Alþýðublaðið - 07.04.1972, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 07.04.1972, Qupperneq 5
Útgáfufélag Alþýðublaðsins h.f. Ritstjóri Sighvatur Björgvinsson (áb.). Aðsetur ritstjórnar Hverfisgötu 8-10. Blaðaprent h.f. HVERS ER AD VÆHTA HÆSTT í leiðara Alþýðu- blaðsins i gær var af- greiðslumáti rikis- stjórnarinnar -á tilboði Bandarikjastjórnar um að kosta fjárfrekar framkvæmdir á Kefla- vikurflugvelli gerður að umtalsefni. Blaðið benti á, hve hneykslan- leg framkoma bæði meiri- og minnihlutans i rikisstjórninni hafi verið við afgreiðslu málsins. í fyrsta lagi er látin fara fram at- kvæðagreiðsla um málið innan rikis- stjórnarinnar, þar sem ráðherrarnir skiptast i meiri- og minnihluta og hyor hópurinn um sig lætur bóka eftir sér hinar og þessar yfirlýs- ingar. Þá afgreiðslu nota kommaráðherr- arnir tveir, sem i minnihluta voru, svo til þess að fria sig allri ábyrgð á málinu likt og þeir þyrftu enga stjórn- arfarslega ábyrgð að bera. Framferði meirihlut- ans i málinu er þó e.t.v. enn alvarlegra. Með einföldum meirihluta i atkvæðagreiðslu innan rikisstjórnarinnar knýja þeir fram ák- veðna afgreiðslu á stórmáli hafandi minnihluta þingheims á bak við sig. Þetta er algert brot á öllum þingræðislegum regl- um. Tveir stjórnar- flokkar af þrem geta ekki knúið rikisstjórn til aðgerða i stórmáli gegn vilja þriðja st- jórnarf lokksins ef stjórnarflokkarnir tveir hafa ekki þing- meirihluta á bak við sig eða ef þeir hafa ekki kannað með viðræðum við' stjórnarandstöðu- flokka hvort þinglegur meirihluti sé ekki fyrir afgreiðslu málsins. Það gerði ráðherra- meirihlutinn ekki og er þvi framferði hans við afgreiðslu málsins ekki aðeins vitavert heldur einnig stórháskalegt fordæmi. Það ætti öllum að vera auðskilið hvaða fordæmi rikisstjórnin hefur gefið með fram- ferði sinu. í fyrsta lagi vilja kommaráðherr- arnir með afstöðu sinni fitja upp á þeim nýja sið, að stjórnarflokkar geti setið i rikisstjórn án þess að bera ábyrgð á gerðum hennar. Liki einhverjum stjórnar- flokki einhver ríkis- stjórnarathöfn illa þá sé nægilegt að hann lýsi sig ,,stikk frian” og þar með sé hann laus allra mála. Hvers konar stjórnarhætti eru þess- ir menn eiginlega að reyna að innleiða? Fordæmi ráðherra- meirihlutans er hins vegar bein ógnun við þingræðislega st- jórnarhætti i landinu. Þeir eru að leggja út á þá braut að stjórna landinuántillits til þess, hvort þinglegur meiri- hluti standi að baki stjórnarákvörðunum. Er það meiningin hjá Ólafi Jóhannessyni að leggja Alþingi islend- inga niður? Er þess að vænta, að hann muni i framtiðinni afgreiða mál með meiri- hlutasamþykktum i rikisstjórninni en i and- stöðu við vilja meiri- hluta Alþingis? Það fordæmi, sem hann og fjórir aðrir ráðherrar hafa gefið i sambandi við afgreiðslu banda- riska tilboðsins er mesta stjórnarfarslega hneyksli, sem nokkur islenzk rikisstjórn hef- ur gert sig seka um. Hvers er að vænta næst? 3820 JOFNIIN- ARSTYRKIR TIL UNGS FÖLKS Nefnd sem skipuð var til þess að annast um úthlutun styrkja til jöfnunar á stöðu nemenda i strjálbýli til framhaldsnáms á árunum 1970 og 1971 hefur skilað sérstakri skýrslu um störf sin. Skýrsfan var lögð fram á Alþingi nýlega og er alls 27 prentaðar siður. Nefndin var skipuð fimm mönnum,— formaður var Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri, en aðrir i neíndinni þeir Torfi Ásgeirsson, hagfræðingur, Pálmi Jónsson, alþm., Björn Halldórs- son, skrifstofustjóri og öiver Karlsson, oddviti. Starfsmaður nefndarinnar var örlygur Geirsson, fulltrUi i menntamála- ráðuneytinu. Til ráðstöfunar fékk nefndin árið 1970 10 m. kr., en það var lyrsta árið, sem styrkir þessir voru veittir. Arið 1971 fékk nefn- din 15 m. kr. til ráöstöfunar og var i bæði skiptin um að ræða sér- staka fjárveitingu á fjárlögum. Styrkir, sem nefndin veitti, voru tvennskonar. 1 fyrsta lagi dvalarstyrkir til nemenda, sem urðu að dvelja utan heimila sinna án þess að eiga kost á skóla- heimavist. Dvalarstyrkurinn, sem veittur var, nam 1200 krónum á mánuði bæði árin og var þá miðað við nauðsynlegan dvalartima á skólastað vegna námsins að skólaleyíum meö- töldum. 1 öðru lagi voru svo veittir sér- stakir ferðastyrkir til nemanda frá dvalarstað og að skóla. Styrkurinn nam allt aö 75% ferða- kostnaðarins. Árið 1970 var styrkurinn veittur til tveggja ferða,— heima og heim, en árið 1971 var styrkveitingin aukin og veitt til fjögurra ferða. Var það gert samkvæmt eindregnum til- mælum nemenda og þá miðað við ferðir að og frá skóla i byrjun og lok skólaárs ásamt ferðum heim og heiman i jólaleyfi. t þriöja lagi gerðu reglurnar um Uthlutun styrkja til jöfnunar námsaðstöðu svo ráð fyrir stuðningi við skipulagðan akstur að framhaldsskólum. NYSKIPAN SKIPULAGSMALA Fimm þingmenn, einn Ur hverjum þingflokki og þar á meðal Stefán Gunnlaugsson frá Alþýðuflokknum, hafa lagt fram Stefán Gunnlaugsson á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum. Með frumvarpinu er lagt til, að eftir- farandi ákvæði bætist aftan við 2. mgr. 34. greinar laganna: Þá getur skipulagsstjórn heimilað sveitarstjórn að annast á eigin kostnað tiltekið skipulags- verkefni undir yfirstjórn skipu- lagsstjórnar. Ráðherra er þá heimilt að láta greiða Ur rikis- sjóði allt að helmingi kostnaðar sveitarstjórnar við það verkefni, enda hafi skipulagsstjórn staðfest samning sveitarstjórnar við þann aðila, sem verkefnið tekur að sér, þ.á m. kveðið á um hámarks- framlag rikissjóðs. Þá leggja flutningsmenn einnig til, að þetta nýja ákvæði taki strax gildi. 1 greinargerð með frumvarpinu segir: Frumvarp þetta er borið fram að beiðni Sambands isl. sveitar- félaga, Ástæðan til þess, að frumvarpið er fram komiö, er sU, að skipu- lagsskyld sveitarfélög hafa i vaxandi mæli óskað þess að fá sjálf að annast gerð skipulags undir yfirstjórn skipulags- stjórnar rikisins, sem hefur lýst sig hlynnta þvi fyrirkomulagi enda teiknistofa skipulagsstjóra mjög fáliðuð. Sá hængur er á, að i 2. mgr. 34. gr. skipulagslaga er heimild rikissjóðs til þátttöku i kostnaði við gerö skipulags, þegar þannig stendur á, takmörkuð við helming áfallinna skipulagsgjalda i sveitarfélaginu. 1 minni sveitar- félögum getur þessi fjárhæð ekki náð nema hluta af slikum kostn- aði, nema á löngu árabili. Með þessari takmörkun er þvi ákvæðið um heimild sveitarfélaga til að vinna sjálf að skipulagi gert óvirkt að mestu leyti nema i Framhald á bls. 4 Um Uthlutunina er það að segja, að strax eftir að gengið hafði verið frá Uthlutunarreglum árið 1970 var auglýst eftir um- sóknum. Þá var langt liðið á skólaárið og þvi bárust færri um- sóknir, en vænta mátti og var þvi umsóknarfresturinn framlengdur til hausts. Þann 25. október 1970 höfðu tæplega 1000 styrkumsóknir borizt og var þá hafizt handa um Uthlutun. Um áramótin 1970—1971 höfðu alls 1400 styrkgreiðslur verið afgreiddar og við lok Ut- hlutunarinnar alls 1430, en 127 beiðnum var hafnað. Heildar- Uthlutunin nam 10,008 m. kr.,— dvalarstyrkir þar af 8,3 m. kr. og ferðastyrkir 1,7 m.kr. Við afgreiðslu fjárlaga ársins 1971 var ráðgert að hækka styrk- veitinguna Ur 10 i 12 m. kr., en menntamálaráðuneytið óskaði eftir hækkun frá fjárveitinga- nefnd upp i 21 m. kr. og var sU ósk borin Iram að beiðni Uthlutunar- nefndarinnar, sem hafði gert áætlun um Uthlutunina, sem m.a. byggðist á 20% aukningu styrk- umsókna og 20% hækkun dvalar- styrkja. Ekki féllst fjárveitinga- nefnd á þessi tilmæli, en hækkaði þó framlagið í 15 m. kr. Varð þetta til þess, að ekki reyndist unnt að hækka dvalarstyrki til nemenda né heldur að auka niðurgreiðslur á fæðiskostnaði i heimavistum. Þó tókst að auka ferðastyrkina á árinu 1971, eins og fyrr greinir. Aárinu 1971 fjölgaði umsóknum mjög,— eða um 65%. 2190 um- sóknir voru samþykktar, en 436 hafnað. Að beiðni nefndarinnar var fjárveitingin hækkuð um 2,3—2,5 m. kr. til þess að unnt mætti reynast aö sinna öllum þeim umsóknum, sem fullgildar voru og var þeirri viðbótar- upphæð allri Uthlutað. Samtals var þvi Uthlutað á þessum tveim árum 27,87 m. kr. i styrki þessa og afgreiddar jákvætt 3620 um- sóknir. Þá bárust nefndinni einnig nokkrar umsóknir frá nemendum skyldustigsins. Enda þótt reglurnar geri fyrst og i'remst ráð fyrir Uthlutun til nemenda á framhaldsskóla- stiginu þá þótti nefndinni ekki rétt að synja þessum umsóknum frá nemendum skyldustigsins um alla fyrirgreiðslu og beitti sér þvi fyrir þvi, að 51 slikur nemandi, sem ekki átti þess kost að stunda skyldunám sitt i heimabyggð, hlaut styrki annars staðar frá. Námu þessar styrkveitingar alls 348 þUs. kr. 1 skýrslu Uthlutunarnefndar- innar er einnig að finna reglur þær, sem nefndin fór eftir við störf sin. Er þar fyrst rætt um til- gang styrkveitingarinnar, skil- greiningu á bUsetu og framhalds- námi og námstima, en siðar um Framhald á bls. 4 ÚRSMIÐIR UM LAND allt nota ábyrgðarskir- teini úrsmiðafélags ís- lands. Það veitir full- komna ábyrgð fyrir góðu úri og öruggri viðgerðarþjónustu. Merki úrsmiða ÚRSMIÐAFÉLAG ÍSLANDS Föstudagur 7. apríl 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.