Helgarpósturinn - 20.02.1997, Page 12

Helgarpósturinn - 20.02.1997, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1997 V Helfförin og hversdagslegir memtamenn og áHar í kafbátabyrgi besti vnv bamanna barði ngm Var helförin, þjóðarmorðið á gyðingum í seinni heims- styrjöld, afleiðing af þýskri menningu eða sérstökum að- stæðum í alræðisríki? Tveir bandarískir sagnfræðingar deila um ástæðurnar fyrir Au- schwitch og í nýjasta hefti Lingua Franca er gerð grein fyrir ólíkri afstöðu þeirra. Sagnfræðingarnir Daniel Goldenhagen og Christopher Browning eru höfundar met- sölubóka um helförina en taka andstæða póla í hæðina. Gold- enhagen skrifaði Hitler’s Wil- ling Executioners og leitaðist þar við að sýna fram á að gyð- ingahatur í þýskri menningu væri drifkrafturinn í þjóðar- morði nasista. Bók Brownings, Ordinary Men: Reserve Police Battalion 101 and the Final Solution in Poland, fjallar um morð venjulegra manna í vara- sveit þýska hersins á börnum, konum og körlum í Póllandi. „Venjulegir menn“ í bók Brownings vísar til þess að mennirnir í varasveitinni voru ekki stækir nasistar eða ung- lingar sem búið var að heiia- þvo. Þeir voru á fertugs- og fimmtugsaldri og voru iðnað- armenn, verkamenn og versl- unarmenn þangað til her- kvaðningin kom. Á sjöunda áratugnum var réttað í Þýska- landi í máli mannanna og við þau gögn styðst Browning. Niðurstaða Brownings er að fremur hversdagslegir þættir hafi ráðið því að þessir menn, sem komu flestir frá Hamborg þar sem nasisminn átti hlut- fallslega litlu fylgi að fagna, skutu varnarlausa menn með köldu blóði. Hermennirnir hlýddu skipunum og vildu ekki skorast undan. Yfirvöld kröfð- ust þess að tilteknu verki yrði hrint í framkvæmd og menn- irnir gerðu eins og þeim var fyrir lagt þrátt fyrir að hafa efa- semdir. Sjónarmið Brownings felur í sér að undir ákveðnum kringumstæðum geti allir venjulegir menn orðið að morðingjum. Á sjötta áratugn- um sýndi sálfræðingurinn Stanley Milgram fram á það með tilraunum að fólk er tilbú- ið til að kvelja meðbræður sína að því gefnu að fyrirskipun komi um það frá valdsmanni. Niðurstaða Brownings er í sama anda. Páll Vilhjálmsson Goldenhagen álasar Brown- ing fyrir að gefa ekki þýskum menningararfi gaum. Hann er talsmaður „staðfestukenning- arinnar" um helförina, sem kennir að markvisst var stefnt að útrýmingu gyðinga, löngu áður en nasistar settust niður til að skipuleggja dauðabúðirn- ar. Browning er aftur hallur undir fúnksjónalisma sem lítur til starfshátta þróaðs iðnríkis, stjórnað af valdastétt með kyn- þáttafordóma að hugmynda- fræði. Á sjöunda áratugnum lögðu sagnfræðingurinn Raoul Hilberg og heimspekingurinn Hannah Arendt til frumdrætt- ina að fúnksjónalísku sögu- skoðuninni, Arendt með hug- takinu um hversdagsleika illsk- unnar (banality of evil) í bók- inni um réttarhöldin yfir Adolf Eichmann í ísrael. Lingua Franca segir einnig frá bandalagi bandarísku verkalýðshreyfingarinnar. AFL-CIO, og háskólakennara. I Evrópu hefur löngum verið samstarf og gagnkvæmur skilningur á milli samtaka launamanna og háskólaborg- ara. Stóru jafnaðarmannaflokk- arnir á meginlandinu og á Norðuriöndum voru gjarnan sameiginlegur vettvangur þessara þjóðfélagshópa. Öðru máli gegnir um aðstæðurnar vestan hafs þar sem vinstripól- itík átti, og á enn, erfitt upp- dráttar. Leita verður allt aftur til fjórða áratugarins til að finna samstöðu á milli mennta- manna og verkalýðshreyfing- arinnar í Bandaríkjunum. Aukin samskipti eru rekin til nokkurra þátta. Nýkjörinn for- maður AFL-CIO, John Sween- ey, er staðráðinn í að breyta verkalýðshreyfingunni, en það orð liggur á henni að hún sé makráð og spillt. Háskólayfir- völd hafa víða tileinkað sér sömu viðhorf til starfsmanna og forstjórar stórfyrirtækja, sem þýðir að kjör kennara versna. Hlutfall lausráðinna kennara hefur hækkað á síð- ustu árum og í kjölfarið er vax- andi áhugi í háskólasamfélag- inu á að stofna stéttarfélög. í frásögn Lingua Franca af INTHE PRANKLIN FACTORY _ 4C #»' .Aat>k íts!- 1 VíW'1 Otdinafí ¥ E»ecat!»c«fí latMJf Raifí I Spiegel segir frá álfum á kyndugum stað og valdsmanni sem misnotaði aðstöðu sína... en hann var líka fórnarlamb. Lingua Franca er spurt um forsendur helfarar- innar og staðan tekin á samvinnu mennta- manna og verkalýðs í Bandaríkjunum... samkomum háskólaborgara og forkólfa verkalýðshreyfingar- innar ber á sígildum deilum vinstrimanna um keisarans skegg, en þátttakendum fannst samt sem áður mikill sigur að þessir hópar mættu yfir höfuð á sama fundinn. Aftur til Þýskalands. Der Spi- egel er alvarlegt blað, og menn skyldu aldrei rugla tímaritinu hans Rúdolfs Augstein við Spegilinn sem kom út með hlé- um á þessari öld, síðast í rit- stjórn Úlfars Þormóðssonar. Spiegel er samt ekki laus við gamansemi eins og má Iesa í síðasta tölublaði. í Kiel eru deilur um rústir kafbátabyrgis frá seinni heimsstyrjöld. Varð- veislusinnar vilja gera rústirn- ar að minnismerki en hafnaryf- irvöld vilja byggja skipalægi og þjónustumiðstöð þar sem kaf- bátar foringjans áttu áður heimahöfn. Spiegel tíundar rökin með og á móti en nefnir síðan til sögunnar efnafræð- inginn Mins Minssen sem kveðst sannfærður um að hafa heyrt í álfum í rústunum. Ein- hvern veginn er erfitt að ímynda sér álfa á þessum stað en efnafræðingurinn mælist til að þeim verði hlíft og rústirnar látnar óhreyfðar. Uppeldisfræðingurinn Bruno Bettelheim lést fyrir eigin hendi árið 1990 (barbít- úr, viskí og plastpoki yfir höfði, samkvæmt krufnings- skýrslu). Hann var víðfrægur fyrir bækur sínar og kenningar um uppeldi, sérstaklega erf- iðra barna, og veitti stofnun- inni Orthogenic School í Chic- ago í Bandaríkjunum forstöðu. í bókum sínum var Bettelheim talsmaður ævintýraheims barnanna og mannúðlegra uppeldisaðferða, hafnaði m.a. barsmíðum. Samkvæmt tveim- ur bókum um uppeldisfrömuð- inn var hann ekki allur þar sem hann var séður. Fyrir utan ómerkilegheit eins og að ljúga upp á sig prófgráðum frá evr- ópskum háskólum þverbraut hann eigin uppeldisreglur, lagði t.a.m. hendur á börn. Einstaklingar eins og Bruno Bettelheim varpa ljósi á vand- ann sem sagnfræðingarnir Goldenhagen og Browning standa frammi fyrir. Bettel- heim var valdsmaður sem mis- notaði aðstöðu sína. Auðvelt er að ímynda sér að hann hefði ekki verið tregur til óhæfu- verka íklæddur búningi fanga- varðar í Auschwitch. En Bettel- heim var fórnarlamb, hann komst lifandi úr dauðabúðum nasista. Nine inch nails eru á leiðinni með nýtt efni, albúmið „Impossible pain“ og remix-plötu, „Improbable pain“. Trent Reznor höfuðpaur segist hafa verið að fjarlægjast trommuheilann og nýja platan sé miklu meiri gítarplata en fyrri verk. Má þar nefna „The Downward spiral“ frá 1994, sem hljóðrituð var í húsinu þar sem Charles Manson og áhangendur höfðust við. Enginn ákveðinn útgáfudagur hefur verið til- kynntur fyrir nýju útgáfuna. Pulp hefur misst gítar- og fiðluleikarann Russell Senior sem verið hefur í hljóm- sveitinni í heil þrettán ár. Fréttir herma að Seni- or hafi tekið ákvörðun sína vegna löngunar til að vinna að öðrum verkefnum, aðskilnaðurinn mun vera í algjörri friðsemd. Þótt hljómsveitar- menn sjái mikið eftir honum óska þeir honum alls hins besta í framtíðinni. Pulp er þessa dag- ana að endurskoða upptökur fyrir næstu plötu, engar ákvarðanir hafa verið teknar til að fylla í skarðið eða hvað bandið hyggst gera varð- andi tónleikauppákomur á ár- inu. Einbeitingin er öll á nýju breiðskífuna og lögin á henni. Iick cave & the Bad seeds eru að fara að senda frá sér nýtt efni. Búið var að til- kynna útkomu ballöðusmá- skífuiagsins „Into my arms“ 27. janúar sem undanfara „The Boatman’s call“, nýrrar stórrar plötu, sem kæmi út 24. febrúar. Þessum útgáfudagsetningum' var hins vegar frestað um nokkrar vikur og halda sumir því fram að ástæðan sé orðrómur um að innihaldið sé „endurútgáfa" á „Murder ballads” frá síðasta ári. Lemonheads eru á leið í slaginn á ný með nýja smáskífu, „Outdoor type“, lag sem er á plötu Lemonheads frá síðasta ári, „Car button cloth“. Hljóðblöndun lagsins er í höndum Bobs Ciearmountain og eitt af aukalögum plötunnar verður tónleikaútgáfa af „Losing my mind“, hljóðritað í september. Lemonheads verða á ferðinni um Bretlandseyjar á næstunni, t.d. Bei- fast 26.02, Glasgow 01.03, Manchester 05.03, Bristol 07.03 og London 12.03. The Shamen hefur gert út frá sama útgáfu- fyrirtæki og Björk, One little indian, en vegna ósamkomulags hafa þeir nú sagt skilið við fyrirtækið. Þeir Colin Angus og Mr. C voru ekki sáttir við þá hljóð- blöndun sem plötuútgáfan notaði við endurútgáfu lagsins „Move any mountains”. Þeir hefðu kosið að notast hefði verið við samskonar hljóðblöndun og var að finna á breiðskífunni forðum. Útgáfan not- aði einhver „Beatmastersmix“ og þeir félagar gengu út. Endurútgáfa þessa lags er í tengslum við út- komu safnplötu með Shamen, sem verður af þessum sökum það síð- asta sem One little indian gefur út í með sveitinni. Kevin Rowland hefur viðurkennt að hafa stolið hugmyndinni að mesta stórsmelli sínum, „Come on Eileen", og breiðskífunni „Too Rye Ay“ frá 1982. Fórnarlambið er Kevin „Al“ Archer sem var upphaflega í Dexy’s mid- night runners og var með á frumburðinum „Searc- hing for the young soul“. Rowland er þessa dagana með í undirbúningi sólóskíf- una „My beauty”. Hún mun innihalda „cover“-lög sem hafa á einhvern hátt snert tilfinningar hans í gegnum tíðina. í framhaldinu er ætl- unin að hefja vinnslu á nýrri Dexy’s-plötu, en fyrst endurútgef- ur Creation plöt- una „Don’t stand me down“ í nýj- um umbúðum með tveimur auka- lögum, „Reminisce part 1“ og „The way you look tonight". Beastie Boys, Kula Shaker, Garbage og Ash eru nöfn sem líkleg eru til að troða upp á breyttri Doning- ton-hátíð, Monsters ofthe rock. Hún verður í júlí eða ágúst og stendur yfir í tvo daga en ekki einn eins og verið hefur. Harðari bönd eru einn- ig inni í myndinni eins og Offspring, Skunk An- ansie, Korn og Terrorvision. Áðstandendur há- tíðarinnar leggja hér aðrar áherslur, enda fari Mötley crue-aðdáendum ört fækkandi þessi ár- in. The Rollins band er að fara að senda frá sér sitt fyrsta efni í meira en tvö ár. 25. mars kemur í verslanir breiðskífan „Come in and Burn“. Henry Rollins er forsprakki, eins og nafnið gefur til kynna. Hann hefur fengist við kvik- myndaleik, leikur t.d. fangavörð í nýju myndinni hans Davids Lynch, „Lost highway”. Hljómsveitin verður á tón- leikaferð um Bretland um miðjan apríl- mánuð. Pað eru fleiri popparar en Liam Gall- agher sem þessa dagana eru gripnir með eiturlyf. Gítarleikari Super furry animals, Huw Bunford, var handtekinn

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.