Alþýðublaðið - 13.06.1972, Blaðsíða 3
ÍSLEIFUR KONRÁDSSON LÁTINN
islcifur Konráðsson, listmálari, iézt f Reykjavik s.l. föstudag, 83 ára að aldri.
tsleifur fæddist að Stað I Steingrimsfirði 5. febrúar 1889. Hann stundaði ýmis störf
framan af ævi, en lengst af var liann hafnarverkamaður i Reykjavik.
isleifur Konráðsson byrjaði ekki að mála fyrir alvöru fyrr en hann var kominn yfir
sjötugt, og bafði lagt erfiðisvinnu á hilluna.
isleifur hélt sfna fyrstu málvcrkasýningu 1962, en samtals hélt hann átta sýningar á
verkum sinum hér innanlands. Auk þess voru myndir eftir hann sýndar nokkrum sinn-
um á sýningum erlendis og fyrir skömmu voru myndir eftir hann á sýningu i Stokk-
hólmi.
ísleifur var algerlega ómenntaður sem listmálari, en gcrð mynda hans vakti strax
athygli og fylgja dæmi um myndlist naivista. —
LOFTARASIR
UMFRAM
FYRIRSKIPAHIR
Bandariski hershöföinginn
John D. Lavelle viðurkenndi i
gær, aö hann hefði á siðastliðnum
vetri gefið skipanir um loftárásir
á hernaðarleg mannvirki i
Norður-Vietnam i blóra við þær
skipanir, sem hann hafði fengið
frá varnarmálaráðuneytinu i
Washington. En Lavelle bætti þvi
við, að auðvelt væri að verja
þessar aðgerðir.
Lavelle heldur þvi fram, að
hann hafi gefið skipanir um
árásirnar á hernaðarleg mann-
virki i Norður-Vietnam, þar eð
mönnum hans hafi stafað hætta af
þeim.
Hershöfðinginn var leystur frá
störfum fyrir nokkru og hefur nú
verið settur á eftirlaun sem
þriggja stjörnu hershöfðingi, þó
að hann hafi áður veriö búinn að
öðlast nafnbót sem fjögurra
stjörnu hershöfðingi.
Lavelle var i marz kallaður
heim frá Vietnam, þar sem hann
hafði verið æðsti yfirmaður 7.
bandariska flugflotans og
skömmu siðar yfirgaf hann flug-
herinn.
Lavelle hefur verið kallaður
fyrir sérstaka undirnefnd
bandarisku fulltrúadeildarinnar,
sem á að rannsaka mál hans og
umræddar árásir, sem staðhæft
er, að Nixon forseti hafi ekki vitað
um, er þær voru gerðar.
Lavelle og hershöfðinginn John
D. Ryan gáfu i gær fyrstu skýrsl-
BRÆÐUR
RÆNDU
GULLINU
Tveir bræður, 15 og 17 ára
gamlir frömdu stórþjófnað um
helgina og stálu skartgripum að
verðmæti hvorki meira né minna
en rúmlega hálfa milljón króna.
Siöan stálu þeir bil i Reykjavik
og óku honum út fyrir bæinn, þar
sem þeir grófu megnið af þýfinu i
jörðu.
En á bakaleiðinni fór svo illa,
að þeir veltu stolna bilnum á
Vesturlandsvegi.
Upp komst um piltana, þegar
lögreglan fékk upplýsingar um
það, að skartgripirnir hefðu sézt i
fórum 15 ára piltsins.
Málið var kannað og játuðu þá
bræðurnir á sig þjófnaðinn á biln-
um og skartgripunum.
Fyrst brutust piltarnir inn i
bilaleiguna Bilaval og leituðu þar
fjármuna en árangurslaust.
Þá gripu þeir til þess ráðs að
brjótast inn um bakdyr bilaleig-
unnar, sem liggur inn i skart-
gripaverzlunina.
Hreinsuðu þeir siðan nær allt
fémætt úr verzluninni, fóru út á
bilastæðið við bilaleiguna og stálu
þaðan bilnum.
ur sinar um málið og voru skýr-
ingar þeirra mjög á sama veg.
Lavelle gaf skipanir um árásir
á hernaðarmannvirki i Norður-
Vietnam og sendi varnarmála-
ráðuneytinu skýrslu þess efnis, að
gerðar hafi veriö árááir i varnar-
skyni ( „protection reactions”),
og þetta sama orðalag notar
Pentagon um áframhaldandi
árásir, sem áttu að hafa verið
gerðar til að verja ameriskar
flugvélar við skotum frá eldflaug-
um Norðurvietnama,-
□ Nemendur i landsprófsdeild
Gagnfræðaskóla Akraness,
sendu Styrktarfélagi vangef-
inna nýlega kr. 5.000.- að gjöf,
sem bekkjarsystkinin höföu
safnað fyrir skólaferðalagi en
ákveðið siðan að færa félaginu.
Þessi gjöf er Styrktarfélaginu
mjög kærkomin i baráttu
félagsins fyrir bættum aðbúnaði
vangefinna.
□ Arið 1971 voru á vegum Skipa-
deildar fluttar samtals með eig-
in skipum og leiguskipum
385.979 smálestir skv. upplýs-
ingum frá Hirti Hjartar frkvstj.
Þetta er um 42 þús. smálestum
meira vörumagn en árið 1970.
Innflutningur minnkaði um
3.400 tonn.
□ Sumarstarf orlofsheimiia
B.S.R'B. að Munaðarnesi hófst
3. júni s.l. og er fullskráð i öll
hús fram i miöjan september. 1
fyrra sumar dvöldu á 4. þús.
manns i orlofsheimilum i
Munaðarnesi.
Auk orlofshúsanna eru þarna
tjaldstæði fyrir félagsmenn
B.S.R.B. og veitingaskáli, sem
er opinn fyrir alla ferðamenn.
□ Tuttugasta og ööru fulltrúa-
þingi Sambands islenzkra
barnakennara lauk siðdegis á
mánudag.
Stjórn sambandsins til næstu
tveggja ára var kjörin á þinginu
og eiga eftirtaldir sæti i henni:
Ingi Kristinsson, formaður,
Svavar Helgason, varaformað-
ur, Steinar Þorfinnsson, féhirð-
ir, Þorsteinn Sigurðsson, ritari,
Aslaug Friðriksdóttir, Guöni
Jónsson og Páll Guðmundsson.
□ Hinn 31. mai s.l. var lokið
lagningu raforkusæstrengs, 2,5
km að lengd yfir Patreksfjörð.
Strenglögnin var framkvæmd
af starfsmönnum Rafmagns-
veitnanna á Vestfjörðum, undir
umsjón framkvæmdadeildar
Rafmagnsveitnanna og með að-
stoð Vitaskipsins Arvakurs frá
Landhelgisgæzlunni.
Með þessari framkvæmd
verður Braðastrandarsýsla,
sunnan Patreksfjaröar, tengd
inn á samveitukerfi Vestfjarða.
ASHKENAZY ER STORA
STIARNAN A HATIDIHHI
Félagsstarf eldri borgara hef-
ur sent frá sér áætlun um sum-
arferðir, sem gilda fram á mitt
sumar.
I áætlun þessari kennir
margra grasa og eru þar helzt
skoðunarferðir á listasöfn og
ýmsa merkisstaði i Reykjavik,
svo og á staði hér á suður- og
vesturlandi, sem þekktir eru
fyrir fallegt umhverfi og mikla
náttúrufegurð.
Ef litiö er á þá staði sem
heimsóttir verða hér i Reykja-
vik, er fyrst að nefna Mynd-
listarhúsiö á Miklatúni, þar sem
Norræn málverkasýning stend-
ur yfir þessa dagana. Eftir að sú
sýning hefur verið skoðuð verð-
ur ekið til Bústaðarkirkju, þar
sem sýnd verður óperan Nóa-
flóð eftir Benjamin Britten.
Næsta skoðunarferð hér inn-
anbæjar verður svo i Kjarvals-
húsið á Seltjarnarnesi þar sem
skoðaðar verða mannamyndir
eftir Jóhannes Kjarval. Um
kvöldið verður svo sýning i
Þjóðleikhúsinu á Sjálfstæðu
fólki eftir Halldór Laxness.
21. júni verður skoðunarferð
i kirkjur i Reykjavik. Leikið
verður á kirkjuorgelin i 2—3
kirkjum. Þeirri ferð lýkur með
kaffidrykkju og kvikmyndasýn-
ingu i Félagsheimili Langholts-
kirkju.
Mánudaginn 26. júni er svo
skoðunarferð i tvö listasöfn,
þeirra Asgrims Jónssonar, list-
málara og Einars Jónssonar,
myndhöggvara. 3. júli verður
þjóðminjasafnið heimsótt.
Af þeim stöðum, sem heim-
sóttir verða úti á landi er að
nefna, Hveragerði þar sem farið
verður i Garðyrkjuskóla rikis-
ins að Reykjum. Búizt er viö
gosi úr Grýtu og komið við i
Eden. Þá verður farin ferð upp i
Borgarnes og nokkrum dögum
seinna grasaferð að Atlahamri i
Þrengslum. Sædýrasafnið og
Hellisgerði i Hafnarfirði verða
heimsótt 10. júli.
Allar þessar ferðir verða aug-
lýstar nánar, þegar að þeim
kemur, en upplýsingar og ferða-
pantanir eru á skrifstofu Fé-
lagsstarfs eldri borgara, Tjarn-
argötu 11, simi 18800.
Starfið i Tónabæ hefst svo aft-
ur i september i haust.
Miðasalan á Listahátið er alltaf
i fullum gangi i Hafnarbúðum, og
að sögn m iðasölustjórans,
Guðriðar Þórhallsdóttur, er salan
þokkaleg.
„Ashkenazy er greinilega
stjarnan okkar”, sagði hún þegar
við höfðum samband við hana i
gær, „það nægir að nefna nafnið
hans, þá er eins og tslendingar
eigi i honum hvert bein. Það var
alveg uppselt á tónleikana á
mánudagskvöldið, en fólk viröist
hafa komið auga á, að næsta tæki-
færi til að hlusta á hann er i kvöld,
þriðjudagskvöld, þegar hann spil-
ar undir hjá John Shirley-Quirk”.
Það hefur þó þvi miður ekki
selzt jafn vel á öll atriði Lista-
hátiöar, þannig varð t.d. að bjóða
meðlimum Norræna félagsins og
islenzkum kórfélögum afslátt á
aðgöngumiðum að tónleikum
sænsku útvarpshljómsveitarinn-
ar á þriðjudagskvöldið. Með þvi
tókst lika að fylla Laugardals-
höllina, „og ég held að enginn hafi
séð eftir þvi, að fara", sagði Guð-
riður.
Annars sagðist Guðriður hafa
orðið vör við að fólk hér telur sig
alltaf hafa tækifæri til að hlusta á
islenzka listamenn, en geri það
sizt á Listahátið.
Ekki hafa margir utan af lands-
byggðinni notfært sér þann afslátt
á fargjöldum, sem Flugfélag ts- ;
i lands hefur boðið, en þó hafa
nokkrir skilað sér á hátiðina.
Þá sagði Guðriður það mjög
áberandi, að miðar séu keyptir
! við innganginn, þegar viðkom-
í andi atriði se' að hefjast, og virðist
tslendingar frekar vilja fara eftir
skyndilegri hugdettu en kaupa
aðgöngumiða löngu fyrirfram.
Tvær sýningar eru eftir af Leik-
húsálfunum, og er við töluðum við
Guðriði var ekki alveg uppselt á
sýninguna i gærkvöld.
Ekki var Guðríður ánægð með
söluna á hljómleika André Watts,
semveru annað kvöld i Háskólabi-
ói, „við vildum gjarnan selja
meira á hann, — það er lág-
markskrafa þegar heimsfrægir
listamenn heimsækja okkur, að
fólk vilji koma”, sagði hún.
Tvö atriði hafa falliö niður,
þjóðdansasýning, sem útlending-
ar höfðu mikinn áhuga á, og jazz-
kantata Gunnars Reynis Sveins-
sonar og Birgis Sigurðssonar.
Verða aðgöngumiðarnir endur-
greiddir, en jazzkantatan verður
flutt i haust.
Að lokum má minna á
kammertónleikana i Austur-
bæjarbiói annaö kvöld og flutning
Edith Guillaume og Ingolf Olsen á
nútimatónlist i Norræna húsinu i
kvöld. Að sögn Guöriðar selzt
alltaf mikið við innganginn i
Norræna húsinu.
TIL GAMANS
FYRIR ÞÁ ELDRI
ÞETTA GERÐIST LÍKA
Þriöjudagur 13. júni 1972
o