Alþýðublaðið - 27.04.1972, Page 2

Alþýðublaðið - 27.04.1972, Page 2
,__LISTAHÁTÍÐ I ---REYKJAVIK 1972 Tekið á móti pöntunum aðgöngumiða i sima, 26711, frá kl. 4-7 i dag og á morgun og kl. 10-14 laugardag. Dagskrá hátiðar- innar liggur frammi i Norræna húsinu. Aðalfundur Framhaldsaðalfundur Iðju, félags verk- smiðjufólks i Reykjavik verður haldinn i Lindarbæ fimmtudaginn 27. april n.k. kl. 20.30. FUNDAREFNI 1. Afgreiðsla um reikninga félagsins. 2. Ný reglugerð fyrir orlofssjóð. 3. önnur mál. STJÓRN IÐJU Skrifstofustörf Hjá lögreglustjóraembættinu i Reykja- vik eru lausar stöður 2ja skrifstofu- stúlkna. Auk þess óskast stúlkur til sum- arstarfa á skrifstofunni. Laun samkvæmt launakerfi rikisstarfs- manna. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist lögreglu- stjóraembættinu. Lögreglustjórinn i Reykjavik, 25. april 1972. vVið veljum minJaf það borgar sig PUIltal - OFNAR H/F. « Síðumúla 27 . Reykjavík Símar 3-55-55 og 3-42-00 „FLÓAMARKAÐUR” KVENSTÚDENTAFÉLAGSINS Fjáröflunarnefnd Stúdentafé- lags tslands heldur „flóamark- að" að ilallveigarstöðum 30. april, kl. 2 e.h. til eflingar f járhag sinum, en eins og mörgum mun kunnugt, veitir Kvenstúdentafé- lagið árlega all-riflega náms- styrki. Fjáröfíunarnefnd sendi út bréf#i s.l. viku til allra kvenna, sem á félagsskrá eru, til að biðja um muni á markaðinn. Sjálfsagt hafa þó margir kvenstúdentar ekki fengið bréf og er það einlæg ósk nefndarinnar, að þeir bregðist vel viö, taki til og sendi inn muni. Nefndarkonur, sem hér eru tald- ar upp veita allar nánari upp- lýsingar um markaðinn og veita munum móttöku: Helga Mattina Björnsdóttir, for- maður nefndarinnar, Sunnuflöt 6, Garöahreppi, Kristln Þorbjarn- ardóttir, Hvassaleiti 113, Gerður Guðnadóttir, Bjarmalandi 20, Ilekla Pálsdóttir, Ilraunbæ 68, Ingibjörg Jóhannesdóttir, öldu- götu 34, Margrét Schram, Greni- mel 20, Nina Gísladóttir, Haga- mel 15. Margt góðra og eigulegra muna hefur þegar borizt, fatnaður alls konar, bollar, postulinskoppar, gluggatjiild, ljósakrónur, lampar, húsgögn, barnakerrur, barnastól- ar, skartgripir o.fl. Verðið er frá kr. 10.00-300.00. o Þættir úr lifi Bjarts i Sumarhúsum. Fært í leikform af höf- undi og Baldvin Hall- dórssyni. Leikstjóri: Baldvin Ilalldórsson Leikmyndir og búningateikningar: Snorri Sveinn Friðriksson Þjóðleikhúsið hélt uppá sjötugsafmæli Halldórs Laxness á sunnudaginn með þvi að frum- sýna nýsamda leikgerð „Sjálfstæðs fólks” eftir höfund- inn og leikstjórann. Var skáld- inu vel fagnað og innilega af leikhúsgestum á sunnudags- kvöld, bæði fyrir og eftir sýn- ingu. Um sýninguna er það meðal annars að segja, að hún var anzi löng i sér, einkanlega um mið- bikið, en hresstist við þegarliða tók á leikinn. Hinsvegar var hún aldrei beinlinis leiðinleg, enda væri það útaf fyrir sig umtals- vert afrek að gera texta Hall- dórs leiðinlegan, þó ekki væri annaö. Ýmsir kaflar sýningar- innar voru raunar hinir skemmtilegustu og sumir mjög tilþrifamiklir, en i heild var hún fremur þunglamaleg. Um það þurfti auðvitað ekki að gera sér neinar tyllivonir, að hægt væri að seja nothæft leikrit uppúr skáldsögunni. Til þess er hún alltof mikil i sér, of fjöl- skrúðugt og yfirgripsmikið episkt verk og á allan hátt of fjarlæg þeim lögmálum sem ráða heimi leiksviðsins. Það var i hæsta lagi hægt að gera sér von um litrikt myndasafn úr sög- unni, skemmtilega persónu- gervinga söguhetjanna og kát- leg tilvik úr atburðarásinni. Sú varð og raunin, að harla litið af sjálfum safa sögunnar komst til skila, en vitanlega stóðu tilsvör persónanna fyrir sinu, og þær fengu margar sitt sterka, sjálf- stæða lif á sviðinu, þó sumar þeirra væru talsvert frábrugð- nar hliðstæðum sinum i skáld- sögunni. Þegar hafðar eru i huga fyrri myndasýningar úr skáldsögum Halldórs Laxness (tslands- klukkan, Kristnihald undir Jökli og Atómstöðinifinnst mér Sjálf- stætt fólk vera einfaldari og samfelldari myndasaga, en hún er kannski að sama skapi grynnri i þeim skilningi, að eng- in af persónum sögunnar fær verulega dýpt nema Bjartur, og er þó horfinn úr honum mikill mergur. Vitaskuld mundi það ekki skipta neinu máli, hve trúverð- uglega leikritið þræddi efni og atburðarás skáldsögunnar, ef það öðlaðist eigið lif i hinni nýju gerð. Mér hefur einatt þótt sem menn horfðu um of til skáld- sagnanna þegar þeir ræða leik- gerðir þeirra i stað þess að at- huga hvort þær fái staðizt sem sjálfstæð. verk. Að minu viti fær þessi nýja leikgerð staðizt i öll- um aðalatriðum án skirskot- unar til sögunnar, þó einstaka orðsvar sé að visu óþarflega delfiskt eða tvirætt og einsog gripið úr lausu lofti innan ramma leiksins. Mér finnst ekki fara milli mála, að beinagrindin úr sögu og samskiptum þeirra Bjarts og Astu Sóllilju komi til skila i leikgerðinni og fái fylli- iega staðizt sem einskonar episkt leikhúsverk að hætti „Mutter Courage”, einfalt i sniðum og ekki ýkja djúp- skyggnt, en viða hjartnæmt og oft mjög spaugilegt. En hér er alls ekki á ferðinni skáldverkið „Sjálfstætt fólk” einsog við þekkjum það og dáum, þó ef- laust þyki mönnum forvitnilegt að sjá persónurþessilikannast á leiksviðinu i verki sem er ein- ungis daufur skuggi frumverks- ins. Róbert Arnfinnsson (Bjartur) og Lárus Ingólfsson (Þórir á Gilteigi) SJÁLF- STÆTT EFTIR HALLDOR LAXNESS Mér virðist þeir Halldór Lax- ness og Baldvin Halldórsson hafa leyst sitt vandasama verk- efni með furðugóðum árangri, þó mér sé eftir sem áöur full- komin ráðgáta, hversvegna leikhúsin i Reykjavik eru að þessu vonlitla bjástri með skáldsögur nóbelsskáldsins. Sýningin var þung i vöfum, skiptingar hægar, og var engu- likara en mönnum hefði gleymzt að Þjóöleikhúsið státar af hringsviði. Þarvið bætist, að atriði sýningarinnar voru óþarf- lega mörg, og hefði með hægu móti mátt stytta hana um allt aö hálftima. Einsog endranær i verkum Halldórs er hér kappnóg af sér- kennilegum persónum sem lffga mjög uppá sýninguna og halda áhorfendum ævinlega við efnið, og er þó mikið vafamál hvort bjóðandi hefði verið uppá þessa sýningu án Róberts Arnfinns- sonar sem bókstaflega ber hana uppi. Ég kveið þvi dálitið að Bjartur kynni að draga dám af griskum frænda sinum, Alexis Zorbasi, en það gerði hann ekki nema að óverulegu leyti. Róbert skóp nýjan Bjart, talsvert frá- brugðinn þeirri mynd sem ég hafði gert mér af honum, en fullkomlega sjálfum sér sam- kvæman innan ramma leik- gerðarinnar. Það var rammis- lenzk og safamikil mannlýsing, þar sem hjartahlýja og ómennskt tillitsleysi og einsýni vógu salt. Þó það séu engar ýkjur að Ró- bert hafi bjargað sýningunni, þá fékk hann ákaflega góðan stuðning af mörgum meðleik- endum sinum, sem gerðu smærri hlutverkum eftirtektar- verð skil. Skal þar fyrst frægan telja Val Gislason sem slipaöi litinn gimstein úr hlutverki séra Guðmundar — dró upp aðdáan- lega skýra og heila smámynd af hinu sigilda samblandi stór- bokka, nöldurskjóðu og gæða- blóðs sem prestar voru oft og einatt fyrr á tið. Onnur perla var túlkun Rúriks Haraldssonar á Jóni hreppstjóra á Úti-Rauðsmýri, fullkomlega frumleg og skop- gerð mannlýsing sem átti að visu litiö skylt við hreppstjóra skáldsögunnar, en minnti stundum á kunnan menningar- vafstrara i höfuðstaðnum. Þóra Friðriksdóttir lék Framhald á bls. 4 Fimmtudagur 27. apríl 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.