Alþýðublaðið - 08.06.1972, Blaðsíða 2
NORRÆNA MENNINGARMÁLASKRIFSTOFAN
í KAUPMANNAHÖFN
Staða deildarstjóra
Staða deildarstjóra visindadeildar i
Norrænu menningarmálastofnuninni
(Sekretariatet for Nordisk Kulturelt Sam-
arbejde) i Kaupmannahöfn er laus til
umsóknar. Staðan verður veitt frá 1.
janúar 1973 að telja.
Norræna menningarmálaskrifstofan starfar samkvæmt
samningi Norfturlandarikja um samstarf á sviöi fræðslu-
visinda- og annarra menningarmála, en samningur þessi
tók gildi 1. janúar 1!)72.
Deildarstjórinn verður ráðinn af Káðhcrranefnd Norður-
landa og vcrður meginhlutverk hans að annast undir yfir-
stjórn framkvæmdastjóra, skipulagning og stjorn starfa
skrifstofunnar á þvi sviði, cr undir visindadeild fellur.
(iert er ráð fyrir, að starfinu verði að öðru jöfnu ráðstafað
mcð ráðningarsamningi til þriggja ára i senn. Gerður
verður se'rstakur samningur um launakjör og skipan eftir-
launa.
Umsóknir, ritaðar á dönsku, norsku cða sænsku, með upp-
lýsingum um menntun og fyrri störf skulu stilaöar til
NOKDISK MINISTKKKAI) og sendar til
SKKltKTAKIATKT FOK NOKDISK KULTURELT SAM-
AKKK.IDK, Snaregadc 10, 1205 Köbcnhavn K. Skuiu um-
sóknir hafa borizt þangað eigi siðar cn 27. júni n.k. Nánari
upplýsingar um starfið má fá hjá framkvæmdastjóra
Norrænu menningarmálaskrifstofunnar, Magnús Kull
(simi (01) 114711, Kaupmannahöfn ), eða Birgi Thorlacius,
ráðuneytisstjóra, menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu
(>, lleykjavik.
er ekki bindandi fyrir þann aðila, er ráðslafar starfinu,
munandi tilhögun i Noröurlandarikjunum á ráðstöfun
legrar umsóknar.
Tilkynning um innheimtu
afnotagjalda til
Ríkisútvarpsins
Með tilvisan til laga 49/1951 sbr. 18.gr.
útvarpslaga nr. 19. frá 5. april 1971, er hér
með skorað á alla, sem skulda afnotagjöld
til Rikisútvarpsins, að greiða gjöld þessi
þegar i stað.
Þeir sem vanrækja að gera full skil, mega
vænta þess, að viðkomandi sjónvarpstæki
verði seld á nauðungaruppboði til lúkingar
greiðslu skuldanna án undangengins lög-
taks og frekari innheimtuaðgerðum, ef
þörf krefur án frekari aðvörunar
Rikisútvarpið,
innheimtudeild, Laugaveg 176,
Simi 85900.
ALLTAF
BATNAR
ÞAÐ!
Um 200 verkamenn við
Vauxhall-bifreiðaverksmiðj-
urnar i Luton i Englandi hafa
nýlega neitað þvi, að vinna
vaklavinnu.
Astæöan? Þeir segja, að
vinna á þeim tima eyðileggi
gersamlega kynferðislif
þeirra þá vikuna.
Við höfum ekki sagt beinum
orðum, að félagsmennirnir
vilji meira „sex”, segir
talsmaður félags bifreiða-
smiðanna við verksmiöjurnar.
Hins vegar mun málið vega
þungt á metaskálunum i sam-
bandi við næstu viðræður um
kaup og kjör.
ENN REYNA
ÞEIR AÐ NJÓSNA
Dað er enn mikið reynt til
þess að fá fólk til njósnastarfa,
einkum i Vestur-Dýzkalandi,
enda þótt njósnamálum hafi
fækkað mjög hin siðari ár.
Detta upplýsti vestur-þýzki
innanrikisráðherrann, Hans
Dielrich, á þriðjudaginn var.
Á blaðamannafundi, sem
hann hélt á þeim degi, sagði
hann einnig, að um 80% allra
þeirra njósnara, sem hand-
teknir væru i Vestur-Dýzka-
landi, störfuðu fyrir Austur-
Dýzkaland.
Káðherrann sagði einnig, að
þýöingarmestu upplýsingarn-
ar i njósnamálum og þær sem
kæmu upp um flesta njósnara,
bærust frá almenningi, —
fólki, sem hefði augun opin.
RAUDA
HÆTTAN
Kautt klæði, sem lá á gólfinu
við aðalinngang i rafiðjuver i
Guyana varð til þess að raf-
orkuframleiðsian stöðvaðist.
Niu starfsmenn við verið
neituðu að fara inn i bygging-
una til starfa sinna af ótta við
að klæðið hefði verið sett
þarna af galdramanni.
Starfsmennirnir biðu skelk-
aðir fyrir utan unz ungur inað-
ur kom aðvifandi, náðu sér i
langa stöng og krakaði klæðið
brott frá innganginum.
Knginn dó.
ANDSTÆÐINGAR HERSETUNNAR
DRAGA UPP BARATTUFÁNANN
Driðjudagskvöldið l(>. mai sl.
boðuðu andstæðingar herstöðva
Bandarikjamanna á tslandi til
fundar i Glæsibæ. Á fundinum var
samþykkt að efla mjög barátluna
fyrir að herstöðvar á tslandi verði
MELKORKA
SÝNDÁ
SELTJARNARNESI
Annað kvöld föstudag kl. 21.
sýnir Leikfélag Ólafsvikur leik-
ritið MELKORKU eftir Kristinu
Sigfússdóttur i félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi.
Melkorku leikur Aðalheiður
Eiriksdóttir, en aðrir leikarar eru
niu talsins. Leikstjóri er Hörður
Torfason.
O--------------------
lagðar niður og brottför banda-
riska hersins. Einnig var kosin
tuttugu og limm manna mið-
nefnd, sent ætlað er að skipu-
leggja þessa nýju hreyfingu og
aðgerðir hennar.
A fundinum urðu miklar og lif-
legar umræður og komu fram
margar hugmvndir um þá
baráttu. sem framundan er. og
jafnframt að ná þyrfti sem við-
tækastri samstöðu allra þeirra,
sem máliö styöja.
Miðnefnd hefur starfað stöðugt
siðan og nú hefur verið opnuð
skrifstofa að Kirkjustræti 10, sem
opin er frá 9 til 22. Simi
skriístofunnar er 2-37-35.
F y r s t u aðgerðir
hreyfingarinnar verða nk. sunnu-
dag. Þá er fyrirhugaður útifundur
i Hafnarfirði. Þar flytur ávarp
Gunnlaugur Ástgeirsson, form.
stúdentaráðs, siðan verður efnt til
mótmælagöngu á Lækjartorgi. Á
leiðinni verður áð i Kópavogi. Þar
flytur ávarp Guðmundur
Sæmundsson. fyrrv. ritstjóri, og
Böðvar Guðmundsson flytur eigin
ljóð.
A Lækjartorgi verður fundar-
stjóri Njörður P. Njarðvik,
lektor. Þar flytja ávörp: Elias
Jónsson. blaðamaður., Cecil
Haraldsson, varaform. SUJ.,
Kjartan Olafsson, framkvstj. og
Tryggvi Aðalsteinsson. form.
INSl.
Efnt verður til sætaferða i
Hafnarljörð.
Þá hefur verið gert merki fyrir
baráttuna og verður það selt i
göngunni. Miðanefnd hvetur alla
þá, sem vilja veita henni lið við
undirbúning og merkjasölu, svo
og þá sem hyggjast vera þátt-
takendur i göngunni eða
fundunum að hafa samband við
skrifstofu nefndarinnar og láta
skrá sig til þátttöku.
Steypubilarnir úr Fijótshliöinni komu i góöar þarfir I Þórsmörk núna
um helgina. — Myndina tók Eyjólfur Halidórsson.
STEYPUBÍLAR I ÞORSMÚRK
Það er ekki á hverjum degi,
sem steypubilar eru á ferð inni
Þórsmörk, en það gerðist núna
um helgina. Ferðafélag Islands
er að stækka sæluhúsið i Langa-
dal, Skagfjörðsskála. og fékk tvo
slika bila frá Þverá h.f. i Fljóts-
hlið með steypuefni inneftir i viö-
bygginguna.
Skagfjörðsskáli var byggöur
árið 1954 og siðan stækkaður
verulega að tiu árum liðnum eða
1964. En vegna vinsælda staö-
arins og sivaxandi ferðamanna-
straums er skálinn enn orðinn of
litill, rúmar hann þó um 100
manns. Úr þessu á nú að bæta.
Um siðastliðna helgi fór svo um
þrjátiu manna hópur á vegum
Ferðafélagsins inn i Þórsmörk að
ganga frá grunninum á viðbygg-
ingunni og öðrum nauðsynlegum
framkvæmdum.
Eins og áður segir voru fengnir
tveir steypubilar úr Fljótshliðinni
með steypuefni i grunninn og
komust þeir klakklaust yfir allar
torfærur á leiðinni, en eins og
flestir vita, er vegurinn inn i
Þórsmörk ekkert venjulegt
Austurstræti, þó að stefnan og
áttin gætu bent til þess. Siðan var
grafið fyrir grunninum og hann
steyptur um helgina, enda unnið
ósleitilega.
Þessi viðbygging við sæluhúsið
er 70-80 grunnflatarmetrar og
ætti húsið að rúma hátt á annað
hundrað næturgesti, þegar allt er
komiö i gagnið. Skagfjörðsskáli
kemur þannig til með að verða
stærsta sæluhús félagsins.
Viðbyggingin verður við
norðurendann, húsið lengist i átt-
ina að brekkunni, en dyr verða á
vesturhlið hússins sem áður.
Ætlunin er að hraða bygging-
unni, svo að unnt verði að taka
hana i notkun að einhverju leyti á
mesta annatimanum i sumar.
Páll Pálsson húsasmiðameistari
sér um smiðina og hefur sér til
aðstoðar traust og gott lið, sem
ekki mun láta sitt eftir liggja við
bygginguna.
437 ATVINNULAUSIR UM MÁNAÐAMÓTIN
Alvinnulausum fjölgaði um 20 i
mai og voru um s.l. mánaöamót
137. Atvinnulausir karlar voru
161, en konur 276.
Flestir voru atvinnulausir i
lleykjavik (127), á Ólafsfiröi var
71 skráöur og 56 á Sauðárkróki.
Af kauptúnunum voru Skaga-
strönd með 35 atvinnulausa og
llofsós með 32.
Kf litiö er yfir allt landið, þá eru
atvinnulausir i kaupstöðum: 321, i
kauptúnum meö 1000 ibúa: 8, og
öörum kauptúnum 108.
Fimmtudagur 8. júní 1972