Helgarpósturinn - 20.02.1997, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1997
15
sleppti hrifsaði Hilmar orðið:
„I heilbrigðismálum leggjum
við áherslu á að koma núver-
andi heilbrigðisráðherra frá!“
„Hún er alveg merkileg,
þessi þráhyggja með rekstur
ríkisins á núllið," segir Krist-
inn. Það er komið út í háska-
legar, vægast sagt háskalegar
aðgerðir að ætla að bjarga öllu
í einni kúvendingu. Það er
engu líkara en að niðurskurður
og hagræðing fari eingöngu
fram hjá hagfræðingum og
bókhöldurum sem sjái bara
sínar tölur og punktur og búið!
Það er engin umræða um
hverju ríkið eigi að sinna og
hvernig eigi að forgangsraða
því! Þetta eru hagfræðingar að
semja við hagfræðinga!!“
„Og svo hann Bjöm Bjama-
son, við skulum tala um Björn
Bjarnason," heldur Kristinn
áfram og augljóst er á öllu að
ekki er mikinn kærleika að
finna í hans garð, „ég vil meina
að Björn Bjarnason sé haldinn
mikilli biturð út í skólakerfið,
sérstaklega framhaldsskóla. Ég
hef sterklega á tilfinningunni
að honum hafi verið strítt mik-
ið í skóla og sé að koma fram
hefndum. Það er eins og hann
líti fólk sem er hlynnt nem-
endafélögum illskuaugum,
vegna þess að það vill hafa
gaman af því að vera í mennta-
skóla endrum og sinnum. Og
svo þessi stórkostlega minni-
máttarkennd gagnvart fólki
sem er menntað í uppeldis- og
kennsluvísindum!"
„Gallinn við Björn er offors-
ið, hvernig hann heyrir ávæn-
ing af einhverju úti í bæ og
blæs það upp um leið. Gott
dæmi um það er Singapúr-mál-
ið,“ segir Hilmar."
Helvítis kvótinn og ís-
firðingafélagið!!
Þau setti hljóð öll sömul þeg-
ar spurt var út í álit þeirra á
kvótakerfinu og fiskveiði-
stjórnun á íslandi. Eftir nokkra
stund sagði Hilmar:
„Það er sárt að vera alltaf
hreint spurður út í kvótakerf-
ið, bara af því maður á heima á
Vestfjörðum. Þetta er eins og
ef sá sem býr á Flúðum væri
alltaf spurður út í verðlag á
sveppum!"
Og Kristín Dröfn bætir við:
„Ég held við verðum að beina
sjónum að einhverju öðru en
blessuðum fiskinum. Það er
ekki hægt að leiða hann hjá sér
með nokkru móti, fiskvinnsla
verður um ókomna tíð aðalat-
vinnuvegur Vestfirðinga, en
samt sem áður verður að
hætta að einblína svona á
þetta."
„Það „er hægt að afgreiða
kvótakerfið með einni samsær-
iskenningu: Þegar öllu er á
botninn hvolft fer öll ákvarð-
anataka um kvótamál fram
uppi á kontór hjá Herði Sigur-
gestssyni."
„Það er líka hægt að afgreiða
verkalýðsmál með einni sam-
særiskenningu: Þegar öllu er á
botninn hvolft er Jón Ólafsson
að heilaþvo íslenskt þjóðfélag
svo að alþýðan skipti sér ekki
af hlutum sem máli skipta. Að-
alvopnin eru Toni Braxton,
Gulli Helga, Þorgeir Ástvalds
og Valdís Gunnars!"
„Og ísfirðingafélagið, það er
nú kapítuli út af fyrir sig. í fé-
laginu eru sennilega fleiri en
íbúar sveitarfélagsins í dag og
það er svo undarlegt, að allir
þessir brottfluttu Isfirðingar
drekka kaffi og borða pönnu-
kökur saman fyrir sunnan og
tala um hvað bærinn sé nú fal-
legur og syngja „í faðmi fjalla
blárra" — í báðum útsetning-
um — en vilja helst aldrei stíga
fæti sínum hingað sjálf. Félagið
heldur úti gagnrýni á ýmislegt
sem verið er að gera, s.s. nið-
urrif ryðgaðra torfkofa sem
hafa ekkert gildi nema einmitt
fyrir félagið og meðlimi þess,
sem einmitt, koma helst ekki
hingað!! Við tökum fullum hálsi
undir orð Halldórs Hermanns-
sonar í ræðu sinni á árlegu ís-
firðingakaffi í Reykjavík nú á
dögunum. Hann hvatti alla
brottflutta ísfirðinga til að
kíkja nú í heimsókn áður en
strætó næði að keyra öll húsin
niður!!“
Frú Bryndís forseti
Nokkur einhugur var á bak-
við ástarjátningu hópsins á
hjónunum Jóni Baldvini
Hannibalssyni og Bryndísi
Schram og kváðu mikinn missi
hafa verið í honum úr stjórn-
málum. Öll vildu þau ólm fá
Jón Baldvin vestur á ný, en
hann var eins og kunnugt er
skólastjóri MÍ um tíma, og
helst af öllu Bryndísi í Stundina
okkar.
„Bryndís gerir ekkert vont
og mér fannst rangt af fólki að
vera að stríða henni á dagpen-
ingunum þarna um árið,“ segir
einhver, „það var bara ráðist á
hana af því hún var með Stund-
ina okkar í gamla daga.“
„Ég held að Bryndís hefði
orðið flottur forseti, ég meina,
hún er með forsetamenntun.
Hún kann frönsku, hefur lært
dans, hefur verið fegurðar-
drottning og hefur verið á
vinnumarkaðnum áður. Full-
komið."
- Hún hefði kannski orðið
betri forseti en Guðrún Katr-
ín?
„Alveg hiklaust, ekki spurn-
ing.“
Það kann að vera táknrænt
fyrir þessa síðustu og verstu
tíma sem við lifum á að nýtt og
ferskt stjórnmálaafl sprétti
upp úr uppsetningu á Ieikriti
sem fjallar um geðsjúklinga í
uppreisn. Eitt er víst, að eitt-
hvað annað en óskert skyn-
semi ýtti fólkinu í Funklistan-
um af stað. Það hefur líklega
verið bjartsýni og kraftur æsk-
unnar.
„Menn verða að sætta
skj við niðurstöður“
- segir Þorsteinn Jóhannesson, oddviti sjálfstæöismanna
„Það er svo sannarlega ekki undan þeim að kvarta, nema síður sé,“ segir Þorsteinn, að-
spurður um hegðan bæjarfulltrúa Funklistans. „Af eðlilegum ástæðum sitja þeir mikið til
og hlusta, leggja orð í belg endrum og sinnum, en halda sér frekar til hlés og skoða um-
hverfið. Það er ekki langur tími liðinn síðan þeir kynntust þessum störfum í fyrsta sinn,
þetta kemur allt saman.“
- En eru þeir teknir fullgildir í bœjarstjórn?Er ekki litið á þá sem stráklinga ípól-
itíkusaleik?
„Ég get auðvitað aðeins svarað
því fyrir sjálfan mig að ég tek þeim
sem fullgildum bæjarfulltrúum.
Enda ekki stætt á öðru, þeir hlutu
löglega og mjög afgerandi kosningu
og því hefur enginn rétt til að líta
niður á þá. Ég held að enginn geri
það. Þeir hafa á fullnægjandi hátt
lagt fram mál sem hafa verið sam-
þykkt og sinna sínu starfi vel.“
- Varð ekki vart neinnar bit-
urðar í herbúðum Sjálfstœðis-
flokksins að loknum kosningum?
„Nei, alls ekki. Sjálfur var ég
hlessa yfir fylgi þeirra, sérstaklega í
ljósi kosningabaráttu þeirra, sem
var jöfn blanda af gríni og alvöru.
Þetta mikla fylgi kom öllum á óvart,
ekki síst þeim sjálfum, að ég held.“
- En hinir flokkarnir, voru þeir
sárir og bitrir?
„Nei, það held ég ekki. Auðvitað
fara alíir út í svona lagað með þeim
ásetningi að vinna og þá er sárt að
tapa. En þeir sem taka þátt í pólitík
verða auðvitað að vera menn til að
sætta sig við niðurstöður sem
fengnar eru úr löglegum kosning-
um.“
Á kosningadaginn afhenti Hiimar Magn-
ússon, sem skipaði efsta sæti Funk-
framboðsins, Þorsteini Jóhannessyni,
efsta manni á lista Sjátfstæðisflokksins,
blómvönd. Tilefnið var stórafmæli þeirra
beggja; Hilmar varð tvítugur en Þor-
steinn hálffimmtugur.
fyrir matargerð!
Við notum eingöngu ferskt
og ófrosið grœnmeti,
fituhreinsað kjötmeti,
glœnýjanfisk,
úrvalsflokk af rœkjum,
ektajasmin hrísgrjón
og coíestrolfríar otíur.
hollu
4*
Veldu
Opiðalla
daga frá kl.
11:30-22:00
& rétta línu %
** $
£
Veldu
Nings
HÁDEGISTILBOÐ ALLA DAGA
Sími 5
Suðurlandsbraut 6
Metnaður í
matargerð!
mmmmm