Helgarpósturinn - 09.11.1995, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 09.11.1995, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 Sil forsetaefni vikunnar Hörður Sigurgestsson Hörður Sigurgestsson þarf ekkert á því að halda að verða forseti. Hann veit og það vita allir sem þekkja til Harðar að hann myndi lækka í tign við það — og líka í laun- um: Hörður er foringi kol- krabbans. Þar sem hann situr innan við rökkvaðar liarðvið- arþiljurnar í Eimskipafélags- húsinu stjórnar hann örmum kolkrabbans. Allir bera virð- ingu fyrir Herði, sumir óttast hann jafnvel, fæstir hafa séð hann. En það getur verið jrreytandi að vera alltaf í ieyni og innst inni þráir Hörð- ur að koma út í dagsljósið. Við verðum að vona að hann skorist ekki undan þegar kali- ið kemur — eða eins og Bald- ur Hermannsson segir í prýðilegri grein sem birtist í Dugblaðinw. Það er mái að viðra Bessastaði, reka út ilm- vatnið og hleypa inn rakspír- anum. Hvaða rakspíra skyldi Hörður nota? Það skyldi þó ekki vera eitthvað karlmann- legt eins og Old Spice? .nethausínn Þarftu að sjarmera álitlegan lífsförunaut eða hugsanlegt einnar-nætur-dæmi? Dömpa elskhuga eða hjákonu með stíl? Skilja við maka þinn á dramatískan máta eða tendra ástareldinn með eldvörpuað- ferðinni? Ef svo lík- lega vill til að ein- hver þessara val- möguleika (og fjöldi annarra í svipuðum stíi) höfðar til þín skaltu smella þér rakleiðis inná http://wu)iv. nand o.net/toys/cyrano. html og láta sjálfan Cyrano frá Berger- ac aðstoða þig við bréfaskriftir til um- ræddrar persónu. Á Cyrano-stöðinni eru nethausar í tjá- skiptavandræðum leiddir gegnum sjálf- virkar bréfaskriftir með því að finna þau stikkorð sem best lýsa klemmu þeirra og veseni. Eini gall- inn er sá að Cyrano ritar einungis á enska tungu fyrir nethausa, en sjáið nú til: hvort viljið þið senda ástvinin- um eða hinum hataða klúðurs- legt bréf á íslensku eða gera það með stæl og bravúr uppá engilsaxneska vísu? Jæjaþá, þetta er altént hin besta skemmtun... — Microsoft-ris- inn hefur nú loksins náð að klára hönnun netrekilsins Int- ernet Explorer sem er sérstak- lega sniðinn að þörfum og möguleikum Windows 95 og má nálgast á h ttp://u)ww.microsoft. com eða í næstu tölvusjoppu. Expl- orer hefur uppá ýmsa kosti að bjóða, en þykir heldur þunnur þrettándi við hliðina á hinum fullkomnu netreklum Netscape Navigator 2.0. Ed Ricketts, að- stoðarritstjóri hins virta tölvu- tímarits PC Format, skrifar þannig grein í nýjasta .net (langbesta netblaðið) og þykir lítið koma til þessarar nýjustu afurðar Bills Gates og félaga. Vissulega sé margt sniðugt að finna í Explorer, en forritið bara alltof seeeiiinvirkt. Máli sínu til sönnunar bendir Ricketts á að á meðan Netscape Naviga- tor sé einungis nokkrar sekúndur að hlaða inn ákveð- in gögn þá taki það Internet Explorer allt uppí mínútu. .nethausinn stend- ur algjörlega með Ricketts og .net í þessu máli og hvet- ur menn til að halda sig við Netsc- ape Navigator með- an Microsoft getur ekki gert betur... — Nethausar sem lifa í stöðugum ótta við gríðarháa síma- reikninga geta nú smellt sér inní fjög- ur forritasöfn og náð sér í gismó sem alltaf eru lifandi á skjánum og sýna sjálfvirkt lengd og kostnað við hverja tengingu fyrir sig. Macintosh- múlar geta farið inná ftp://src. doc.ic.ac.u k/pa cka ges/macumich/util/comm/ macpppt imerl.42.sit.hqx.gz eöaftp://src. doc. ic.ac.uk/pa ckages/macumich/util/com m/macpppt imerl.5.sit .hqx.gz og Windows-vippum skal bentá ftp://demon. co. uk/pub/ibmpc/windows /fonecost.zip eðaftp://gate keeper.dec. com:/. 6/FF-PRO GS/CLOCKCAL/STOPWTCH. LZ H og haldið bókhaldinu í lagi þaðanífrá... -shh Svipmynd frá Cyrano- stöðinni sem aðstoðar nethausa í brýnum tjáskiptavandræðum. Allt um það í pistli vikunnar... Ætli færi ekki um þá Bjöm Bjamason og Jean-Paul Sartre ef þeir hittust á götu? Það gæti jafnvel farið svo að þeir faeru að efast um tilvist sína. Auðvitað er ekki mögulelki á að leiðlr þessara tveggja hugsuða liggi saman. Sartre er dauður — Björn ekki. En það er gaman að velta þessu fyrír sér. Þeir eru alveg eins nema hægra auga Sartre vísar meira til hægr! en auga BJörns?! Eða er það Blörn sem er svona rangeygur? Báðir eru þeir existensíalistar. Maður er þaö sem maður ’gerir. En ifP þorir að veðja að þegar Björn fær Nóbelinn þá afsalar hann sér honum ekki eins og Sartre. I því liggur nú allur munurinn. ■ " ;• ’ — J Sl ! fMB ÉF á. dk fájír' In „Ég er mjög þjálfaður hattamaður“ Hattamaður vikunnar er eng- inn annar en Guðfinnur Hall- dórsson bíiasali, en þessi hatt- ur er ættaður frá Mið-Evrópu. Guðfinnur var reyndar hálf- hissa á því að vera ekki fyrstur í röðinni. Hann segist nefnilega vera einn helsti hattamaður þjóðarinnar: „Ég á flesta hatta á íslandi, alls tuttugu, og fer aldrei neitt án þess að vera með hatt. Þannig hefur það verið í fimmtán ár,“ segir hann. Guðfinnur segir að vísu að Gulli vinur sinn (Guðlaugur Tryggvi) sé sannur hattamað- ur og er hrifinn af tírólahattin- um hans. „En ég geng aldrei með kúrekahatta. Mér finnst þeir hallærislegir." Aðspurður segir Guðfinnur að djásnið í safninu sé hattur sem hann keypti í Salzburg í Austurríki. Það er mjög vandaður óperuhattur, serr hann setur ekki upp nema á stórhátíðum. Þá á Guðfinn- ur einn góðan sem heitir Banana Republic, sem hann ætlar að bera þegar hann fær fálkaorðuna. Guðfinnur kvartar ekki undan roki eins og félagar hans í hattabransanum. „Ég hef aldrei tapað hatti í roki. Ég er mjög þjálfaður hattamaður. Ég kann að bera mig með hatt í roki. Þetta Iær- ist. Maður verður að beita höfðinu rétt,“ segir Guðfinnur en hann nefnir annað sem hann telur verra, sannkallaða pjágu sem hrjái hattamenn. „Ég hef mikið gaman af því að fara út og fá mér að dreklca með vinum og kunningjum. ís- lendingar eru mikið fyrir að rífa hatta af manni á skemmti- stöðum og ég hef tapað tveim- ur þannig. Þetta er einn mesti dónaskap- ur sem þú getur sýnt fólki. Fólk fær ekki frið með hattana sína á veitingastöðum af því að það Guðfinnur bílasali: „Fólk fær ekki fríð með hatt- ana sína á veitingastöð- um af því að það er ein- hver vitleysingur sem ríf- ur af því hattana." er einhver vitleysingur sem ríf- ur af því hattana. A landi þar sem allir eiga að vera svo of- boðslega gáfaðir og klárir?!“ FYRIR 15 ÁRUM Enginn mannasættir, Hannes „Á sambandsráðsfundi Sambands ungra sjálfstæð- ismanna í síðasta mánuði urðu m.a. miklar umræður um innanflokksvandamál Sjálfstæðisflokksins. Var lögð fram tillaga um að Gunnar Thoroddsen og Geir Hallgrímsson sætt- ust og ynnu saman að því að efla flokkinn innan frá, en vikju ella úr trúnaðar- störfum fyrir hann. í fund- argerð þessa fundar er sagt frá þessu, en svo greint frá því að Hannes Hólmsteinn Gissurarson hafi borið fram frávísunar- tillögu og var hún sam- þykkt. Samkvæmt fundar- gerðinni er því lítill áhugi á því hjá SUS að þeir Gunnar og Geir sættist. Meiri slagsmál og fjör___“ 14. nóvember 1980. „Ég myndi skjóta ömmu mína til að ná í þrjú stig á laugardegi“ Helgarpósturinn og íþróttablaðið taka höndum saman og velta fyrir sér fleygum um- mælum úr ensku knattspyrnunni - „en ekki illa — það dygði að særa hana aðeins,“ sagði orðhákurinn og knattspyrnuþjálfarinn Brian Clough eitt sinn um einstakan sigurvilja sinn. Hið öldungis ágæta íþrótta- blað tekur skemmtilega spretti á köflum, enda með rit- höfundinn Þorgrím Þráins- son við stjórnvölinn. í síðasta tölublaði fór tímaritið þó lítil- lega útaf sporinu þegar það birti skemmtileg ummæli úr ensku knattspyrnunni ánþess að snara þeim yfir á íslensk- una — og bætti gráu ofaná svart með því að bera þá af- sökun fyrir sig að einungis á frummálinu^ myndu ummælin njóta sín. ímyndið ykkur ef Jón Þorláksson á Bægisá hefði viðhaft álíka fyrirslátt þegar hann þýddi Paradísar- heimt eftir Milton Helgar- pósturinn bætir hér úr þessum léttvægu mistöku íþróttablaðs- ins og vonar að Þorgrímur virði okkur það til betri vegar. „Þetta var leikur tveggja hálfleikja, en við gátum ekkert í hvorugum þeirra.“ Brian Horton „Ó, þetta er vel hlaupið á sprettinum.“ John Motson „í sömu andrá og boltinn kom yfir á vænginn fleygði Speed höfði sínu að honum.“ Brian Moore „Það er einsog hann hafi leysigeisla á brjóstinu sem laðar að sér boltann." Jimmy Hill „Ég myndi skjóta ömmu mína ef það yrði til þess að ná í þrjú stig á laugardegi. En ekki illa — það dygði að særa hana aðeins." Brian Clough „Við vorum að minnsta kosti samkvæmir sjálfum okk- ur — einskis nýtir í vörninni, einskis nýtir í miðvallarspil- inu og hörmulegir í sókninni.“ Ron Atkinson „Ef guð hefði ætlast til þess að fótbolti væri spilaður í há- loftunum hefði hann sett gras- ið í skýin.“ Brian Clough „Ánþess að taka út einhvern tiltekinn leikmann, þá fannst mér Mark Wright stórkostleg- ur.“ Graham Souness „Hann minnir á Kenny Dalgl- ish þegar hann slengir aftur- endanum svona utaní fólk.“ Terry McDermot „Fyrsta markið var brotlegt, annað markið rangstaða og þeir hefðu aldrei skorað þriðja markið ef ekki hefðu komið til þessi fyrstu tvö.“ Steve Coppeil „Þessar dyr eru jiess eðlis að þær verða opnaðar ef þið lokið þeim ekki.“ Terry Venables „Það er ekki til það starf í fótboltanum sem ég hef sóst eftir. Þetta er eina starfið í fót- boltanum sem sóttist eftir.“ Joe Royle „Ég vildi bara veita þeim tæknilega ráðgjöf. Ég sagði þeim að leikurinn væri haf- inn.“ Ron Atkinson „Það eru tvær leiðir færar til að ná boltanum — sú fyrri er að fá hann frá samherja þín- um og það er eina leiðin.“ Terry Venables „Ég hef aldrei spáð nokkru og ég mun aldrei nokkurn tím- ann gera það.“ Paul Gascoigne „Ef við spiluðum á þennan hátt í hverri viku þá værum við ekki svona ósamkvæmir sjálfum okkur.“ Bryan Robson „Ég hef ekkert að sanna. Ég verð að sanna fyrir Southamp- ton að ég geti enn skorað mörk.“ Alan Shearer „Ég hefði getað skrifað und- ir hjá Newcastle þegar ég var sautján ára, en ég ákvað að ég væri betur settur hjá Carlisle. Ég hafði aðeins fengið mér í glas þetta kvöld.“ Peter Beardsley „Við skulum loka augunum og sjá hvað gerist.“ Jimmy Greaves „Ef þú getur aldrei af þér mark, þá muntu tapa í fleiri leikjum en þú sigrar í.“ Brian Moore - shh í§ .

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.