Alþýðublaðið - 14.07.1972, Side 5

Alþýðublaðið - 14.07.1972, Side 5
HAIþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sighvatur Björgvinsson (áb) Aðsetur ritstjórnar Hverfisgötu 8—10. — Sími 86666. Blaðaprent h.f. Ungt fólk og stjórnmál í nýútkomnu FUJ blaði er grein um þann doða, sem virðist einkenna stjórnmálastarf ungs fólks nú á dögum og þá deyfð, sem stórir hópar þess virðast haldnir í sinnuleysi þess áfanga til velferðarbióðfélaasins, sem náðst hefur. Greinin fer hér á eftir: ,,Hver kannast ekki við að hafa heyrt sönginn, sem er eitthvað á þessa leið: — Ég hef engan áhuga á stjórnmálum og læt mig þau engu skipta. Öll póli tík er hundieiðinleg og kemur mér ekkert við! Það er alveg sérstakur óhugnuður yfir þvílíkum yfirlýsingum, af því að á bak við þær felst andlegur sjúkdómur, sem í vaxandi mæli grefur um sig í öll- um lýðræðislöndum, og þá ekki sizt i hinum svo- kölluðu velferðarríkj um. I einræðisrikjum verða aftur á móti allir að vera andlegir trjádrumbar. Hér er á ferðinni þessi botnlausi dauðadofi, sem stendur i þeirri meiningu, að hvers konar þjóðfé- lagsumbætur spretti ósán- ar upp úr jörðinni í stað þess að verða til fyrir skipulagðar samfélagsað- gerðir og baráttu þeirra manna, sem gera sér Ijóst, að stjórnmál hafa verið, eru og verða um alla tíð óaðskil janlegur hluti af mannlegum sam- skiptum, illum og góðum. Það er þessi sama and- lega lömunarsýki, þar sem hún starir sægrænum augum í hyldjúpu skiln- ingsleysi og spyr: — Skyldi manninum ekki leiðast að láta krossfesta sig? Lýðræðið í heiminum á ekki sjö dagana sæla. Að því er sótt úr öllum áttum. En mesta hættan er þvi ef til vill búin innan frá, — frá okkur sjálfum sem njótum þess á hverjum degi i óendanlega ríkum mæli, án þess að okkur sé það stöðugt Ijóst, að lýð- ræðisþjóðfélag stendur því aðeins, að það sé skip- að hugsandi fólki, sem hvort tveggja í senn gerir sér grein fyrir hlutverki og völdum einstaklingsins og hirðir um að nota þau af fullri ábyrgð hverju sinni. Alls staðar eru fyrir hendi ákveðin öfl er sæta lagi að hrifsa til sín þau völd, sem lýðræðið hefur úthlutað okkur hverjum og einum, ef okkur þókn- ast ekki að gæta þeirra og fara með þau sjálf. Sú hætta verður að sama skapi mefri sem fleiri loka sig inni í þessu sauðahúsi afskiptaleysisins í þeirri fávísu trú, að stjórnmál komi þeim ekkert við. En hér á unga fólkið sinn óplægða akur. Það á að láta þjóðfélagsmálin til sín taka á þann hátt að ekki verði fram hjá því gengið. Þau koma unga fólkinu við í ríkara mæli en nokkrum öðrum. Það er unga fólkið, sem á að erfa landið og þjóðfélag- ið, eins og svo oft og fall- ega er komist að orði. Þess vegna á það þegar í stað að leggja hönd á plóginn, — draga einnig sína drætti á ásjónu þess samfélags, er um ókomin ár mun fyrst og fremst horfa við þeim, sem nú eru ungir. Það þarf engan veginn að útleggjast þannig, að ekki sé virt og þegin handleiðsla hinna eldri og reindari. Unga fólkið get- ur hins vegar ráðið geysi- miklu um þá handleiðslu og hefur til þess bæði menntun og þroska, um- fram allar ungar kynslóð- ir, sem lifað hafa i þessu landi. Ungt fólk er i eðli sinu heilbrigt, hreinskilið og heiðarlegt. Þess vegna á það ekki að láta bjóða sér pólitíska spákaup- mennsku, skrum og lodd- arabrögð sem góða og gilda vöru. En það má ekki gerast á þann veg að afskrifa öll stjórnmálaaf- skipti á þeirri forsendu, að þau séu hundleiðinleg og komi þvi ekkert við, held- ur með þeim hætti að ganga tii verks, — að segja lýðskruminu strið á hendur og taka virkan þátt i heilbrigðu þjóð- málastarfi og félagslegri mótun framtíðarlands- ins". Sl. haust endurvakti sjórn FUJ i Reykjavik útgáfustarfsemi sina. Fyrst voru gefin út tvö fjölrituð blöð, sem bæði komu út i desem- ber. Siðan var hugsað hærra og ráðist i útgáfu prentaðs blaðs og kom fyrsta tölublað þess út i des- ember og bar nafnið FUJ blaðið. Nú i júli kom út annað tölublað, mjög vandað að efni og frágangi sem hið fyrra. Efni þess er m.a. Hugleiðing um 1. maí, Viðhorf eldri kynslóðarinnar eftir Sigurð E. Guðmundsson, Sannleikurinn um sósialistaflokkinn, grein um Marx og Engels, grein um stofn- un Sambands ungra jafnaðar- manna, greinarnar Frelsi og æska littu þér nær. t grein um útgáfuna segir, að ákveðið sé að blaðið komi út fjór- um sinnum á ári og fyrirhugað,,að það verði 20 blaðsiður i hvert sinn. Ennfremur segir: ,,Blað, sem þetta á ekki að þurfa að vera félaginu fjárhagsleg byrði, og á þvi að geta komið reglulega út, ef ungir jafnaðarmenn og aðrir vel- vildarmenn félagsins leggjast á eitt um að auðvelda útkomu þess.” Alþýðublaðið vill fyrir sitt leyti taka undir þær óskir ritnefndar, að sem flestir virði þessa viðleitni ungra jafnaðarmanna til að end- urvekja rofin tengsl og gerist áskrifendur blaðsins. Afgreiðsla þess er á skrifstofu Alþýðuflokks- ins. Ritsjórar FUJ blaðsins eru Sigurður Blöndal og Óskar Þrá- insson. VID BJÖDUM EINA ÚDÝRUSTU SUMARLEYFISFERD ARSINS . Í'A m [1 gj Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur getur boðið félagsfólki sínu og flokksbundnu Alþýðuf l.fólki annars staðar á landinu eina ódýrustu sumarleyfisferð ársins til útlanda. Hér er um að ræða tveggja vikna ferð til Kaupmannahafnar. Farið verður 7. sept n.k. Frá Kaupmannahöfn er svo ráðgerð hópferð til Rínarlanda, sem þeir geta tekið þátt í, sem þess óska. Þar eð þátttakendur í ferðinni geta hagað dvöl sinni i Kaupmannahöfn og ferðum sínum ytra eftir vild er þessi ferð kjörin fyrir alla þá, sem kjósa að ferðast upp á eigin spýt- ur og eins þá sem eiga gistingu visa hjá vinum eða skyldfólki í Kaupmannahöfn. Allar nánari upplýsingar um ferðina má fá hjá Ferðaskrif- stofunni Sunnu, símar: 16400, 12070 og 26555 eða á skrifstofu Alþýðuflokksins i símum 15020 og 16724. Alþýðuflokksfélag Reykjavikur. © Föstudagur 14. júli 1972

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.