Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 20.02.1997, Qupperneq 8

Helgarpósturinn - 20.02.1997, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1997 Hvaöa símtal dreymir þig um aö fá? ífink „Að Stína vinkona hringi, eins og hún gerir reyndar dag- lega, okkur báðum til ómældr- ar ánægju og skemmtunar, en í þetta sinn sé hún venju fremur með jákvæðar fréttir úr dag- lega lífinu. T.d. það að hún hafi nýlega farið til spákonu sem hafi séð peninga, ferðalög og ótrúiega hamingju í bollanum. Táknin hafi verið svo skýr að hún sé búin að kaupa sér lottó- miða og ætli að heita á mig og bjóða mér í hnattreisu ef hún vinnur. Svo hafi hún frétt það að Björn Bjarna hafi fengið vitrun og sömu nótt hafi Frið- riki Sóf ekki orðið svefnsamt. Daginn eftir hafi þeir svo hitzt og farið að reikna og komist að því að það margborg- aði sig að tí- falda fram- lagið í kvik- myndasjóð, vegna þess að það skil- aði sér tífalt inn í þjóðar- búið. Þeir hafi svo í gleðikast- inu sem fylgdi á eftir ákveðið að þrefalda framlög til leikhús- Tinna; fær Bjöm Bjama vitmn? anna og hækka persónuafsláttinn í 150 þúsund. Og svo séu það frétt- irnar sem komi sennilega mest á óvart, nefnilega það, að þeir á Vest- ur-Tímor hafi frétt af sýningunni okk- ar A sama tíma að ári og meiningin sé víst að bjóða sýn- ingunni þangað og svo sé verið að plana sýningar um alla Nusa Tenggara-sýsluna og jafnvel víðar. Og svo...“ Kræf til kjararaia Hver sá sem hafði áhyggjur af framtíð unga íslands getur hætt því. Börnunum er borgið. Þetta kom fram í könnun sem átti sér stað fyrir slysni. Verzlunareigandi í miðborg- inni steingleymdi öskudegin- um og stóð tómhentur þegar sælgætissóknin hófst. Má syngja hér? var spurt úr dyr- unum. Það er ekkert sælgæti til hér, svaraði Óvinur barn- anna sakbitinn. Frrrnnnfffff! sögðu börnin og fóru án þess að skilja eftir sig eina einustu nótu. Upp úr hádegi var sekt- arkennd kaupmannsins mikið farin að láta á sjá. Gólfið í verziuninni var orðið að Grímsvötnum hinum nýju eftir kvartetta, kvintetta og dúetta, sem stöppuðu af sér og fóru í fússi. Um tvöleytið sáu fjórar litlar telpur aumur á kaup- manninum og sungu endur- gjaldsiaust eina vísu. Við það rénaði biturð hans, allt til klukkan hálffjögur, að kallað var án formála úr dyrunum: Nammið búið hér? Iðrunarlaust játaði hann. Þá lét barnið búss- urnar vaða í dyraumbúnaðinn og bölvaði hraustlega á með- an. Um lokun heimsótti hann kaupkona úr næstu verzlun. Hún var örg, tíu vikur þar til teppið yrði þurrt og fyrir þetta var hreytt í hana Bjarnastaða- beljunum. Þau hefðu nú getað æft eitthvað! Aidu? spurði kaupmaðurinn. Þau urðu sammáia um að skiptin á innlendri ösku og er- lendum farða hefðu ekki verið til góðs. Þeim fannst æskan hafa misskilið anda hins inn- flutta siðar, þetta væri þrátt fyrir allt ekki þjónusta sem kaupmenn hefðu beðið um, heldur framtak í þágu gleði og fegurra mannlífs. Þau vildu sjá snert af Dick- ens, já, eða litlu stúlk- unni með eldspýt- urnar: Börnin tækju sér stöðu, syngju eitthvað fagurt, æft og undirbúið, og biðu þess svo í auðmýkt að fá kannski umbun fyrir. En heimtu ekki launin og slettu svo tungunni til verksins. Þessi börn eiga eftir að verða sterkir aðilar í kjarabar- áttu framtíðarinnar. Kynbódn Það er vandamál fólks sem rembist við að hrærast í hringiðu menningar og lista að því hættir til að hugsa, ekki í klisjum eða frösum, heldur í titlum. Að framinni neðan- skráðri kynlífskönnun skaut upp titlinum „Lygn streymir Don.“ Með jöfnuðinn að leiðarljósi var spurt sömu spurningar og síðast, en hinn markvisst valdi hópur sem svaraði var sam- settur úr 15 ára drengjum. Spurningin var umorðuð af iilri nauðsyn, hún var leiðandi til að ná svari áður en viðfangs- efnið æddi burt á hjólabretti og hún var formuð af blygðun- arlausum fordómum. Dreng- irnir voru spurðir hverju þeir vildu fórna fyrir kynlíf. Ekki gott eða afburða, bara kynlíf eins og það kemur fyrir af skepnunni. 100% voru reiðubúnir að skrópa í einn dag úr skóla til að stunda kynlíf. Tæplega 100% lýstu sig reiðubúna að skrópa í viku til kynlífsiðkana og það þó að þriggja daga óút- skýrt hvarf ylli brottrekstri og þeir teldu vonlaust að útskýra vægi kynlífs fyrir skólastjóran- um (líklega sökum aldurs hans). Enginn treysti sér í mánaðar fjarveru. En þegar þeir voru spurðir hversu lengi þeir skrópuðu launalaust úr vinnu til sömu verka voru 100% á því að fórna mætti einum daglaunum, en allir nema einn töldu það víta- vert ábyrgðarleysi, fásinnu og fíflskap að láta sér detta í hug að leggja vikulaun á altari ástríðnanna. Þessi eini svar- aði: Uuuuuuuuu, mánuð, þess vegna, ég vinn hjá pabba. Lygn streymir Don. Öll að sama ósi. Ítalíu-króníka Eie;a beir neyt- endasamtök? Ibænum Pantano fyrir norð- an Róm tók lítil madonnu- stytta upp á því að gráta blóði. Teikn sem þessi geta þýtt hið ýmsasta, en á friðartímum í hana! Syngjandi tölvan kann ekki að beygja nafnið sitt. „Ég er syngjandl talvan..." hvíar hún. Hallærislegt! Tölva á það að vera, f öll- um föllum. línan (69,90 mín.) 100% strákanna voru reiðu- búnir að skrópa i einn dag úr skóla tit að stunda kyniíf. Bamalán - merkir magn en ekki gæði Viltu eignast vini? Viltu þekkja einhvern í klukkutíma? Leiðist þér? Sýndu sjálfsbjarg- arviðleitni. Taktu þér stöðu á gangstétt- arbrún og kallaðu aumlega: Getur einhver hjálpað blindri konu yfir götuna? Fólk streymir að. Ódýrt góð- verk, að hendast með konu yf- ir götu. Höfn náð hin- um megin segirðu: í hvora áttina er — þarna — glerbúðin...? Þér er fylgt þangað. Uppi á þrepinu and- varparðu: Gler- verzlanir eru svo streitandi fyrir blinda... Þú færð fylgd inn. í næstu verzlun er litblind kona sem seldi þér síðast grænt fyrir blátt, en er það mannúðlegt að nudda fólki upp úr litblindu? Fylgd þangað. Mörgum verzlunum síðar, lengst vestur í bæ, hengirðu höfuðið og játar: Ég er ekkert blind, mér leiddist bara svo einni... Það fylgdi ekki sögunni hvort konan sem framkvæmdi þetta um daginn uppskar var- anlega vérzlunarferðavináttu. meðalárferði kjósa samborgar- ar styttanna að líta á þau sem almenna, en djúpa, samúð með bæjarbúum. Sérstaklega taka konurnar þetta til sín. Undur sem þetta hafa fast ferli. 1. Það uppgötvast. 2. Það spyrzt. 3. Það nær kvöldfrétt- unum. 4. Pílagrímarnir streyma að. 5. Bærinn _ braggast. 6. Styttan fær áheit og gjafir. 7. Kirkjan sendir rannsóknarnefnd. Margt verra getur hent mann en eiga grátandi madonnu. Jafnvel þótt kirkjan viðurkenni hana ekki sem lögmætt krafta- verk. Það gerði hún þó í þessu tilviki. Það vantar alltaf ný undur til að kippa reikulum nútíma- manninum tilbaka til kirkjunnar. Þá spruttu höfuðstöðv- ar neytendasamtakanna upp, lögðu fram kæru á hendur rannsóknarnefnd kirkj- unnar, fóru fram á að blóðsýni yrðu tekin úr eiganda styttunn- ar og öllum aðstandendum hans og þau litningagreind ásamt blóðtárum styttunnar. Hér gráta klerkar, hringjarar, biskupar, orgelleikarar, djákn- ar og meðhjálparar blóðugum tárum í beinni, en neytenda- samtökin haggast ekki. Eitt sinn voru hjón í Grafar- vogi, sem voru alltaf að reyna að láta endana ná saman. En það var sama hvað þau gerðu; aldrei tókst að fá endana tii að mætast, hvað þá kynnast eða bindast órofa böndum. Ör- ráða ákváðu þau að halda veizlu og bjóða öllum endun- um í þeirri von að þeir næðu saman. Konan ryksaug og bjó til rækjusalat. Maðurinn fékk Ián- aðan landa og fann útrunninn appelsínusafa í gámi. Á leið- inni heim kom hann við í kirkjugarðinum og kippti með sér fjórum ferskum krönsum. Fram eftir nóttu strituðu hjón- in við að slíta sundur blóma- vír og stroka út áletranir. Þegar fyrsti endinn barði að dyrum var litla parhúsið lík- ast laut í paradís og andlits- drættir hjónanna ekki strekkt- ari en svo að um gat verið að ræða staðgreidda andlitslyft- ingu. Stofurnar fylltust af endum. Konan smaug um með rækju- snittur á bakka, maðurinn jós í glösin og bauð vindla. Bless- aður og velkominn, sagði hann við herra Enda, má ég ekki kynna þig fyrir ungfrú Barnið: Ertu búin með peningana??!! Móðirin: Já. Barnið: Áttu ekkert í bankanum? Móðirin: Útfararsjóðinn minn. Bamið: Sækt’ann. Ég gref þig í garðinum. Og ef þú vilt frekar láta brenna þig, þá fæ ég lánað grillið hjá Höllu niðri og grilla þig, pís bæ pís. Náð’ í peninginn. Enda, þið eigið sameiginlegt áhugamál... en það varð ekki lengra, því herra Endi hrifsaði glasið sitt og sneri baki í ung- frú Enda og hún rak sig af ásettu ráði í landakönnuna svo helltist niður. Ekkjufrú Endi, reyndi maðurinn í næstu stofu, lof mér að kynna þig fyrir herra Enda, ég held þið séuð í sama lífeyrissjóði... en ekkjufrúin fnæsti og herra Endi skaut út úr sér fölsku tönnunum. Ungfrú Endi, hvað þetta er fallegur kjóll! sagði konan við miðaldra enda sem stóð og reykti Camel oní orkídeurnar hennar. Finnst yður það ekki líka? spurði hún enda sem hún vissi að var nýlega fráskil- inn. Ærkjöt í lambareifi, fuss- aði herra Endi og ungfrú Endi drap í sígarettunni í orkídeun- um. Þögulir, fúlir, stóðu end- arnir stakir um allar stofur og voru með snúð. Það var sama hvernig þau reyndu að Ieiða endana sam- an, þeir vildu ekki mætast. Þegar strætó var hættur að ganga flosnaði veizlan upp. Enginn endi bauð öðrum enda far. Sumir ösluðu for og eigin beizkju alla leiðina heim, á meðan aðrir sátu biturlega einmana í bílum sínum. Hjónin skófu snitturnar upp úr teppinu og töldu brunagöt- in. Morguninn eftir seldu þau parhúsið, því þegar endarnir vilja ekki ná saman, þá verður að stytta bilið á milli þeirra.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.