Alþýðublaðið - 27.05.1972, Qupperneq 9
FIMI OG MÝK
Það var léttur blær rikjandi i iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi þegar
iþróttasiðan leit þar við á fimmtudagskvöldið. Salur iþróttahússins
var troðfullur af fimleikafólki sem var að nema fróðleik af norska
fimleikakennaranum Ture Johansen, hressilegum náunga.
Ture hefur haldið þetta fimleikanámskeið i eina viku og þvi lýkur
með sýningu i dag. Ture til aðstoðar hefur verið ung norsk fimleika-
stúlka, Liv Gulbrandsen, og islenzkir Iþróttakennarar.
„Aðsóknin að námskéiðinu fór langt fram úr öllum vonum, og að
siðustu fór svo að við þúrftum að visa nokkrum frá”, sagði Asgeir
Guðmundsson formaður Fimleikasambands tslands. Og það er engin
furða, þátttakendur eru hátt i 200, og er þeim skipt niður á daginn.
50—60 unglingar og 40 íþróttakennarar eru á daginn en á kvöldin
kemur fimleikafólkið, 50—60 talsins.
Mikil ánægja hefur rikt meðal þátttakenda á námskciðinu, og form.
þess hefur hentað iþróttakennurum ákaflega vel, þvi þegar þeir hafa
lokiö sinum tima, fá þeir aö leiðbeina unglingunum.
Sem framhald af þessu námskeiði, verða unglinganámskeið haldin
i nokkrum skólum f Reykjavik og nágrenni nú i byrjun júni.
Eins og áður segir lýkurnámskeiðinu með sýningu klukkan 15 i dag
á Seltjarnarnesi. Þar sýna þátttakendur á námskeiðinu, og norska
fimleikastúlkan mun einnig sýna listir sinar.
Myndirnar voru teknar á fimmtudagskvöldið, og þær skýra sig
vo»ntanlpoa ciálfar
Laugardagur 27. maí 1972
o