Alþýðublaðið - 04.01.1971, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 04.01.1971, Blaðsíða 5
 Hið hreina skin vorri Áramótaávarp Kristjáns Eldjárns forseta íslands G-óðir íslendingar. NÝTT ár gengur í garð og landsins börn bjóða hvert ö&u gleðilegt nÝjár og þalkka fyrir árið sem leið. Svo var það löngum og svo er það enn. Áramót eru timi reikn- ingssikila, og á nýjársda’g verð ur þaö mörgum manni, bæði sj álfrátt og ósjálfrátt að hoi-fa yfir farinn veg og _gená eins konar úttekt .á lífi sínu, en skyggnast jafnframt fram á leið, gera áætlun, jafnvel heit strengingu/ Menn spyrja hvað úrskeiðis hafi farið á liðna ár inu, bæði persónulega og í þj óðlífinu, og hugsa sér gjarn an úr að bæta, vanda sitt ráð. Það gera menn einnig við marga aðra áfanga á lífsbraut inni, en þó almennast og af mestum næmleik á nýjársdag, og það setur sinn svip á dag- inn. Að baki er árið með gleði og sorg, sigur og- ósi'gur, að baki eru jólin, forn hátíð með frið, hvíld og helgi fyrir suma, en annríki, þreytu og glaum fyrir aðra. Að baki er gamlárs kvöld með flugelda, álfabrenn ur og klukknahringingar og svo er skyndilega eins og byl- ur hafi dottið af húsi. Nýjárs- dagur er oft dagur sérkenni- legrar kyrrðar. Gleðilegt nýj- ár, segja menn, og þöikk fyrir gamla árið. Og til þess kem ég fram fyrir yður, sam- kvæmt gömlum landsins vana, að Segja við yður þessi ein- földu gamalkunnu orð. „Svo rís um aldir ái-ið hvert um sig, eilífðar lítið blóm í skini hreinu“, kvað Jónas HaUgrímsson á nýjársdag 1845 í einu dásamlegasta kvæði sínu, og er þá mikið sagt. „Mér er það svo sem ekki neitt í neinu“, segir hann enn, sjúkur og einmana mað- ur með banagrqn í brjósti. — Samt er það heiðríkjan, sem ‘er einkunn þessa kvæðis, skáld ið heitir sjáMum sér því, að hann skuli, hvað sem að hönd- um ber varðveita það sem dýrast er, sál lians sjálfs. Nú þótt vér mælum ekki máli guða, eins og skáldið garði, þá held ég að hverjum ís- lendingi væri styrkur og hug- bót að lesa þetta kvæði og hugleiða með sjáfum sér á fyrsta degi hjns nýja árs. Ár eru misjöfn, og veltur á ýmsu, með hve mikilli gleði þjóðin heilsar nýju ári. Vér minnumst þess, að í fyrra bar þann skugga á' áramótahelg- ina, að atvinnuleysi lét meira á sér bera en verið hafði um langt skeið, og þetta olli fjölda manna og heilum byggðarlögum miklum vanda. Þá leituðu margir sér atvinnu erlendis, og þó flestir með það í huga, að dveljast þar um stundar sakir, þar til aft- ur blési betur hér heima, en nokki-ir til að flytjast búferl- um í fjarlæg lönd og búa sér, og sínum framtíð þai-. Menn töluðu um landflótta, og gengu jafnvel -svo 'langt úr hófi fram að jafna til Ame- rikuferða á fyrri öld. Það er hart áð þrn-fa að fara áf landi brott sér til lifsbjai-gar, en bót var í máli, að þvi ér'virð- ast mátti, að taláð var úm vildiskjör, sem menn ætlu kost á með öðrum þjóðúm, þótt víst kæmi stundum á daginn, að fyrst er allt fræg- ast. Á þessu-m nýjársdegi er svo fyrir að þakka, að menn virð- ast vera á einu máli um, að nú sé bjartara yfir en um tvenn síðustu áramót. Hagur atvinnuvega og þjóðarbús hef m- farið batnandi, og menn eru í léttara skapi. Orðið land flótti heyrist nú ekki, og lítil brögð munu vena að því að íslenzkir menn taki sig upp með fjölskyldur sínar til á- hættusams landnáms í fjar- i.ægum heim'sálfum. Fagnaðiar efni er það, því áð ísland má ekki við slíkum mannamissi. Ég hef ekki tölm-, sem full- treysta má, en ég vona að það sé rétt skilið, að ýmsir þeir, sem leituðu sér atvinnu er- lendis Um stundár sakir, hafi nú aftur horfið heim og geti frámfleytt sér og sínum í heimahögum. Því að sú mun vera von og vilji flestra, sem utan fara, enda stendm- það enn í góðu gildi, sem Fjölnis- menn skrifuðu í inngangsorð- um Fjölnis 1835: Því fleiri. lönd siam vér sjáum, því ákaf- ar girnumst vér aftur til ís- lands. Það mætti vera ein af nýjársóskunum á þessum degi, að sem flestir fslending- ar, sem þess sinnis eru, geti látið eftir þeirri löngun sinni með óskert'an hlut. Sú ó:‘k beinir huganum að því sem enginn kemst hjá að Kristján Eldjárn, forseti Ísl2nds láta sig vai-ða, hvernig vér ísiendingar séum á vegi stadd ir um daglega afkomu og þjóð félagslega aðstöðu þegnanna. Þess sjást nú ýmis merki, að allur þorri manna býr við rýmri hag en verið hefur um sinn, hefur meira handa í miili, getur veitt sér fleiri lífsins gæði. Það er reyndar býsna erfitt eða nær ógern- ingur að verða sér úti um tölu legar staðreyndir um raun- veruleg lífskjör manna hér á Forsetasetriö að Bessastöðum. landi í samanburði við það • sem gerist með grannþjóðum vorum, sem að þessu leyti eru meðal. hinna fremstu í . heimi. En þó að rökstuddar’ tölur vanti, er það almenn skoðun, að' litið. eða ekki a skorti á að vér höldum til jafns við granna vora í þessu efni, og má þó satt vera, að enn kosti það oss lengri ‘vinnu dag og harðari önn að halda í þessu horfi. í eyrum .nútíma-' ■ manna kveður oft v.j&mjiajjœ* ekki heyrðist ti 1’s’lcarrunstrma, Velferðarríki. Ef að líkum læt ur hefði Jónasi Hallgrímssyni ekki þótt þetta sem haglegast orð á íslenzka tungu, hann hefði ef til vill talað um hag- sældarríki eða jafnvel far- sældarriki. En hverju nafni sem vér nefnum það, þá er það þess háttar samfélag, sem vér keppum að, og' viðurkenn um það bæði í orði og við- leitni. S.em msst hag-æld og hamingja fyrir sem flesta.Því ■; játa allir að þjóðfélagið megi, . engan mann bera út á hjarn, heldur skuli það af vakandi huga leitast við að búa hverjú ; mannsbarni fyllsta færi :til slarfs og þroska og hamir.gju- vænlegs lífs. Þetta er rtiann-. réttindaskrá, þótt óskráð sé, og allár affgerðir samféiagsins fkyldu vera í samræmi" við hana. Þessi hugsjón er ja.fngóð og- gild sem viðmiðun þráti fyrir þaú að alfullkomið farsældar- riki er að vísu ekki enn til né mun heldur nokkru sinni verða. Hinn gamli Adam, sem Framiiald á bls. 10. WÉNiJOABII®, 4. JANIIAR 1971 5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.