Alþýðublaðið - 29.09.1971, Blaðsíða 7
Það eru aðallega útlendir
Farfuglar, sem notfæra sér
gistingu á Farfuglaiheimilun-
um, þótt þau séu raunar öll-
um opin. Mest er að sjálf-
sögðu aðsóknin að Farfugla-
heimilinu í Beykjavík, að
Laufásvegi 41, en þar og í
húsnæði út í bæ er unnf að
hýsa um 80 manns. Það hreklc
ur þó ekki alltaf til og kem-
ur iðulega fyrir að neita verð
ur ferðamönnum um gistingu
á mesta annatíma sumarsins.
Farfuglaheimilin eru opin
frá kl. 8—10 á morgnana og
kl. 5 —11 á kvöldin.
100% aukning
Annar aðalþáttur startfsem
innar eru ferðalögin. Farfugla
deild Reykjavíkur skipulegg
ur og sér um ferðir víðsvegar
um landið að sumrinu, bæði
stuttar og langar, helgarferð-.
ir og sumarleyfisferðir. í sum
ar voru farnar 25 ferðir og
þátttakendur í þeim um 500
manns og er þar um 100%
aukningu að ræða frá þvi í
fyrra, sem var að vísu held-
ur slakt ferðasumaf. En þetta
sýnir þó, að mikil gróska er
í ferðalögum á vegum Far-
fugla, og sagði Guðjón, að á-
berandi mikið væri af ungu
fóiki í ferðunum og mest fs-'
lendingaf. Hann sagðist vilja
taka það alveg sérstaklega
fram, að öllum væri heimil
þátttaka í þessum ferðalög-
inn, en þess misskilnings
gætti stundum, að þau væru
barasta fyrir félagsmenn.
1 Farfuglar ■ leitast við að
hafa ferðimar sem ódýrastar,
■ fararstjóm og ýmiskonar
stúss í sambandi við ferða-
lögin er t. d. að mestu leyti
sjálfboðavinna, og það var
fyrst í sumar, sem Farfiugla-
deildin hafði launaðan starfs-
mann á sínum snærum á
skritfstofúnni að LauffáBvegii
41, enda var hún opin alla
virka daga á venjulegum
skrifstofutíma. Helgarferðir
hjá Farfuglum þ.e. tveggja
daga ferðir, kostuðu í sumar
kr. 850.00.
Nú er verið að gera drög
að ferðaáætlun fyrir næsta
ár og er þair gert ráð fyrir
auknum ferðafjölda og ýmsar
nýjungar á prjónunum, sem
ekki er tímabært að skýra
frá að svo stöddu.
Vetrarstarfsemi Farfugla
Auk ferðalaganna heldur
Farfugladeild Reykjavikur
svo uppi ýmdskonar vetrar-
starfsemi, svo sem vetrar-
Æagnaði og þorrablóti í Heið-
arbóli. Sömuleiðis eru handa
vinnukvöld af og til allan vet
urinn, þar sem fram fer leð-
urvinna, smelt, útsaumur o.
fl. Góð aðstaða er til skíða-
iðkana í Heiðarbóli að vetr-
inum, ef guð gefur snjóinn,
en það hetfur að vísu brugðizt
á stundum. Skáiinn þar rúm-
ar um 30—40 manns og er op
inn alla veturinn fyrir skiða-
fólk.
Þá má geta þess, að Far-
fuglar gefa út blað, Farfugl-
inn, sem fjallar ujm félagsstarf
semina, en flytur auk þess
efni um hverskonar áhuga-
mál Farfugla, ferðalög, lands
lagslýsingar og margt fleira.
Meðlimir í Farfugladeild
Reykjavíkur eru sem stendur
um 1400 talsins, en sú tala
hefur verið nokkuð á reiki,
sem stafar m. a. af því að
ýmsir gerast félagar um
stundarsakir, ef þeir ætla í
siglingu, með það fýrir aug-
um að notfæra sér gistingu á
erlendum farfuglaheimilum.
Foi-maður Farfugladeildar
Reykjaví'kur er Gunnar
Högnason, en formaður
Bandalags ísl. Farfugla Samú
. el Valberg.
Guðjón sagði, að dálítil
lægð hefði verið í starfsemi
Farfugla síðustu árin, sem er
vel þekkt fyrirbrigði í hvers-
konar félagisskap, en nú væri
mikið fjör að færast í þetta
atftur og mikið af ungu fólki
komið til skjalanna, og spáði
það góðu um framtíðina, en
jafnframt styddu þeir eldri
við baikið, á félagsskapnum og
héldu tryggð við hartn.
Fagur „fuglasöngur" í Langadal
Að lokinni skýrslu Guðjóns
hóflst svo kvöldvaka í Skag-
fjörðsskála, sæluhúsi Ferða-
félags íslands, sem Farfuglar
höfðu fengið til gistingar' í
þessari Þórsmerkurferð. Var
þar sitthvað til skemmtunar,
svo sem sögur og leikir, að
ógleymdum fögrum „fugla-
söng“ sem barst út i kyrrláta
haustnóttina í Langadal.
Á sunnudagsmorgun, þeg-
ar Farfuglar risu úr rekkju
og skyggndust til lofts, var
að heiða af /jöklunum og
birta til, en dumbungsveður
hafði verl® á föstudag og laug
ardag. Bráðlega brau2t svo
sólin fram úr skýj aþykfcninu
Framhald á bls. 11.
„Fuglasöngurinn" úr SkagafjörSsskála barst út I kyrrláta haustnóttina í Langadal. Ljósm. GG.
„Þótti flestum leiSin tilkomumikil og skemmtileg, þótt jökullinn væri dálítiS ójífn og sprúngirrn." G.G.
■
„Landslagiff er víffa tröllslegt á þ essum slóffum, risavaxin bergtröll og „kirkjur", ein þeirra hlaut nafniff
Péturskirkja í ferffinni." Ljósm. G.G.
Miffvikudagur 29. sept. 1971* 7