Alþýðublaðið - 01.07.1972, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 01.07.1972, Qupperneq 3
NÍU YFIR- HEYRÐIR VEGNA TEIGS- MALSINS Fyrir borgardómi er nú rekið staðfestingarmál vegna lög- bánnsins sem lagt var á fram- kvæmdir að Teigi i Mosfells- sveit i sambandi við vegarfram- kvæmdir þar. Eftir helgina verður lögð fram i málinu skoðunargerð dómkvaddra manna. 1 henni verður fólgin nákvæm lýsing á öllu jarðraski, sem hef- ur orðið i jörð Teigs. Niu manns hafa verið yfir- heyrðir vegna málsins og eru það bændur i nágrenninu og starfsmenn verktakafyrirtækja, sem vinna við veginn. Dóms verður að vænta siðar, en þess má geta að dómari málsins hefur haft mjög mikið að gera vegna þess og vann t.d. i þvi alla siðustu helgi. NÝJAR ÍTALSKAR RÉTT AD KOMA Nú mega neytendur búast við að fá betri kartöflur i matinn á næstu dögum. Kartöfluuppskera siðasta árs er alveg á þrotum og eru nýjar italskar kartöflur væntanlegar á markaðinn fljótlega eftir helg- ina. Af þessum sökum var viða lit- ið um kartöflur i verzlunum á höfuðborgarsvæðinu i gær. Þessar upplýsingar gaf Jón Ólafur Bjarnason hjá Græn- metisverzlun landbúnaðarins Alþýðublaðinu i gær. Kartöfluuppskeran á siðast- liðnu hausti reyndist óvenju mikil og var þá gert ráð fyrir, að ekki þyrfti að flytja inn erlendar kartotiur á 'þessu sumri. En vegna þess hve veturinn var mildur, reyndist erfitt að geyma kartöflurnar, og hefur talsvert mikið magn skemmzt. Er nú svo komið, að þær kart- öflur sem standast gæðamat eru á þrotum. Lögum samkvæmt má ekki flytja inn erlendar kartöflur, meðan enn eru til isl. kartöfl ur, sem standast gæðamat. Við skýrðum frá þvi i blaðinu i gær, að nýtingin á Upptöku- heimili rikisins væri furðulega litil miðað við þörf. Um átta mánaða skeið hefur húsið staðið litið notað og okkur reiknaðist til að nýtingin væri um 20% á þessu ári. Þetta kann að vekja furðu margra, sem lifað hafa I þeirri UPPTOKUHEIMIUD trú, að hér á landi vantaði ein- mitt slika stofnun. Við birtum i gær“ viðtal við forstöðukonu heimilisins, en eft- ir helgina birtum við hér f blað- inu það, sem einn hússtjórn- armanna hafði um málið að segja. SÖLUSKATTUR VERÐ- UR INNHEIMTUR MÁNAÐARLEGA Fjármálaráðuneytið hefur nú ákveðið með nýrri reglugerð, að framvegis verði söluskattur innheimtur mánaðarlega og fyrir einn mánuð i senn i stað þess að áður var skatturinn inn- heimtur annan hvern mánuð og þá fyrir tvo mánuði i senn. Verður þessi breyting að fullu komin til framkvæmda i októ- ber, en 25. þess mánaðar ber söluskattsgreiðendum i siðasta lagi að hafa greitt söluskatt fyr- ir septembermánuð. t fréttatilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu segir, að þessi breyting á innheimtu söluskatts sé i samræmi við afgreiðsiu fjárlaga 1973. Gjalddagi söiuskattsins verð- ur hinn sami og verið hefur, eða 15. dagur næsta mánaðar eftir uppgjörsmánuð. Hins vegar færist eindagi skattsins fram og verður 10 dögum eftir gjald- daga. Aður leið mánuður milli gjalddaga og eindaga. DÖ AF SLYSFÖRUM Sjöára drengur frá Ólafsfirði, Sigmar Kárason, lézt aðfara- nótt fimmtudagsins af völdum áverka, sem hann hlaut við að detta af hjóli daginn áður. SKDTSALA I SKULDADRÉFUNUM 1 gær, 29. júni, var lokið i Sviss útboði á skuldabréfaláni rikis- sjóði að fjárhæð 25 milljónir svissneskra franka, og gekk sala bréfanna vel. Lániðer tekið i þvi skyni aö breyta stuttum lánum rikissjóðs vegna Straumsvikurhafnar i löng lán, en leigugreiðslur Islenzka Álfélagsins af Straumsvikur- höfn munu standa undir vöxtum og afborgunum af láni þessu. 13TÍMA TðRNÍ BORGAR- DÚMI í dag hefst réttarhlé hjá dómstólunum og stendur það um tveggja mánaða skeið. Siðasta bæjarþing i Borgardómi Heykjavikur var háð á fimmtudag og þann dag, eins og reyndar er á hverju ári hreinlega ringdi málunum yfir embættið. Dómari hjá borgardómi sat samfleytt i þrettán klukku- stundir og þingfesti hvert málið á fætur öðru. Klukkan tiu um kvöldið voru þau orðin i kringum 350. Flest málanna eru smávægi- leg vlxla- og skuldamál. ÞSfl HVIN HÆST • • ÞEM GOMLU Oft hefur verið um það rætt, að frá þotuhreyflum stafi ekki að- eins mengun vegna útblásturs, heldur einnig vegna hávaða, i flugtaki og lendingu. Það kann þvi að koma mönnum á óvart sem Kormákur Sigurðs- son hjá heilbrigðiseftirlitinu sagði i viðtali við Alþýöublaöið i gær, að töluvert meiri styrkur er frá skrúfuvélum I flugtaki t.d. Douglas DC 6 en þotum, — það geti munað 10—20 decibetum. Kormákur, sem hefur þann starfa hjá heilbrigöiseftirlitinu að mæla hávaða á vinnustöðum og víðar, og að sjá um að úrbætur verði gerðar, sagði aö hávaöa- mælingar hefðu farið fram er fyrri þota Flugfélags tslands hóf sig á loft frá Reykjavikurflugvelli i fyrsta sinn, og þá hafi hávaðinn frá henni mælzt 50 decibel. Mælingarnar voru gerðar i Kópavogi, beint á móti flugbraut- arendanum, og þegar þotan var yfir ibúðarhverfinu var hún i 3000 feta hæð. Mesti munurinn á skrtlfuvéiun- um og þotunum, sagði Kormákur, er að þær siðarnefndu ræsa ekki hreyflana fyrr en þeim er gefið leyfi til flugtaks og hávaðinn stendur mjög stutt yfir, þær eru strax komnar i 3000 feta hæð. Skrúfuvélarnar þurfa hins vegar langan tima til að hita sig upp, og þar að auki eru þær mun lægra þegar þær fljúga yfir ibúöar- hverfin. Aftur á móti fer hávaöinn frá þotunum yfir hávaðamörkin ef Og ysinn í Austur- stræti er svipaður og hjá nágranna- þjóðunum mælt er fast við þær, þá mælist hann 130 decibei. Þá hefur Kormákur gert hávaðamælingar i Austurstræti, og niðurstöðurnar sýna, að há- vaðinn frá umferöinni er mjög svipaöur og gengur og gerist I ná- grannalöndunum. Algengast er, að þegar umferð er mest sé hávaöinn i kring um 70 decibel. Hann hefur þó mæizt allt upp I 90 decibel, ef er hveliflautaö eða gefið skyndilega inn á kraft- miklum bilum. Svipaöa sögu er að segja á stór- um umferöargötum eins og Miklubraut og Hringbraut, þar hefur hávaði frá bilum mæizt upp I 90 decibel. Aftur á móti sýndu mælingar, sem voru geröar inni i húsi bifreiðastöövar Steindórs, á mntum Austurstrætis. Aðalstræt- is og Hafnarstrætis, ekki nema 40—50 decibel, sem alls ekki er taliö óeðlilegt. Til samanburöar má geta þess, að ekki er taliö skaðlegt að átta tima á dag fimm daga vikunnar sé hávaðinn allt að 85 decibelum á vinnustað. Hlupu Mývetningar á sig í botnsmálinu Um þessi mánaðamót var væntanlegur dómur i eignar- dómsmáli Veiðifélags Mývetn- inga vegna eigenda og ábúenda jarða við Mývatn um eignarrétt að botni Mývatns og þar meb eignarrétt á botnefnum vatnsins og veiðiréttindum i þvi. 1 gær brá svo við, að dómarar málsins gáfu aðilum kost á þvi að FYRIR SUM BORN KOSTAR SVEITASÆLAN 6500 A MÁNIIRI Það getur verið dýrt að þekkja engan i sveitinni, þegar koma þarf Reykjavikurbörnum til sumardvalar. Bændur, sem taka að sér börn af vandalausum, þiggja 6500 krónur á mánuði fyrir vikið, þannig að tveggja mánaða dvöl borgarbarna i sveit kostar 13000 krónur. Alls eru 68 sveitaheimili, aðal- lega i Skagafirði og Húnavatns- sýslunum, sem taka að sér Reykjavikurbörn á þennan hátt, og það gerist fyrir milligöngu barnaverndarnefndar. Ingólfur Hjartarson hjá barna- verndarnefnd sagði i viðtali við Alþýðublaöið i gær, að i fyrra hafi nefndin haft milligöngu með að koma 144 börnum i sveit á þessi heimili, og i ár sé talan eitthvað svipuð, en ekki sé búið að taka hana saman. 1 mörgun þeim tilfellum, sem barnaverndarnefnd hefur afskipti af, er um að ræða fjárhagsvand- ræði á heimilum, en þá sér nefnd- in um að greiðadvalarkostnaðinn að hluta, eða fullu, ef erfiðleikar eru miklir. Barnaverndarnefnd sér aðeins Um að útvega börnum á aldrinum 6—11 ára sumardvöl á þennan hátt. Þessi umræddu heimili taka yfirleitt ekki fleiri en 2—3 börn h<'ert, en þau eru lika mörg sem taka 10—15 börn, en það er i verkahring menntamálaráðu- neytisins að hafa eftirlit með þeim, og þá er krafizt sérstaks starfsfólks til að sjá um börnin, Ingólfur sagði, að eftirlit með þessum heimilum öllum sé strangt, og m.a. reyni þeir að senda fulltrúa sinn á hvert heimili a.m.k. einu sinni á sumri. En þegar um er að ræða eldri börn, þ.e. á aldrinum 12—15 ára, er algengast að þeim sé útveguð sveitavist i gegnum Ráðninga- stofu bænda. Þar fengum við þær upplýsing- ar, að i vor hafi yfir 500 umsóknir borizt um sveitavist, en 380 bænd- ur hafa snúið sér til skrifstofunn- ar til að fá vinnukraft á þessum aldri. afla upplýsinga um það hvort þeir hefðu raunverulega gert sér grein fyrir þvi hvaða afleiðingar dómur i málinu gæti haft. 1 úrskurði, sem kveðinn var upp i gær vegna málsins, segir meðal annars, að eftir munnlegan flutn- ing málsins og dómtöku þyki dómendum verulega bresta á skýrleik i upplýsingum um tiltek- in atriði. Af þessari ástæðu þyki þvi óhjá kvæmilegt að endurtaka málið til frekari gagnaöflunar. Meðal gagna, sem aðilum er gefinn kostur á að afla er eftirfar- andi: „Upplýsinga um, hvort eigend- ur og ábúendur allra jarða, sem Iönd eiga að Mývatni, geri sér þess fulla grein að i stefnu er þess krafizt, að allur botn Mývatns, jafnt nær sem fjær landi ein- stakra jarða, skuli dæmdur óskipt sameign allra strandjarðanna og hvort sömu aðilar geri sér ljóst, að i slikri kröfugerð kynni að fel- ast afsal séreignarrétta einstakra jarða að tilteknum svæðum vatnsborðsins, ef kröfur stefn- anda næðu fram ab ganga. 2. upplýsinga um, hvort allir framangreindir aðilar, eigendur og ábúendur óski fyrirvaralaust Framhald á bls. 6 ENN ALLT A HULDU UM VELINA Leitin að dönsku tveggja hreyfla flugvélinni sem i gær var saknað á leibinni milli Fær- eyja og Islands, hafði engan á- rangur borið i gærkvöldi. Engin visbending hefur enn fengizt um örlög vélarinnar og fólksins, sem með henni var. Með flugvélinni var fjögurra manna færeysk fjölskylda, Sveinn Patursson, tannlæknir, eiginkona hans og tvö börn. Fjölskyldan hefur verið búsett i Danmörku og þar hófst feröa- lagið áleiðis til Islands. Mun Sveinn hafa ætlað að taka þátt i þingi norrænna tannlækna, sem nú stendur yfir i Reykjavik. Til Færeyja kom flugvélin i góðu veðri á fimmtudagsmorg- un að sögn Halldórs Jóhanns- sonar, fréttaritara Alþýðu- blaðsins i Þórshöfn i Færeyjum. Flugvélin er með dönsku skráningarnúmeri og mun Sveinn hafa tekið hana á leigu til Islandsferðarinnar. Leitinni að hinni týndu flugvél var haldið áfram úr lofti og af sjó i gær. Margar flugvélar tóku þátt i leitinni i gær, þar á meðal tvær vélar frá varnarliði Bandarikjamanna á- Keflavik- urflugvelli og vél flugmála- stjórnarinnar. Hin siðastnefnda leitaði aðal- lega meðfram suðurstöndinni, en þar voru leitarskilyrði slæm i gær. A fimmtudagskvöldið hófu slysavarnasveitir leit á landi og leituöu þær fram undir morgun i gær, en án árangurs. Fólk i grennd við Hornafjörð hélt sig hafa heyrt flugvélar- hljóð um klukkan 12.30 á fimmtudag, en ekki hefur tekizt Framhald á bls. 6 XD Laugardagur T. júlí 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.