Alþýðublaðið - 23.12.1970, Blaðsíða 1
EN RÍKIÐ VAR
LIKA GJOFULT
jj í-eir bjugírust að vísu við
jólag’Jaðning'i, sem komu til
ríkisféhirðis í morgun, en síð-
ur við því að þar fyrir innan
borð væri jólasveinn að snú-
ast og jafnvel að rétta mönn-
um peninga.
En sökin er ekki fjármála-
ráðherra, heldur Alþýðublaðs-
mar.na, se,m sendu jólasvein á
staöinn ásamt Ijósmyndara,
því þeim fannst’ ekkert sjálf-
sagðara en að fá' einmitt jóla-
svein inn á fréttamynd um
jóíaglaðning opinberra starfs-
manna. Og Guðniundur Odds-
son gagiifræðaskéiakemiari í
Kópavogi hafði ékkert á móíi
því að jólasveinniun rétti hon
um aurana (neðri mynd).
DALITIL KÖNKUN
ÚR JÓLAOSINNI
„Menn eru að kynna sér vöru-
verð og leita að húgmynd-
um." „Fólk er að fá meiri
vöruþekkingu núna.“ „Fólk
skoðar og spyr í nokkra daga,
kemur svo á Þorláksmessu og
gengur beint að hlutnum og
kaupir hann.“ „Ég hef aldrei
séð eins mikla peninga í um-
ferð fyrir nokkur jól.“ „Afar
og ömmur kaupa langdýrustu
leiltföngin handa barnabörn-
unum.“ „Það hefur aldrei ver-
ið eins mikið af barnabókum
á boðstólum áður. „Ótrúlega
algengt að fólk staðgreiði dýr
ar vörur.“
Á þessa leið voru svör kaup
manna og verzlunarfólks, sem
blaðið ræddi við í gær, — en
í heild virtist tvennt áberandi:
Fjárráðin eru meiri nú en áð-
ur, og fólk virðist gera sín
jólainnkaup af meiri atliugun
og skynsemi en áður.
Innkaupin betur hugsuð
„Ég gæti trúaö því að fólk
hugsi sig betur um, beri sam-
an verð og vörumerki og
skoði meira nú en áður,“
sagði Helgi Helgason, verzl-
unarstjóri hjá Gevafoto í
Austurstræti.
. „Ef ég met ástandið rétt,“
sagði Helgi, „þá eiga flestir
eftir að gera sín aðalinnkaup.
Menn eru að skoða livað sé á
boðstólum, kynna sér vöru-
verð og leita sér að hugmynd-
um. Svo allra síðustu dagana
kemur fjöldinn og byrjar að
kaupa. Kaupvenjur fólks eru
að sjálfsögðu mismunandi, en
ég held að í lieild séu jólaú>n-
kaupin betur hugsuð en áður.“
Karlmenn þægiSegir
„Núna fyrir jólin er salan
orðin langmest í alls konar
gjafavörum, sem kosta svona
frá 200 upp í 1.000 krónu •,“
sagði frú Bára Sigurjónsdótt-
ir. „Hjá Báru“, og bætti því
við, að það drægi frekar úr
sölu á kjólum og öðrum fatn-
aði, því ssðustu dagana fyiir
jól kæmi fólk svo til eingöngu
til að kaupa jólagjafir. „Hing-
að koma bara margir eigin-
menn, og það er virkilega
gaman að fá karimenn í heim
sókn. Þeir eru þá að leita að
gjöfum handa konunni eða
unnustunni. Mér finnst eigin-
lega miklu hetra að eiga við
karlmenn en konur. Þeir eru
ákveðnir, vita fljótt.hvað þeir
vilja, og það er mjög þægilegt
að hjálpa þeim.
Annars finnst mér fólk fara
miklu gætilegar í kaup en
áður. Það skoöar og skoðar
og skoðar, og það er margfalt
mciri vinna við afgreiðslu nú
en áður. Fólk er að fá meiri
vönsþekkingu núna, það hef-
ur vantað svo mikið. En hað
er gott ef fólk lærir að meta
vörugæði.“
Nógir penir'pr
„Salan er að hraðaukast nú
síðustu þrjá dagana,“ sagði
Frarnhald á bls. 5.
QJVaSKD
ÓSKAR LANDSMÖNN-
UM GLEÐILEGRA JÓLA