Alþýðublaðið - 01.07.1972, Blaðsíða 1
alþýðu
DAGUR 1. JÚLí 1972
143. TBL.
NÚ GIFTIR ÞAÐ SIG
TIL SPARIMERKJA!
bað eru ýmsar leiðir, sem fólk
gripur til, þegar það er i fjár-
hagsvandræðum.
Leiðirnar til að verða sér úti
um peninga eru sjálfsagt ótelj-
andi, en algengast er, að fólk
leggi á sig meiri vinnu eða ein-
faldlega selji vixil i banka.
En það er til önnur leið og hún
er hreinlega sú, að gifta sig!
Alþýðublaðið hefur á skömm-
um tima haft spurnir af a.m.k.
fjórum svokölluðum „spari-
merkjahjónaböndum".
Fólk, sem enn hefur ekki náð
aldri til þess að leysa út spari-
merkin sin, hóar sig saman og
ákveður að giftast i snatri til
þess að geta leyst úr merkin.
Síðaner það fyrsta verkið eftir
vigsluna að leysa út sparimerk-
in og á eftir er haldin veizla,og
þá getur komið fyrir, að eigin-
konan kynni kærastann sinn
fyrir eiginmanninum.
PUNDIÐ
BÁGARA
Enn hallaðist á ógæfuhliðina
i gjaldeyrismálum Breta i
gær. Sterlingspundið lækkaði
áfram i vcrði i gær og siðdegis
var verðgildi þess fallið 6,8%
niður fyrir svokallað mið-
gengi.
Þegar hætt var að skrá
pundið fyrir viku siðan, var
það komið 5,5% undir mið-
gengi.
Nokkrar breytingar urðu á
verðgildi annarra gjaldmiðla i
gær. —
ÞAÐ VERDUR
SEn I KVÖLD
— hvar sem HANN verður
Flest bendir til þess, að Fischer
verði ekki viðstaddur setningar-
athöfn 37. heimsmeistaraein-
vigisins i skák, sem fram fer i
Þjóðleikhúsinu i kvöld.
Lothar Schmid
Hann var ekki kominn til lands-
ins, þegar Alþýðublaðið fór i
prentun i gærkvöldi og það var
álit allra, sem við höfðum tal af i
gær, að hann kæmi ekki fyrr en á
sunnudagsmorgun.
Framkoma hans hefur verið
Skáksambandi Islands mikill
höfuðverkur og þegar við heim-
sóttum skrifstofu sambandsins i
gærkvöldi var það að heyra á
mönnum, að þeir væru orðnir
dauðleiðir á Fischer.
Setningarathöfnin i Þjóðleik-
húsinu hefst kl. átta i kvöld á þvi,
að FIDE-óðurinn verður leikinn.
Þá flytur forseti Skáksam-
bandsins, Guðmundur G.
Þórarinsson, ávarp og strax að
þvi loknu Magnús Torfi Ölafsson,
menntamálaráðherra.
Siðan flytja sendiherrar Sovét-
rikjanna og Bandarikjanna ávörp
og þjóðsöngvar landanna leiknir
á milli.
Að þvi loknu flytur forseti
FIDE, dr. Max Euwe ávarp og á
eftir rennur sú stund, að dregið
verður um byrjunarleik i skák-
Framhald á bls. 6
ÞEIR FLYTA SER
HÆGT ÞAR SYÐRA
Það má með sanni segja að þeir
flýti sér hægt i Nigeriu. 1 allt vor
og sumar hafa hérlendir
skreiðarseljendur beðið eftir þvi
að Nigeriustjórn opni að nýju
skreiðarmarkaðina i Nigeriu.
Stjórnin i Lagos hefur hvað eft-
ir annað látið á sér skilja, að stútt
bið verði i leyfisveitunguna, en
. hún hefur sifellt dregist á langinn.
Nú siðast var að heyra á stórn-
völdunum að leyfið yrði veitt á
miðvikudaginn. Komu nigeriskir
kaupmenn hingað til viðskipta, en
leyfið er Jiins vegar ekki komið
ennþá.
Nú eru til i landinu rúmlega
2000 tonn af skreið, og verða engin
vandræði með að selja það magn.
Verðið á skreiðinni er nokkuð
hátt. En ef markaðurinn yrði
opnaður á ný, lægi aðalvinningur-
inn i framtiðarsölum á skreið til
Nigeriu.
F
.
ALLS EKKERT
ÁRENNILEGUR
Eflaust ættum við að birta
mynd af Fischer af tilefni dags-
ins — þetta er nánast orðinn
kækur hjá blöðunum —en nú er
þessi hlindingsieikur hjá mann-
inum samt hæltur að vera
skemmtilegur. Við birtum hér
mynd af öðrum iþróttagarpi i
staðinn sem er pannig utlus, ao
hann gæti vist varla leynst
garmurinn þó hann feginn
vildi. Myndin er eftir þýzkan
listmálara, Wolfgang Petrick að
nafni, og verkið heitir hvorki
meira né minna en ,,Bezti
markvörður i heimi”.
TAPREKSTUR Á RÆKJUNNI
MEÐ HRORNANDI PUNDI
Gengislækkun brezka
sterlingspundsins hefur haft i
för með sér nokkra röskun á
viðskiptum okkar við Bretland.
Það eru einkum rækjufram-
Íeiðendur sem fara illa út úr
gengislækkuninni, þvi þeir
höfðu nær allir samið um sölu á
allri rækjuframleiðslu sumars-
ins fyrirfram, og það á föstu
verði.
Verðið, sem samið var um, er
lágmarksverð, vegna undan-
gengins offramboðs á rækju-
markaðinum. Verðið tryggði
aðeins að rækjuiðnaðurinn héld-
ist gangandi, en varla meira en
það.
Gengislækkunin þýðir að
fyrirsjáanlegur taprekstur
verðurá rækjuiðnaðinum i sum-
ar, þvi Bretland er okkar stærsti
viðskiptaaðili.
Seinni hiuta ársins 1971 og
fyrri hluta þessa árs var mikið
offramboð á rækju á heims-
markaðnum. Rækja var þá ill-
Framhaid á bls. 6
ÍSLENZKT
UNDIRBOÐ?
Blaðið hefur það eftir
mjög áreiöanlegum
heimildum, að islenzk
fyrirtæki liafi reynt
undirboð á rækjumörkuð-
um i Bretlandi og viðar i
Evrópu.
Aðrir islenzkir rækju-
framleiðendur ha fa
fengið af þessu fregnir, og
lita þeir þetta mál mjög
alvarlegum augum. Hafa
þcir skrifað Viðskipta-
málaráðuneytinu og
beðið það að fylgjast náið
með þessu máli, og veita
Framhald á bls. 6