar og í Frakklandi. Ég verð að hafa eitthvað fyrir stafni — ró- legheit í lengri tíma eiga ekki við mig. Þótt ég sé reyndar far- in að róast er ég enn flökku- kind 5 eðli mínu, enn forvitin og nýjungagjörn. Ég á ekki von á að flytjast til íslands á næst- unni, þótt það sé mikilvægt fyrir mig að koma hingað reglulega og ekki síður mikil- vægt að ég get komið hingað á æskuheimili mitt. Ég hlakka til að koma til íslands um áramót- in og kveðja gamla árið. Ég sé fram á nýtt og spennandi ár — með nýrri dagbók.“

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.