Alþýðublaðið - 08.06.1972, Side 5

Alþýðublaðið - 08.06.1972, Side 5
Hútgáfufélag Alþýðublaðsins h.f. Ritstjóri Sighvatur Björgvinsson (áb ). Aðsetur ritstjómar Hverfisgötu 8-10. Blaðaprent h.f. LAUNIN DUGA NÚ SKEMUR! Alþýðublaðið skýrði á forsíðu sinni í gær frá athugun, sem blaðamaður þess gerði á því, hve langan tíma það tæki verkamann að vinna fyrir ákveðnu magni af matvælum nú samanborið við hversu langan tíma það tók hann að vinna fyrirsama magni af matvælum í haust miðað við það verð, sem þá var á þessum vörutegundum og það kaup, sem verkamaðurinn hafði. Alþýðublaðið valdi þrjár dagsetn- ingar til viðmiðunar: Þann 1. septem- ber í haust, en þá höfðu launþegar enn ekki gert nýja kjarasamninga, þann 1. desember, en þá tóku nýir kjarasamn- ingar gildi og verkafólk fékk kaup- hækkun og sem síðustu viðmiðunar- dagsetningu valdi Alþýðublaðið dag- inn í gær, þann 7. júní. Þá höfðu laun- þegar nýlega fengið áfangahækkun kaupgjalds og ríkisstjórnin látið strax fylgja á eftir nýja hækkun landbún- aðarvöruverðs. Á skrifstofu verólagsstjóra fékk Alþýðublaðið síðan upplýsingar um verðlag á fjórum þýðingarmiklum neyzluvörum almennings, - kjöti, mjólk, smjöri og skyri —, eins og það var 1. sept. og 1. des. og eins og það er nú. Hjá verkamannafélaginu Dags- brún fékk blaðið upplýsingar um tíma- kaup það, sem greitt var fyrir fisk- vinnu á sömu þrem tímabilum. Síðan reiknaði blaðið út hversu lengi verkamaður í f iskvinnu hefði verið að vinna fyrir ákveðnu magni af smjöri, kjöti, mjólk og skyri í haust miðað við tvær dagsetningar, hversu lengi hann væri að vinna fyrir sama magni af þessum sömu vörum nú og bar svo niðurstöðurnar saman. Og hver var útkoman úr þessari sam- anburðarathugun? Hún var þessi: I byrjun júnimánaðar árið 1972, er verkamaður í fiskvinnu 12 minútum lengur að vinna fyrir 1 kg af súpukjöti, en hann var þann 1. desember s.l. þeg- ar nýir kjarasamningar höfðu tekið gildi. Og hann er 5 minútum lengur að vinna sér inn fyrir þessu eina kilói af súpukjöti en hann var í haust, —AÐUR EN SAMNINGARNIR VORU GERÐIR. Núna er verkamaður í fiskvinnu 19 minútum lengur að vinna sér inn fyrir 1 kg. af smjöri en hann var þann 1. des. í haust, — við gildistöku kjarasamning- anna. Og hann er 10 mínútum lengur að vinna sér inn fyrir smjörkilóinu nú en hann var í september í haust, — AÐUR EN KJARASAMNINGARNIR VORU GERÐIR. Núna er verkamaður í fiskvinnu 8 minútum lengur að vinna sér inn fyrir 1 kg afskyri en hann var þann Ides. er nýir kjarasamningar gengu i gildi. Og hann er 6 mínútum lengur að vinna sér inn fyrir skyrkílóinu en hann var i haust, — ÁÐUR EN SAMNINGARNIR VORU GERÐIR. Núna er verkamaður í fiskvinnu þrem mínútum lengur að vinna sér inn fyrir 5 lítrum af mjólk enhannvarvið gildistöku nýrra kjarasamninga í desember. Miðað við þann 1. septem- ber, áður en kjarasamningarnir voru gerðir, þá stendur hann að visu aðeins betur nú gagnvart mjólkurkaupunum. Hann er nú tveim minútum skemur að vinna fyrir mjólkur litrunum fimm en hann var i haust, — áður en um nokkra kauphækkun var samið. En það er lika allt og sumt. Þessi athugun Alþýðublaðsins leiðir í Ijós, að gagnvart þessum fjórum þýð- ingarmikiu neyzluvörutegundum, — mjólk, smjör, skyr og kjöti -, hefur kaupmáttur verkamannalauna ekki aðeinsstaðið í stað frá því í haust, áður en nýir kjarasamningar voru gerðir. Hann er miklu minni nú en þá. Verka- maðurinn er nú lengur að vinna fyrir kjöti, smjöri og skyri en hann var í haust, — áður en nokkrar kauphækk- anir fengust. Þannig hefur verðhækkunaræði ríkisstjórnarinnar leikið láglauna- fólkið. DAGSKRA FYRSTA KJÖRDÆMISÞINGS í RVÍK ÁKVEÐIN Eins og komið hefur fram i Al- þýðublaðinu hyggjast flokksfé- lögin i Reykjavik efna til fyrsta kjördæmisþings Alþýðuflokks- fólks i höfuðborginni um næstu helgi, — nánar til tekið frá föstu- degi til laugardags. Félögin þrjú, — Alþýðuflokksfélag Reykjavik- ur, Kvenfélag Alþýðuflokksins i Reykjavik og Féiag ungra jafn- aðarmanna i Reykjavik skipa hvert um sig ákveðna tölu full- trúa á þingið og hafa félögin nú þegar gengið frá þeim tilnefning- um, nú siðast Alþýðuflokksfélag- ið, sem á fundi sinum s.l. mánu- dag kaus 100 aðalfulltrúa og 50 varafulltrúa á þingið. Dagskrá þessa fyrsta kjör- dæmisþings Alþýðuflokksins i Reykjavik hefur nú verið ákveð- in. Sérstök undirbúningsnefnd þingsins annaðist það, en formaö- ur hennar er Sigurður E. Guð- mundsson, for.maður Alþýðu- flokksfélags Reykjavikur. Þetta fyrsta kjördæmisþing Al- þýðuflokksins I Reykjavik hefst kl. 17,30 n.k. föstudag, 9. júni, að Hótel Loftleiðum. Dagskrá þingsins þann dag verður á þessa leið: 1. Þingið sett. Sigurður E. Guðmundsson, formaður undirbúningsnefndar- innar, setur þingið. 2. Ritari Alþýðuflokksins, Eggert G. Þorsteinsson, alþingismaður, flytur ræðu um ástand og horf- ur i landsmálunum. 3. Sameiginlegur kvöld- verður snæddur að Hótel Loftleiðum. Að kvöld- verði loknum verður aft- ur gengið til þingstarfa. 4. Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi, flytur ræðu um störf og stefnu Alþýðuflokksins í borg- armálum Reykjavíkur. 5. Sigurður E. Guðmunds- son, formaður Alþýðu- flokksfélags Reykjavik- ur flytur ræðu um skipu- lagsmál flokksins í þessu stærsta kjördæmi lands- ins. Með ræðu Sigurðar E. Guð- mundssonar lýkur þingstörfum á föstudag. Þingið hefst svo aftur laugardaginn 10. júni og verður dagskráin þann dag á þess lciö: Fyrir hádegi: Nefnda- störf. Þrjár nefndir munu starfa, — ein fjallar um landsmálin almennt, önnur um borgarmál og sú þriöja um skipulags- mál Alþýðuflokksins í Reykjavik. Eftir hádegi: 1. Benedikt Gröndal, varaformaður Alþýðu- flokksins innleiðir um- ræður með framsögu- ræðu. Ræðuefnið nefnir hann „Nýir tímar — breytt viðhorf". 2. Almennar umræður og afgreiðsla nefndarálita. Aætlað er, aö þessu fyrsta kjör- dæmisþingi Aiþýöuflokksins i Reykjavik Ijúki um kvöldmatar- leytiö á laugardaginn. 1 Alþýöublaöinu i gær var skýrt frá nöfnum þeirra, sem kosnir voru aöal- og varafulltrúar Al- þýöuflokksfélags Reykjavikur. Er nú veriö að tilkynna þeim svo og fulltrúum hinna félaganna um tilnefninguna og þingið. Þeir aðalfulltrúar, sem af ein- hverjum ástæöum ekki geta mætt, cru vinsamlega beönir aö láta skrifstofu Alþýöuflokksins vita um forföllin timanlega. fjölskyídunnar verlur farin sunnudaginn 11. júni n. k. frá Alþýöuhúsinu v/Hverfisgötu Ferðaáætlun: ALÞYÐUFLOKKSFELAG REYKJAVIKUR Lagtaf staðkl. 9. f.h. frá Alþýðuhúsinu v/Hverfisgötu. Ekið austur íGaltalækjarskóg og tekin upp nestispakki. Dr. Haraldur Matthiasson lýsir landi og sögu. Þá verður ekiðausturað Þórisvatni og framkvæmdir og áætlanir og mannvirki skýrð af kunn- ugum manni. Ennfremur mun Dr. Haraldur lýsa landi og sögu. A heimleið verður stanzað við Búrfellsvirkjun og hún skoðuð, og mun Dr. Haraldur hafa þar landkynningu, sem áður. Að lokum verður komiðað Ámesi í Gaulverjabæjarhreppi og borðaður kvöldverður. Þar flytur ávarp varaformaður Alþýðuflokksins Benedikt Gröndal, ennfremur verðureinsöngur, Guðlaugur Tr. Karlsson syngur.Auk þess mun hann stjórna fjölda- söng. Farseðlar kosta kr. 450,00 og er þar allt innifalið, svo sem ferðin,tvær máltíðir og gosdrykkir. Væntanlegir þátttakendur láti vinsamlegast vita sem fyrst í skrifstofur Alþýðu- fiokksins. Símar 15020 og 16724. Nú þegarervitað um mikla þátttöku, þar sem hér er um að ræða ódýra en glæsilega ferð. Nefndin. 0 Fimmtudagur 8. júní 1972

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.