Alþýðublaðið - 04.07.1972, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 04.07.1972, Blaðsíða 12
KQPAVOGS APQTEK Opiu öli kvöld til kl. 7. Laugardaga til kl. 2. Sunnudaga milli kl. 1 og FIÍLSAR FISCHER VID TÆP- UM ÁTJÁN MILUÚNUM? Fúlsar Robert Fischer viö sautján milljónum fimmhundruð niutiu og fimm þUsund krónum, sem honum bjóðast fyrir að tefla og sigra i heimsmeistaraein- viginu i skák við Boris Spasski? Þessari spurningu mun Fischer sjálfsagt hafa velt vandlega fyrir sér i gær, þar sem hann leyndist einhvers staöar i New York borg, en svarið lá ekki fyrir i gær Svari hinn dutlungafulli skák- meistari þessari spurningu neitandi og verði hann ekki. kominn til Reykjavikur klukkan jólf á hádegi i dag tilbUinn til þess að hefja fyrstu einvigisskákina við Boris Spasski klukkan 17.00, er einsýnt að „einvigi aldarinn- ar” verður ekki háð i Reykjavik. Brezkur fjármálamaður, James Slater að nafni, hefur boðizt til að greiða Ur eigin vasa 50 þUsund sterlingspund i viðbót- arverðlaun vegna heims- meistaraeinvigisins i skák. Segist Slater vilja greiða þessa háu upphæð, sem nemur tiu milljón- um og átta hundruð þUsundum islenzkra króna, til þess að freista þess, að Fischer komi til Islands og tefli þar við Boris Spasski eins og ráð var fyrir gert. Tilboði þessu kom hinn brezki fjármála- maður á framfæri við Fischer fyrir milligiingu Marshalls lög- fræðings stórmeistarans. Slatler gerði samtimis dr. Euwe, forseta Alþjóðaskáksambandsins grein fyrir tilboði sinu. Eftir þvi sem Alþýðublaðið kemst næst getur Fischer sam- kvæmt tilboði brezka fjármála- mannsins valið um tvennt: — að sigurvegarinn i einviginu fái um- rædd 50.000 sterlingspund, eða 10,800.000.00 islenzkar krónur ,,Mér þykir svo vænt um þennan mann. Ég gat næstum þvi grátið, hann var svo yndis- legur,” sagði ein af flug- freyjunum, sem voru i Flug- félagsvélinni, sem flutti heims- meistarann i skák, Boris Spasski hingað til lands. Þrátt fyrir það að bUið væri að taka frá sérstaklega afmörkuð sæti fremst i þotunni fyrir heims- meistarann og fylgdarmenn hans, þá laumaöist hann óséður i sæti aftarlega i þotunni og helzt vildi hann fá að borga veitingarnar eins og hinir far- þegarnir. ()g á þvi leikur enginn vafi, — þetta er viðhorf hvers einasta íslendings i dag. Eftir það sem gerzt hefur þessa undarlegu helgi er vart til sá Utlendingur, sem þjóðinni þykir vænna um, en þessi lágvaxni geðþekki Sovétmaður. Að sama skapi er álit allra á Bobby Fischer á annan veg. Hvar sem komið er, við hvern sem er rætt, þá er umræðuefnið alls staðar eitt og hið sama, framkoma Fischers. Þessi framkoma hefur svo sannarlega ekki farið fram hjá heimspressunni. Þvi hér i óskiptar, — eða þessi upphæð bætist við áður ákveðna verð- launaupphæð (125.000 dollara) og skiptist hUn siðan milli keppenda eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Fyrri kosturinn felur i sér, að sigurvegarinn fái i verðlaun 17.595.000.00 isl. krónur. Siðari kosturinn felur hins vegar i sér, að sigurvegarinn fái Reykjavik voru fyrir helgi komnir um það bil 70 erlendir blaðamenn, og eitthvað fjölgaði þeim um helgina. Inni i bæki- stöð Skáksambands tslands i HátUni 4 var á laugardags- morgun orðin sérstök og spennt stemning. Vangaveltur liðinna daga voru ekki lengur þægilegt krydd i fréttirnar af undir- bUningi einvigisins, sem dag- lega voru sendar héðan til fréttastofa, dagblaða og annarra fjölmiðla um allan heim. Spurningin var orðin raunveruleg: Kemur Fischer kannske ekki? Um kvöldið átti setningar- athöfnin að fara fram i Þjóðleik hUsinu og þar átti að draga um hvor hefði hvitt, hvor svart. Þær voru þvi orðnar æði margar spurningarnar, sem fréttamenn höfðu fram að færa þegar Guð- mundur Þórarinsson og aðrir forstöðumenn skáksambands- ins héldu blaöamannafund á Hótel Sögu á 15. timanum á laugardaginn. Kvikmyndavélar suðuðu og ljósmyndarar i tugatali sveimuðu umhverfis forseta S.í. þegar hann tilkynnti liðlega 100 fréttamönnum að hann gæti 13.550.00 krónur i verðlaun, en sá, er tapar einviginu, hljóti 8.100.000,00 isl. krónur. Þó að þessar upphæðir séu hér i islenzkum krónum, skal þess getið, að verðlaunin verða að sjálfsögðu greidd i dollurum og sterlingspundum, ef af einviginu verður. Guðjón Ingi Stefánsson, fram- Framhald á bls. 4 ekki rofið samning sem skák- sambandið hefði gert um einka- rétt á birtingu leikja, leik af leik. Skerðing á ritfrelsi? „Nei,” svaraði Guðmundur Þórarins- son. ,,En ég neitaði að skrifa undir yfirlýsinguna," sagði UPI maðurinn og spurði: „Verður mér þá ekki hleypt inn i höllina?” „Það verður engum neitað um að komast inn i höllina, en ég get ekki ábyrgzt að þeir sem neita að skrifa undir fái aðstöðu til að simsenda fréttir þaðan,” var svarið. Þannig gekk fundurinn. Og þannig leið dagurinn og um kvöldið kom ekki til þess að fresta þyrfti setningarathöfn- inni. Þvi það hafði nefnilega verið tekið fram, að ef Fischer kæmi um kvöldið yrði þeirri athöfn og boði menntamálráð- herra frestað um tvo tima, svo skákmeistarinn gæti verið með. Þvi eins og á stóð reiknuðu allir með að það væri Sabbath, sem seinkað hefði komunni, — strax og hinn trúarlegi hvildar- hluti laugardagsins væri Ur sög- Kramhald á bls. 4 Peningarnir skiptu þá öllu máli. Fischer tók tilboði brezka auðkýfingsins i gærkvöidi og sagði það stórkostlega gott og hann væri á leið til islands. Var gert ráð fyrir, að hann kæmi mcð einhverri af þremur Loftleiðavélum, sem ienda áttu i Keflavik snemma i morgun. — HEIMSPRESSAN A „TERIUNNI” BEÐIÐ EFTIR FRÉTTINNI - OG FISCHER uuu uic nru iiui There is no time to write a long from a box of medicaí stores given uitrerson re. Salisbury page 2 - ■ t ■ ■■—r%wmw»nnth1ttg more than a weekend protest Fischer: deep depression over Iceland TIIE ODDS against Amencan chess master Bobby Fischer turning up for his world championship series in lceland ivith Boris Spassky lengthened yesterday to against n- Bobby Fischer, the American chess genius, cancelled his first plane reservation. He was u *u 'r' his denarture from New York, the denroc"* 1 * * * *- deepeir6^88*****^—*'&*** bes of ( 1-STILL NO , fíein« ^egotiated M0VE BYy ElusiveFisc ei’ eEw^/ "no ^1 ^ 1 come in his oyvn good time. Ap/L Yted, establish- -^QXth. By ^gat Ár/i Vej 1 ^íl /jomand "9 in Reykjavik/ fof^ NLY hours bef>/

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.