Helgarpósturinn - 09.11.1995, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 09.11.1995, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 ■ <» Rokk og tjatjatja meistarans Væntanleg er á markað ný safnplata með broti af því besta sem Raggi Bjarna hefur sungið í gegnum tíðina. Jakob Bjarnar Grétarsson kunni sér ekki læti og náði tali af meistaranum. egar fyrsta Dean Martin-kvöldið var haldið í Þjóðleikhúskjallaranum var ég mættur og sat til borðs með Einari Kára rithöfundi. Við skemmtum okkur hið besta, enda báðir Dínó-aðdáendur. En þegar Raggi Bjarna mætti á sviðið var engin spurning hver var kóngurinn. Með fullri virðingu fyrir öðrum sem þarna tróðu upp þá var aðeins ein stjarna. Þeir eru ekki margir á íslandi sem standa Ragga Bjarna á sporði þegar dægurlögin eru annars vegar. Það er helst núna að Egill Ólafs eigi eitthvað í hann. Enda virðist sameinast í honum það besta frá útlandinu: Sinatra, Dean Martin og Elvis. Nú hefur Jónatan Garðarsson unnið það þrekvirki að safna saman broti af því besta sem komið hefur út með Ragga og eru elstu upptökurnar frá árinu 1960. Raggi Bjarna er á ferð og flugi en svaraði í GSM-símann þar sem hann var að dæla bensíni á bílinn. „Já, ég er mjög ánægður með þetta. Ég söng inn á einhverjar 40 plötur og kannski kominn tími á að það kæmi eitthvað af þessu á einum diski,“ segir Raggi þegar hann er spurður hvort hann sé ekki hoppandi ánægður með framtakið. Hann segist ekki ætla að gera neitt sérstakt til að fylgja útgáfunni eftir. „Ja, ekki öðruvísi en að láta fólk kaupa þetta,“ segir hann og hlær. Og það eru tíðindi. Raggi Bjarna hefur ekki gert sólóplötu síðan 1971 en nú stendur til að setja eina slíka í vinnslu. „Já, ég ætla að gera eina almennilega plötu. Ég hef ekki gert það svo lengi. Maggi Kjartans ætlar að snúast í þessu fyrir mig og það er eitthvert fínerí og miklar hug- myndir í gangi.“ _ Það kemur á daginn, þegar Raggi er spurður hvað hann sé að bardúsa þessa dagana, að það eru mörg járn í eldinum. „Það er sko nóg að gera. Ég er að syngja á Mímisbarnum á föstudags- og laugardagskvöld- um. Svo er ég auðvitað með bílaleiguna. Nú, ég er alltaf með útvarpsþáttinn á FM 957 á sunnu- dögum frá eitt til fjögur. Síðan er ég að spila á pí- anó í veislum og held uppi stemmningu með söng og bröndurum. Jájá, það er mikið að gera hjá mér, komnum á sjötugsaldurinn. Enginn bil- bugur, ekki til að tala um.“ En aftur að safndiskinum, sem heitir Heyr mitt Ijúfasta lag. Landsmenn ættu að þekkja flest lag- anna, enda hafa þau ómað í útvarpi í gegnum tíðina. Raggi segir mikið af tónlistinni tekið upp í Svíþjóð og Danmörku. Og þarna eru allskonar hljómsveitir og menn sem koma við sögu. Þegar Raggi er spurður um eftirlætislög á diskinum þá nefnir hann strax „Ævintýri“, sem er eftir V. Panzuti með texta eftir Pálmar Ólason. „Það er eitt af þeim lögum sem ég hef mjög gaman af. Við sungum það úti í Kaupmannahöfn, KK var með mér í því. Það var svolítið öðruvísi lag en við sungum í þá daga. Þá spilaði maður meira upp á markaðinn og var ekki að syngja mikið sem mann langaði til — meira svona það sem maður hélt að yrði vinsælt. Þarna kemur lag sem er úti á ystu nöf. Allt öðruvísi en allt annað. Það varð aldrei neitt voðalega vinsælt en er mjög fallegt lag.“ Raggi tiltekur einnig „Stafróf ástarinnar", er- lent lag með texta eftir Loft Guðmundsson, sem hann söng með Svavars Gests-hljómsveitinni. „Svo er þarna „Kokkur á kútter frá Sandi“ — það var svolítið gaman að því,“ segir Raggi. „Ég var að fara til Svíþjóðar og vakti Öla Gauk upp úr rúminu og dreif hann upp í Öskjuhlíð í leigubíl. Þar samdi hann lagið. Svo var ég svo heppinn — ég bara vissi það ekki þá — en nikkarinn Andrew Walter, sem spilaði á plötunni með mér, var frægasti harmonikkuleikari í Evrópu. Ef ég hefði bara vitað það þá hefði ég látið hann spila sólóa á plötunni. Þú heyrir það ef þú hlust- ar á „Kokkur á kútter frá Sandi" hvað harm- onikkuleikarinn er rosalega góður." Á plötunni eru tvö lög eftir Ragga sjálfan, „Rokk og cha cha“, sem hann samdi í leigubíl á leiðinni út á flugvöll, og „Barn“, við texta eftir Stein Steinarr. Ragnar hefur ekki verið afkasta- mikill á því sviðinu að semja tónlist. „Nei, tónsmíðar mínar hafa aldrei farið í þá átt að ég setjist niður og fari að búa til lög. Það er mest tilviljanir og eitthvert leigubílaandrúm sem ráða ferðinni. „Barn“ varð til þannig að Svavar Gests hringdi í mig og sagði að Savanna- tríóið vantaði lög. Þetta eru þrjár ferskeytlur og þú átt bara að redda þessu, sagði hann. Ég sagði bara jájá, allt í lagi og svo var það bara komið. Ég hef aldrei hugsað neitt um þetta. Það eru svo margir góðir lagahöfundar til að ég hef ekkert verið að veltast í þessu neitt. Bara gert þetta ef á hefur þurft að halda." að hætti ,Ég var að fara til Svíþjóðar og vakti Óla Gauk upp úr rúminu og dreif hann upp í Öskjuhlíð í leigubíl. Þormar Ingimarsson gantast gjarnan með að hann hafi einungis skemmt í gangnakofum. Frá honum er að koma út 14 laga plata með lög- um við Ijóð Tómasar Guðmundssonar. Þormar Ingimarsson er með öllu óþekktur lagasmiður sem á morgun, föstudag, sendir frá sér sína fyrstu geislaplötu með eigin lögum við Ijóð Tómasar Guðmundssonar. Á plötunni er Þormar í félagsskap Pálma Gunnarssonar, Björgvins Halldórssonar og Guðrúnar Gunnarsdóttur. Ekkert hnoð hjá Tómasi Sundin blá heitir væntanleg geisla- plata sem ber nánast sama titil og þekkt ljóð Tómasar Guðmundsson- ar, Um sundin blá. Platan inniheldur enda fjórtán ný lög við Ijóð Tómasar, sem flest- ir eru sammála um að sé eitt af merkustu skáldum þessarar aldar. „Einhvern veg- inn, eftir að ég komst yfir ljóðabók eftir Tómas Guðmundsson, fóru smátt og smátt að fæðast lög. Frá því fyrsta lagið varð til eru liðin tíu ár,“ segir Þormar Ingimarsson, 43 ára lagasmiður, sem á sjálfur heiðurinn af því að platan er nú að koma út. Hann segir þó aldrei hafa staðið til að gefa út plötu. „Lögin hlóðust hægt og ró- lega upp þar til ekki varð lengur hjá því komist að gera eitthvað við þau. Ekki vildi ég farga neinu, þannig að ég fór á stúfana og fékk til liðs við mig meðlimi Ríó-tríós, Pálma Gunnarsson, Björgvin Halldórsson og Guðrúnu Gunnarsdótt- ur, svo einhverjir séu nefndir.“ Fyrsta lagið af plötunni sem heyrist á öldum ljósvakans fór í loftið í vor í tilefni Vesturbæjarhátíðarinnar sem þá var haldin. Það var eðlilega lagið við ljóð Tómasar / Vesturbœnum og hefur það ver- ið spilað síðan við nokkrar vinsældir á Rás 2 og á Bylgjunni. Ríó-tríó sér um flutning á því lagi og tveimur öðrum á plötunni. „Tómas höfðar mjög sterkt til mín, enda er skáldskapur hans listilega samansettur, sérstaklega höfða fegurðin og húmorinn í Ijóðum hans til mín. Hann er ekki með neitt hnoð og heldur ekkert að bjarga einhverjum enda á ljóði með rími.“ En hver er þessi Þormar Ingimarsson? „Það er ekki nema von þú spyrjir. Þó að ég hafi spilað á hljóðfæri frá því ég var 17 ára hef ég hvorki spilað í hljómsveit né á pöbbum. Ég er á kafi í hestamennskunni og ferðast því mikið á sumrin, — ég hef sagt svona í gríni að ég spili mest í gangnakofum. Annars hef ég helst spilað uppi á fjöllum þar sem fimm tjöld koma saman, innan um fjölskyldur, enda hef ég kallað tónlist mína eyrnavæna fjölskyldu- tónlist." Hvað er eyrnavœn fjölskyldutónlist? „Það er blanda af ballöðum með blús- og djassívafi og kántrýtónlist. Mér skilst að þeir, sem hafa hlustað á þetta, kalli það melódíska músík," segir Þormar og upplýsir okkur að lokum um að Steinn Steinarr höfði einnig sterkt til sín.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.