Alþýðublaðið - 27.05.1972, Qupperneq 12
OKKAR. Á
MTT.T.T
# •
Mei s ta ra f élag hárskera
tilkynnir okkur að i júni, júli og
ágúst i sumar verði rakara-
stofur lokaðar. Vona þeir að við-
skiptavinir sýni þá vinsemd að
nota þann tima sem opið er til
að lát-klippa sig, þ.e. mánudaga
til fimmtudaga kl. 9-6, en föstu-
daga kl. 9-7 ■ • •Iögjaldatekjur
allra félaga Samvinnutrygginga
voru á sl. ári samtals kr. 508.8
milljónir Heildartjón
Samvinnutrygginga námu á
árinu kr. 367.9 millj., en það var
21.45% aukning frá árinu.
áður«Keppinautarnir i stórfram
kvæmdum, Þórisós og tstak
heyja eilift strið sin á milli.
Þegar Þórisós veitti Köldukvisl
i Þórisvatn að norðanverðu
gerði tstak sér litið fyrir og
veitti ánni úr vatninu um suður-
endann • • • Stúdentar við
læknadeild Háskólans eiga al-
gjört met i trúlofunum og
giftingum innan islenzka skóla-
kerfisins, og heyrir það til al-
gjörra undantekninga að þeir
útskrifist ólofaðir. t haust var
ástandið i deildinni þannig, að
tveir stúdentar á siðasta ári
voru ólofaðir, en nú er annar
þeirra giltur en hinn „kominn á
fast” • • • Sparnaður i fram-
kvæmd: Bifreiðinni M 166, eign
fjármálaráöherra, var lagt um
hádegi i gær við stöðumæli fyrir
utan Seðlabankann. Eigandinn
lét fimmkall i stöðumælinn og
sneri snerlinum til hálfs, þannig
að i Ijós kom gul skifa með
áletru'nini: Snúið
áfram • • • Borgarráð hefur
lika tileinkað sér sparnaöar-
stefnu, og i vikunni neitaði það
að verða við beiðni Félags
náttúrulræðinema um styrk-
veitingu vegna farar á þing
Sameinuðu þjóðanna um um-
hverfi mannsins • • • Og enn
um sparnað: Sparnaðarnefnd
hefur fengið til umsagnar bréf
frá Sambandi iðnskóla á tslandi
þarsem fariðer lram á að skóla
gjöld af iðnemum renni til
eflingar Iðnskólaút-
gáfunni. • • • Rússar heita oft
ágætum nöfnum. Heims-
meistarinn i kúluvarpi kvenna
heitir t.d. Galina Kúlukóva, - og
sá sem er i Helsinki að semja
um afvopnun heitir Semjónov.
föcmsqj'
Ólétt! Nú er nóg komið. Þú færð ekki bilinn i tvo
mánuði!
*
Heimsóknin
Hann Kosygin sat við galopinn gluggann
og grindi eins og oftar i vestur :
nei, er ekki Nixon kominn! í Kremi
er sá kumpán sjaldséður gestur.
Og húsbóndinn þaut út á hlað móti Nixon,
en heilmikil þröng varð á stéttum.
Og það var hellt uppá könnuna i Kreml
og Kosygin innti eftir fréttum.
— Allt ósjúkt og mannheilt hjá mér,
sagði Nixon,
og mjög svo bæriieg tiðin.
En eins og þú veizt, i Vietnam ....
Það veltur á ýmsu með striðin.
Þjófurinn var annaðhvort karlmaður eða kven-
maður -—Þröngt um leiklistina nyrðra-—Fikra
sig áfram með fullkomna fólksvagninn-—Við
heimtum hærri laun og engar mýs—Morðin
mynduð á Lofoten-—Þjófurinn lá i leyni.
FRETTIR HEÐAN
OG LÍKA ÞAÐAN
Á timum siða hársins getur
verið erfitt að greina á milli karla
og kvenna.
I þessari aðstöðu lenti nætur-
vörður Alþingis Islendinga i
fyrrinótt eftir að brotizt hafði ver-
ið inn i húsið.
Hann heyrði brothljóð i húsinu
einhvers staðar og þegar hann
kom inn i fundarherbergi Sjálf-
stæðismanna sá hann þar brotna
rúðu og út um hana einhverja
veru á hlaupum.
Ekki gat hann gefið nákvæma
lýsingu, en gizkaði á, að mann-
eskjan væri á aldrinum 16-20 ára
og með sitt hár. Hvort þetta var
karl eða kona vissi hann ekki.
Engu var stolið.
*
Átján manna hópur akur-
eyrskra leikara er nú staddur i
Reykjavik og ætla þeir að sýna
Reykvikingum Strompleikinn eft-
ir Halldór Laxness.
Þeir eru með þessu að vikka út
markaðssvæði listar sinnar, þvi
þeir álita, að það sé djarft fyrir-
tæki að halda uppi gróskumiklu
leiklistarlifi i ekki stærri bæ en
Akureyri er.
Strompleikinn hefur Leikfélag
Akureyrar sýnt að undanförnu
fyrir norðan, en hér i Reykjavik
verður hann sýndur i Félags-
heimilinu á Seltjarnarnesi i dag
kl. 16 og á morgun kl. 20.00.
*
Þá hafa Volkswagen-verk-
smiðjurnar hafið fyrstu tilraunir
sinar með fullsmiðaðan öryggis-
bil. Eins og fjölmargar aðrar
bilaverksmiðjur hefur VW látið
teikna og smiða ,,hinn fullkomna
bil” út frá öryggissjónarmiði og
það er hann, sem nú er, farið að
reyna á ökubrautum verksmiðj-
unnar.
Þessi nýi bill ber einkennisstaf-
ina ESVW. Hann er 4.7 metrar á
lengd og búinn 100 hestafla vél.
Billinn á að þola árekstur
framaná á 80 km hraða á kl.st. án
þess að lifi farþega sé hætt.
Þessi bill hefur verið i smiðum
frá árinu 1970, en eftir þvi sem
talsmaður verksmiðjunnar hefur
upplýst eru litlar likur á þvi, að
hann verði nokkru sinni fjölda-
framleiddur.
*
Tuttugu og fjórir hraustir,
sterkir og hugrakkir verkamenn I
stáliðjuveri i borginni Newcastle i
Astraliu fóru nýlega i verkfall.
Ástæðan var ekki barátta fyrir
hærri launum eða bættum kjör-
um. Þeir fóru i verkfall vegna
þess, að mýs höfðu gert innrás i
kaffistofuna þeirra.
Verkamennirnir lögðu niður
vinnu þegar svo langt var gengið,
að i kaffitimum, er þeir hugðust
nærast, hoppuðu mýs út úr mat-
arpökkum þeirra, með kökubita,
sem þær borðuðu með beztu lyst
og fóru svo i spássértúr um her-
bergið að málsverðinum loknum.
Nú hafa verkamennirnir
ákveðið að hefja vinnu á ný, enda
þótt ekki hafi tekizt með öllu að
stöðva músainnrásina i kaffistof-
una. Verksmiðjustjórnin bauð
þeim sérstaka áhættuþóknun ef
þeir vildu aðeins halda áfram að
vinna, sem þeir samþykktu.
Áhættuþóknunin er i þvi fólgin,
að hver og einn fær jafnvirði 500
isl. kr. i bætur fyrir matarpakka,
sem mýs stela og þvi til viðbótar
fá verkamennirnir nestiskassa,
sem eiga að vera músheldir.
*
Alister MacLean er vinsæll höf-
undur spennandi sögubóka. Hér á
tslandi sem annars staðar eru
bækur hans mikið lesnar og kvik-
myndir þær, sem gerðar hafa
verið eftir mörgum bókanna, vel
sóttar.
Um þessar mundir er verið að
kvikmynda enn eina Bók
MacLeans, — Bjarnareyna.
Kvikmyndatakan fer fram i
Lofoten i Noregi, en á einni eynni
þar svipar landslaginu mjög til
landslagsins á ishafsey þeirri,
sem lýst er I bókinni.
Bókin „Bjarnareyja” fjallar
um kvikmyndatökuleiðangur til
ishafseyjar og innan skamms
færist þar fjör i leikinn og eitt
morðið tekur við að öðru, — sem
sagt dæmigerð MacLean-bók.
*
í fyrrinótt var brotizt inn i ibúð-
arhús við Nesveg og sömu nótt
var gerð tilraun til þess að brjót-
ast inn i fyrirtæki íbúðareigand-
ans annars staðar i bænum. Ekki
er vitað hvort hér er um tilviljun
að ræða.
Innbrotið i ibúð mannsins var
framiðá timabilinu 11.20 til 12.20 i
fyrrakvöld.
Hafði heimilisfólkið brugðið sér
út i eina klukkustund og á þvi
timabili braut þjófurinn rúðu i
kjallara hússins og fór siðan upp
á fyrstu hæðina, þar sem hann
gramsaði mikið.
f húsbóndaherbergi ibúðarinn-
ar sneri hann öllu við og þá sér-
staklega skrifborðshirzlum.
Hann hafði þó ekki mikið upp úr
krafsinu, aðeins litla upphæð af
mynt, sem er reyndar safngripir.
Hitt innbrotið var i Einholti.
Þar urðu starfsmenn fyrirtækis-
ins varir við i gærmorgun, að
brotin hafði verið rúða að baki
hússins.
Þjófurinn komst hins vegar
aldrei inn, þar sem fyrir gluggun-
um eru sterklegir rimlar.
Reyndar sagði lögreglan okkur
i gær, að alls ekki væri hægt að
fullyrða um það, hvort hér hafi
verið um innbrotstilraun að ræða
eða einungis skemmdarstarf-
semi.
Innbrotið i ibúðina virðist hafa
verið undirbúið og þjófurinn beðið
i grennd við húsið og fylgzt með
heimilisfólkinu yfirgefa það.