Alþýðublaðið - 18.04.1972, Side 9
JUDO
fMttmi 2
SIGURJON
BAR AF
tslandsmótið i júdó fór fram i
tþróttahúsi Háskólans á sunnu-
daginn. Keppendur voru alls 21,
og var keppt i 3 flokkum.
1 tveim léttari flokkunum var
keppni jöfn og spennandi, en i
þungaviktinni var Sigurjón
Kristjánsson úr Júdófélagi
Reykjavikur i sérflokki, enda sá
eini af keppendunum sem var
svartbeltishafi.
t léttvikt sigraði Jóhannes
Haraldsson úr Grindavik, en i
millivikt Bjarni Björnsson
Júdófélagi Reykjavikur. Á með-
fylgjandi mynd sést Bjarni
leggja Hjört Sigurðsson.
Úrslit urðu þessi:
l.éttvikt:
1. Jóhannes Haraldsson UMFG
2. össur Torfason Á
3. Þóroddur Þórhallsson Á
Millivikt:
1. Bjarni Björnsson JR
2. Hjörtur Sigurðsson JR
3. Haukur Ólafsson JR
Þunga vikt:
1. Sigurjón Kristjánsson JR
2. Sigurður Kr. Jóhannesson JR
3. Garðar Jónsson JR
REYNTAfiFA
ELMAR REIRS
I LANDSIIOIO
KSl sendi fyrir helgina skeyti j
til Elmars Geirssonar, og i
spurðist fyrir um það hvort hann
gæti komið þvi við að leika með
islenzka landsliðinu i Belgiu i
næsta mánuði. Svarskeyti hefur
ekki borizt frá Elmari.
Elmar dvelur sem kunnugt er
við nám i Þýzkalandi, og hefur
gert undanfarin ár. Samhliða
náminu hefur hann æft knatt-
spyrnu, og er að sögn i mjög góðri
þjálfun um þessar mundir. Er
hann nýlega kominn úr langri
keppnisferð með Herta Berlin, en
það er rikasta félag Þýzkalands i j
dag. Væri eflaust mikill fengur i
þvi ef hann væri fáanlegur til þess
að leika með landsliðinu i Belgiu.
Þá hafa þær fréttir borist frá
Matthiasi Hallgrimssyni, að hann
sé nú i betri þjálfun en nokkru
sinni fyrr. Matthias hefur dvalið
við æfingar hjá enska 3. deildar-
liðinu Bournmouth i allan vetur,
og leikið með varaliði félagsins.
Hefur Matthias skorað feiknin öll
af mörkum með varaliöinu, en þó
ekki svo mikið að hann skyggi á
markakónginn Ted McDougalþen
hann leikur einmitt með Bourn-
mouth.
Matthias mun væntanlegur
heim um mánaðamótin næstu,
og mun þá þegar hefja æfingar
með landsliðinu, og æfa meö þvi
. siðasta hálfa mánuðinn fyrir
I Belgiuferðina. -SS.
4 LYFTINGAMET
Lyftingamennirnir halda
ál'ram að bæta lslandsmetin.. Um
helgina voru sett 4 lslandsmet á
innanfélagsmóti sem Ármann
hélt að Fálkagötu 30.
í millivikt pressaði Rúnar
Gislason Armanni 100 kiló, sem er
nýtt met. t milliþungavikt press-
aði Guðmundur Sigurðsson Á
157,5 kg sem einnig er nýtt met. t
þungavikt setti svo óskar Sigur-
pálsson Á tvö met, pressaði 172,5
kg og lyfti samanlagt i ólymp-
iskri þriþraut 462,5 kg.
Vantar óskar aðeins 7,5 kg til
þess að ná ólympiula'gmarki, og
segist hann vera ákveðinn i þvi að
ná markinu á Reykjavikurmótinu
sem haldið verður 25. april n.k.
Guðmundur Sigurðsson gerði
ógilt i snörun á mótinu um
helgina, og fékk þvi engan
samanlagðan árangur.
Það voru fleiri lyftingamenn i
stuði um helgina en þeir islenzku.
Rússneski kraftajötuninn
Vassilji Aleksekev setti þrjú
heimsmet i yfirþungavikt, press-
aði 236,5kg jafnhattaði 237,5 kg og
lyfti samanlagt 645 kg sem er 5 kg
betra en gamla metið sem hann
átti sjálfur.
Aleksejev er talinn sterkasti
maður heims i dag, og hann hefur
bætt heimsmetin alls 52 sinnum
siðan hann komst i fremstu röð
lyftingarmanna.
Um helgina fór fram mikið lyft-
ingamót i Noregi, og voru þar sett
alls 7 met. Eftirtaldir menn urðu
sigurvegarar.
I.cttvikt:
Kjell Björnsson (115-110-135) 360
kg-
l.cttþungavikt:
Tore Björnsen (145-125-165) 435
kg-
Milliþunga vikt:
Leif Jensen (170-141-170) 480 kg.
Þungavikt:
Eivind Rekustad (180-145-180) 505
kg.
Yfirþungavikt:
Edgar Kjerran (183-135-182,5) 500
kg-
EKKILEIKMANNI UT SIGANDI
Veðurguðirnir léku knatt-
spyrnumenn landsins grátt á
laugardaginn, þvi veðrið var slikt
SMATT
Tceir leikir fóru fram i 1.
deildinni i körfubolta um helgina,
HSK sigraði Val 84:70, og 1R vann
Ármann 102:69. öðrum leikjum
var frestað. Nánar á morgun.
Sviinn Kjell Isaksson gerir það
ekki endasleppt i stangarstökkinu
þessa dagana. Á laugardaginn
bætti hann aðeins vikugamalt
heimsmet sitt i stangarstökki um
3 sentimetra/5,54 metra.
Kjell segist ákveðinn að sveifla
sér yfir 5,60 bráðlega.
þann dag, að varla var hægt að
leika knattspyrnu. En þrátt fyrir
það fóru fram tveir leikir i
meistaraflokki, og á sunnudaginn
lék úrval KSl við KR, enda veður
mjög gott þann dag.
Vikingur og IBK léku i
Meistarakeppni KSI á Melavell-
inum á laugardaginn i aftaka-
veðri. Allir tiltækir markverðir
Vikings voru meiddir, og varð
Eirikur Þorsteinsson að taka að
sér markvörzlu. Þá var Guðgeir
Leifsson rekinn af velli eftir hálf-
tima leik og voru Vikingarnir
aðeins tiu 2/3 af leiknum.
1 hálfleik var staðan 0:0, en i
siðari hálfleik skoraði Steinn
Jóhannsson tvö mörk á móti einu
sem Hafliði Pétursson skoraði
fyrir Viking. Með þessum sigri
hefur IBK nælt sér i toppsætið i
keppninni, og nægir jafntefli i
siðasta leiknum við IBV til þess
að hljóta sigur i keppninni.
Á laugardaginn léku svo Akra-
nes og Breiðablik i Litlu bikar-
keppninni. Leikurinn fór fram i
Kópavogi og vann Skaginn 2:1.
Mörk Skagans gerður þeir Ey-
leifur Hafsteinsson (vitaspyrna)
og Björn Lárusson, en mark
Breiðabliks gerði Þór Hreiðars-
son. Leik varaliðanna vann
Breiðablik 5:2. Leik IBK og IBH i
sömu keppni var frestað.
A sunnudaginn lék úrval KSI
við KR, og sigraði úrvalið 1:0, i
mjög slökum leik. KR átti mörg
hættuleg tækifæri, en tókst ekki
að nýta þau. Markið kom seint i
leiknum, og skoraði Hermann
Gunnarsson, eftir að Guðgeir
Leifsson hafði einleikið upp hálf-
ann völlinn og leikið á 5 varnar-
menn KR.
Skotinn McDoweel stjórnaöi
landsliðinu i fyrsta sinn á þessari
æfingu, en hann var ráðinn lands-
liðsþjálfari stuttu fyrir helgi.
Þriöjudagur 18. apríl 1972